Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 17
i
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995 17
hefur líka lítið verið athuguð. Fyrsta
ljóðabók Gríms er t.d. þessu marki
brennd, þar eru mörg ljóð sem hafa
verið vanmetin.
Grímur Thomsen var stórmerki-
legur maður. Embættisframi hans
var mikill á yngri árum og hann var
greinilega mjög sterkur persónuleiki.
Þýðing hans í íslenskum bókmennt-
um er m.a. sú að hann fór sínar eig-
in leiðir þótt hann hins vegar stæði
föstum fótum í íslenskri bókmennta-
hefð. Hann sótti mikið í hina hroll-
vekjandi hiið þjóðsagnaarfsins, auk
þess sem hann var hrifinn af ein-
kennilegu fólki. Þetta var ekki al-
gengt þá. Ég hef haft mikla ánægju
af þessu námi, einkum hef ég haft
gaman af að fást við þetta efni á
MA-stigi, þá er fyrst hægt að fara
að kafa dýpra í hlutina. Ég hefði þó
viljað sérhæfa mig meira en hægt
er nú, vegna þess hve deildin er í
miklu fjársvelti."
Gamlar sjálfsævisögur
og togstreita
Eiríkur Guðmundsson er að skrifa
lokaritgerð sína í MA-námi sínu í
íslenskum bókmenntum. Ritgerð
hans fjallar um sjálfsævisögur. „Ég
er að íjalla um sjálfsævisögur, allt
frá Jóni Steingrímssyni eldklerki til
Dægradvalar Benedikts Gröndals.
Ég tek inn í þessa umfjöllun nítjándu
aldar bréf, m.a. bréf Fjölnismanna,"
segir Eiríkur. „Einnig tek ég fyrir
dagbækur, t.d. Gísla Brynjólfssonar
og sjálfsævisögur Upplýsingamanna,
Magnúsar Stephensens, Sveins Páls-
sonar og Jóns Espólíns. Þessar gömlu
sjálfsævisögur eru talsvert frá-
brugðnar þeim sjálfsævisögum sem
verið er að skrifa í dag. Ef við tökum
Jón Steingrímsson sem dæmi, er
sjálfsskilningur hans mótaður af
kristnum_ skilningi, sbr. játningar
heilags Agústínusar kirkjuföður.
Það sem ég er að gera með þetta
er að nota hugmyndir franska heim-
spekingsins Michels Foucaults um
sjálfsveru. Ég nota bæði sifjafræði-
lega hugmyndafræði hans og fom-
minjafræði hans um það beinlínis
hvernig menn skrifa um sjálfa sig.
Hvaða samband menn hafa við sjálfa
sig, allt frá Forn-Grikkjum til
ur ný dæmi þar sem það foreldri sem
hafði meiri störf og var komið lengra
í metorðastiganum missti forræðið
til þess sem minna hafði að sýsla.
Könnun sýndi einnig að ef faðir á
vinkonu eða giftist aftur, þá er það
talið merki um staðfestu, en fari
kona út með vini er hún tortryggð.
Aður fyrr fengu konumar nær alltaf
forsjá barnanna, upp úr 1970 þegar
lög komu um sameiginlegt forræði
var það álitið henta best, en mörgum
reyndist jafn erfítt að þurfa að rækja
ábyrgðina sameiginlega eftir skilnað,
og nú virðast karlarnir vera að sækja
á. Enda era þeir nú iðulega viðstadd-
ir fæðinguna, skipta um bleyjur,
ganga um gólf með grátandi böm á
nóttinni og vilja þá ekki að endi sé
bundinn á þátttöku þeirra við skiln-
aði. Skilnaðarmál Marciu og Gordons
er orðið að ljótum leik, sem allir telja
sig mega ræða og hafa vit á. Fyrsta
viðbragð Marciu Clark var að reyna
að fá réttarhöldin lokuð og bann
sett á öll skjöl.
Ilremmingar verjandans
Aðalveijandinn Johnnie L. Cochr-
an gat ekki lengi hrósað happi. Hann
sætir nú líka lögsókn. Fyrrverandi
sambýliskona hans, Patricia Coc-
hran, sem kveðst hafa helgað honum
30 ár ævi sinnar, krefst rúmlega
einnar milljónar dollara bóta fyrir
að hann yfirgaf hana. Þau hafa búið
saman síðan 1966, þegar Johnnie
yfirgaf konu sína fyrir hana og þau
eignuðust son. En þegar hún kom
fram í sjónvarpi, þar sem hún ræddi
um samband þeirra, og hafði eftir
honum ófögur ummæli um aðra lög-
menn í vetjendahópi Simpsons, hætti
hann uppihaldsgreiðslum til hennar
fyrirvaralaust.
Þessi miklu réttahöld yfír fótbolta-
hetjunni og sjónvarpsstjömunni O.J.
Simpson virðast því ætla að verða
afdrifarík fyrir einkalíf aðalsöguhetj-
anna, lögmannanna sem veija og
sækja. Það getur verið dýrt spaug
að verða heimsfrægur og lifa fyrir
augliti alheims.
