Morgunblaðið - 18.05.1995, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Úrelding eða ekki
Um mjólkursam-
lag Borgfirðinga
FÁTT er okkur velunnurum
Borgarfjarðarhéraðs ógeðfelldari
tílhugsun í dag, en úrelding og lok-
un Mjólkursamlags Borgfirðinga.
En eins og Þorkell Fjeldsted bóndi
í Feijukoti sagði svo skemmtilega
í sjónvarpsviðtali, reiknimeistarar
hafa komist að þessari niðurstöðu,
að úrelding MSB sé fjárhagslega
hagkvæm, sem hagræðingaratriði
fyrir landbúnaðinn. Mér fannst
leynast tónn vantrúar og vandlæt-
ingar í tilsvari Þorkels á niðurstöðu
reiknimeistaranna, og svo var um
mig og ég hygg að svo sé um ótal-
inn Qölda einstaklinga í þessu hér-
aði, og þá kemur að stóru spurning-
unni, reiknuðu reiknimeistararnir,
rétt? Því ekki, í þessu máli, að taka
mið af'því sem gert er í réttarfari
þjóðarinnar, og notast við tvö dcm-
stig til að forðast rangar niðurstöð-
ur eða að dæma ranga dóma. Af
hveiju skyldum við ekki kveðja til
annan aðila, til að leggja hagfræði-
legt mat á niðurstöðurnar, þar sem
allar forsendur fyrir niðurstöðunum
hefðu fyrst verið endurskoðaðar.
Hér væri mín hugmynd sú að Hag-
fræðideild Háskolans yrði falið
verkið, þar sem varla væri hlut-
lausari aðila hægt að finna, né held-
ur hæfari aðila hvað fagþekkingu
viðkemur, og hraða svo verkinu sem
mest má vera án þess að það kæmi
niður á gæðunum.
Við sem höfum lítið til málsins
lagt hingað til og höfum lifað í
þeirri trú að af úreldingu yrði ekki,
höfum nú fyllst undrun og hneyksl-
un. Þessa dagana er það að upplýs-
ast, að iðnfyrirtæki á höfuðborgar-
svæðinu, Sól hf. er tilbúið til sam-
starfs, og með aukna starfsemi í
huga, jafnvel stofna nýtt og stærra
fyrirtæki um reksturinn, og þá
skrifar ráðherra landbúnaðar í hasti
undir úreldingarsamninginn, já, úr- .
elding skal það vera og ekkert ann-
að. Uppbygging og aukning iðnaðar
skal ekki eiga sér stað hér.
Lái mér hver sem vill, en ég dreg
í efa að landbúnaðarráðherra Guð-
mundur Bjamason hefði hraðað svo
mjög undirskrift sinni
ef um Mjólkursamíag-
ið á Húsavík hefði ver-
ið að ræða. Ef nú til
úreldingar kemur,
hvað kostar það.
Heyrst hefur að fyrsta
útborgun til KB sé ein-
ar litlar 250 milljónir
jafnvel að endanlegar
niðurstöðutölur verði
kringum 450 milljónir.
Er þetta réttlætan-
legt? Og hvar eru þess-
ir peningar?
En það kemur fleira
til. Nú hefur starfs-
fólki MSB verið sagt
upp störfum. Og þá
kemur ein spurning
enn. Hve margir verða atvinnulaus-
ir, og hve lengi? Er það með í út-
reikningum um úreldingarkostnað-
inn hve mikið fjármagn þurfí í at-
Er það með í úreldingar-
kostnaði, hvað atvinnu-
leysið kostar, spyr Guð-
mundur Jónsson, sem
vill að Hagfræðideild
Háskólans reikni upp
dæmi Mjólkursamlags
Borgfirðinga.
vinnuleysisbætur til þeirra sem tapa
sinni vinnu, eða er ríkissjóði ætlað
að axla þá byrði. Að mér læðist
grunur sá að ekki fyllist fjármála-
ráðherrann tilfinningu þakklætis að
fá fleiri viðskiptavini'útgjaldamegin
á ríkisreikninginn.
Mér finnst að hér sé fleira sem
þurfi athugunar við, sem sé sala
fasteigna. Þeir sem missa sína at-
vinnu við úreldinguna munu leita
sér atvinnu annarstaðar og setja
sínar íbúðir og hús á sölu hér. Sala
á fasteignum á þessu svæði hefur
gengið treglega að undanförnu og
aukið framboð yrði til þess að ein-
hveijir yrðu að selja á
verulega niðursettu
verði frekar en lenda í
gjaldþroti, sem mundi
síðan auka erfiðleika
annarra fasteignaselj-
enda.
