Morgunblaðið - 18.05.1995, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 18.05.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIVIGAR FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995 39 I I I I I i í ALMA SIG URÐARDÓTTIR + Alma Sigurðar- dóttir fæddist 15. desember 1929 á Norðfirði. Hún •Iést 10. maí sl. í Sjúkrahúsi Suður- nesja. Foreldrar hennar voru Helga Davíðsdóttir frá Bændagerði í Eyja- firði og Sigurður Magnússon úr Leiru (á Suðurnesj- um). Hálfsystir Olmu var Sigríður Sigurðardóttir sem nú er látin. Uppeld- isbróðir hennar er Hafsteinn Þorgeirsson sem býr í Reykja- vík. Sambýlismaður Olmu var Gunnar Jóhannesson og bjuggu þau á Akureyri. Börn þeirra eru: 1) Sigurður Birkir, f. 16.03. 1947, kvæntur Báru Benedikts- dóttur og eiga þau tvo syni, Benedikt og Róbert. 2) Helga Bryndís, f. 2.12. 1949, gift Baldri Ellertssyni og eiga þau fjögur börn, Jóhannes, Astu Björk, Andreu og Ell- ert. Alma og Gunnar slitu samvistum. 1952 giftist Alma eftirlif- andi eiginmanni sín- um Magnúsi Berg- mann Karlssyni og voru þau búsett í Keflavík. Börn þeirra eru: Skúli Þór, f. 17.4. 1952, Magnús Bergmann, f. 9.6. 1958, og María, f. 23.8. 1960, gift Sölva Þ. Hilmarssyni og eiga þau þrjú börn, Helgu Heiðdísi, Hilmar Rafn og Hinrik Örn. Alma ólst upp á Akureyri til tvítugs og flutti þá til Keflavíkur þar sem hún bjó til dánardags, nú síðast á Aðalgötu 6. Útför Ölmu fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 14.00. VORIÐ er sá tími ársins er nýtt líf kviknar alls staðar í náttúrunni. Allt lifnar við, bæði menn, dýr og gróður. Þegar vorið kemur, hlýnar manni líka um hjartarætur og það er eins og birti til í sálinni. Það eru margar minningar um hana mömmu sem koma upp i huga mér þar sem ég sit hérna á þessum fal- lega vordegi í maí og hugsa til baka. Þetta eru bæði góðar og ljúf- ar minningar. Tíminn líður svo hratt og mér fínnst ekki svo langt síðan ég var smá stelpa með mömmu á gangi niðri í bæ, hún í síðri kápu og með slæðu eins og flestar mömmur voru þá og ég á köflóttum stredsbuxum og strigaskóm og í fallegri peysu í stíl. ís þótti mér góður og oft var stoppað á ísbarnum við Hafnargöt- una eftir dálítið suð og keyptur ís í brauðformi. Já, við vorum búnar að fara margar ferðirnar saman við mæðgumar. Allt frá upphafi tengd- umst við böndum sem styrktust með hveiju árinu. Við urðum strax góðar vinkonur og það hélst allar götur síðan. Ég var einnig svo lán- söm að eignast góða móðurömmu og áttum við margar góðar stund- irnar saman amma, mamma og ég enda áttum við svo margt sameigin- legt. Ung kona var mamma mjög fal- leg. Hún unni söng og góðri tón- list, hafði góða söngrödd og hennar draumur var að læra að syngja. En alvara lífsins tók við strax á unglingsárunum, orðin tveggja barna móðir aðeins 19 ára, svo að ekkert varð úr söngnámi. Þegar ég fór svo sjálf að mennta mig var það hún sem studdi mig og gaf mér trú á sjálfa mig og sjálfstraust mitt á ég að miklu leyti henni að þakka. í lífsins ólgusjó þurfum við stundum á þolinmæði að halda og af henni átti hún mamma mín nóg. Heilsan var oft á tíðum ekki góð en áfram hélt hún ótrauð. Þetta sáum við best sem umgengumst hana tvö sl. ár þegar