Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Krókaleyfisbátarnir á Vestfjörðum héldu kyrru fyrir í höfn í gær
Segja fyrstu orrustu unna
UM 20 krókaleyfisbátar frá Vest-
fjörðum, sem héldu á steinbítsveiðar
á föstudag þrátt fyrir að um
banndag væri að ræða, héldu flest-
ir eða allir kyrru fyrir í höfn í gær.
Sveinbjörn Jónsson sjómaður á Suð-
ureyri kveðst telja að sjómenn hafi
unnið fyrstu orrustu, miðað við at-
hafnir og ummæli yfirvalda í kjölfar
veiðanna á föstudag.
Sveinbjöm segir að tilgangur
veiðanna í fyrradag hafi verið að
fá ráðamenn til að grípa til athafna
gegn sjómönnunum, og í samráði
við lögfræðing hópsins, Tryggva
Gunnarsson hæstaréttarlögmann,
telji menn að betra sé að veita við-
komandi fulltrúum stjórnvalda
tveggja til þriggja daga ráðrúm til
að sýna viðbrögð. Verði þau lítil sem
engin, telji hann jafnvel að menn
geti sótt skaðabætur hjá ríkinu
vegna þeirra daga sem búið er að
svipta krókaleyfissjómenn veiðileyf-
um. Tryggvi skilaði sjófnönnunum
álitsgerð um lögmæti veiða á bann-
degi fyrir skömmu.
Viðurkenning í viðbrögðum
„Sýni hið opinbera ekki viðbrögð
önnur en þau sem fram hafa kom-
ið, getum við litið svo á að það
hafi viðurkennt málflutning okkar,“
segir Sveinbjöm og kveðst frekar
reikna með framhaldi aðgerða fljót-
lega eftir helgi. Hann kveðst túlka
ummæli sjávarútvegsráðherra og
forstjóra Fiskistofu í fjöimiðlum
þannig að þau styrki málstað hóps-
ins.
„Sjávarútvegsráðherra segist
ekki vilja tjá sig um málið, hann
hafi ekki sett sig nægilega inn í
það, enjiann hefur nú haft lög-
fræðiálitíð undir höndum í þijár
vikur og landssamtökin hafa reynt
samninga við hann. Fiskistofustjóri
sagðist ætla að senda eftirlitsmenn
til Vestfjarða til að athuga aflasam-
setningu og telji hann sig þurfa
þess álítum við að það sýni að hann
telji sig væntanlega ekki mega
stöðva veiðar okkar á steinbít. Hann
sagði einnig að hann hefði hvergi
séð aflaskýrslu með hreinum stein-
bítsafla, sem fræðir okkur hér á
Vestfjörðum um vanþekkingu hans,
enda gætu flest allir sjómenn boðið
honum slíkan afla þorra aprílmán-
aðar.“
Meðferðarstöðinni við Bláa lónið berst fjöldi erlendra fyrirspurna
Böð og ljós samhliða
gefa bestan árangur
INNLENDAR rannsóknir, sem
svokölluð Bláalónsnefnd heil-
brigðisráðuneytisins hefur haft
veg og vanda af, staðfesta að
ljósameðferð samhliða böðun í
Bláa lóninu gefur mun betri
árangur við að halda niðri ein-
kennum af völdum psoria^is-
sjúkdómsins en böðun ein og sér
eða ljósameðferð ein og sér.
Rannsóknir á lækningamætti
Bláa lónsins hófust fyrir alvöru
árið 1992 þegar tilraunahópur
þýskra psoriasis-sjúklinga kom
hingað til lands á vegum nefnd-
arinnar gagngert tU þess að
stunda böð í lóninu. í kjölfarið
var hópur íslenskra psoriasis-
sjúklinga fenginn í ljósameðferð
eingöngu. Niðurstöður sýndu að
blettir á húð sjúklinganna höfðu
minnkað um helming að aflok-
inni þriggja vikna baðmeðferð í
lóninu og ljósameðferðin gaf ívið
lakari árangur miðað við sama
tímabil þó allur munur væri ekki
á. Þriðja rannsóknin fór svo fram
árið 1993 er annar þýskur hópur
kom hingað til lands til þess að
stunda ljós og böð í lóninu sam-
hliða og leiddu niðurstöður af
þeim athugunum í ljós langbest-
an árangur í baráttunni við að
halda einkennum niðri. Að
þriggja vikna ljós- og baðmeð-
ferð lokinni hafði dregið úr ein-
kennum um 70% og eftir fjórar
vikur um 86% að meðaltali.
