Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995 9 FRÉTTIR Smugnmál rædd í Ósló í lok apríl Boston. Morgunblaðið. ISLENSKA sendinefndin, sem nú situr úthafsveiðiráðstefnu Samein- uðu þjóðanna í New York, ræddi seint á föstudag við sendinefndir Norðmanna og Rússa á ráðstefn- unni. Áður höfðu átt sér stað þreifing- ar milli ríkjanna þriggja um Smug- una, en eina niðurstaðan úr þessum viðræðum, sem átt hafa sér stað utan dagskrár úthafsveiðiráðstefn- unnar, virðist að svo komnu máli vera sú að haldnar skuli viðræður í Ósló 26. og 27. apríl. „Þetta var ágætis undirbúningur undir fundinn í Ósló“, sagði Helgi Ágústsson, sendiherra og forsvars- maður íslensku sendinefndarinnar, um föstudagsfundinn þegar Morg- unblaðið náði tali af honum á laug- ardagsmorgun. Baldur samþykkti NÝGERÐUR kjarasamningur milli Verkalýðsfélagsins Bald- urs á Isafirði og vinnuveitenda á Vestfjörðum var samþykktur í allsherjaratkvæðagreiðslu með 117 atkvæðum gegn 5. Tveir seðlar voru auðir. Kjarasamningarnir hafa einnig verið samþykktir í verkalýðsfélaginu á Patreks- fírði. Eftir er að bera samning- ana undir atkvæða í Súðavík og Hólmavík. Ekki kemur því til verkfalls á Vestfjörðum, en verkfall hafði verið boðað á ísafirði og Patreksfirði. Morgunblaðið/Sig. Að. Fyrstu lömbin nefnd Ari og Halldór SAUÐBURÐUR hófst óvenju snemma á Vaðbrekku í Jökuld- al. Þó Sigurður Aðalsteinsson bóndi hafi tekið hrútana frá ánum fyrir „hrútamessu“, þ.e. 11. nóvember, höfðu hrútarnir náð að gamna sér eitthvað áður með þessum afleiðingum. Fyrstu lömbin, tveir myndar- legir hrútar, sáu dagsins ljós 20. mars og voru strax nefndir Ari og Halldór. Sigurður bóndi gefur þær skýringar á nafngift- inni að annað hrútlambið, sem kallað er Ari eftir nýkjörnum formanni Bændasamtaka Is- lands, hafi fengið nafn sitt af því að það jarmaði svo fallega. Hitt er nefnt í höfuð landbúnað- arráðherrans. Á myndinni sést heimasætan, Guðrún, með lamb í fjárhúsunum. Framkvæmdir fyrir 72 milljónir króna á íþróttasvæði Akurnesinga Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson FRAMKVÆMDIR við nýju stúkubygginguna á Akranesi hafa gengið mjög vel og er stúkan að taka á sig mynd. Ný áhorf- endastúka byggð NÚ ER unnið af fullum krafti við að fullgera nýja áhorfendastúku við íþróttavöllinn á Akranesi og er ráð- gert að hún verði fulibúin og tekin í notkun um miðjan maímánuð. Með tilkomu hennar batnar öll aðstaða áhorfenda á íþróttavellinum og allir staðlar alþjóðasamtaka knattspyrn- unnar um stúkubyggingar og að- búnað eru uppfylltir. Hér er um að ræða mannvirki sem nær eingöngu er byggt upp af heimamönnum. Öll forvinna var framkvæmd í vetur. Stúkan er Byggð upp með forsteyptum eining- um, sem nú eru uppkomnar, og eins er búið að setja gólfeiningarnar. Þessi vinna tók aðeins vikutíma. í næstu viku verða síðan settir upp bitar fyrir þakhlutann og þakið sett á. Allar framkvæmdir hafa gengið eins og í sögu. Þegar stúkan verður fullbyggð er rými fyrir 582 gesti í númeruðum sætum og að auki er fullkomin að- staða fyrir fjölmiðla og heiðurs- stúka. Gert er ráð fyrir