mest á reyndi. Hún var öllum mjög kærleiksrík sama hver átti í hlut. Mamma lifði fyrir fjölskyldu sína, það var hún sem henni var kærust og mátti lesa það úr öllum hennar verkum. Náið og gott samstarf hef- ur alla tíð verið milli foreldra minna og mín. Mamma sá varla sólina fyrir barnabörnunum sínum og Öfugt. Alltaf var amma til taks, boðin og búin ef á þurfti að halda, hve- nær sem var sólarhringsins. Ég man ekki eftir að hafa heyrt nei- kvæðan tón eða hik á henni í eitt einasta skipti sem ég bað hana um eitthvað. Þetta myndi ég kalla ein- staka fórnfýsi. Við gátum endalaust rætt um börnin mín, daginn út og daginn inn og hún naut þess inni- lega að vera amma og vegna hlý- leika hennar hændust þau að henni. Hún hafði mjög gaman af að gauka að þeim einhverju og við sem þekkt- um hana vissum að hún var sérlega gjafmild. A mínu heimili heyrðist oft þessi setning: „Besta amma í heiminum," og eru það kannski bestu orðin til að lýsa henni. Lífsstarf mömmu, húsmóður- starfíð, leysti hún vel af hendi, hún var sérlega þrifin og snyrtileg og hafði auga fyrir því sem var fallegt og smekklegt. Heimilið hennar bar þess glöggt vitni. Ekki var bakstur- inn síðri, ég gleymdi aldrei jólasmá- kökunum hennar, þær voru í sér- flokki. Á árunum ’77-’78 vorum við mamma svo heppnar að kynnast frelsara okkar Jesú Kristi og breytti það öllu okkar lífi. Höfum við verið hluti af guðs fjölskyldu síðan. Það var svo fyrir tveimur árum að mamma greindist með krabbamein, sem var okkur öllum auðvitað mik- ið áfall. Á þessum tíma kom glöggt í ljós hversu mikils virði trú hennar var henni. Hún treysti Guði frá upphafi veikinda sinna og lagði allt í hans hendur enda var hún einstak- lega róleg og yfirveguð svo að fólk hafði orð á. Við skiljum ekki alltaf vegi Guðs en treystum því að hann velji alltaf það besta fyrir okkur. Með allt sitt líf upp gert og allt sitt traust á Guð kvaddi mamma þennan heim. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að hjúkra henni og gera henni til góða þessi tvö síð- ustu ár. Ég kem til með að sakna hennar sem móður og sem bestu vinkonu minnar en ég verð að segja að ég samgleðst henni að vera komin í félagsskap frelsara okkar. Orð Guðs lofar okkur því að þeir sem eiga Jesú Krist sem frelsara sinn lifi áfram með honum eftir sinn lík- amlega dauða, þ.e. andi okkar lifír áfram hann er ódauðlegur, sbr. Jóh. 11. 25., sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi og sbr. Jóh. 14. 3., og þegar ég er farinn burt og hefí búið yður stað, kem ég. aftur og mun taka yður til mín, til þess að þér séuð og þar sem ég er.Þetta eru allt orð Jesú Krists. Ég hef því ekki áhyggjur af henni mömmu minni í dag eða nokkurn tíma framar, ég veit að henni líður mjög vel og að ég á eftir að hitta hana seinna þegar ég sjálf fer til frelsara míns einhvern tíma. Mikið af traustu og góðu fólki studdi við bakið á mömmu í veikind- um hennar og hún átti marga góða vini. Öll þessi hjálp var henni ómet- anleg. Guð bar hana líka á örmum sér, það var alveg greinilegt frá upphafi. Elsku mamma, þakka þér fyrir allt traustið og öryggið sem ég fann hjá þér og allar samverustundirnar, þú átt öruggan stað í hjarta mínu. Ég minnist þín