Morgunblaðið - 18.05.1995, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Gunnar Jónsson, formaður HM-nefndarinnar á Akureyri
Keppnin mikil upplyft-
ing fyrir bæjarfélagið
MIKIL vinna er fólgin í því að sjá
um sex keppnislið í rúma viku sem
og dómara. Auk þess þurftu norð-
anmenn að taka á móti nýjum lið-
um vegna 16- og 8-liða úrslita og
fara yfir sömu atriði með nýjum
mönnum. Það þurfti að sjá þeim
fyrir gistingu og fæði, skipuleggja
æfingar og sinna ýmsum sérkröf-
um, útbúa fréttamannamiðstöð og
dreifa upplýsingum úr öllum leikj-
um um leið og þær bárust. Þá
þurfti að hafa veitingar á boðstól-
um á keppnisstað og urðu allir
hlutir að ganga vel og hratt fyrir
sig. Þetta tókst svo vel að eftirlits-
menn frá framkvæmdanefnd HM
95 hrósuðu starfsbræðrum sínum
fyrir norðan. Sömu sögu er að
segja af viðbrögðum fulltrúa Al-
þjóða handknattleikssambandsins,
innlendir sem erlendir fréttamenn
voru ánægðir, sem og liðin og
dómarar.
20 milljóna
kostnaður
Gunnar Jónsson, formaður
HM-nefndarinnar á Akureyri
sagði að til að byrja með hefði
starf nefndarinnar einkum verið
fólgið í að gera nauðsynlegar
breytingar og lagfæringar á
íþróttahöllinni. „Höllin var tekin í
notkun 1982, en nú má segja að
hún sé fullbúin.“ Hann sagði að
bæjarstjórnin á síðasta kjörtíma-
bili hefði þegar hafist handa og
hefði m.a. verið hellulagt fyrir
framan mannvirkið fyrir um 2,8
milljónir króna. Lagfæra þurfti
klukkurnar í húsinu, gólfefni og
lýsingu. „Það hefði aldrei verið
ráðist í þessa þætti alla í einu
nema vegna keppninnar," sagði
Gunnar en kostnaður nam 10 til
12 milljónum. Auk þess var,húsið
málað og útbúin stúka fyrir sjón-
varpsupptökufólk. Þá greiddi Ak-
ureyrarbær 3 milljónir fyrir samn-
inginn við HM-nefndina. Gunnar
sagði að samtals væri beinn kostn-
aður um 20 milljónir, en áréttaði
að 16 milljónir væru vegna fram-
—
GUNNAR Jónsson er ánægður með hvernig til tókst við fram-
kvæmd HM á Akureyri.
kvæmda sem ættu eftir að koma
í góðar þarfir.
Milli 70 og 80 sjálfboðaliðar
Fimm manna framkvæmda-
nefnd er skipuð einum fulltrúa frá
Þór, einum frá KA og þremur
skipuðum af sveitarfélaginu.
Kristján Einarsson var ráðinn
framkvæmdastjóri nefndarinnar í
mars. „Það eru fimm fastir starfs-
menn í Höllinni og hafa þeir unn-
ið sitt starf en síðan höfum við
verið með milli 70 og 80 sjálfboðal-
iða,“ sagði Gunnar.
Reyndar sagðist Gunnar hafa
fengið hálfgert áfall um morgun-
inn 8. maí, daginn sem keppnin
hófst á Akureyri. „Því er ekki að
neita að ég fékk hálfgert áfall
þegar við hittum tækninefndar-
fólkið, fararstjórana og alla aðra
í einu. Kvartanirnar hlóðust upp
og ég var í símanum í fjóra tíma
að leysa úr vandamálunum. En
þetta voru smáatriði. Egyptamir
fengu núðlur með skinku en vildu
fá lambakjöt og mikið af því.
