Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 56
póst gíró
Ármúla 6 • 150 Reykjavík
© 550 7472
MORGUNBIJWIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 9. APRÍL1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Rúmlega 192 þúsund á kjörskrá í alþingiskosningunum
Morgunblaðið/RAX
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra og eiginkona hans, Ástríður
Thorarensen, komatil kjörstaðar í Melaskóla í gærmorgun
ásamt Þorsteini syni sínum.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
HALLDÓR Ásgrímsson formaður Framsóknarflokksins flaug
til Hafnar í Hornafirði snemma í gærmorgun til að kjósa og með
í för voru dætur hans íris Huld og Guðrún Lind.
Kjörsókn fyrri hluta dags
ívið dræmari en síðast
KJÖRSÓKN víðast hvar á landinu var heldur dræmari á hádegi í gær en
í síðustu alþingiskosningum. Þó er sá munur ekki talinn marktækur.
Veður var víðast hvar með ágætum og ekki útlit fyrir að bæta þyrfti
sunnudeginum við sem kjördegi. í Reykjavík höfðu 13,45% kjósenda
greitt atkvæði á hádegi og sagði Jón G. Tómasson, formaður yfírkjör-
stjórnar, að kjörsóknin væri ívið dræmari en síðast, en þó vart svo að
marktækt væri. í kosningunum 1991 höfðu 13,75% kosið á hádegi.
Mest kjörsókn var í Alftamýrar-
skóla fyrir hádegi í gær, en þar
höfðu 16,62% kjósenda í kjördeild-
inni kosið kl. 12. Dræmust var
kjörsókn í Austurbæjarskóla, þar
sem 8,6% höfðu kosið.
Á Vesturlandi var kjörsókn svip-
uð og í síðustu kosningum. Þó
skar Akranes sig lítillega úr, en
þar var kjörsókn heldur dræmari
en síðast, eða 12% á móti 13% síð-
ast. Líkt og annars staðar var sá
munur ekki talinn marktækur.
Á Vestfjörðum var 5% kjörsókn
á ísafirði, 4,7% í Vesturbyggð,
6,3% á Tálknafirði og um 10% á
Þingeyri og voru þær tölur svipað-
ar og síðast. Kjörfundir hófust
ekki fyrr en á hádegi á Flateyri,
Súðavík og Suðureyri.
Dræmt á Blönduósi
í Norðurlandskjördæmi vestra
var kjörsókn svipuð og annars
staðar, en þó óvenju dræm á
Blönduósi, þar sem rúmlega 60 af
rúmlega 700 manns á kjörskrá
höfðu kosið á hádegi. Ekki var
veðri þar um að kenna, því það
var stillt.
í Norðurlandskjördæmi eystra
var sama sagan, kjörsókn ívið
minni en síðast, en þó vart svo að
mark væri á takandi. Á hádegi
Prentvilla
PRENTVILLA uppgötvaðist á kjör-
seðlinum í Reykjavík í gær, en þar
stóð „V-listi Samtakaka um
kvennalista", í stað Samtaka um
kvennalista.
Hjörleifur Kvaran, borgarlög-
maður, sem sæti á í kjörstjóm, sagði
sð þessi mistök væru mjög leiðin-
leg, en hann sæi ekki að prentvillan
höfðu 11,9% kosið, en 12,2% á
sama tíma í síðustu þingkosning-
um. Blíða var á Akureyri, en snjó-
þyngsli höfðu þó gert mönnum líf-
ið leitt fyrir kosningarnar. Sam-
kvæmt upplýsingum yfirkjör-
stjórnar tók t.d. einn dag að ryðja
bílastæði við Oddeyrarskóla, svo
kjósendur kæmust að.
Kjörsókn Austfirðinga var víð-
ast svipuð og í síðustu alþingis-
kosningum og var á hádegi á bilinu
6-12%. í Fellahreppi áttu kjósend-
ur þó metið í kjörsókn fyrir há-
degi, eða 15%.
A Suðurlandi var kjörsókn svip-
uð og í alþingiskosningunum 1991
og sveitarstjórnarkosningunum í
fyrra. Á hádegi í gær höfðu 10,04%
kjósenda kosið þar sem fæst var,
eða í Rangárvallahreppi, en íbúar
Djúpárhrepps áttu metið þá stund-
ina, en þar höfðu 18,67% kosið.
Hvergerðingar fylgdu á hæla
þeirra með 15,5% kjörsókn.
I Reykjaneskjördæmi var kjör-
sókn svipuð og síðast, en þó var
kjörsókn Kópavogsbúa dræmari en
þá. Þar í bæ höfðu 7,6% kosið á
hádegi, í Hafnarfírði 11,7%, í
garðabæ 9,7%, á Seltjarnarnesi
13% og 12% í Mosfellsbæ.
