Morgunblaðið - 18.05.1995, Síða 18

Morgunblaðið - 18.05.1995, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Frangois Mitterrand lætur af embætti forseta Frakklands eftir 14 ár Hvetur Chirac til að stjórna „í friði og með réttlæti“ París. Reuter. Reuter FRANQOIS Mitterrand voru réttar rauðar rósir er hann hélt frá Elyseé-höll þar sem hann lét af embætti Frakklandsforseta. Var forsetanum fyrrverandi boðið til kveðjuveislu í höfuðstöðvum sósíalista en rósin er tákn flokksins. JACQUES Chirac tók í gær við emb- ætti forseta Frakklands við látlausa athöfn í Elyseé-höll. Rauðir dreglar, hátíðleg tónlist og glæsilegir hátíða- salir, voru á sínum stað en ræðumar sem fluttar voru af þessu tilefni voru stuttar og skrautið í lágmarki. Til að leggja enn frekar áherslu á hinn nýja tón skipaði Chirac bílstjóra sínum að nema staðar á rauðu ljósi á leið til athafnarinnar, þrátt fyrir að öll um- ferð hefði verið stöðvuð til að hann kæmist leiðar sinnar. Fráfarandi forseti, Frangois Mitt- errand, tók á móti Chirac á tröppum Elyseé-hallar kl. 11 að staðartíma. í lok klukkustundar samtals þeirra, þar sem Mitterrand upplýsti Chirac um ríkisleyndarmál og hvemig hann ætti að gefa fyrirskipun um að kjamorku- vopnum Frakklands skyldi beitt, fylgdi Chirac fyrirrennara sínum að bíl hans. Var Mitterrand ekið til kveðjuveislu sósíalísta. Gerð hróp að Dumas Hann hafði birt formlega kveðju sína kvöldið áður þar sem hann sagð- ist lítið fyrir uppgerðarkveðjur. Hvatti Mitterrand Chirac til að „stýra Frakk- landi í friði og með réttlæti" og þakk- aði frönsku þjóðinni fyrir allt sem hann skuldaði henni. Með þessu vildi Mitterrand komast hjá biturleikanum sem einkenndi forsetaskiptin 1981 en þá stóð Valery Giscard d’Estaing, fráfarandi forseti, upp úr stól sínum og skildi hann eftir auðan í kveðjuá- varpi sínu í sjónvarpi. Að fundi forsetanna loknum var Chirac lýstur forseti fimmta lýðveld- isins og 21 fallbyssuskoti skotið frá gröf Napóleons, nýkjömum forseta til heiðurs. Roland Dumas, forseti franska stjómlagadómstólsins skipaði Chirac forseta með orðunum: „Sem æðsti yfírmaður ríkisins á nýju tíma- bili í sögu okkar sem hefst í dag, eruð þér, herra forseti lýðveldisins, ábyrgðarmaður fyrir köllun og örlög- um Frakklands." Chirac hélt þá fimm mínútna ræðu þar sem hann sagði m.a.: „í dag, er ég tek við ábyrgð hins æðsta valds, finn ég að miklar vonir hafa verið bundnar við mig.“ Blómsveigur á leiði de Gaulles Rigningarúði var í borginni í gær en þrátt fyrir það söfnuðust þúsundir stuðningsmanna Chiracs saman við þær götur sem hann ók um til að fagna honum. Fagnaði fólk einnig eiginkonu Chiracs en gerði hróp að Dumas. Eitt af síð- ustu embættisverkum Mitterrands var að skipa sósíalistann Dumas í embætti. Edouard Balladur, fráfar- andi forsæ'tisráðherra Frakklands, JACQUES Chirac, nýkjörinn forseti Frakklands, kveður Mitterrand á tröppum Elyseé- hallarinnar. hlaut blendnar móttökur. Aðeins einu sinni áður hafa verið forsetaskipti í Frakklandi, árið 1981 er Mitterrand tók við af Valery Gisc- ard d’Estaing. Charles de Gaulle lét af völdum áður en eftirmaður hans, Georges Pompidou var kjörinn árið 1969 og Pompidou lést í embætti árið 1974. Varði einkasamtal verð- andi og fráfarandi forseta 15 mínút- um lengur en er Mitterrand tók við völdum. Fyrr um daginn fór Chirac í þyrlu að grafhýsi de Gaulle í Colombe-les- deux-Eglises, austur af París, þar sem hann lagði blómsveig. Síðar um dag- inn ók hann upp Champs Elyseé- breiðgötuna í fylgd lýðveldisvarðarins og lagði blómsveig við minnismerkið um óþekkta hermanninn undir Sigur- boganum. Chirac var klæddur í dökkblá föt og með grátt bindi en eiginkona hans í gula Valentino-dragt. Er hann tók við embætti, stóð hann hjá eiginkonu sinni, Balladur og forsetum beggja þingdeilda. Franski forsetinn sver ekki embættiseið við biblíuna, ólíkt því sem gerist t.d. í Bandaríkjunum. Kveður án eftirsjár I veislunni sem sósíalistar héldu Mitterrand til heiðurs, sagðist forset- inn fyrrverandi vera að hefja nýtt skeið í lífi sínu. „Ég veit ekki hversu lengi það varir, það verður ekki endi- lega mjög langt,“ sagði hann. Mitterrand bauð öðrum að meta hvemig til hefði tekist í forsetatíð sinni. „Ég kveð án þess að finna til hinnar minnstu eftirsjár eða biturðar. Lífíð heldur áfram og allir munu dæma. Trúið mér, ekki einu sinni ég mun reyna að komast hjá því að vera dæmdur,“ sagði Mitterrand. Honum hefur verið hrósað mjög á alþjóðavettvangi fyrir að vinna að sameiningu Evrópu en hann er mun umdeildari heimafyrir. Er hann hverf- ur út embætti er atvinnuleysi mikið og hvert fjármálahneykslið af öðru hefur komið upp á síðustu mánuðum. Þá hefur hann verið gagnrýndur fyrir að hafa ekki sýnt forsetaframbjóð- anda sósíalista, Lionel Jospin, nægan stuðning. Mitterrand var greinilega stoltur og virtist horfa með nokkurri eftirsjá til embættisára sinna. Honum tókst að sitja út kjörtímabilið þrátt fyrir að hann sé sé sárþjáður, haldinn Ólæknandi krabbameini í blöðruhál- skirtli. Hvatti hann sósíalista til að láta ekki hugfallast þó að hægrimað- ur sæti nú við stjómvölinn „Þegar franska þjóðin vill breyta um stefnu, mun hún snúa sér til ykkar.“ FRANSKB FARNAWTAV OPNAR PAG LAUGAVEGI 17 OPIÐ LAOGARPAGA 10 - 17 OG SONNODAGA 12 - 17

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.