Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Líður á köflum eins og háHgerðum pabba hinna í liðinu Rúnar Kristinsson, landsliðsmaður í knatt- spymu úr KR gekk til liðs við sænska úrvals- deildarliðið Örgryte frá Gautaborg í vetur. Grétar Þór Eyþórs- son, fréttaritari Morg- unblaðsins hitti Rúnar að máli, en sænska deildarkeppnin hefst einmitt um helgina. RÚNAR gerði 2ja ára samning við sænska úrvalsdeildarliðið. Örgryte, eða ÖIS eins og það er kallað í daglegu tali vann sig upp úr 1. deildinni á síðastliðnu sumri og leikur í úrvalsdeildinni í ár. Marga knattspyrnuáhugamenn rekur eflaust minni til þess að á árum áður lék Eyjamaðurinn Öm Ósk- arsson með liðinu. Ferðalag milli þessara deilda hefur verið reglan hjá ÖIS, fremur en hitt undanfarin ár og illa hefur gengið að halda sér í úrvalsdeildinni tvö ár í röð. Nú á hinsvegar að gera átak í þessum efnum og alls hafa sex nýir leikmenn verið fengnir til liðs- ins. Nýr þjálfari tók við ÓIS í fyrra, Kalle Björklund, en hann er mágur Tommy Svenssons landsliðsþjálf- ara og faðir Joachims Björklund landsliðsmiðvarðar. Morgunblaðsmenn hittu Rúnar að máli í félagsheimili liðsins á félagssvæðinu ÖlS-gárden, sem stendur í útjaðri austanverðrar borgarinnar. Hvemig hafnaði svo Rúnar Kristinsson í Örgryte? „Framkvæmdastjóri félagsins, Gunder Bengtsson, hafði áhuga á íslenskum leikmanni og hafði sam- Morgunblaðið/Golli RÚNAR Krlstinsson fyrir utan félagsheimili Örgryte í útjaðri austanverðrar Gautaborgar. Morgunblaðið/Golli Á ÆFINGU með Örgryte. „Hér er engin stjarna og alllr sltja vlð sama borð. Þetta eru mest allt unglr strákar og mór líður eins og hálfgerðum pabba á köflum. En þetta eru hresslr strák- ar og gott að ná sambandl við þá,“ segir Runar um félaga sína í liðinu. band við KR-inga, meðal annarra. Ahuginn reyndist síðan gagn- kvæmur og samningar tókust - svo einfalt var nú það.“ Og hvernig hefur þú og fjöl- skyldan komið ykkur fyrir í borg- inni? „Ég hef fengið 4 herbergja íbúð á góðum og rólegum stað í austur- bænum og þar líður okkur vel, mér, konu minni Erlu Maríu Jóns- dóttur og syninum Rúnari Alex, sem kom í heiminn þann 18. febr- úar, Þar sem ég er eingöngu í knattspyrnunni gefst mér góðut tími til að vera heima með fjöl- skyldunni og fylgjast með syninum vaxa og dafna. Eg er hvorki i vinnu með knattspymunni, né í námi, þó slíkt gæti komið til síðar.“ Hvernig félag er svo ÖIS? „Þetta er að mörgu leyti líkt og KR, flottur, alvöru klúbbur og traustur. Menn hugsa hlutina líka faglega. Félagið er ríkt og stendur mjög vei, enda líka mikils metið innan sænskrar knattspyrnu, þó svo gengið hafi ekki verið sem best undanfarin ár. Mikið er lagt uppúr félagsskap milli leikmann- anna og að þeir umgangist utan æfínga og leikja. Hér er engin stjarna og allir sitja við sama borð. Þetta eru mest allt ungir strákar og mér líður eins og hálfgerðum pabba á köflum. En þetta eru hressir strákar og gott að ná sam- bandi við þá.