að hægt sé að stækka stúkuna síðar, bæði með lengingu og eins verður hægt að hækka og breikka hana. Stólarn- ir sem settir verða upp eru frá stærsta stólaframleiðanda í Evrópu og meðal leikvanga sem hafa stóla frá því fyrirtæki eru Nou Camp leikvöllurinn í Barcelona og Parken leikvöllurinn í Kaupmannahöfn. Nýtt vallarhús brátt tilbúið Eins og áður segir eru verklok þessarar framkvæmdar um miðjan næsta mánuð og á sama tíma verð- ur tekið í notkun nýtt vallarhús á íþróttavellinum á Akranesi með fjórum búningsklefum og félagsað- stöðu sem tengist síðan öðrum mannvirkjum á staðnum. Þessar framkvæmdir í heild munu kosta rösklega 72 milljónir króna og at- hygli vekur að Knattspyrnufélag ÍA greiðir sjálft 40% af kostnaði við stúkubygginguna, en um þá fram- kvæmd var gerður sérstakur fram- kvæmdasamningur milli félagsins og Akranesbæjar. Að sögn Jóns Runólfssonar, for- manns Iþróttabandalags Akaness, eru þessar framkvæmdir mjög þýð- ingarmiklar fyrir framtíð íþrótta- starfs á Akranesi. „Okkar íþrótta- svæði er orðið gjaldgengt fyrir stór- viðburði á knattspyrnusviðinu, t.d. leiki í Evrópumótum og lands- keppnum og okkur finnst þetta vera mjög stór áfangi, ekki síst þar sem hingað til hefur verið lögð aðalá- hersla á uppbyggingu æfingasvæð- isins, og því lokið áður en til þess- ara framkvæmda kom. Þannig hef- ur okkur tekist að nánast fullgera aðstöðu, sem kemur okkur til góða við að halda úti öflugu starfi á knattspyrnusviðinu," sagði Jón. Kostnaður við kosningabaráttu Alþýðu- flokkur hyggst birta reikninga JÓN Baldvin Hannibalssön, for- maður Alþýðuflokksins, sagði í sjónvarpsumræðum flokksforingja í fyrrakvöld, að flokkur hans myndi eftir kosningar birta reikninga yfír kostnað sinn af kosningabarátt- unni. Jón Baldvin sagði að smá fram- lög væru yfirleitt lögð í kosninga- sjóð Alþýðuflokksins, og hann væri ekki skuldbundinn neinum þeim, sem látið hefði fé af hendi rakna. Ólafur Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, upp- lýsti að flokkur hans hefði sett regl- ur um „algert hárnark" á þá upp- hæð, sem hann tæki við frá hveijum aðila í kosningasjóð. Formenn flokkanna voru sam- mála um að ekki væri hætta á að tengsl við þá, sem fjármögnuðu baráttu þeirra, hefðu áhrif á stefnu flokkanna. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, nefndi sem dæmi um kostnað að sex fletir á flettiskiltum hefðu kostað eina milljón króna. Ólafur Ragnar sagði sjónvarpsauglýsingar flokksins hafa kostað þijár milljónir. Ákvæði laga þverbrotin SJÁLFSBJÖRG, félag fatlaðra á Akureyri og nágrenni, mótmælir setningu reglugerðar um hækkun bóta almannatrygginga um 4,8% og segir í ályktun frá aðalfundi að með útgáfu hennar sé þverbrotin ákvæði almannatryggingalaga. Fjórir bótaflokkar trygginga, grunnlífeyrir, tekjutrygging, heim- ilisuppbót og sérstök heimilisuppbót voru í febrúar 48.028 kr. og áttu skv. samningum almennu stéttarfé- laganna, sem miðað er við, að hækka um 2.700 krónur, auk 900 kr. af lágmarksuppbótinni eða um 3.600 kr. samtals. „Reglugerðin skilar aðeins 2.306 kr. og hirðir því ríkissjóður kr. 