Morgunblaðið - 18.05.1995, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.05.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ1995 25 LISTIR Grafíkkjallarinn GRAFÍKKJALLARINN er opið grafíkverkstæði, þar sem sex myndlistarmenn vinna að list sinni. Þeir eru allir útskrifaður úr Graf- íkdeild Myndlista- og handíðaskóla Islands og vinna myndverk með ýmsum aðferðum sem flokkast undir grafík, auk þess að vinna að fleiri tegundum myndlistar. í Grafíkkjallaranum er líka vísir að galleríi þar sem til sýnis og sölu eru grafíkverk og önnur mynd- list. Einnig gefst fólki kostur á að fylgjast með listamanni að starfi. Fyrirhugað er að halda kynn- ingar og/eða fyrirlestra um grafík og möguleiki er á því að setja þarna upp litlar sýningar á verkum myndlistarmanna, einnig utan verkstæðis. Vesturbæjarhátíðin í tilefni Vesturbæjarhátíðar- innnar opnar í Hlaðvarpanum sýn- ing á verkum Önnu Torfadóttur, írisar Ingvarsdóttir, Margrétar Birgisdóttur og Nínu Geirsdóttur. Sýningin opnar 20. maí kl. 15 og verður opin til 10. júní á fimmtudögum og föstudögum frá kl. 14-18. Opnunartími um helgar er enn sem komið er breytilegur og auglýstur í Grafíkkjallaranum hveiju sinni. ÞARFAÞING FRÁ MÚLALUNDI FYRIR RÁÐSTEFNUR, NÁMSKEIÐ OG FUNDI. Stendur fyrir dyrum ráðstefna,námskeið eða fundur? Fundarmöppurnar og barmmerkin (nafnmerkin) frá Múlalundi eru einstakt þarfaþing sem auðvelda skipulag og auka þægindi og árangur þátttakenda. Allar gerðir, margar stærðir, úrval lita og áletranir að (oinni ósk! Hafóu samband við sölumenn okkar í síma 562 8501 eða 562 8502. Múlalundur Vinnustofa SÍBS • Hátún 10c • Símar: 562 8501 og 562 8502 Nýjar bækur Nóttin gleypir ÞEGAR nóttin gleypti mig er fyrsta ljóðabók Björns Harðarsonar. Ljóðin eru ort á tímabilinu 1989-1994. Björn Harðarson fæddist í Reykjavík 1971. Hann stundar nú nám í sál- Björn ‘fræði VÍð Harðarson HáskÓla ís- lands. Þegar nóttin gleypti mig er 64 bls. Káputeikning er eftir Jón Emil Cl. Guðbrands- son. Utgefandi er höfundur. Norræna húsið Sérvalin verk nemenda UM helgina verður opnuð í Norræna húsinu sýning á sér- völdum verkum nemenda við Myndlista- og handíðaskóla íslands. Sýningin opnar á laugardag kl. 14 og stendur til 5. júní. Nemendur sem sýna á sýn- ingunni eiga það sameigin- legt að vera allir að ljúka námi frá skólanum. Sérstök sýningarnefnd valdi verkin á sýninguna og eru þau af ýmsum toga, en þó ber nokk- uð á „abstrakt, geómetrísk- um“ myndverkum. Morgunblaðið/Silli VIÐAR við tvö verk sín. Viðar sýnir í Safnahúsinu Húsavík. Morgunblaðið. VIÐAR Breiðfjörð hélt nýlega fýrstu einkasýningu sína á málverkum í Safnahúsinu á Húsavík. Hann er borinn og barnfæddur Húsvíkingur, en fluttist ungur til Vestmanna- >yja 1983 og hefur búið þar síðan. Myndirnar sem hann sýndi nú voru 33 og olíumálverk. Aðsókn að sýningunni var góð. Kostuleg sumarútsala í viku Frá föstudegi til föstudags STOR útsala á notuðum bílum sem fylgja tveir valkostir af fjórum: 3* Sumardekk 4. Kók og prins • Greidslukjör til 48 mánaða • Visa Euro raðgreiðslur • Jafnvel engin útborgun og fyrsta greiðsla eftir allt að 6 mánuði Opið til kl. 20 virka daga en á laugardögum frá kl. 10-17 BÍLAHÚSIÐ VERNDUM VINNU - VELJUM ÍSLENSKT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.