Spánveijarnir voru fúlir yfir því
að vera í Kjarnalundi en þegar við
buðum þeim að fara inn á KEA
þá vildu þeir það ekki. Eftir allt
saman leið þeim vel þar sem þeir
voru. Eftir því sem ég hef heyrt
frá fréttamönnum og íþróttaliðum
hefur þeim líkað aðstaðan mjög
vel. IHF-mennirnir voru virkilega
ánægðir og Hermann eftirlitsdóm-
ari hældi okkur á hvert reipi þeg-
ar hann kvaddi okkur.“
Mikill uppgangur
Gunnar sagði að þrátt fyrir tölu-
verðan kostnað hefði sveitarfélag-
ið fengið mikið á móti. „Við feng-
um hátt í 500 gesti þessa daga.
Hótelin voru full og mikið hefur
verið að gera á matsölustöðum.
Sveitarfélagið fær óhemju kynn-
ingu, til dæmis fór sænska liðið á
hestbak, út á Poll að veiða, út í
Foldu, í vélsleðaferð, í skoðunar-
ferð um bæinn og austur að Goða-
fossi og 20 til 40 fréttamenn
fylgdu þeim. Allt var þetta mynd-
að af sænska sjónvarpinu. Skrifað
hefur verið um ferðirnar og tekin
viðtöl við aðstandendur viðkom-
andi fyrirtækja. Við höfum reynt
að koma bæjarfélaginu á framfæri
við erlendu blaðamennina, bæði
með bæklingum og viðtölum og
boðið þeim í skoðunarferðir. Við
vonum að öll þessi umfjöllun um
bæinn og nágrenni skili sér í er-
lendum blöðum en okkur var til
dæmis sagt að myndir sem voru
teknar af krökkum frá Hvamms-
tanga með leikmönnum eftir leik
Brasilíu og Spánar verði birtar í
þýskum handboltablöðum ásamt
myndum af snjóalögum hér í vet-
ur. IHF-mennirnir tóku myndirnar
með sér en þeir voru afskaplega
hrifnir af því hvernig krakkarnir
hvöttu og tóku þátt í leiknum."
Gunnar sagði að starfið hefði
sýnt að ákvörðun um keppnishald-
ið hefði verið rétt. „Þegar nær dró
fannst mér verkefnið orðið mjög
stórt en svo small þetta mjög vel
saman. Allir sem að þessu komu
skiluðu frábæru starfi. Bæjar-
starfsmennirnir, þeir sem vinna í
Höllinni og bæjarstjórn hafa stað-
ið einhuga að baki verkefninu og
bæjarbúar hafa líka tekið fram-
kvæmdinni vel. Við stöndum uppi
með frábært mannvirki, tilbúið til
sjónvarpssendinga hvenær sem
er.“
Bætt mannlíf
Leikmenn liðanna á Akureyri
gáfu sér nægan tíma til að sinna
áhugasömum krökkum, veittu
þeim eiginhandaráritanir og gáfu
þeim gjafír. Gunnar sagði að þetta
hefði vakið mikla athygli. „Krakk-
arnir hafa fylgst vel með leik-
mönnunum og séð agann sem rík-
ir hjá liðunum. Svíar og Spánveij-
ar voru mest áberandi en þetta
eru ekki aðeins frábærir íþrótta-
menn heldur jákvæðar fyrirmynd-
ir. Ég get ekki annað en dáðst að
þessum mönnum og krakkarnir
hafa tekið eftir framkomu þeirra.
Það er engin spurning að þetta
bætir mannlífið."
Námskeið
um lýni á gæðakerfum
Efni: Rýni á gæðakerfum. Farið verður í hvernig
starfsmenn fyrirtækja eiga að standa að rýni og
innri úttektum gæðakerfa íyrirtækja. Tilgangurinn
er að gera þátttakendur færa um að taka út eigið
gæðakerfi samkvæmt ISO 9000 - staðlaröðinni og
HACCP - gæðatryggingakerfi.
