Morgunblaðið - 18.05.1995, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTÍIDAGUR 18. MAf 1995 11
FRETTIR
Ólafur hefur störf
í Reykholti 1. júní
Ólafur Þ.
Þórðarson
ÓLAFUR Þ. Þórðarson segir að
fyrri yfirlýsingar sínar um að hefja
störf við Reykholtsskóla að nýju
standi. Hann kannast ekki við að
hafa borið kenn-
ara í Reykholts-
skóla þeim sökum
sem þeir lýsi í yfir-
lýsingu sinni.
Kennararnir vísa
til viðtals við Ólaf
um málefni Reyk-
holtsskóla í Morg-
unblaðinu á föstu-
dag.
Olafur sagðist
hvorki gera fund
sinn með nemend-
um né kennurum að umræðuefni í
blöðum. „Mín skoðun er aftur á
móti sú að báðir fundirnir hafi ver-
ið mjög gagnlegir því skipst var á
skoðunum. Nú er það svo að ég
sagði ákveðna hluti í þessu viðtali
í Morgunblaðinu og blaðamaðurinn
innti mig eftir því hvort þetta væri
rétt eftir mér haft og ég játaði
því. Þannig að ég fer ekki að bera
það á þann blaðamann að hann
hafi skrifað eitthvað eftir mér sem
ég ekki sagði.
Ég fínn ekki í þessum orðum
mínum það sem þessir kennarar eru
BÆNDUR OG HESTAMENN
RAFGIRÐINGAR
MR búðin •Laugavegi 164
Símar: 551 1125 • 552 4355 • Fax 581 4450
að tala um og ég hef látið duga í
gegnum tíðina að sitja uppi með
ábyrgðina á því sem ég hef sagt.
Ef menn vilja túlka það á annan
veg verða þeir að bera ábyrgð á
þeirri túlkun," sagði hann.
Vildi hefja störf sem fyrst
Um starfið segist hann einfald-
lega hafa verið í leyfi. Að því loknu
hafi hann með bréfi til ráðuneytis-
ins lýst því yfir að forsendur lejrfis-
ins væru ekki lengur til staðar.
„Það tilkynnist hér með að leyfi það
sem ég hef verið í vegna þing-
mennsku er á enda runnið," les
Ólafur upp úr bréfinu. „Sem skipað-
ur skólastjóri í Reykholti í Borgar-
firði æski ég þess að hefja störf sem
fyrst. Vænti þess að ekki dragist
að ég verði upplýstir um það ef
meinbugir eru á endurkomu til
starfa.“
Hann segir að sér hafi borist svar
um hæl. „Þar sem það er tilkynnt
hvenær ráðuneytið telur eðlilegt að
ég mæti til starfa, 1. júní. Einfald-
lega vegna þess að innritun nem-
enda hefst þegar búið er að ljúka
þeirri önn sem núna standa yfir próf
í,“ segir hann og um leið og hann
staðfestir að hann hafí ekki annað
í hyggju en að hefja störf að nýju.
iMUS Bómuliarpeysur
FnÍÍ'stT?" °3skVrtur
j^yjQS fiýtt merki
industry"' í barnafötum
-Gæð\ á qóðuverðl -
ENOLABÖRNÍN
Barikastrceti 10 • sími 552-2201
1
mm 11
BFRC SSMANUMER
588 55 30
- kjarni málsins!
olmœling
■ Reykiavik og
í félagsmiðstöð rafiðnaðarmanna að
Háaleitisbraut 68, 3 hæð, þriðjudaginn 23.
maí n.k., frá kl. 16:00 til 21:00.
Fagmenn munu mæla þol, blóðþrýsting og
blóðfitu þátttakenda ásamt því að veita
einkaráðgjöf um þjálfun og bættan lífsstíl.
Pantið tíma í síma: 5681433.
- Mæling og ráðgjöf tekur u.þ.b. 20 mín.
og kostar kr. 1000.
RAFIÐNAÐARSAMBAND
ÍSLANDS
Blómleg óvöxtun!
Nú fœrbu hœrrí ávöxtun á sparifé þitt í ísiandsbanka.
Verbtryggb Sporileib 48 Óbundin Sparileib
Taktu markvissa stefnu ísparnaöi.
Þaö borgar sig aö spara á Sparileiöum íslandsbanka.
ÍSLANDSBANKI
<ó
- / takt viö nýja tíma! |