Morgunblaðið - 18.05.1995, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
F'IMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995 35
INGUNN GUNNLA UGSDOTTIR
MARGRÉT GUNNLA UGSDÓTTIR
+ Ingunn Gunn-
laugsdóttir
var fædd 4. jan.
1910 í Reynhólum
í Miðfirði. Hún
lést 6. maí síðast-
liðinn. Margrét
var fædd á sama
stað 3. ágúst 1912.
Hún lést 19. apríl
síðastliðinn. For-
eldrar þeirra voru
Ingibjðrg Guð-
mundsdóttir, -
Jóhannessonar
bónda á Dalgeirs-
stöðum i Miðfirði,
Ólafssonar, - og Gunnlaugur
Eiríksson, Jónssonar síðast
bónda á Sveðjustöðum í Mið-
firði, Jónssonar bónda á Stóru-
Giljá í Þingi, Jónssonar bónda
sama stað, Árnasonar. Gunn-
laugi og Ingibjörgu varð sex
barna auðið. Látin eru, auk
Ingunnar og Margrétar: Ingólf-
ur, f. 1906, d. 1974, og Þorbjörg
Ragnhildur, f. 1908, d. 1932. A
lífi eru Guðmundur, f. 1911, og
Þórdís, f. 1913.
Maður Ingunnar var Guð-
mundur Bjarnason frá ísafirði,
d. 1994. Þau áttu tvö fóstur-
börn: Halldóru Björt og Guð-
mund Ómar.
Margrét giftist Einari Guð-
jónssyni sem einnig var frá
Isafirði, d. 1973. Þeim varð átta
barna auðið, sem eru þessi í
aldursröð: Þorbjörg, Árni,
Kristín, Jón Hólm, Gunnlaugur,
Hafdis, Ingvar og Kjartan. Lát-
inn er Arni fyrir nokkrum
árum.
Útför Margrétar fór fram frá
Bústaðakirkju 28. apríl sl., en
Ingunnar frá Fossvogskirkju
16. maí síðastliðinn.
SYSTUR tvær, frænkur mínar,
hafa látist með nokkurra daga milli-
bili. Ég fmn hjá mér hvöt til að
minnast þeirra beggja með nokkr-
um orðum, þó af vanefnum sé.
Ekki voru þó náin tengsl samskipta
milli mín og þeirra á lífsleiðinni, en
bönd vináttu og frændsemi tengdu
mig við þær frá því ég fór að muna
eftir mér og það var gagnkvæmt
frá þeirra hálfu. Feður okkar voru
bræður og miklir kærleikar í milli
þeirra.
Ingunn og Margrét hétu þær,
þessar elskulegu systur, og voru
dætur Gunnlaugs Eiríkssonar og
konu hans, Ingibjargar Guðmunds-
dóttur; bjuggu þau hjón í Reynhól-
um í Miðfirði á fyrstu áratugum
aldarinnar og þar fæddust böm
þeirra, sex að tölu, og stigu sín
fyrstu skref.
Margrét var næstyngst systkin-
anna og bar nafn langömmu sinn-
ar, Björnsdóttur í Huppahlíð, en
Ingunn var þriðja í röðinni og bar
nafn ömmu sinnar, Gunnlaugsdótt-
ur, er síðast bjó á Sveðjustöðum í
Miðfirði ásamt manni sínum, Eiríki
Ólafi Jónssyni.
Ingibjörg lést frá barnahópnum
á unga aldri. Fór þá Margrét í fóst-
ur til Jóns, föðurbróður síns, sem
þá bjó, ásamt móður sinni og syst-
ur, á Svertingsstöðum í sömu sveit;
- hjá honum og litlu síðar Hólm-
fríði, konu hans, var hún uppvaxtar-
ár sín eða þar til hún fór sjálf að
sjá sér farborða.
Gunnlaugur í Reynhólum hélt
búskap sínum áfram með bömin
fimm í ómegð, en nokkru eftir and-
lát konu hans kom til hans Filippía
Jónsdóttir frá Kleifum í Gilsfirði.
