Morgunblaðið - 09.04.1995, Síða 23

Morgunblaðið - 09.04.1995, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. APRÍL1995 23 GUÐMUNDUR Jónasson, stofnandi fyrirtækisins. Fyrir aftan hann er einn af þeim framdrifsbílum sem hann keypti iý'á varnar- Iiðinu og breytti í farþegabíl. Myndin er tekin 1961. „Þad varð geysimikil aukning hjá okk- ur milli áranna 1992 og193 og aftur milli ’93 og f94. Enn sjáum við fram á metár. Talið er að aukning ferða- manna til landsins hafi á undanförnum árum verið 10-15% og er hlutur okkar að minnsta kosti svo mikill ef ekki meiri.“ ferðir fyrir Breta hingað og þeim var sagt að ekki þýddi að koma í janúar og febrúar, sem þeir gerðu samt. Sumir fengu ágætt veður, en eitt sinn var veðrið svo slæmt að vélin varð að lenda á Reykjavík- urflugvelli. Ekki sást á milli húsa og var bíll sendur út að vél til að sækja fólkið. Þegar leið á daginn lagaðist veðrið, en við kviðum því að fá yfir okkur óánægjuraddir. Nei, ekki aldeilis, fólkið var óskap- lega ánægt, því veðrið var þeim svo eftirminnilegt.“ — En nú er vonda veðrið aldrei auglýst? „Nei, við Islendingar höfum verið alltof hrædd við það,“ svarar Signý. „Okkur fannst við alltaf þurfa að afsaka veðrið og vorum rög við að auglýsa vetrarferðir. Þegar við byijuðum með áramóta- ferðirnar vorum við spurð hvort það væri ekki örugglega snjór hérna! Má ekki búast við góðum byl? spurði fólkið." Að fínna upp nýjungar — Hvemig sjáið þið ferðaþjón- ustu á næstu árum? „Heimurinn er alltaf að minnka og við erum að fá ferðamenn lengra að en áður og kröfuharð- ari,“ segir Kristín. „Við verðum í fysta lagi að fylgjast með og bæta stöðugt þjón- ustuna, vera opin fyrir nýjungum, því fólk er orðið svo ferðavant og vill eitthvað frábmgðið því sem það þekkir," segir Signý. — Er eitthvað f ferðaþjónustu sem þið hafið rekið ykkur á að megi gera betur? „Það má auðvitað alltaf gera betur,“ svarar Gunnar. „Til dæmis em langferðabílar í heild orðnir of gamlir. í vetur var stigið skref á Alþingi til úrbóta með því að minnka aðflutningsgjöld. Þetta eru dýr tæki og nýtingartíminn er svo stuttur að fjárfestingin er mönnum ofviða. En um leið og þetta var samþykkt breyttu þeir reglum um þungaskatt sem á að taka gildi 1. janúar 1996 og tóku þar með til baka að minnsta kosti það sem þeir létu okkur hafa. — Það verður þó kannski lagað með reglugerð," segir hann svo bjart- sýnn. „Eg get nefnt skort á aðstöðu úti á landi, til dæmis í tengslum við tjaldstæði, þó að sums staðar sé aðstaðan glæsileg," segir Krist- ín. „Þjónustan er víða í algjöru lágmarki. Það skortir víða þvotta- vélar, betri hreinlætisaðstöðu og aðstöðu fyrir hópa til að borða inni þegar illa viðrar.“ „Gmnnurinn í þessu er sá,“ grípur Gunnar fram í, „að það er dýrt að koma til íslands og þess vegna gerir fólk kröfur um að fá eitthvað sanngjarnt fyrir pening- ana.“ Þær vekja þó athygli á því að fólk útl.á landi sé að vakna til lífs- ins varðandi ferðaþjónustu og sé duglegt að fínna upp alls kyns afþreyingu, sem sé mikil breyting frá því sem áður var. Þetta hjálpi ferðaskrifstofunum til þess að gera ferðirnar fjölbreyttari. — Hvernig lítur sumarið út með bókanir? „Mjög vel,“ segir Signý. „Það varð geysimikil aukning hjá okkur milli áranna 1992 og ’93 og aftur milli ’93 og ’94. Enn sjáum við fram á metár. Talið er að aukning ferðamanna til landsins hafí á undanförnum ámm verið 10-15% og er hlutur okkar að minnsta kosti svo mikill ef ekki meiri.“ Þær segja að fyrirtækið hafi alltaf gengið vel og það sé ekki síst að þakka góðu starfsfólki. „Auðvitað höfum við unnið mikið og þau 30 ár sem ég hef verið hér hefur verið eins og einn langur vinnudagur og rennur út í eitt,“ segir Signý. „Þó að við, ásamt skrifstofu- fólkinu, vinnum forvinnuna er það í höndum bílstjóra, leiðsögu- manna, kokka og annarra að leysa úr málunum þegar fólkið er farið frá okkur. Við höfum verið mjög heppin með starfsfólk," bætir Kristín við. Tekur þriðja kynslóðin við — Ein spuming að lokum. Tek- ur þriðja kynslóðin við fyrirtæk- inu? „Ég er búin að bíða eftir þessu allan tímann,“ segir Signý og hlær. Þau segja að börn þeirra hafi unnið meira og minna við fyrirtækið en þau leggi áherslu á að þau kynnist einnig störfum í öðrum fyrirtækjum. „Það er ekki þar með sagt að þau hafi endilega áhuga á að vinna við þetta fyrir- tæki og þau verða líka að hafa eitthvað til bmnns að bera. Það er ekki nóg að vera börnin okk- ar,“ segja þau. tSa Aðalfundur Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands verður haldinn þriðjudaginn 25. apríl 1995 kl 20.30 á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. 2 Önnur mál. Félagsmenn sýni félagsskírteini 1994 við innganginn. Stjórn Reykjavíkurdeildar RKÍ. Eitt blab fyrir alla! - kjarni málsins! í dag opnum við nýja og glæsilega bifreiðaskoðun við Sundahöfn. Sparaðu þér tíma og fyrirhöfn. Pantaðu tíma sem hentar þér í síma 588*6660 ATHUGUN hf SKOÐUNARST O FA Klettagöröum 11 • 104 Reykjavík Sími 588 6660 • Fax 588 6663

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.