Morgunblaðið - 05.04.1995, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDÁGUR 5. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
i
Sljórn Haydars Aliyevs í Azerbajdzhan
Pólitískar hand-
tökur hafnar
Bakú. Reuter.
HAYDAR Aliyev, forseti Az-
erbajdzhans, hefur hafið herferð
gegn pólitískum andstæðingum sín-
um og margir þeirra hafa verið
handteknir frá því stjórnarherinn
kvað niður vaidaránstilraun sér-
sveita innanríkisráðuneytisins 17.
mars.
Stjórnarandstæðingar og erlend-
ir stjómarerindrekar í Bakú segja
að tugir andstæðinga Aliyevs hafí
verið handteknir. „400 manns hafa
verið handteknir á síðustu vikum.
Sumir þeirra hafa verið látnir laus-
ir en aðrir em enn í fangelsi," sagði
vestrænn stjórnarerindreki.
Vafa Gulizade, ráðgjafi forset-
ans, neitaði því ekki að stjórnmála-
menn hefðu verið handteknir en
sagði það ekki mikið tiltökumál.
„Imyndið ykkur hvað myndi gerast
ef valdarán yrði reynt í Bandaríkj-
unum. Fjölmargir yrðu handteknir.
Kannski em einhveijir þeirra
glæpamenn, aðrir kannski saklaus-
Dagblöð ritskoðuð
Azerskir embættismenn hafa
sagt að Þjóðfylkingin, helsti stjóm-
arandstöðuflokkurinn, og fleiri
flokkar hafí staðið á bak við valda-
ránstilraunina.
Deilur um
Færeyjabanka
Lausn sögð
í augsýn
Þórshöfn, Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
BJÖRN Westh, dómsmálaráðherra
Dana, var í Færeyjum um helgina í
von um að geta leyst deilu Dana og
Færeyinga um rannsókn á yfirtök-
unni á Færeyjabanka. Með í fartesk-
inu hafði hann tillögu til lausnar en
ekki búist er við að Færeyingar taki
þegar í stað afstöðu til hennar.
Jóhannes Eidesgaard, fjármála-
ráðherra Færeyinga, sagði á mánu-
dag að tillögur Westh kæmu mjög
til móts við óskir Færeyinga og væri
ráðlegast að samþykkja þær. „Ef við
sættum okkur ekki við rannsókn af
þessu tagi er hætta á að ekki verði
gerð nein rannsókn", sagði hann. í
tillögu Westh er gert ráð fyrir að
allir málsaðilar, þ. á m. Den Danske
Bank, afhendi öll gögn sem tengjast
málinu. Færeyingar teija að þeir
hafi tapað miklu fé á yfírtökunni.
Asim Mollzade, varaformaður
Þjóðfylkingarinnar, sagði að 83 fé-
lagar í flokknum hefðu verið hand-
teknir. Dagblöð stjómarandstæð-
inga hafa einnig verið ritskoðuð og
Mollzade kvaðst óttast að harkaleg-
ar aðgerðir gegn hvers konar and-
ófí væru í undirbúningi.
Aliyev stjórnaði Azerbajdzhan
með harðri hendi á sovéttímanum
og var vikið úr stjórnmálaráði sov-
éska kommúnistaflokksins árið
1987 vegna tregðu við að fram-
fylgja stefnu Míkhaíls Gorbatsjovs.
Aliyev komst til valda aftur árið
1992 eftir að herinn steypti þjóð-
kjömum forseta, Albufaz Elchibey.
Liðsmenn Búrúndíhers sakaðir um fjöldamorð á hútúum
Tútsar myrða hundr-
uð barna osr kvenna
nrn. Rí»ntí»r.
Bujumbura. Reuter.
UM 400 hútúar, aðallega konur
og börn, vom drepnir í bænum
Gasorwe í norðausturhluta Búr-
úndí eftir að hafa verið haldið í
gíslingu í síðustu viku, að sögn
stjómarerindreka í landinu. Óstað-
festar fregnir herma að fjöldamorð
hafí einnig verið framin í tveim
þorpum í austurhlutanum.
Talsmaður hers Búrúndís kvaðst
ekki vita með vissu hversu margir
hefðu verið drepnir í Gasorwe en
taldi þá hafa verið um 20. Fjögur
börn, sem særðust alvarlega í árás-
inni, voru á sjúkrahúsi og Robert
Kraeger, sendiherra Bandaríkj-
anna í Búrúndí, heimsótti þau.
Hann kvaðst telja að meira en 400
manns hefðu beðið bana og lang-
flest fórnarlambanna hefðu verið
konur og börn.
Hútúar taldir hefna sín
Reuter
FAÐIR og afi drengs, sem lifði af fjöldamorð í Búrúndí í síð-
ustu viku, standa hjá honum á sjúkrahúsi. Drengurinn höfuð-
kúpubrotnaði þegar tútsar börðu hann með gijóti.
Kraeger sagði að foreldrar barn-
anna hefðu haft eftir þeim að liðs-
menn Búrúndí-hers hefðu framið
morðin. Fómarlömbin voru öll
hútúar og herinn er aðallega skip-
aður tútsum, sem era í minnihluta
í Búrúndí.
„Við getum búist við því að
vopnaðir hútúar hefni þessara
fjöldamorða á næstunni," sagði
vestrænn stjómarerindreki. „Þeir
hafa ekki vel skipulagðar skærul-
iðasveitir en þeir geta hefnt sín.“
Talið er að fjöldamorðin hafi
orðið til þess að 50.000 Rúanda-
menn flúðu frá búðum sínum í
Búrúndí um helgina og reyndu að
fara yfir landamærin til Tanzaníu.