um daga og dimmar nætur mig dreymir þig svo lengi hjartað slær og þegar húmið hylur allt sem grætur mín hugarrós á leiði þínu grær. Þín kærleiksbros mér aldrei aldrei gleymast þitt allt, þitt bænamál og hvarms þíns tár. Hvert ráð hvert orð, hvert armtak þitt skal geyma þín ástarminning græðir lífs míns tár. Ein friðarstjarna á fagurhimni blikar eitt friðarljós í sölum uppheims skín sem veitir frið og fró þá tárið titrar á tæru auga hvarms við náðarlín. Sú ljúfa minning lifir mér I hjarta hún ljóma slær á ævi minnar braut. Ég á þig enn svo fagra blíða bjarta. Ég bý sem fyrr við töfra þinna skaut. Þín dóttir, María. Elsku amma! Við þökkum þér fyrir allt sem þú varst okkur, þökkum fyrir alla blíðuna þína, hlýju faðmlögin og umhyggjuna þína sem var einstök. Við trúum því að þér líði vel hjá Jesú núna. Þín barnabörn, Helga Heiðdís, Hilmar Rafn, Hinrik Örn. Lærdómstími ævin er. 0, minn Drottinn, veit ég geti numið allt sem þóknast þér, þína speki dýrast meti. Gef ég sannleiks gulli safni, gef í visku og náð ég dafni. (H. Hálfd.) Þar sem ég nú fletti gömlu sálmabókinni hennar ömmu, sé ég að merkt hefur verið við þetta vers og fleiri í þessari bók, það stendur „próf“ og ég veit að það var hún Alma frænka mín sem nú er látin, sem hefur merkt við. Hún var að læra fyrir biblíusögutíma vel og samviskusamlega eins og allt sem hún gerði, það skyldi vera vel af hendi leyst. Við Álma vorum systradætur, hún var eldri og leit ég alltaf upp til hennar'og var stolt af frænku minni. Mín fyrsta minning um hana er sú að Alma situr með mig á rúmstokknum þar sem hún var las- in með mislinga. Hún er að hossa mér á hnjánum og auðvitað fékk ég þá lfka mislinga. Smám saman koma fram myndir í huga mér, t.d. þegar við Alma vorum að leika okkur bak við hús í Gránufélagsgötunni á Akureyri. Drullukökubaksturinn var heilmikil list og allt var vandlega skreytt með sagi og fíflum. Einu sinni fund- um við lítinn dauðan fugl og þá var jarðarför á túninu þar sem nú stend- ur leikskóli. Það er sunnudagur og þá fórum við auðvitað í sunnudaga- fötin og nú skyldi haldið í þrjúbíó. Alma fór gjarnan með mig þangað. Þar var mikið troðist því margt var um manninn. Alma hélt fast í hend- ina á litlu frænku sinni og passaði mig vel. Alma gekk í stúkuna Sam- úð og auðvitað tók hún mig með þangað og það má eiginlega segja að hún hafi leitt mig fyrstu sporin út í lífið. Hún fræddi mig um heil- mikið varðandi lífið og tilveruna svo ég gapti stundum yfír hvað hún vissi mikið. Já, hún Alma var dug- leg að læra, ég man alltaf eftir barnaskólaskemmtuninni þegar hún sýndi leikfimi ásamt öðrum jafnöldrum sínum, hvað þær voru fínar í hvítu leikfimikjólunum sínum með rauðum borðum og með slaufu í hárinu. Já, svona liðu árin, við Alma vorum einmitt að minnast þess í vetur, þegar við vorum litlar stelpur hjá afa og ömmu sem bjuggu stutt frá okkur. Alma bjó við gott atlæti í bernsku hjá foreldrum sínum, síðan komu unglingsárin og eftir fermingu fór hún að vinna. Hún var ung að árum þegar hún trúlofast og á sín fyrstu börn. Þegar hún var ófrísk af öðru barni sínu fékk hún góða hjálp frá móður sinni sem gætti eldra barns- ins til að hún gæti farið í húsmæðra- skólann