Leiðbeinandi: Dr. James Stewart, gistiprófessor
við rekstrardeild Háskólans á Akureyri.
Tími: Þriðjudaginn 23. maí og miðvikudaginn 24.
maí nk. kl. 9.00-12.00 og 13.00-16.00 báða
dagana.
Staður: Háskólinn á Akureyri, Glerárgötu 36, 3. hæð,
stofa 302.
Þátttökugjald: Kr. 7.500.
Skráning fer fram hjá fulltrúa rekstrardeildar í
síma 96-30961 kl. 13.00-16.00 eða sendist skrif-
lega til deildarskrifstofu, myndsendir 96-30998.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fleiri á ferðinni
en handboltamenn
ÞAÐ eru fleiri á ferðinni á Akur-
eyri en handboltamenn, þótt
þeir hafi óneitanlega sett svip
sinn á bæinn undanfarna daga.
Eldri borgarar á Akureyri hafa
í vetur hist reglulega, farið í
leikfimi eða gönguferðir. Nú í
vikunni var síðasti tíminn að
sinni og hélt hópurinn þá út í
ianga og hressandi gönguferð,
Kveðjutón-
leikar
Ingvars
Jónssonar
INGVAR Jónsson víóluleik-
ari, Anna Guðný Guðmunds-
dóttir píanóleikari og Sigurð-
ur I. Snorrason klarinettu-
leikari halda tónleika á veg-
um Tónlistarfélags Akur-
eyrar í Safnaðarheimili Ak-
ureyrarkirkju sunnudaginn
21. maí kl. 17.00.
A efnisskránni eru verk
eftir Johannes Brahms,
Wolfgang Amadeus Mozart
og Jón Nordal sem samdi
sérstaklega verk fyrir Ingvar
af þessu tilefni.
Ingvar hefur markað ýmis
spor í íslenskt tónlistarlíf frá
því hann hélt sína fyrstu
opinberu tónleika árið 1940.
Hann var fyrstur til að halda
víólutónleika á íslandi, hann
hefur frumflutt fjölda
þekktra íslenskra og er-
lendra tónverka og margir
nemenda hans eru í hópi
þekktustu hljóðfæraleikara
þjóðarinnar. Tengsl hans við
tónlistarlíf á Akureyri hafa
verið mikil og góð, hann hef-
ur oft komið fram með Kam-
merhljómsveit Akureyrar og
Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands, auk þess starfs sem
hann hefur unnið við Tónlist-
arskóla Akureyrar.
Anna Guðný og Sigurður
Ingvi hafa einnig tekið virk-
an þátt í íslensku tónlistarlífi
á síðustu árum.
Islendingar
á Norður-
pólnum
ÞEIR Ragnar Th. Sigurðsson
ljósmyndari og Ari Trausti
Guðmundsson jarðeðlisfræð-
ingur komust á Norðurpólinn
2. apríl síðastliðinn. Þeir
segja frá ævintýralegri ferð
sinni um Kanada og Græn-
land í máli og myndum á
Fiðlaranum, 4. hæð, á Akur-
eyri annað kvöld, föstudags-
kvöldið 19. maí kl. 20.30.
Ennfremur fjalla þeir um
íslenska jökla og sýna af
þeim ljósmyndir, einkum
loftmyndir, úr verkefni sem
þeir vinna nú að.
Aðgangseyrir er 500 krón-
ur með molakaffi, en frítt er
fyrir börn.
Síðustu
sýningar á
Djöflaeyjunni
SÝNINGUM á leikritinu Þar
sem Djöflaeyjan rís fer nú
að ljúka, en verkið hefur
verið sýnt við miklar vin-
sældir hjá Leikfélagi Akur-
eyrar.
Næstu sýningar verða um
helgina, föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld, en
frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti Islands, verður gestur
leikfélagsins á sýningunni á
föstudagskvöld.