Niðurstöður í erlendum
vísindaritum
Fyrstu niðurstöður hafa þegar
birst í erlendum vísindatímarit-
um og verður þriðja og þýðingar-
mesta rannsóknin send til birt-
ingar erlendis á næstu dögum.
„Við höfum kappkostað að leggja
megináherslu á að hafa starfsem-
ina vel undirbyggða vísindalega
séð þannig að við getum staðið
við það sem við erum að segja
og bjóða,“ segja Ingimar Sig-
urðsson, formaður Bláalóns-
nefndar heilbrigðisráðuneytis-
ins, og Bárður Sigurgeirsson,
sérfræðingur í húðlækningum og
yfirlæknir meðferðarstöðvarinn-
ar við Bláa lónið, en að þeirra
sögn er afar lítið tíl af rannsókn-
um hjá öðrum þekktum meðferð-
arstöðvum, sem psoriasis-sjúkl-
ingar leita til, s.s. á Kanaríeyjum
og við Dauðahafið.
Að sögn Ingimars hafa rann-
sóknir verið í gangi á vegum
opinberra aðila í þijú undanfarin
ár og lætur nærri að kostnaður
vegna þeirra nemi um 27 milljón-
um króna.
■ Lónið/24-25
Morgunblaðið/Sverrir
ÁSDÍS Jónsdóttír hjúkrunarframkvæmdastjóri ber Bláa lóns-
kremið í hár ungs psoriasis-sjúklings, en Heilsufélagið við Bláa
lónið hefur nú hafið framleiðslu á rakakremi, baðsalti og hreinsi-
maska úr efnum úr lóninu.
Forseti bæjarstiórnar Bolungarvíkur um að festa kvóta Ósvarar
Ekki hægt að breyta for-
sendum samninganna
Vinnuslys
áHöfn
Höfn. Morgunblaðið.
VINNUSLYS varð á Höfn í
gærmorgun þegar var verið
að festa bát við loðnubryggj-
una.
Snurpuhringur á bryggjunni
losnaði upp og slóst í höfuð
eins skipverja. Maðurinn var
talinn mikið slasaður en var
þó með rænu. Hann var fluttur
með sjúkraflugi til Reykjavíkur
til aðhlynningar.
Fimmtíu _
þúsund rósir
ALÞÝÐUFLOKKSMENN dreifðu 50
þúsund rósum til að minna á sig
fyrir kosningarnar.
Að sögn Sigurðar T. Björgvins-
sonar kosningastjóra keypti flokkur-
inn þær rósir sem fengust hér á
landi, tíu þúsund talsins, og flutti inn
fjörutíu þúsund til viðbótar frá Hol-
landi. Bera átti rósimar í hús í
Reykjaneskjördæmi og í Reykjavík
var þeim dreift til vegfarenda og í
verslunarmiðstöðvum.
Eins var nokkuð sent af rósum
út á land.
ÁGÚST Oddsson forseti bæjar-
stjómar Bolungarvíkur segir að á
meðan bærinn standi í viðræðum
við Aðalbjörn Jóakimsson í Bakka
um sölu á hlut bæjarsjóðs í Ósvör
geti fulltrúar hans ekki staðið að
því að þrengja heimildir í meðferð
aflaheimilda. Guðmundur Halldórs-
son skorar á bæjarstjórn að upp-
lýsa hvemig hún ætli að halda
veiðiheimildunum í bænum.
Miklar umræður og á köflum
heitar urðu á fjölmennum hluthafa-
fundi . almenningshlutafélagsins
Ósvarar hf. í fyrrakvöld sem boðað-
ur var til að afturkalla umboð
stjórnar og kjósa nýja. Á fundinum
fór Andri Árnason lögmaður bæjar-
ins með umboð hans. Ágúst Odds-
son segir að meirihluti bæjarstjórn-
ar hafi ekki haft áhrif á stjórnun
fyrirtækisins í samræmi við eignar-
hlut. Fulltrúi hans hafi verið ein-
angraður í stjórninni þrátt fyrir að
bærinn hefði átt meirihluta hluta-
ljár. í ljósi þeirra deilna sem verið
hefðu milli eigenda og viðkvæmra
samningaviðræðna um sölu á eign
bæjarsjóðs hefði þótt rétt að aftur-
kalla umboð stjómarinnar og kjósa
nýja á meðan á þessum viðræðum
stæði. Þrír fulltrúar meirihlutans
voru kosnir í stjórn, Ágúst Odds-
son, Örn Jóhannsson og Ásgeir Þór
Jónsson, auk tveggja sem tengjast
minnihlutanum í fyrirtækinu, svo-
kölluðum Heimaaflsmönnum, Daða
Guðmundssonar og Markúsar Guð-
mundssonar.
