Morgunblaðið - 18.05.1995, Side 13

Morgunblaðið - 18.05.1995, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995 13 Morgunblaðið/Silli SIGRIÐUR Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur, mælir blóðþrýsting. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson UNNIÐ við að reka niður staura í undirstöðu brúarinnar. Unnið við að breikka brú yfir Uxafótarlæk Fagradal - „Krafa nútimans er að allar brýr á þjóðvegi 1 verði tví- breiðar en það mun minnka til muna slysahættu á þjóðvegum landsins, því mörg alvarleg slys hafa orðið þegar bílar hafa ætlað að mætast á þröngum brúm,“ sagði Jón Vahnundsson, yfirbrú- arsmiður í Vík í Mýrdal. Brúai’vinnuflokkurinn sem hef- ur aðsetur í Vík hefur verið í vet- ur að undirbúa stækkun brúarinn- ar yfir Uxafótarlæk sem er rétt austan við Vík í Mýrdal ineð því að steypa yfirbygginguna í brúna. Nú í byrjun maí var byrjað á því að reka niður níu metra langa rafmagnsstaura, fimm undir hvert horn, en brúarplatan mun breikka um 3,8 metra eftir þessa fram- kvæmd og verða þar með tvíbreið. Síðastliðið haust breikkaði brú- arvinnuflokkur Jóns í fyrsta sinn brú með þessuin hætti framanund- ir Eyjafjöllum og tókst sú fram- kvæmd vel og lofar það góðu með framhald á slíkum framkvæmd- um, segir Jón. Blóðþrýstingur mældur í yfir 300 Þingeyingum Húsavík - Á alþjóðadegi hjúkrun- arfræðinga 12. maí sl. heimsóttu hjúkrunarfræðingar þijár mat- vöruverslanir á Húsavík og buðu bæjarbúum mælingu á blóðþrýst- ingi. Undirtektir voru góðar og alls mældu þær á fjórða hundrað Þingeyinga. Eftir mælingu fengu allir skrif- lega staðfestingu á hve hár blóð- þrýstingur þeirra var. Þeir sem að dómi hjúkrunarfræðinganna reyndust með fullháan þrýsting, fengu leiðbeiningarbækling í sambandi við heilsuvernd og nokkrum var ráðlagt að fara til læknis til frekari athugunar. Ekki er þó talið að hið umtalaða þingeyska loft eigi að hafa áhrif á blóðþrýstinginn. Um kvöldið bauð Félag is- lenskra hjúkrunarfræðinga Norðurlandsdeild eystri til fræðslufundar á Hótel Húsavík. Þar fræddi Herdís Sveinsdóttir, dósent, viðstadda um heilbrigði og um sjálfsmynd kvenna, sem hún nefndi Konan í kroppnum. Fundurinn var mjög vel sóttur og ánægja með þessa kvöldstund. Eggjatínslumenn á leið í Hælavíkurbjarg Isafirði - Senn líður að því að Is- firðingar fái að bragða á fyrstu svartfuglseggjunum í ár, því fyrstu eggjatökumennirnir ráð- gera að fara í Hælavíkurbjarg um næstu helgi. Meðal þeirra er Tryggvi Guð- mundsson, lögfræðingur á ísafirði, en hann hefur um árabil sigið í Hornbjarg ásamt félaga sínum, Einari Val Kristjánssyni, húsasmíðameistara á ísafirði. „Við erum heldur fyrr á ferð- inni í ár, en það kemur til af því að til stendur að fara í Hælavíkur- bjarg, sem er annað og miklu meira fyrirtæki en að fara í Horn- bjarg,“ sagði Tryggvi. „Eggja- Fyrstu svart- fuglseggin koma á markað um aðra helgi svæðið þar er í miðju bjargi og því þarf að síga töluvert langt niður til að komast á góðar syllur. Þá er ekki hægt að taka eggin niður í fjöru eins og við gerum í Hornbjargi, heldur verðum við að láta þau síga í vír niður í bát. Því verðum við að hafa góðán bát og að lágmarki 4-6 menn í stað tveggja til þriggja í Hornbjargi. Varptíminn fer að hefjast og þá eru eggin best. Ég geri því ráð fyrir að fyrstu eggin verði komin á markað á ísafirði um aðra helgi. Við tínum ejnungis svartfuglsegg, enda vilja ísfirðingar aðeins það besta. Við komum til með að skyggna eggin og því eiga þau að vera góð. Ég ráðgeri ekki fleiri ferðir í bjargið í sumar. Mig langar til