Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Stórglæsilegar og vandabar
dragtir, sumarkjólar
og létt dress.
Ps. Vel þess virði
að líta á
50% afsláttarslána.
JOSS
Kringlunni, sími 689150.
Det Nodvendige Seminarium
■ QanmnrIr ■ ■ getur enn tekið inn 3 íslenska
■ I/CIIIIIIUI IVU NEMENDUR HINN 1. SEPT. 1995
4ra ára alþjóðlegt, nútíma kennaranám, sem veitir réttindi til kennslu í mörgum
skólum og uppeldisstofnunum í Evrópu og þriðja heiminum.
Námið er:
• 1 ár með alþjóðlegu námsefni. Innifalin er 4ra mánaða námsferð til Asíu.
• 1 ár námsefni innanlands. Innifalin er 6 mán. þátttaka í dönsku atvinnulífi.
• 2ja ára fagnám. Innifalið er 2x6 mánaða starfsnám í grunnskóla og öðrum
skólum innanlands og utan.
Eftir útskrift tekur við eins árs vinna í skóla í Afríku.
Allir nemendur búa í skólanum. Kynningarfundur um skólann verður haldinn
I Reykjavík í apríl.
Ef þú hefur áhuga, hringdu þá eða sendu símbréf og fáðu bækling áður en
kynningarfundurinn er haldinn.
Det Nodvendige Seminarium, Tvind, DK-6990 Ulfborg
Sími 00 45 43 99 55 44, símbréf 00 45 43 99 59 82.
DÖNSKUSKÓLINN
STÓRHÖFÐA 17
í Dönskuskólanum eru nú að hefjast ný námskeið,
bæði fyrir byrjendur og þá sem vilja bæta við sig kunnáttu og þjálfun.
Hagnýt dönsk málnotkun kennd I samtalshópum, þar sem hámarks-
fjöldi nemenda er 8, og fer kennslan fram 2 tíma, tvisvar sinnum í
viku. Einnig verða haldin stutt námskeið fyrir unglinga sem vilja bæta
sig í málfræði og framburði fyrir vorið. Jafnframt er boðið upp á
einkatíma eða annarskonar sérhæfða kennslu I munnlegri og skriflegri
dönsku. Innritun er þegar hafin í síma 567-7770 og einnig eru veittar
upplýsingar í síma 567-6794.
Auður Leifsdóttir hefur margra ára reynslu I dönskukennslu við
Námsflokka Reykjavíkur, Háskóla Islands og Kennaraháskóla íslands.
STEIKARTILBOÐ
Mest eeldu steikur á Islandi
Liúffenaar nautaqriHðteikur á
495 K.R.
FáekaðmaVk frá Góu
fylgir hverju barnaboxi.
wu/
Stendur til
9. apríl.
Jíarlínn
'■VEITINGASTOFA-
Sprengisandi
Sjabu hlutina
í víbara samhengi!
- kjarni málsins!
SKÁK
tlmsjón Margelr
Pétursson
ÞESSI skemmtilega skák
var tefld á heimsþemamóti
í bréfskák nýlega. Hvítt:
Manuel Ramos Barraso,
Spáni. Svart: Kári Elíson,
(2.055), drottningarbragð,
1. d4 - d5 2. c4 - e6 3.
Rf3 - Rf6 4. Rc3 - Be7
5. Bf4 - 0-0 6. e3 - c5 7.
dxc5 — Bxc5 8. Dc2 — Rc6
9. a3 - Da5 10. 0-0-0 -
Bd7 11. g4 - Hfc8 12. Kbl
— b5! (Beljavski kom fyrstur
með þennan leik gegn Gelf-
and í Linares 1991 og vann
glæsilega. Hér reynir hvítur
að sleppa því að taka peðið,
eins og Gelfand gerði) 13.
g5 - Rh5 14. Bg3 - b4
15. Ra4 - b3 16. Dxb3 -
Rxg3 17. hxg3 — Hab8 18.
Dc2 - Bxa3 19. Kcl
19. - Rd4! (En ekki 19.
— Bxb2+ 20. Rxb2 — Dal+
21. Dbl) 20. Rxd4 — Bxa4
21. Dxh7+ - Kf8 22. bxa3
- Dc3+ 23. Rc2 - Hb2
24. Hd2 — Hxc2+ og hvítur
gafst upp því mátið blasir
við. Á slíkum þemamótum
er byijunin valin fyrirfram,
f þessu tilviki afar tvísýnt
afbrigði drottningarbragðs
þar sem hrókað er á sitt
hvorum vængnum.
Pennavinir
TUTTUGU og sjö ára
Ghanamaður með áhuga
á bréfaskriftum, tónlist,
kvikmyndum o.fl.:
E.K. Adu,
P.O. Box 64,
Kade,
Easterii Region,
Ghana.