■ Forystumennirnir/4
á kjörseðli
varðaði ógildingu kosningar.
Hjörleifur sagði að hann vissi
ekki til þess að prentvilla hefði
áður uppgötvast á kjörseðli. „Við
sáum þessa villu þegar við lásum
próförk að seðlinum og gerðum
athugasemd við hana. Sú athuga-
semd hefur ekki skilað sér til prent-
smiðjunnar,“ sagði Hjörleifur.
Morgunblaðið/Sigrún
Vorið komið á Höfn
Hornafjörður. Morgunblaðið.
I HUGUM flestra landsmanna
er vorið nokkuð langt undan
en fyrir þá sem búa í Horna-
firði er það komið með allri
sinni dýrð.
Ibúar Hornafjarðar taka við
sér um leið og þeir heyra söng
fyrstu farfuglanna í fjörunni
og finna ilm vorsins fylla loftið.
Þeir eru fyrir þó nokkru farnir
að huga að vorverkunum, sópa
stéttir og palla, klippa runna
og tré og njóta söngs fuglanna
sem og litskrúðugra krókusa
sem nú prýða margan garðinn
hér í bæ.
Þessi unga snót, Hrefna Rún
Kristinsdóttir, nýtur þess vel
að skoða og kanna vorboðana í
garði ömmu sinnar í Hornafirði.
Skuldir
heimila
293 millj-
arðar kr.
FJÁREIGNIR íslenskra heimila
námu 414,5 milljörðum á síðasta
ári þegar eignir í lífeyrissjóðum upp
á tæpa 230 milljarða króna eru
meðtaldar. Eignir bundnar í íbúðar-
húsnæði námu 478,5 milljörðum og
hafa vaxið á föstu verðlagi um rúma
100 milljarða á sl. tíu árum.
Á sama tíma hafa skuldir heim-
ila einnig vaxið hröðum skrefum
og námu á síðasta ári tæpum 293
milljörðum króna, að því er fram
kemur í upplýsingum Seðlabanka
íslands. Hreinar fjáreignir að með-
töldum eignum í lífeyrissjóðum eru
tæpir 122 milljarðar, en ef þær eru
undanskildar eru skuldir umfram
fjáreignir tæpir 108 milljarðar.
Eiginfjárhlutfall lækkar
Ef litið er til síðustu ára og ára-
tuga hefur eiginfjárhlutfall ís-
lenskra heimila farið jafnt og þétt
lækkandi, hvort sem eignir í lífeyr-
issjóðum eru meðtaldar eða ekki.
Eiginfjárhlutfallið þegar ekki er
tekið tillit til eigna í lífeyrissjóðum
var tæp 80% fyrir tíu árum en var
í fyrra rétt tæp 60% eða 59,75%.
Eignir bundnar í lífeyrissjóðum
hafa vaxið mjög mikið á undanförn-
um árum og hækka eiginfjárhlut-
fallið um tæp 10 prósentustig í
69,40%. Fyrir fimmtán árum mun-
aði innan við einu prósentustigi á
eiginfjárhlutfallinu eftir hvort eign-
ir lífeyrissjóða voru teknar með í
reikninginn eða ekki.
í tölum Seðlabankans kemur
fram að skuldir íslenskra heimila
hafa vaxið um tæpa 100 milljarða
á síðustu 5 árum og hafa raunar
stöðugt farið vaxandi frá því verð-
trygging var tekin upp.
------» ♦ ♦
17 ára stúlku
nauðgað
SAUTJÁN ára stúlku var nauðgað
á Selfossi aðfaranótt laugardags.
Að sögn lögreglu var stúlkan á
gangi með manni, sem hún þekkir
ekki, og er talið að þau hafi verið
að koma af dansleik á Hótel Sel-
fossi. Maðurinn kom fram vilja sín-
um úti á götu.
Komið var að stúlkunni þar sem
hún ráfaði um og hún færð á lög-
reglustöðina. Á henni voru einhverj-
ir áverkar, mar og klór. Hún var
flutt á neyðarmóttöku fyrir fórn-
arlömb nauðgana á slysadeild Borg-
arspítala.
Mannsins er nú leitað.
------» ♦ »------
Hrafnar á
rjúpnaveiðum
Miðhúsum. Morgunblaðið.
SVO virðist sem uppsveifla sé í
rjúpnastofninum, og að fleiri veiði
þær en ijúpnaskyttur og refir. Það
hefur sést til hrafna sem taka tjúp-
ur, en þá eru tveir um veiðina.
Þar sem afætur eru á ám eða
lækjum koma endur saman og eru
þær þægileg bráð fyrir örninn.
Rjúpur og snjótittlingar eru einu
lífverurnar sem koma í heimsókn.
Rjúpan sækir í víðinn, en snjótittl-
ingarnir þiggja það sem maðurinn
gefur þeim.