á Akureyri. Þá var nú ekki stokkið inn í bílana á morgnana og brunað af stað, nei, þá þurfti fólk að ganga milli staða og það gerði Alma alla morgna. Hún gekk neðan af Eyri og upp á Brekku í skólann þar sem hún var við nám og störf allan daginn og síðan var arkað heim að kvöldi og barni og heima- verkefnum sinnt. Nokkru síðar flytja þær Alma og móðir hennar Helga til Keflavíkur þar sem Alma bjó til dánardags en oft var komið norður þegar færi gafst í amstri lífsins. Þegar ég fletti myndaalbúmi móður minnar sé ég mynd af Olmu sem ungabarni liggj- andi á gæruskinni. Þar sé ég einnig mynd af Hafsteini uppeldisbróður hennar. Síðan er þarna mynd af fjölskyldunni úr Keflavík, Ölmu, Magga, Sigga, Skúla, Magga yngri og Maju. Þegar ég fletti áfram rek ég augun í fleiri myndir, þarna er mynd af Helgu móðursystur minni með Helgu Bryndísi nöfnu sína, dóttur Ölmu. Já, margs er að minnast og margs er að sakna. Ég veit að ég á eftir að sakna þess að heyra ekki rödd Ölmu í símanum. Við slógum stundum á þráðinn ogtöluðum sam- an um Iífið og tilveruna, eins og gengur. Til marks um það gerðist það fyrir nokkrum árum að síminn hringdi að morgni afmælisdags míns, þá kallar lítil dótturdóttir okkar og segir: „Amma nú er hún Alma að hringja." Jú, mikið rétt, Alma var að hringja eins og alltaf á þessum degi. Aldrei var farið til Reykjavíkur án þess að renna til Keflavíkur og móttökurnar alltaf jafn hlýjar og notalegar. Alma átti góða vini sem hún sagði mér frá sem studdu dyggilega við bakið á henni og hjálpuðu henni og fjölskyldunni í veikindum henn- ar. Alma talaði líka um hversu þakklát hún væri fyrir að hafa eign- ast svona góða nágranna á nýja staðnum á Aðalgötu 6 í Keflavík sem þau Maggi voru nýbúin að kaupa, ný og falleg íbúð. Elsku Maggi og öll fjölskyldan, við sendum ykkur innilegar samúð- arkveðjur í ykkar miklu sorg, en við vitum að Alma frænka á góða heimkomu, því hún var góð mann- eskja sem öllum vildi vel. Kæra frænka mín! Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Guðfinna. Það verða þung spor og hjörtu full saknaðar, nú þegar við fylgjum Ölmu síðasta spölinn á þessari jörð. Þó er það huggun að hún hefur nú fengið hvíld og er komin heim til Drottins. Biblían kennir okkur að Jesús hafí sagt: Sá sem trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja. Hann segir líka: Ég fer burt að búa yður stað. Einnig segir: En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð og þann sem.þú sendir, Jesú Krist. Við trúum þessum orð- um og það gerði Alma líka og því var enginn ótti í hennar hjarta. Hún vissi að hún færi beint heim í faðm Drottins. Guð gaf Ölmu ótrúlega ró í gegn- um öll hennar veikindi og allt til enda var friður Guðs yfir hennar sjúkrabeði. Alma var fínlega vaxin og falleg kona. Hún var kærleiksrík og elskuleg og alltaf svo gott að tala við hana. Við höfum átt sam- leið með Ölmu síðustu fjórtán árin og erum þakklát fyrir þau. Síðustu árin var Alma okkur sem móðir, og hafði oft á orði að við værum eins og börnin hennar. Það var allt- af notalegt að koma í heimsókn til Ölmu og Magnúsar, á þeirra fallega heimili. Síðustu mánuðina átti Alma trygga stoð í dóttur sinni Maríu, sem er hjúkrunarfræðingur