(EPá tók saman)
p
KÍNAFAR af því tagi sem Eiríkur Björnsson víðförli og þýðandi
Gamla Nóa fór með til Kína, en Steinunn Inga Ottarsdóttir'er nú
að vinna með áður óprentað handrit af reisubók hans.
franska skáldsins Baudelaire. Hann
heldur því fram að í lok átjándu ald-
ar hafí sá skilningur, sem við höfum
á manninum, orðið til. Þ.e.a.s. að
maðurinn skynji sig bæði sem sjálfs-
veru og hlutveru. Þetta leiðir til
ákveðinnar þversagnar eða tog-
streitu sem nítjándu aldar menn eiga
erfítt með að vinna úr, þetta kemur
t.d. fram í bréfum Fjölnismanna og
í dagbók Gísla Brynjúlfssonar. Þess-
um mönnum virðist hafa liðið ákaf-
lega illa.“
Ekki um auðugan
garð að gresja
Þröstur Helgason lauk námi í ís-
lenskum bókmenntum í október sl.
„í lokaritgerð minni skrifaði ég um
höfundarhugtakið, um tilurð höfund-
arins,“ segir Þröstur. „Höfundurinn
er fyrirbrigði sem varð til á átjándu
og nítjándu öld eftir Jþróun í vest-
rænni hugsunarsögu. A þessum tíma
varð sjálfsvera mannsins að mið-
punkti bókmenntanna. Þá fara höf-
undar að skrifa um sjálfa sig og sinn
innri mann frekar en um samfélags-
leg efni eða einhveija hugmynda-
fræði. Þetta kemur skýrt fram í kveð-
skap Jónasar Hallgrímssonar og
Benedikts Gröndals yngri, t.d.
Dægradvöl.
Þröstur hefur lokið sínu prófi eins
og fram kom hér fyrr, en hvernig
skyldi honum hafa gengið að fá
vinnu?
„Ég hef starfað sem bókmennta-
gagnrýnandi í sjónvarpsþættinum
Dagsljósi í vetur. Auk þess hef ég
unnið í lausamennsku ýmislegt ann-
að, t.d. við greinaskrif og fleira. Ég
er að leita mér að fastri vinnu og
vil helst vinna við eitthvað sem teng-
ist þessu námi mínu, t.d. við kennslu,
fjölmiðla eða einhver rannsóknar-
störf á bókmenntasviðinu, en þar er
reyndar ekki um auðugan garð að
gresja.“
Fermingartilbob #2
HLIÓMIÆKJASAMSIÆÐA
Þessi fullkomna hljómtækjasamstæba, Goldstar FFH-333
er hlabin tæknibúnabi - ú góbu verbi!
Fermingartilbob #3
3 DISKA
HLJÓMIÆKIASAMSIÆÐA
Þessi fróbæra hljómtækjasamstæba, Goldstor F-272L 3CD
er nú ú sérstöku fermingartilbobi, ú mebon birgbir endast!
Þriggja ljósiáka geislaspilari meö 32 laga minni
64 W magnnri meb innb. forstilltum tónjafriarn
Ultra Bass Booster, sem gefur enn meiri bassa
Fjarstýrbur styrkstillir
Tengi fyrir sjónvarp eóa myndbandstæki
Allar abgerðir birtast d fljótandi kristalsskjd
Klukka og d'marofi
Verð áöiar:
Verð nú: 49.900,
eða
• Útvarp meb FM, MW og IW-bylgjum 30
stöbva minni
• Tvofalt Dolby kassettutæki m.a. meft:
• Sjálfvirkri spilun beggja hlifta og hraöupptðku
• Fullkomin fjarstýring
• Tveir vandaftir hátalarar meft loftun f/ bassa
• Stærft: Br.: 27 an, hæft: 33,3 an, dýpt: 43,7 cm
- kr.
Þriggja diska geislaspilari meft 20 laga minni
32 W magnari meft innb. forstilltum tónjafhara
Tengi fyrir hljóftnema (Karaoke)
Tengi fyrir sjónvarp efta myndbandstæki
Allar aftgeiftir birtast á fljótandi kristalsskjá
ÚWaip meft fM, MW og IW-bylgjum
20stöftvaminni
Tvðfalt kassettutæki m.a. meft:
Síspilun og hruftupptöku
Fullkomin fjarstýring
Tveir vandaftir hátalarar meft loftun f/ bassa
Stærft: Br.: 27 cm, hæft: 31 cm, dýpt: 33 cm
kr.
stgr.
Verö áöur: 49 - 90XT, - kr.
Verð nú: 44.900,- Lcr.
eða
...og þetta er abeins brot af úrvalinu!
EUROCARD
raðgreiðslur
RAÐGREIÐSLUR
TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA TIL ALLT AÐ 24 MÁNAÐA
SKIPHOLTI 19
SÍMI 91-29800