“ Hvernig líta svo dagarnir og vikurnar út? „Við æfum 6 sinnum í viku, ef leikir eru reiknaðir inn, og sumir okkar æfa 2var sinnum á dag tvo daga vikunnar, þá aðallega tækni- æfíngar aukaíega. Þær æfíngar leggjast þó af þegar mótið fer í gang. Það er mikil áhersla lögð á að hafa boltann með í öllum æfing- um og mikið er spilað, það eru allar útgáfur af spili með boltann. Auk þess eru öll hlaup með bolta, hann er alltaf með í för.“ En sjálf æfingaaðstaðan? „Hún er mjög góð og allt önnur en maður býr við á íslandi. Heima er ekki hægt að æfa jafnmikið með bolta á undirbúningstímanum í janúar og febrúar. Hér höfum við verið að æfa og spila á möl frá áramótum, en í janúar og febrúar spila menn innanhúss á íslandi, æfa í líkamsræktarstöðvum og fara þaðan í útihlaup. Við aðstæð- urnar hér næst leikformið mun fyrr - það hefur ekki dottið úr æfing í vetur vegna veðurs.“ Hvemig líst þér á þjálfarann, Kalle Björklund? „Mér líst vel á hann, hann er með fínar æfíngar og fjölbreyttar og allir eru komnir í gott form. Hann er mjög ákveðinn og sterkur persónuleiki og menn komast ekki upp með neitt óþarfa múður við hann.“ Að sjálfu liðinu og knattspym- unni sem það spilar. Hvað viltu segja um þá hlið mála? „Knattspyman sem við spilum í sumar markast mjög af því að við erum nýliðar og erfítt verður að halda sér uppi. Við munum leika agaðan vamarleik, spila aftarlega á vellinum og reyna að beita skyndi- sóknum. Liðið á þó eftir að spilast nokkuð saman, í fyrstu uppstillingu em 6 nýir leikmenn, þannig að hálft liðið er nýtt. Ég sjálfur spila inni á miðjunni og sé fram á mikla vamarvinnu. Það verður þó að sjá hvemig málin þróast. Ókkur er spáð 12. sæti í deildinni, sem myndi þýða að við lentum í aukaleikjum í haust um sæti í henni. Við setjum stefnuna sjálfír á 8.-10 sætið og viljum alls ekki þurfa að lenda í neinum aukaleikjum. Reynslan hef- ur líka sýnt að tiltölulega fá stig skilja að liðin í sætum 5 -10, þann- ig að ef vel tekst til gætum við lent svo ofarlega.“ Hvaða mun sérð þú á sænskri og íslenskri knattspyrnu? „Fyrst og fremst er hraðinn í öllu mun meiri héma, bæði á spil- inu og á leikmönnum sjálfum. Mér fínnst til dæmis ótrúlegt hvað kantmenn þurfa að hlaupa mikið hér. Hérna er líka töluverð harka og menn taka vel á. Hinsvegar er ekki endilega lagt meira uppúr spili en heima og mér finnst það einkenna marga leikmenn hversu varkárnislega þeir spila. Það er eins og j)eir þori ekki að taka áhættu. Ég tel þó hiklaust að ég muni bæta mig sem knattspyrnu- maður á því að vera hér.“ Nú fengu Svíar skell í Tyrklandi á dögunum, hvernig líst þér á landsleikinn við þá þann 1. júní? „Ég hlakka mikið til þess leiks, það verður örugglega gaman að spila hann, ekki síst af því að maður er leikmaður hér í landinu. Þetta verður þungur róður og spurning hvort við náum sama góða Ieik og á Laugardalsvellinum í haust. Svíamir koma líka mun grimmari til leiks núna. Ég tel samt ekki útilokað að við gætum náð jöfnu.“ Að lokum Rúnar, hvernig spjar- ar KR sig í sumar? „Ég ætla ekki að vera með of bjartsýnislegar yfirlýsingar, en eigum við ekki að segja að KR nái allavega betri árangri en í fyrra,“ sagði landsliðsmaðurinn hjá Ör- gryte.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.