Morgunblaðið - 18.05.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995 19
Reuter
í LOS Angeles reyna margir að græða á réttarhöldunum yfir O.J. Simpson og nýta sér athyglina,
sem þau hafa fengið. Útvarpsstöð í borginni brá til dæmis á það ráð að auglýsa sig með skiltum,
sem ýmist sögðu „sekur“ eða „saklaus" og þarf ekki að spyrja við hvern er átt. Verjendur Simp-
sons vöktu athygli á þessu við dómarann í málinu og kröfðust þess, að kviðdómendum yrði bannað
að aka framhjá skiltunum.
DNA-sérfræðingar vitna í „réttarhöldum aldarinnar“
Blóð úr hinum myrtu
á heimili Simpsons
Los Ajigeles. Reuter.
BLÓÐSLETTUR á hanska, sem
fannst á heimili bandarfska íþrótta-
kappans O.J. Simpsons, eru úr fyrr-
verandi eiginkonu hans, Nicole
Brown Simpson, og vini hennar,
Ronald Goldman, en Simpson er
sakaður um að hafa myrt þau. Kom
þetta fram í máli DNA-sérfræð-
ings, sem bar vitni í málinu í fyrra-
kvöld.
í réttarhöldunum yfir Simpson
hefur ekki áður verið minnst á blóð
úr Goldman en DNA-sérfræðingur-
inn Gary Sims sagði, að innan í
hanskanum hefði fundist blóð úr
Goldman einum en annar blettur
var blanda af blóði hans og Nicole.
Hanskinn, sem fannst á heimili
Simpsons, svarar til annars, sem
fannst á morðstaðnum, og hefur
hann stundum verið þungamiðjan í
þessum „réttarhöldum aldarinnar"
í Bandaríkjunum.
Veijendur Simpsons hafa haldið
því fram, að Mark Fuhrman, einn
lögreglumannanna, sem rannsök-
uðu málið, sé kynþáttahatari, sem
hafi komið hanskanum fyrir á heim-
ili Simpsons til að klekkja á honum.
Fuhrman hefur þó aldrei vikið frá
sögu sinni þrátt fyrir harðar atlögur
frá helsta verjanda Simpsons, F.
Lee Báileys.
Blóð á sokkum
Sims, sem er helsti DNA-sér-
fræðingur réttarlæknisstofnunar-
innar í Berkeley í Kaliforníu, sagði
við réttarhöldin á þriðjudag, að
rannsóknir hefðu einnig leitt í ljós
blóð úr Nicole á sokkum, sem fund-
ust í svefnherbergi Simpsons aðeins
nokkrum klukkustundum eftir
morðin 12. júní á síðasta ári. í síð-
ustu viku bar annar DNA-sérfræð-
ingur, dr. Robin Cotton, forstöðu-
maður rannsóknastofu í Maryland,
að blóð úr Nicole hefði fundist á
sokkunum og hann sagði ennfrem-
ur, að líkurnar á, að blóðið væri
úr einhveijum öðrum, væru einn á
móti 6,8 milljörðum. Cotton bar
vitni fyrir réttinum í sex daga án
þess, að veijendur spyrðu hann
nokkurs.
Kvenlögmenn í síðbuxur
London. Reuter.
BRESKAR konur í lögmannastétt unnu í gær
langþráðan sigur er þær öðluðust rétt til að vera
í síðbuxum í réttarsal. Yfirdómari lávarðadeild-
arinnar, Taylor lávarður, sagði í yfirlýsingu í
gær að hann hefði ekkert við „viðeigandi buxna-
dragtir" að athuga.
Yfirlýsing Taylors lávarðs á bæði við um kon-
ur í stétt lögmanna og málafærslumanna, sem
hafa rétt til að flytja mál fyrir æðri dómstólum
en þær síðarnefndu verða þó eftir sem áður að
bera þungar hárkollur úr hrosshári.
Formaður dómararáðsins sem úrskurðaði í
málinu sagði að afstaða dómara til klæðaburðar
kvenkyns lögmanna mætti ekki bitna á umbjóð-
endum þeirra auk þess sem fæstir sæju hvernig
lögmenn væru klæddir fyrir neðan beltisstað í
réttarsal.
Lengi hefur verið deilt um klæðaburð í bresk-
um réttarsölum. M.a. voru pínupils og stígvél
bönnuð þar árið 1967.
Panchen Lama sagður endur-
holdgaður í sex ára dreng
Óttast viðbrögð
Kínvena
Peking. The Daily Telegraph.
DALAI Lama, andlegur leiðtogi
Tíbeta, lýsti því yfir á sunnudag
að Panchen Lama hefði endurholdg-
ast í sex ára dreng. Panchen Lama
gengur næst Dalai Lama að völdum
og sá síðasti lést árið
1990.
Uppi eru raddir um
að Dalai Lama hafi
verið helst til fljótur á
sér, þar sem hann gefi
kínverskum yfirvöld-
um tækifæri á að neita
að viðurkenna dreng-
inn sem Panchen
Lama og ýta á þann
hátt undir klofning í
röðum Tíbeta. í gær
neitaði kínverska
sendiráðið á Indlandi,
að leyfa að yfirlýsingu
Dalai Lama yrði flutt
í Kína. Kínveijar vís-
uðu því hins vegar á
bug að þetta væri merki um það
að þeir myndu ekki viðurkenna
drenginn.
Kínversk yfírvöld réðust fyrir
skömmu harkalega á Dalai Lama,
sögðu hann „guðlastara“ og að
hann „afskræmdi" rit búddismans
með því að krefjast sjálfstjórnar
Tíbet. Li Peng, forsætisráðherra
Kína, hefur fulíyrt að Kína hafi
rétt á að tjá sig um val Dalai Lama.
