Morgunblaðið - 18.05.1995, Síða 17

Morgunblaðið - 18.05.1995, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995 17 Reuter McVeigh sagður hafa játað tilræðið í Oklahoma Lögmaður efast uni gikli j átningarinnar New york. Reuter. TIMOTHY McVeigh, sem ákærður hefur verið fyrir sprengjutilræðið í Oklahomaborg í síðasta mánuði, hef- ur viðurkennt óopinberlega að standa að baki því, að því er sagði í frétt The New York Times í gær. Lögmað- ur McVeighs^kvaðst hins vegar efast um að játningar hans myndu stand- ast lagalega séð, þar sem McVeigh játaði ekki við yfirheyrslur auk þess sem hann efaðist um sannleiksgildið. Að sögn The New York Times sagði McVeigh tveimur mönnum sem höfðu „talað við hann í fangelsinu frá því að hann var handtekinn" að Alfred Murrah-stjórnsýslubyggingin hefði orðið fyrir valinu þar sem hún hýsti ýmsar alríkis-skrifstofur og að hun væri verkfræðilega veik. Hann hefði hins vegar ekki vitað að barna- heimili væri í húsinu. Ekki var upplýst um hvaða menn var að ræða en að sögn dagblaðsins sagði McVeigh þeim frá sprenging- unni og undirbúningi hennar, lífi sínu undanfarin ár og hver hvatinn að hermdarverkinu hefði verið, en það varð 167 manns að bana. Uppspuni frá rótum? Lögfræðingur McVeighs, Stephen Jones, sagðist i samtali við CAWsjón- varpsstöðina efast um sannleiksgildi frásagnar samfanga McVeigh. Vissulega væri sumt satt sem fangar segðu en annað væri uppspuni frá rótum. Þar sem McVeigh hefði ekki játað fyrir löggæslumönnum, hefði hann ekki áhyggjur af þessum frétt- um. Fleiri borgir komu til greina Er hann var spurður hvort hann vissi hveijir tvímenningarnir væru, sagði hann það illmögulegt, að minnsta kosti íj'örtíu menn hefðu haft tækifæri til að ræða við McVeigh, mögulega allt að sextíu manns. Heimildarmenn New -York Times sögðu McVeigh hafa sagt að hann tengdist ekki beint vopnuðum vara- liðssveitum. Hann hefði átt sam- skipti við fólk sem deildi þessum skoðunum en flesta hefði hann hitt á vopnasýningum. Þá hafi McVeigh sagt að hann hefði byijað að leggja drög að sprengingunni fyrir níu mánuðum og fleiri borgir en Oklahoma hafi komið til greina, t.d. Denver, Kansas- borg og borgir frá Texas til Suður- Dakota. McVeigh hafi valið Alfred Murrah-bygginguna vegna þess hversu viðkvæm hún virtist vera fyr- ir sprengingum. Ástæða þess að McVeigh hafi ákveðið að sprengja stjórnsýsluhús, sögðu samfangar hans vera atlögu alríkislögreglunnar (FBI) og vopna- eftirlitsins að reglu sértrúarsafnaðar Davids Koresh í Waco í Texas 1993 og það að FBI skyldi skjóta eigin- konu og son hægriöfgamannsins Randy Weaver í Idaho árið 1992. Hvar hvílir bana- maður Lincolns? Washington. Reuter. ER það líkami John Wilkes Booths, sem liggur í kirkju- garði í Baltimore, eða er það lík annars manns, nokkurs kon- ar þátttakanda í 130 ára gömlu samsæri um að fela það, sem raunverulega gerðist þegar Booth skaut Abraham Lincoln, for- seta Banda- ríkjanna, til bana? Úr þessu vilja sumir fá skorið og fóru þess vegna fram á það við dóm- ara í Balti- more í gær, að líkamsleifarnar yrðu grafnar upp og rannsak- aðar. Takast á tveir andstæðir hópar í þessu máli og eru sagn- fræðingar og ættingjar Booths í þeim báðum. í meira en eina öld hefur sagan verið á þá leið, að Booth, sem var leikari, hatursmaður Lincolns og njósnari Suðurríkj- anna í Þrælastríðinu, hafi skot- ið Lincoln í Ford-Ieikhúsinu í Washington og sloppið síðan út í næturmyrkrið með hjálpa annarra samsærismanna. Tólf dögum síðar skutu her- menn mann, sem þeir