að mennt. Voru þær mæðgur alla tíð injög samrýndar. Einnig reyndist eiginmaður hennar Magnús henni mikill styrkur. Við vottum Magnúsi, Maríu og ljölskyldu, Sigurði og Qölskyldu; Skúla og Magnúsi yngri innilega samúð. Kristinn og Þórdís. Nú kveð ég Ölmu mína í bili. Ég er alin upp við fagran fjörð, Dýra- fjörð, með fjöllin allt um kring eins og öryggisverði. Alma var mér eins og fjöllin, svo örugg, traust og mér svo góð. En nú er komið skarð og fegursta fjallið horfið. Orðaval hennar var fagurt eins og hún sjálf og það er með söknuði sem ég horfi á eftir Ölmu, og það gera einnig eiginmaður, börn og barnabörn, en huggun gegn harmi er að við sjáumst aftur, þegar Hann sem öllu ræður leyfir. Eg þakka Ölmu yndislegar samverustundir og votta Magnúsi, Maríu og fjölskyld- unni allri, mína innilegustu samúð. Dagrún Friðfinnsdóttir. Mig langar til að minnast hennar Ölmu með nokkrum fátæklegum orðum. Þegar ég var að alast upp, leit ég alltaf á Ölmu sem frænku mína, af því að hún var konan hans Magga móðurbróður míns. En eftir að ég fór fyrir tæpum tíu árum að vinna í verslun sem er rétt hjá hús- inu sem Alma og Maggi áttu heima í, og ég hitti haná flesta daga sem ég var að vinna, fór ég að líta á hana sem vinkonu mína. Mér fannst alltaf svo gott að hitta hana, hún var alltaf í góðu skapi, og svo þægi- leg í umgengni. Þegar ég og maður- inn minn bytjuðum að búa, fékk Helga móðir Ölmu leigt herbergi hjá okkur. Hún svaf í herberginu á næturnar, en var hjá Ölmu og Magga á daginn. Þegar við svo fluttum þremur árum seinna í ann- að hús, þá flutti Helga með okkur. Helga var ættuð frá Akureyri, og bjó þar þangað til hún flutti með Ölmu til Keflavíkur, þegar Alma _ var um tvítugt. Helga var sérstak- lega almennileg kona, og voru þær Alma um margt líkar. Alma og Maggi byggðu einbýlishús á Vest- urgötu 44 í Keflavík og bjuggu þar í rúm 30 ár. Alma var frábær húsmóðir, og voru þau hjónin svo samtaka um að hafa allt sem snyrtilegast, bæði innan húss og utan. Fyrir tveimur árum seldu þau húsið sitt, og keyptu skemmtilega íbúð, í nýju húsi á Aðalgötu 6 í Keflavík. Þar lentu þau í húsi sem góðu fólki sem hef- ur reynst þeim vel. Þegar það kom í ljós að Álma væri haldin illkynja sjúkdómi, var það mikill styrkur fyrir hana, að María dóttir hennar, sem er hjúkrunarfræðingur, studdi hana á allan hátt, hún fór með henni þegar hún fór í rannsóknir, og þegar hún fór á sjúkrahús hugs- aði hún um hana. Síðasta hálfa mánuðinn var hún hjá henni dag og nótt. Trúin gaf henni mikinn styrk í veikindunum. Skúli sonur Ölmu mun útskrifast sagnfræðing- ur hjá Háskóla íslands 17. júní næstkomandi. Var Alma svo glöð, að hann væri að ljúka þessum áfanga. Ég kveð Ölmu mína með söknuði og þökk fyrir samfylgdina og bið guð að geyma hana. Minný. Ég mun sakna vinkonu minnar Ölmu. Þrátt fyrir vissar hindranir í samskiptum okkar vegna tungu- málaerfiðleika var vinátta okkar góð. Kærjeikur Krists tengdi okkur saman. Ég mun sakna þessarar yndislegu konu, en ég veit að hún er núna glöð og ánægð í félagsskap frelsara okkar Jesú Krists. Shirley Bradley. • Fleiri minningargreinar um OlmuSigurðardóttur bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.