JJvernig ætlar bæjarstjórn
að tryggja kvótann?
Guðmundur Halldórsson hluthafi
og starfsmaður Ósvarar flutti til-
lögu til lagabreytinga um að aukinn
meirihluta hlutafjár þurfi til að
selja varanlegar veiðiheimildir frá
félaginu án þess að sambærilegar
veiðiheimildir komi í staðinn. Jafn-
framt að komi til leigu á veiðiheim-
ildum skuli leigugjald taka mið af
markaðsgjaldi.
Miklar umræður urðu um tillög-
una. Fulltrúi bæjarins lagði til að
henni yrði vísað til stjórnar en
Guðmundur lagði áherslu á að hún
kæmi til atkvæða á fundinum. Full-
trúi bæjarsjóðs og Bakka hf. sem
eiga eða hafa umboð fyrir méiri-
hluta hlutabréfa greiddu atkvæði á
móti og náði tillagan því ekki til-
skildum tveggja þriðju atkvæða
meirihluta. Agúst Oddsson segir
að tillagan hafí komið fram á við-
kvæmum tíma, og ekki væri mögu-
legt fyrir bæinn að breyta forsend-
unum nú.
„Ég skora á bæjarstjórn að hún
upplýsi hvernig hún ætlar að
tryggja að veiðiheimildirnar haldist
í bænum," sagði Guðmundur Hall-
dórsson eftir fundinn. „Mér fannst
athyglisvert að Aðalbjörn Jóakims-
son greiddi atkvæði á móti tillög-
unni þrátt fyrir að í kauptilboði
hans sé loforð um að hann muni
kappkosta að halda heimildunum í
bænum.“
Jafnrétti í orði
►Frá því að kærunefnd jafnréttis-
mála var sett á laggirnar um mitt
ár 1991 hefurhún afgreitt alls 32
mál. /10
Öxin og jörðin
► Yfirgnæfandi meirihluti Banda-
ríkjamanna er hlynntur dauðarefs-
ingum. /12
Evrópa allra þjóða?
►Þjóðemisátök ógna stöðugleika
í Evrópu. Hér er hugað að ýmsum
hliðum á þjóðemismálum í álf-
unni. /20
Systkini á siglingu
►í Viðskiptum og atvinnulífi á
sunnudegi er fjallað um fjölskyldu-
fyrirtækið Ferðaskrifstofu Guð-
mundar Jónassonar sem er rekið
af börnum stofnandans. /22
Lónið og lækningar
►Heimsókn í meðferðarstöð psor-
iasis-sjúklinga við Bláa lónið þar
sem „rignir“ inn fyrirspurnum
hvaðanæva úr heiminum. /24
B
► 1-3
Kleppur—Galapagos
►ÚlfarÞórðarson augnlæknir
fæddist að Kleppi 1911 en spilar
badminton einu sinni í viku, syndir
og hefur svo víða komið við, að
fljótlegra er að spyija hann hveiju
hann hafi ekki skipt sér af. /1
Fiskur á þurru landi
►Viðtal við norska rithöfundinn
Jostein Gaarder, höfund Veraldar
Sofflu, sem slegið hefur bók-
menntaheiminn út af laginu með
velgengni sinni. /5
Ein stór fjöldskyida
►Leikaramir í nýju íslensku kvik-
myndinni, Ein stór fjölskylda,
höfðu margir hveijir litla reynslu
af kvikmyndaleik en reyndust sam-
hentur hópur. /16
Endirerupphaf
►Hjónin Guðrún Qg Guðlaugur
Bergmann hafa sagt skilið við lífið
í höfuðborginni, selt eigur sínar
og ákveðið að hefja nýtt líf í
Brekkubæ undir Snæfellsjökli. /18
BÍLAR_____________
► 1-4
Tæknibylting til 2005
► Bílekið um leið og dagblöðin
eru lesin. /2
AA tjaldabakí
► Morgunblaðið fylgist með meist-
araliði Alfa Romeo í kappaksturs-
keppni. /3
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak ídag 42
Leiðari 28 Fólk í fréttum 44
Helgispjall 28 Bíó/dans 46
Reykjavíkurbréf 28 íþróttir 60
Minningar 30 Útvarp/sjónvarp 52
Myndasögur 40 Dagbók/veður 55
Brids 40 Mannlífsstr. 6b
Stjömuspá 40 Kvikmyndir 12b
Skák 40 Dægurtónlist 14b
Bréf til blaðsins 40
INNLENDAR FRÉTTIR:
2—4—8—BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-6