I DAG
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Vegna
alþingis-
kosninganna
1995
VARAST skaltu vinstra
vor,
valt er því að treysta.
Veldu heldur visku og þor
og velferð íslands reista.
Kjósandi á Suðurlandi.
Þingkosningar
1995
Andar víða ári kalt,
æran hleður vígi.
Því pólitíkin út um allt
er á lóðaríi.
Öllum fer að búnast betur
birtir senn, er margra trú.
Þessi heijans hægri vegur
hann fer víst að enda nú.
Hnakkakerrtur Halldór þar
hlúir að bændasonum,
Nú er flokkur framsóknar
fullum af loforðunum.
Er nú flokkur alþýðu
óðum að skreppa saman.
Hefur vaðið vitleysu
vakið í bændum amann.
Ýmsir hreppa illviðrin,
yggldir verða í sinni.
Nú mun Grímsson garmur-
inn
gjökta á uppbótinni.
Á okkar kæra íslandi
enginn gæða nýtur.
Þegar kemur Þjóðvaki
þjóðarskútan flýtur
í lífínu óðum léttast spor,
lokaður úti er tregi.
Það er að koma vinstra vor,
vinur elskulegi.
G.L.
Um laun
lögreglumanna
EFTIR allmiklar umræður
um lág laun núna undanf-
arið, þá sérstaklega mest
áberandi laun kennara og
flugfreyja, þá datt mér í
hug hvort fólki væri yfír-
leitt kunnugt um laun lög-
reglumanna. Ég held ég
megi segja að byijendur
þar, sem ekki hafa lokið
skóla, byiji með um 57.000
kr. (fer sjálfsagt eftir aldri
o.fl.). Að lögregluskólan-
um loknum með 8 ára
starfsreynslu veit ég um
lögreglumann með u.þ.b.
78.000 kr. í mánaðarlaun.
Að sjálfsögðu hafa lög-
reglumenn vaktaálag en
eftirvinnulaun þeirra verða
aldrei há, þegar grunnlaun
eru þetta lág, og þótt' þeir
vinni 50 stundir í auka-
vinnu þá verða launin ekk-
ert til að hrópa húrra fyr-
ir, þegar haft er í huga
hvað þessir menn mega
ganga í gegnum við sam-
skipti við alls konar fólk,
sumt bæði andlega og lík-
amlega vanheilt.
Líf þessara manna er í
stöðugri hættu og meiðsl
algeng við átök við ofbeld-
isfullt fólk. Þessir menn
eru okkar stoð og stytta
og bregðast ætíð vel við
kalli ef til þeirra er leitað.
Vill ekki einhver taka
launamál lögreglumanna
til athugunar, það væri
tími til kominn að gera
betur við þá og hafa má í
huga stöðugt óöryggi
þeirra um eigið líf og heilsu
og þegar þeir hljóta meiðsl
þá eru þeirra miskabætur
víst ekki miklar að öllu
jöfnu.
Munið að lögreglumenn
geta þurft að sjá fyrir fjöl-
skyldum, þeir eru ekki allir
einhleypir, og greiðið þeim
mannsæmandi laun fyrir
áhættustörf.
Lesandi Mbl.
Aðstandendafé-
lag hjartaveikra
barna
VÆNTANLEG er formleg
stofnun aðstandendafélags
hjartaveikra barna. Við
undirritaðir viljum benda á
að full þörf er á félagi sem
hefur það að markmiði
sínu að félagar miðli hver
öðrum af reynslu sinni og
veiti hver öðrum þá hjálp
og þann stuðning sem
mögulegur er. Við viljum
einnig leggja áherslu á að
skurðaðgerðir á bömum
færist til íslands þar sem
við teljum að með réttum
tækjabúnaði sé mögulegt
að framkvæma hjartaað-
gerðir sem hingað til hafa
farið fram erlendis að-
standendum til mikilla erf-
iðleika. Ef þú kæri að-
standandi hefur áhuga á
því að leggja okkur lið þá
hafðu endilega samband
við Jane Alexander í síma
5682189, Elínu Viðar, sími
5677905 eða Gunnhildi
Hreinsdóttur í síma
5543057.
iZMM
SVÖRT stutt og víð kápa
með víðum ermum með
skinnkanti og loðkraga var
tekin í misgripum á
Skuggabarnum 17. mars
sl. Kápan er 20 ára göm-
ui, sérhönnuð og ein sinnar
tegundar hér á landi.
Finnandi hafi vinsamlegast
samband í síma 623436
(Sigríður) eða á Skugga-
barinn.
Yíkveiji skrifar...