að gera þetta einu sinni áður en ég verð of gam- all til þessara hluta, en í Hælavík- urbjarg hef ég ekki komið síðan 1974. Við höfum verið í Horn- bjargi á hveiju ári, en þetta er meira til gamans gert og því reikna ég ekki með að fara aftur í sumar,“ sagði Tryggvi. Breyting á grunnskóla í Hornafirði Hornafirði - Bæjarstjórn Horna- fjarðar hefur samþykkt breytingar á skipulagi grunnskólans í Horna- firði og er megin breytingin fólgin í að þrískipta grunnskólanum eftir aldri nemenda, koma á einsetnum skóla og bjóða upp á heildags- skóla. Gert er ráð fyrir að nýta næsta ár til að vinna að frekari útfærslu á skipulaginu sem tekur gildi haustið 1996. í dag er grunnskóli Hornafjarð- ar í fjórum skólum: Mýrarskóla, 1.-7. bekkur, 18 nemendur, Nesjaskóla, 1.—10. bekkur, 76 nemendur, Hafnarskóla, 1.-7. bekkur, 209 nemendur, og Heppu- skóli, 8.-10. bekkur, 88 nemend- ur. Samtals er nemendaijjöldinn 391 talsins. Eftir að nýja skipulagið tekur gildi verður fyrirkomulagið þann- ig: í Nesjaskóla 1.-4. bekkur, í Hafnarskóla 5.-7. bekkur og í Heppuskóla 8.-10. bekkur eins og verið hefur. Skólahald verður óbreytt í Mýraskóla en þar eru alls 19 nemendur á barnaskóla- aldri í tveimur bekkjardeildum. Með hinu nýja skipulagi eykst skólaakstur nokkuð en 7 km eru milli Hafnar og Nesjaskóla en tölu- verður fjöldi nemenda mun flytjast annars vegar frá Hafnarskóla til Nesjaskóla (1.-4. bekkur) og hins vegar frá Nesjaskóla til Heppu- skóla (8.-10. bekkur). Bókun um skólamál var sam- þykkt með öllum atkvæðum níu bæjarstjórnar Hornafjarðar en hún er í samræmi við tillögur skólanefndar. TVÖ brúðulelkrit voru flutt á veg- um Brúðubílsins í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum, „í útilegu" og „Eggið sem hvarf“. Voru það Lilli og félagar úr Stundinni okkar sein Brúðubíllinn heim- sækir Egilsstaði Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir sýndu sig undir stjórn Helgu Steff- ensen. Börn fjclmenntu með for- eldrum og rifjuðu upp gönilu, góðu brúðustemmninguna sem þau þekktu úr sjónvarpinu. Morgunblaðið/Hanna Hjartardóttir VIGNIR Snær Vigfússon styrkþegi og Birna Braga- dóttir, skólastjóri Tónlistar- skólans. 34 tónlist- araemar á Klaustri Kirkjubæjarklaustri - Skólaslit Tónlistarskólans á Kirkjubæjar- klaustri fóru fram 12. maí sl. Kom fram í máli Bimu Bragadóttur, skólastjóra Tónlistarskólans, að nemendur hafa verið 34 í vetur. Skólinn hélt vortónleika viku áð- ur þar sem allir nemendur komu fram en auk þess hafa nemendur leikið við hin ýmsu tækifæri á veg- um skólans svo sem við kirkjulegar athafnir, í heimsóknum á stofnanir, á ráðtstefnum o.fl. í vor luku 11 nemendur stigsprófi. Skólastjóri greindi frá því að á sl. ári fékk skólinn arf frá Sigutjóni Einarssyni, frá Mörk, en hann var lengi organisti Prestbakkakirkju á Síðu. Skólanefndin hefur ákveðið að hluta sjóðsins verði varið til að styrkja nemendur til frekara tónlist- arnáms og var í fyrsta skipti veitt úr honum nú í vor. Styrkinn hlaut að þessu sinni Vignir Snær Vigfús- son sem lauk 5 stigi á gítar nú í vor. Þá hefur hluta fjárins verið varið til kaupa á geisladiskum með klass- ískum verkum eða nokkuð á annað hundrað diskar, en þeir munu geymdir í Héraðsbókasafninu á Klaustri og verða til útláns þar. BARNASTIGUR Full búð af nýjum fallegum sumarvörum frá: J| IKKS _ COMPAGNIJE GINA DIWAN BARNASTÍGUR Skólavörðustíg 8, sími 552 1461 Endurklœbum húsgögn. Gott úrval áklœda. Fagmenn vinna verkid. BólstnmÁsgríms, Bergstaðastræti 2, sími 551 6807

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.