Þeir era á meðal hundraða þúsunda
hútúa sem flúðu óöldina í Rúanda
í fyrra þegar allt að milljón tútsa
og hófsamra hútúa var drepin.
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna hvatti stjómvöld í Búr-
úndí til að vemda rúandísku flótta-
mennina betur. Stjórn Tanzaníu
varð ekki við beiðni stofnunarinnar
um að opna landamærin að nýju,
en þeim var lokað um helgina til
að koma í veg fyrir að rúandíska
flóttafólkið kæmist til landsins.
Reuter
Mótmæla
vatnsskorti
ÞÚSUNDIR íbúar höfuðborgar
Bangladesh, Dhaka, gengu um
götur í gær með tóm vatnsílát
til að mótmæla skorti á
drykkjarvatni. Ástæða vatnss-
kortsins er sögð sú að ekki hef-
ur komið dropi úr lofti svo vik-
um og mánuðum skiptir.
♦ »
Varnarmálaráðherra Kennedys forseta
Víetnam-stríðið
„ægileg mistök“
Washington. Reuter.
ROBERT McNamara, sem var
varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna er Víetnam-stríðið
hófst, telur að gerð hafi verið
„ægileg mistök“ I tengslum við
þátttöku Bandaríkjamanna í
átökum Saigon-stjórnarinnar
og kommúnista. Úskýra verði
þessi mistök fyrir komandi
kynslóðum. Þetta kemur fram
í væntanlegum endurminning-
um McNamara sem er 78 ára
gamall.
Vikuritið Newsweek mun á
næstunni birta útdrátt úr bók-
inni. McNamara var varnar-
málaráðherra á stjórnarárum
forsetanna Johns Kennedys og
Lyndons Johnsons er báðir
voru demókratar.
Ráðherrann fyrrverandi hef-
ur oft verið sakaður um að
hafa ekki gert nóg til að reyna
að binda enda á stríðið fyrr en
raunin varð. Árið 1973 lauk
ríkisstjórn repúblikanans Ric-
hards Nixons þátttöku Banda-
ríkjanna í stríðinu, tveim árum
síðar sigruðu kommúnistar og
tóku öll völd í Víetnam.
Áður hefur komið fram opin-
berlega að McNamara sann-
færðist um það þegar haustið
1966 að Bandaríkjamenn, er
sendu fyrstu hermenn sína á
vettvang 1963, og vopnabræð-
Robert McNamara
ur þeirra i Suður-Víetnam
myndu ekki geta unnið hernað-
arsigur á kommúnistum. Út á
við fullyrti McNamara hins
vegar að styijaldarreksturinn
gengi vel.
Flugslysið við Búkarest
Flugmenn kvörtuðu
undan bilun
Brussel. Reuter.
FLUGMAÐUR rúmensku þotunnar
sem fórst rétt eftir flugtak í Búkar-
est sl. föstudag kvartaði um tækni-
vanda rétt áður en samband flugvél-
arinnar við flugtum rofnaði, að sögn
belgíska blaðsins Le Soir.
Blaðið kvaðst hafa komist yfir
afrit af samtölum í flugstjórnarklef-
anum og samskiptum flugmanna við
fiugtuminn.
„Það er eitthvað að þessum,“
sagði flugmaðurinn og er sagður
hafa átt við einhveija bilun sem fram
hefði komið á mælaborði þotunnar.
Hún var af gerðinni Airbus og í eigu
rúmenska flugféiagsins Tarom.
Steyptist hún til jarðar nokkrum
mínútum eftir flugtak og fórust með
henni 60 manns.
Rúmenska blaðið Libera vitnaði
einnig í afrit af samtölum flugmann-
anna og sagði að á einum stað, rétt
í
í'
€
€
í
t.
1
1
Skotar sáu
ekki Major
C:.;
t
London. Reuter.
BBC-sjónvarpsstöðin tapaði í gær
máli sem hún hafði höfðað til að
fá leyfi til að sjónvarpa viðtali við
John Major, forsætisráðherra Bret-
lands, í skoska sjónvarpinu. Ástæð-
an er sveitarstjómarkosningar í
Skotlandi sem fram fara á morgun,
fimmtudag en skoskur dómstóll
taldi að frambjóðendur íhalds-
manna myndu njóta góðs af og því
gætti sjónvarpsstöðin ekki hlutleys-
is í tengslum við kosningarnar.
Viðtalið, sem var 40 mínútna
langt, var sýnt á Englandi og í
Wales en Skotum stóð á meðan til
boða gömul heimildarmynd.
Hefur sjónvarpsstöðin verið
gagnrýnd harðlega af andstæðing-
um íhaldsmanna vegna þessa. Ge-
orge Robertson, talsmaður Verka-
mannaflokksins í málefnum Skot-
lands, sagði BBC hafa farið út á
ystu nöf.
í.
c;
í
c
í
í
í
6
fyrir brotlendinguna, hefði flugmað-
urinn hrópað: „Hvur skrambinn er
að gerast þarna aftur í.“
Sérfræðingar sem vinna að rann-
sókn slyssins kanna m.a. hvort
sprenging hafí orðið um borð. Að
sögn Le Soir virðist trúin á þá kenn-
ingu fara þverrandi þó ennþá hafi
hún ekki verið afskrifuð. Sagði belg-
íska fréttastofan Beiga að sérfræð-
ingar væru farnir að hneigjast meira
að því, að bilun hefði orðið í flugvél-
inni sjálfri.
Nauðlent í Varsjá
Þotu af gerðinni BAC 1-11 frá
Tarom-félaginu var nauðlent í Var-
sjá um hádegisbil í gær vegna
sprengjuhótunar. Var hún á leið frá
Búkarest til Kaupmannahafnar þeg-
ar hringt var í flugturn og sagt, að
sprengja væri um borð í flugvélinni.
i
f