394 af launataxtahækkuninni og alla láglaunahækkunina, eða samtals 1.294 kr. og er það 36% þeirrar hækkunar sem falla átti í hlut líf- eyrisþega," segir í ályktuninni. SKIÐASVÆÐIN KOLVIÐARHOLSSVÆÐI BLAFJOLL Veðurhorfur: Suðvestan kaldi eða stinningskaldi. Slydda eða rigning og hiti nálægt frostmarki fram eftir morgni en síðar él og vægt frost. Lægir og léttir til þegar líður á daginn. Skíðafæri gott og nægur snjór. Opið: Kl. 10-18 fös:, laug., sun. og mán. Á þri., mið. og fim. er opið kl. 10-22. Upplýsingar í síma 91-801111. Skíðakennsla er allar helgar og hefst hún kl. 10.30, 12.00, 13.30, 15.00 og 16.30 og stend- ur í 1 '/2 klst. í senn. Ferðir: Sérleyfisferðir Guð- mundar Jónassonar sjá um dag- legar áætlunarferðir þegar skíðasvæðin eru opin með við- komustöðum víða í borginni. Uppl. eru gefnar í síma 683277 eða hjá BSÍ í sími 22300. Teitur Jónasson hf. sér um ferðir frá Kópavogi, Garðabæ og Hafnar- firði. Upplýsingar í síma 642030. Veðurhorfur: Suðvestan kaldi eða stinningskaldi. Slydda eða rigning og hiti nálægt frostmarki fram eftir morgni en síðar él og vægt frost. Lægir og léttir til þegar líður á daginn. Skíðafæri: Gott skíðafæri. Opið: Kl. 10-18 fös., laug., sun. og mán. Á þri., mið. og fim. er opið kl. 10-21. Upplýsingar í síma 91-801111. Skíðakennsla er allar helgar kl. 14.30 hjá Skíðadeild Víkings. í Hamragili er skíðakennsla allar helgar og hefst hún kl. 10.30, 12.00, 13.30, 15.00 og 16.30 og stendur í 1 '12 klst. í senn. Ferðir: Sjá Bláfjöll. SKALAFELL Veðurhorfur: Suðvestan kaldi eða stinningskaldi. Slydda eða rigning og hiti nálægt frostmarki fram eftir morgni en síðar él og vægt frost. Lægir og léttir til þegar líður á daginn. Skíðafæri ágætt, nægur snjór. Opið: Kl. 10-18 fös., laug., sun. og mán. Á þri., mið. og fim. er opið kl. 10-21. Upplýsingar: í síma 91-801111. Skíðakennsla er allar helgar og hefst hún kl. 10.30, 12.00, 13.30, 15.00 og 16.30 og stend- ur í 1 '/2 klst. í senn. Ferðir: Sjá Bláfjöll. ISAFJORÐUR Veðurhorfur: Suðvestan kaldi og snjókoma eða slydda fram eftir morgni en síðan hægari suðvestan- eða sunnanátt og léttir smám saman til. Hiti um eða rétt undir frostmarki. Skíðafæri gott og nægur snjór á báðum svæðum. Opið: Skíðasvæðið verður opið laugardag og sunnudag frá kl. 10-17. Opið virka daga frá kl. 13-18 og til kl. 20 þrið. og fim. Ath. gönguskíðabrautir eru troðnar í Tungudal. Upplýsingar: í síma 94-3125 (símsvari). Ferðir: Áætlunarferðir á svæðið alla daga frá kl. 12. AKUREYRI Veðurhorfur: Suðvestan kaldi eða stinningskaldi. Skýjað fram- an af degi og ef til vill einhver él en léttir til síðdegis, lægir með kvöldinu. Hiti um frostmark í fyrstu en síðan heldur kólnandi. Skíðafæri gott og nægur snjór. Opið: Virka daga kl. 13-18.45 og laugar- og sunnudaga kl. 10-17. Upplýsingar í síma 96-22930 (símsvari), 22280 og 23379. Skíðakennsla: Um helgina frá kl. 12 og á klst. fresti eftir þátt- töku. Ferðir á svæðið á virkum dögum kl. 13.30, 15.30 og 16.30 og síðasta ferð kl. 18.30. í bæinn er síðasta ferð kl. 19.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.