Sagt er að stöðug-
leiki sé undirstaða
framfara, ég fæ ekki
betur séð en úrelding
MSB myndi valda hér
ómældum óstöðugleika
og þarmeð engum
framförum heldur sam-
drætti. Úrelding MSB
myndi auk þess valda
fákeppni á þessu sviði,
og hvað segja neyt-
endasamtökin um það;
samkeppni er líklegri til að lækka
verð og bæta þjónustu, en fá-
keppni. Það mundi heldur ekki þýða
fyrir framkvæmdastjóra stórmark-
aðanna að setjast uppí næsta sendi-
ferðabíl og aka í Borgarfjörðinn til
þess að fá sínum kröfum fullnægt,
svo sem gerðist á síðastliðnu sumri.
Er ekki hugsanlegt að Hagkaup og
fleiri slíkir styðji þessa hugmynd,
sem upp er komin um samstarf
Sólar hf. og MSB.
Það er heldur ekki úr vegi að
velta því lítillega fyrir sér hvað það
kostar að flytja eitt tonn af mjólk
til Reykjavíkur, pakka henni þar í
neytendaumbúðir hjá Mjólkursam-
sölunni og síðan upp í Borgarfjörð
næsta dag, en hér stæðu pökkunar-
vélarnar ónotaðar og starfsfólk
MSB á atvinnuleysisbótum. Já, eins
og Þorkell Fjeldsted sagði, reikni-
meistararnir segja það, nefnilega,
að það sé hagkvæmt að úrelda
MSB, en ég spyr, reiknuðu reikni-
meistarnir rétt? Hann er mikill
„andskotinn" í börnum vantrúar-
innar og sum börn verða ekki barin
til hlýðni. Eða flytja mjólk til
Reykjavíkur héðan úr Borgarfirði,
frammleiða þar úr henni skyr og
síðan skyrið upp í Borgarfjörð
næsta dag; nú er vitað að verulegur
hluti mjólkurinnar verður að mysu
við skyrframleiðslu, og hve stór
hluti mysunnar skyldi nú seljast,
ætli það fari ekki megnið af henni
í niðurföllin í höfuðborginni, og
Guðmundur
Jónsson
TlLRAUNA-
VERKEFNIÐ
ÍBÚÐ Á
EFRI HÆÐ
Opið hús á Laugavegi 5
dagana 18. til 24. maí kl. 13 til 18
Reykjavíkurborg og Þróunarfélag Reykjavíkur sýna þrjár íbúðir á
Laugavegi 5 í tengslum við verkefnið „íbúð á efri hæð“.
íbúðimar eru í eigu Félagsíbúða iðnnema. Þær eru búnar hús-
gögnum og húsbúnaði frá versluninni Habitat og heimilistækjum
frá Heimilistækjum hf.
Sýningin verður opnuð í dag kl. 13 og er opin daglega kl. 13 til
18. Henni lýkur miðvikudaginn 24. maí.
Lítið inn og sjáið nýjar íbúðir í
gömlu húsi í miðborginni!
þetta á að vera hagkvæmt. Þessu
til viðbótar erum við Borgfírðingar
sannfærðir um að hingað til hafi
MSB framleitt besta skyr á íslandi
að öðrum ólöstuðum.
Ennþá hefur ekki orðið af lokun
MSB. Ennþá lifír starfsfólk MSB í
voninni um áframhaldandi vinnu
og ennþá halda velunnarar Borgar-
fjarðarhéraðs í vonina um að óábyrg
miðstýringar- og niðurrifsöfl fái
ekki sínu framgengt eða að ráða
ferðinni. Hér er aðeins eitt haldreipi
eftir, en það er forysta Sjálfstæðis-
flokksins, og á þá forystu treystum
við í lengstu lög.