Hún tók heimilið að sér og gekk
börnunum í móðurstað og fórst það
vel úr hendi; - þau Gunnlaugur og
Filippía gengu í hjónaband og lifðu
saman í ást og einlægni þar til
hann lést í október 1947.
Gunnlaugur og Filippía bjuggu í
Reynhólum hátt á annan áratug,
en þá veiktist hann af asma og gat
ekki stundað sveitabúskap. Fluttu
aði viðskipti með fisk o.fl. og var
mikill eljumaður, útsjónarsamur og
sívinnandi. - Og ekki veitti af,
heimilið varð stórt, börnin urðu
átta; - í dag skipta afkomendur
Einars og Möggu tugum.
Ingunn Gunnlaugsdóttir var kona
hæglát og prúð í framgöngu. Hún
var í hærra lagi á vöxt og grannvax-
in. Litlum snáða sem leit hana fyrsta
sinni fannst hún falleg stúlka, vel
til fara og snyrtileg með loðkraga á
kápunni sinni og brosti blítt þegar
snáðinn gaf sig á tal við hana. Ung
stúlka átti hún um tíma í erfiðum
raunum vegna berkla í baki og lá á
Ísafjarðarspítala. Ég kynntist henni
ekki að ráði fyrr en á skólaárum
mínum í Reykjavík. Þá bjó hún á
efri hæðinni á Kambsvegi 7, ásamt
stjúpu sinni, eiginmanni og bróður.
Hjá henni var allt í röð og reglu,
hreint og fágað og sem fyrr var
sama elskulega viðmótið og hlýjan
í svip og fasi. Maðurinn hennar,
Guðmundur Bjamason, var bygg-
ingaverkamaður - skemmtilegur
maður, glaðvær og greiðugur, stétt-
vís maður og tók virkan þátt í starfi
verkalýðsfélags síns. Hann útvegaði
mér ágæta sumarvinnu hjá bygg-
ingameistara sínum, Jóni Berg-
steinssyni, og frá þeim sumrum á
ég skemmtilegar og hugljúfar minn-
ingar, sumar þeirra tengdar þeim
hjónum báðum. Þeim Guðmundi og
Ingu varð ekki bama auðið og vafa-
laust hefur það orðið þeim að
skugga, en þann skugga ráku þau
brott með því að taka að sér tvii
fósturbörn og ala upp sem sín eigin.
Bömin þeirra, Halldóra Björt, hús^
móðir í Reykjavík, og Ómar Þór,
íþróttakennari á Akureyri, urðu
þeim gleðigjafi og styrkur og ekki
síst þegar ár heilsuleysis og elli urðu
þeim fjötur um fót.
Og nú em þær systur horfnar á
vit hins ókunna, en þótt svo sé
heldur lífið áfram; okkar líf, þeirra
líf. „Ég lifi og þér munuð lifa,“
sagði Kristur Jesús upprisinn. -
Dauðinn er í raun ekki til, aðeins
hamskipti á vegferð sálarinnar.
Ég og systkini mín þökkum þeim
systmm kynnin og samskiptin og
biðjum þess að Ijós æðri heima lýsi
þeim á vegferðinni um ókunna stigu.
Snorri Jónsson.
þau þá til ísafjarðar, en þar hafði
Gunnlaugur áður verið á vertíðum;
- bjó þar og Guðmunda, systir
Filippíu, ásamt manni sínum, Guð-
jóni, og áttu þau marga og gjörvu-
lega syni. Þær Gunnlaugsdætur
fóru einnig vestur og dvöldu þar
með föður sínum og stjúpu ýmist
lengri eða skemmri tíma; - þar
kynntust þær systur, Margrét og
Ingunn, eiginmönnum sínum, Mar-
grét Einari, syni þeirra Guðmundu
og Guðjóns, og Ingunn Guðmundi
Bjarnasyni. Hjónaböndin reyndust
þeim systrum farsæl og entust svil-
unum báðum til æviloka.