í tilkynningu frá Dharamsala á
Indlandi segir Dalai Lama: „Það er
mér mikil ánægja að geta skýrt frá
endurhoidgun Panchen Rinpoche.
Ég hefi viðurkennt
Gedhun Choekyi Ny-
ima, fæddan 25. apríl
1989 sem sanna end-
urholdgun".
Lítið er vitað um
drenginn nema að
hann er fæddur nærri
Lhasa, höfuðborg Tí-
bet, sonur hirðingja
og þeir sem ábyrgir
eru fyrir að gera hann
að ellefta Panchen
sögunnar eru m.a.
munkar og lamar frá
Thashi Lhunpo-
klaustrinu.
Dalai Lama lagði í
yfirlýsingu sinni
áherslu á að valið á drengnum væri
trúarlegs eðlis, ekki pólitísks. „Það
er von mín að kínversk yfirvöld, sem
ég hef haft samband við vegna þessa
máls eftir ýmsum leiðum undanfarin
ár, muni áfram leggja áherslu á
skilning, samvinnu og aðstoð... til
að gera Rinpoche kleift að gangast
undir trúarlega þjálfun og takast á
hendur andlega ábyrgð."
Víetnamstríðiö
Skaðabótamál
gegn McNamara
E1 Paso. Reuter.
FJÓRIR bandarískir bræður, sem
börðust í stríðinu í Víetnam, hafa
höfðað skaðabótamál gegn Robert
McNamara, fyrrverandi varnar-
málaráðherra, vegna játninga hans
þess efnis að stríðsreksturinn í Viet-
nam hefði verið „herfileg mistök".
Bræðurnir krefjast 100 milljóna
dala, jafnvirði 6,3 milljarða króna,
í skaðabætur. Þeir halda því fram
að McNamara hafi brugðist skyldu
sinni sem varnarmálaráðherra með
því að þegja yfír efasemdum sínum
um Víetnam-stríðið.
Bræðurnir vitna til bókar eftir
MeNamara sem gefin var út ný-
lega. Þar segist hann hafa gert sér
grein fyrir því árið 1967 að stríðs-
rekstur Bandaríkjamanna í Víet-
nam hefði verið dauðadæmdur og
„herfileg mistök“.
McNamara var varnarmálaráð-
herra á árunum 1961-68 í stjórnar-
tíð Johns F. Kennedys og Lyndons
B. Johnsons.
„Þessi maður laug hreinlega,"
sagði einn bræðranna, Louis Bolan-
os, 49 ára. Bræðurnir gegndu her-
þjónustu í Víetnam á árunum
1968-69.
Ráðherrafundur VES
Sérstök hætta á
útbreiðslu efna-
og sýklavopna
Lissabon. Reuter.
RÁÐHERRAR frá 27 Evrópuríkjum
eru sammála um að heimsbyggðinni
stafi mikil hætta af hugsanlegri út-
breiðslu kjarnorku- en þó aðallega
efna- og sýklavopna. Ákváðu þeir
að hefja samstarf í því markmiði að
koma í veg fyrir útbreiðslu vopna
af þessu tagi. Var það niðurstaða
fundar Vestur-Evrópusambandsins
(VES), sem fulltrúar 17 ríkja utan
sambandsins sátu ásamt ráðherrum
aðildarríkjanna tíu.
Ráðherramir lögðu áherslu á
hættuna sem því væri samfara ef
hryðjuverkamenn kæmust yfir kjarn-
orku- og efnavopn. Vegna þess
hversu Evrópuríkin hefðu verið á
varðbergi gagnvart hugsanlegri út-
breiðslu gjöreyðingarvopna hefði lítið
verið um smygl með kjarnorkuvopn.
Hétu ríkin auknu samstarfi sem
ætti að miða að því að draga enn
úr líkum á því að kjarnorku- og efna-
vopn féllu misindissmönnum í skaut.
Meiri hætta stafaði að öllum Iíkind-
um af efna- og sýklavopnum þar sem
framleiðsla þeirra og þróun væri
auðveldari en kjarnavopna.
Hvöttu Evrópuríkin til þess að
Efnavopnasáttmálanum (CWC) yrði
hrint sem hraðast í framkvæmd, fjöl-
þættu afvopnunarsamkomulagi sem
kveður á um eftirlit með banni við
ijölda gjöreyðingarvopna.
Sömuleiðis hvöttu ráðherrarnir til
nánara eftirlits með útflutningi á
tækniþekkingu til þess að koma í veg
fyrir að ríki í næsta nágrenni Evrópu
kæmust yfir búnað til þess að skjóta
eldflaugum. Talið er að nokkur ríki,
þar á meðal Líbýa, hafi yfir flaugum
að ráða en ekki búnaði til að skjóta
þeim.
Eigum vœntanlegar glœsilegar
sendingar aí húsgögnum,
ljósum og gjafavöru.
Til aÖ rýma fyrir þessum nýju sendingum
höldum við
RYMINGARSOLU
Afsláttur 10-50%
Urval af sófum, stólum, sófaborðum,
Ijósum og rúmteppum ásamt ýmsum öðrum húsbúnaði.
Nýtt frá ítalíu:
ii
Opið laugardag kl. 11-16,
sunnudag kl. 14-16.
Hornsófar kr. 140.000,
svefnsófar kr. 120.000,
svefnstólar kr. 65.000.
Mörkinni 3,
sími 588 0640,
fax 558 0641.
Sýning á því nýjasta frá umboðum okkar verður auglýst síðar.