sögðu vera Booth og vildi ekki gefast upp fyrir þeim. Hafði hann fal- ið sig í hlöðu, sem brann til kaldra kola af völdum skothríð- arinnar, og lék eldurinn líkið svo illa, að ekki reyndist unnt að bera örugg kennsl á það. Síðan var líkið grafið en orð- rómur um, að það hafi ekki verið af Booth hefur alla tíð lifað góðu lífi. Stóra myndin er af fjöl- skyldugrafreit Booth-ættarinn- ar í Baltimore. Wilkes Booth * Reiði í garð Israela á þingi Jórdaníu Lagst gegn friðarsamningnum Amman, Jerúsalem. Reuter. MEIRIHLUTI þingmanna jórdanska þingsins hvatti í gær stjórnina til að stöðva framkvæmd friðarsamningsins við ísraela eða jafnvel rifta hon- um vegna áforma þeirra um að taka 53 hektara lands í Austur-Jerúsalem eignarnámi. Meira en 60 þingmenn af 80, þeirra á meðal stuðningsmenn stjórnarinnar sem samþykktu samninginn, komu saman á óformlegum fundi og hvöttu stjórnina til að kalla nýjan sendimann Jórd- aníu í ísrael heim og vísa ísraelska sendiherranum í Amman úr landi. Þeir skoruðu ennfremur á stjórn- ina að hætta samningaviðræðum um framkvæmd samningsins og hætta við áform uin að nema úr gildi lög sem eru íjandsamleg ísrael. Abdul-Karim al-Kabariti utanríkisráðherra sat fundinn og sagði að stjórnin myndi taka tillit til Reuter JÓRDANSKIR þingmenn á fundi þar sem samþykkt var áskorun til stjórnarinnar. sjónarmiða þingmannanna en lagði áherslu á að samþykkt þeirra væri ekki bindandi fyrir stjómina. Stærsti flokkurinn á þinginu, Islamska fylking- in, efndi til annars fundar og ákvað að halda ráð- stefnu 26. maí til að skipuleggja almenna mót- spyrnu gegn tengslum við ísrael þrátt fyrir að stjórnin hefði lagst gegn þeirri hugmynd. Mikil reiði er meðal almennings í Jórdaníu vegna áforma ísraela um að taka landsvæðið í Austur- Jerúsalem eignarnámi tii að reisa þar íbúðir, eink- um fyrir gyðinga, og lögreglustöð. Benjamins Netanyahu, leiðtogi Likud-flokksins, sakaði í gær stjórn Israels um að hafa þegar sam- ið um að gefa Gólan-hæðirnar eftir í samningavið- ræðunum við Sýrlendinga. Stjórnin væri ennfremur að semja um að láta af hendi hluta af Galíleu. White- water-mál veldur út- gjöldum Washington. Reuter. BILL Clinton Bandaríkjafor- seti og eiginkona hans, Hill- ary Rodham Clinton, skulda nú lögfræðingum sínum eina til tvær milljónir dollara, 63-126 milljónir króna, vegna rannsóknar Whitewater- málsins. Einnig hefur þurft að greiða fyrir vörn í máli sem Paula Jones, fyn-verandi rík- isstarfsmaður í Arkansas, höfðaði gegn forsetanum vegna meintrar kynferðislegr- ar áreitni. Talsmenn Hvíta hússins skýrðu frá eigna- og skulda- stöðu forsetahjónanna en ekki er skylda að gefa upp ná- kvæmar tölur. Megnið af skuldunum er við tvær lög- mannastofur í Washington en einnig skulda hjónin lögfræð- ingum í Arkansas. Stofnaður var á sínum tíma sjóður til að safna fé er nota á til að veija forsetann og hafa safn- ast í hann 100.000-250.000 dollarar. Málstofa BSRB Atvinnuleysi ungs fólks Opinn fundur í Félagamiðstöðinni, Grettisgötu 89, í dag ki. 17.00 - 19.00 Leiksmiðja Hins hússins sýnir stuttan leikþátt um atvinnuleysi Frummælendur: Páll Pétursson, félagsmálaráðherra Páll Pétursson, félagsmálaráðherra Óttar Ólafsson, Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar. Benóný Ægisson, Hinu húsinu Pallborðsumræður Fundarstjóri Óttar Ólafsson, Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar. Dagur Eggertsson, formaður Stúdentaráðs Allir velkomnir Benóný Ægisson; Hinu húsinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.