Gunnlaugur og Filippía fluttust
ti! Reykjavíkur á fimmta áratugn-
um og enduðu bæði ævi sína hér
syðra; hún allmörgum árum síðar
en hann.
Synir Gunnlaugs, Ingólfur og
Guðmundur, tóku við búi í Reynhól-
um og var Ingólfur fyrir búinu,
enda eldri að árum. Ingólfur var
hugsjónaríkur og stórhuga bóndi,
en óáran í efnahagsmálum, verðfall
á afurðum og kreppa, olli því að
búskapurinn stóð skemur en ætlað
var. Er þeir brugðu búi, bræðurnir,
tók við jörðinni Björn, móðurbróðir
þeirra, ásamt konu sinni, Ingibjörgu
Jónsdóttur frá Huppahlíð, og hefur
jörðin verið í eigu þeirrar fjölskyldu
síðan. Þeir bræður fluttu suður á
mölina, eins og þá var stundum
sagt og heldur í niðrandi merkingu;
varð það hlutskipti margra sveita-
manna á þessu tímabili kreppu og
síðar heimsstyijaldarára að flytjast
brott úr dreifbýli til þéttbýlis og
mun fáum hafa orðið að eftirsjá
þegar öllu er á botninn hvolft.
Ingólfur aflaði sér menntunar,
útskrifaðist úr Samvinnuskólanum,
stundaði verkamannavinnu og
verkstjórn, en lengst af verslunar-
og skrifstofustörf, en Guðmundur
gerðist ekill leigubifreiða. Leið fjöl-
skyldunnar húnvetnsku lá sem sé
smám saman brott úr heimasveit
til höfuðstaðar, þar sem starfsvett-
vangur hennar varð að megin hluta.
Eins og áður er fram komið ólst
Margrét upp á heimili foreldra
minna, en vegna atöursmunar man
ég lítið eftir henni þar, en heimsókn-
ir hennar og ræktarsemi við foreldra
mína fyrr og síðar urðu þess vald-
andi að mér var ætíð hlýtt til hennar.
Mér er það minnisstætt er ég
kom fyrst til Reykjavíkur, drengur
á fermingarári, að ég gisti hjá
Möggu frænku. Ég var í skemmti-
ferð með húnvetnskum vegagerðar-
mönnum sem tekið höfðu á sig rögg
frá erfiðum malarmokstri og
sniddukasti til að skoða höfuðstað-
inn. Magga og Einar bjuggu þá
inni í Sogamýri, á Sogabletti 16. í
þessari ferð varð ég þeim að
áhyggjuefni því að mér fannst allt
svo nýstárlegt í miðbæ Reykjavíkur
að ég missti af nokkrum Sogamýr-
arvögnum!
í Sogamýrinni var ríkjandi eitt-
hvert sambland af sveit og kaup-
stað, nánast þó sveit; tún lágu báð-
um megin Suðurlandsbrautarinnar,
kýr voru á beit, börn að leik og fólk
í heyskap. Magga og Einar tóku á
móti mér, stráknum, af miklum
innileik og höfðingsskap. Þau höfðu
mörg járn í eldinum, ráku
hænsnabú á stórri heimalóðinni sem
hún sá að mestu um; - hann stund-
Margar nýjar vörur
á tilboði síðustu
vordagana í Habitat.
Meðal annars:
SCRAFFITTO
matar- og kaffistellið
með afslætti
20%
Urval af húsbúnaði og
húsgögnum á einstöku
tilboði. Meðal annars:
Matar- og kaffistell,
borðdúkar, blómavasar,
tágavörur, rúmteppi,
gardínur, matborð o.fl. með
20%-40%
afslætti.
Vordögunum lýkur
24. maí n.k.
Verið velkomin.
Næg bílastæði.
Nýtt kortatímabil.
PACINO sófinn
með
20%
afslætti
Vandað, sterkt, köflótt áklæði í 4 litum.
Áður kr. 49.900 Nú kr. 39.920
PILGRIM borðstofuborðið
með 20% afslætti
Áður kr. 59.500 Nú kr. 47.600
Laugavegi 13 - Sími 562-5870