á þessum síðustu tímum vaxandi
atvinnuleysis hafa komið fram hjá
launþegahreyfingunni sem og öðr-
um, æ háværari kröfur um að stuðla
beri sem mest má vera að uppbygg-
ingu atvinnulífs í landinu, en hér á
að leggja hundruð milljóna í úreld-
ingu rótgróins fyrirtækis, sem hefur
óhjákvæmilega í för með sér at-
vinnuleysi ef til vill 30-40 manns
um óákveðinn tíma; lítið fagnaðar-
efni það. Hérna finnst mér nú hlut-
irnir heldur betur rekast hver á
annars horn, en þetta fyrirtæki er
landsþekkt fyrir úrvals matvæla-
framleiðslu.
Hér með er skorað á forystumenn
Sjálfstæðisflokksins að heimsækja
þetta fyrirtæki og beija það eigin
augum, því sjón er sögu ríkari, einn-
ig mundu þeir hafa gleggri mynd
af því sem gert hefur verið ef af
úreldingu verður. Einnig er hér með
skorað á hagræðingarnefndina að
útskýra sínar kenningar, og það
helst á því máli sem hinn almenni
borgari skilur. Á meðan við hluteig-
andi aðilar höfum ekki séð útskýr-
ingarnar um hagræðinguna í þess-
um tillögum þá munum við kalla
þessar úreldingarkenningar hag-
fræði andskotans og ekkert annað,
að leggja hundruð milljóna í niður-
rifsstarf og sköpun atvinnuleysis
er með öllu óskiljanlegt fyrirbæri
þegar tækifæri býðst til aukinnar
uppbyggingar og stækkunar fyrir-
tækisins.
Þetta fyrirtæki, MSB, var á sín-
um tíma byggt upp af samvinnu-
hreyfingunni, en í dag er síðasta
vonin, um að ekki komi til úrelding-
ar, hjá Sjálfstæðisflokknum. Og við
sem óskum þessu fyrirtæki lengri
lífdaga lifum enn um sinn í voninni
um að innan Sjálfstæðisflokksins
leynist vilji og geta til að bjarga
því sem bjargað verður. Mín trú er
sú, að ef af úreldingu verður muni
sannast hið fornkveðna: Enginn
veit hvað átt hefur fyrr en misst
hefur.
Með kærri kveðju til MSB og
starfsfólksins og ósk um bjartari
framtíð.
Höfundur er bifvélavirki í
Borgarnesi.
Álfasala fyrir
unga fólkið
MIKIL og þörf
vakning hefur verið
síðustu misseri um
nauðsyn þess að
stemma stigu við
áfengis- og vímuefna-
neyslu unglinga. For-
eldrar, skólafólk, lög-
regla, starfsfólk heil-
brigðisstofnana og
aðrir hafa vaxandi
áhyggjur af neikvæðri
þróun í þessum efnum.
Einstaklingar og fé-
lagasamtök hafa skip-
að sér í fremstu víglínu
baráttunnar og bent á
að þetta er mál sem
varðar okkur öll.
Meðal þessara aðila er SÁÁ,
Þetta starf SÁÁ, segir
Guðlaugur Þór Þórð-
arson, snýst um
fræðslu til foreldra og
unglinga.
sem hefur í vaxandi
mæli beitt sér í for-
vörnum gagnvart
unglingum. Þetta
starf SÁÁ snýst um
fræðslu til foreldra og
unglinga um eðli
vandans og úrræði
gegn honum. Um
þessar mundir sendir
SÁÁ foreldrum um
allt land fræðslurit
um vímuefnaneyslu
unglinga.
Um næstu helgi
stendur SÁÁ að ár-
legri fjáröflun sinni,
Álfasölunni. Ætlunin
er að veija hagnaðin-
um til að efla og auka forvarna-
slárfið í þágu unglinganna.
Það er von mín að landsmenn
taki vel á.móti Álfinum og leggi
þannig hönd á plóginn í barátt-
unni gegn vímuefnaneyslu ungl-
inga.
Höfundur er formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna og
varaþingmaður fyrir
Vesturlandskjördæmi.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
*EMERALD AFSLÁTTARFARGJÖLD
FYRIR ALLA.
Frá 23. júní -1. september (í sölu til 2. júní).
Keflavík - Belfast frá kr. 17.0110°
Keflavík - London frákr. 22.7110°
Flug og bíll
Flug og gisting
Flug og golf
Flug og húsbátur
Allt eftir þörfum hvers og eins.
*Flugsæti með flugvallargjöldum.
feréabær æ
Aðalstræti 6 (Morgunblaðshúsinu) J''
sími 623020.
Viku rútuferð
um N-írland
30. Júní-7. Júlí.