EGAR ÞESSAR línur eru sett-
ar á blað hafa landsmenn enn
ekki skilað atkvæðum sínum í
kjörkassana, enda kjördagur ekki
upp runninn. Þegar þið, lesendur
góðir, beijið þær augum, liggja
kosningaúrslitin hins vegar fyrir.
Þar sem Víkveiji er ekki forspár
getur hann ekki, því miður, tekið
þátt í umræðuefni dagsins í dag,
kosningaúrslitunum, eða hvaða
flokkar hreiðra um sig í Stjórnar-
ráðinu, sem af þeim væntanlega
ræðst.
Síðustu daga og vikur hefur
kosningakönnunum og niðurstöð-
um þeirra rignt yfir rangláta sem
réttláta í þessu landi. Misvel hefur
verið að þeim þeim staðið og mis-
Vísandi hafa þær reynzt. Eftir á
verður fróðlegt að bera saman
niðurstöður kannana og kosninga.
AF þeim samanburði sést væntan-
lega, hveijir vönduðu til vinnu-
bragða, að þessu leyti, og hverjir
ekki. Skoðið málið.
xxx
VETURINN HEFUR víða
reynst landsmönnum erfiður.
Höfuðborgarsvæðið kemur að vlsu
þokkalega undan vetri, ef svo má
að orði komast. En nyrðra og
vestra - og reyndar á Austfjörðum
norðanverðum - hefur Vetur kon-
ungur leikið fólk grátt. Fólk er
víða þrúgað og þreytt eftir fann-
fergi, illviðri og skammdegi. Þó
tók steininn úr í byggðarlögum
sem búa við viðvarandi snjóflóða-
hættu.
Víkveiji kæmi ekki á óvart þótt
stöku fjölskylda í harðbýlli byggð-
um hafi hugsað um búferlaflutn-
ing. En það er ekki auðhlaupið að
flutningum byggðarlaga eða lands-
homa á milli. Fjötrarnir mega sín
oft meira en frelsið, sem við teljum
okkur hafa til breytinga í þessum
efnum. Kunningi Víkveija, sem á
stórt og fallegt einbýlishús í sinni
heimabyggð, telur sig og fjöl-
marga, sem líkt er ástatt um, í
dæmigerðum átthagafjötrum.
í vegiegri húseign hans liggur
afrakstur áratuga starfs. En það
er ekki_ seljanlegt. Eftirspurn er
engin. Á sumum stöðum í stijál-
býli seljast hús og íbúðir aðeins
fyrir brotabrot af kostnaðarverði
— og Reykjavíkurverði. Átthaga-
fjötrar binda fólk við óseljanlegar
eignir.
XXX
AFTUR KEMUR vor í dal,
segja þeir bjartsýnu. Myrkrið,
skammdegið og kuldinn eru að
baki, það er að segja í náttúrunn-
ar ríki. Sól og regn vekja senn líf-
ríki umhverfisins til nýs lífs. Þá
léttist brúnin á landanum!
Það má og segja, hvernig sem
kosningarnar hafa nú farið, að
gróandinn hafi sagt til sín í ís-
lenzku atvinnu- og efnahagslífi
síðustu misserin. Þar hefur ríkt
byijandi hagvöxtur, hagstæður
viðskiptajöfnuður og batnandi
samkeppnisstaða íslenzkra at-
vinnuvega. Verðbólga hefur náðst
niður fyrir það sem er í grannríkj-
um, vextir hafa lækkað, fjárlaga-
halli minnkað og erlendar skuldir
hafa verið greiddar niður þijú ár
í röð.
Það er að vísu erfiðara að gæta
fengis fjár en afla. Vonandi glutra
nýkjörnir landsfeður ekki niður
efnahagsbatanum og stöðug-
leikanum, hornsteinum batnandi
lífskjara og baráttunnar gegn at-
vinnuleysinu. Fari svo verður síðar
meir talað um sumarið, sem ýmsir
þóttust sjá fyrir í þjóðarbúskapn-
um, sem „sumarið sem aldrei
kom“.
En takizt okkur að varðveita
þann árangur, sem náðist 1991-
1994, erum við í góðum málum.
Og ef okkur tekst að auki, sem
mestu varðar, að byggja upp
sjávarauðlindina með hófsamari
veiðisókn næstu árin, og vinna
búvörumarkaði erlendis með
hreinum, lífrænum afurðum, má
svo fara, að smjör dijúpi á ný af
stráum um land allt, einnig í svo-
kölluðum snjóakistum.
Þar sem hagsæld ríkir unir fólk
sér. Þar eru húseignir seljanlegar,
enda eftirspurn til staðar, stundum
umfram framboð. Og enginn lif-
andi maður talar um átthagafjötra
þar sem honum líður vel.