Morgunblaðið - 18.05.1995, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Hjartkær bróðir minn,
JÓN JÓNSSON,
Túngötu 15,
Isafirði,
lést í Sjúkrahúsi ísafjarðar 13. maí síðastliðinn.
Sigurður Jónsson.
t
Ástkær móðir mín,
GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR,
Hólmgarði 66,
lést á Elliheimilinu Grund mánudaginn 15. maí.
Helga Tómasdóttir,
Slerdahl.
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
ÞÓRUNN GÚSTAFSDÓTTIR,
FOLDAHRAUNI 37,
VESTMANNAEYJUM,
lést þriðjudaginn 2. maí.
Jarðarförin hefur farið fram.
Fyrir hönd vandamanna,
Sigurjón Ólafsson,
Mary og Sigrún Sigurjónsdætur.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GEIR VILBOGASON
fyrrverandi bryti,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi aðfaranótt 16. maí sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sigurbjörg Sigfinnsdóttir,
Grétar Geirsson, Lára Kristjánsdóttir,
Vilborg Geirsdóttir, Gylfi Adolfsson,
Sigrún Geirsdóttir, Guðmundur Haraldsson,
Kristin Geirsdóttir, Ómar Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengda-
faðir og afi,
BJARNIINGI BJARNASON
málarameistari,
Kirkjubraut 17,
Akranesi,
andaðist á heimili sínu 17. maí.
Guðrún Jónsdóttir,
Helga Bjarnadóttir, Björn Tryggvason,
Bjarni Ingi, Guðrún, Elínborg.
t
Eiginmaður minn,
BJÖRN Þ. JÓHANNESSON
fyrrverandi lektor,
Heiðarási 24,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
föstudaginn 19. maí kl. 10.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á minningarsjóð Jóns, prófessors,
Jóhannessonar hjá Háskóla fslands.
Valgerður Vilhjálmsdóttir.
+ Útför móður okkar,
ELÍSABETAR ÞORSTEINSDÓTTUR,
Kumbaravogi, áðurtil heimilis
á Laekjarvegi 2, Þórshöfn,
fer fram frá Fossvogskapellu í dag, fimmtudaginn 18. maí,
kl. 13.30. Bára Guðjónsdóttir, Elfn Guðjónsdóttir, Guðný Guðjónsdóttir.
REYNIR ALFREÐ
SVEINSSON
■+■ Reynir Alfreð
* Sveinsson var
fæddur á Eskifirði
3. júlí 1916. Hann
lést á heimili sínu í
Reykjavík 11. maí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Sveinn Jónsson, f.
16.3. 1879, d. 8.9.
1966, og Júlíana
Guðrún Tómasdótt-
ir f. 18.2. 1889, d.
11.11. 1966. Reynir
var næstelstur
þriggja bræðra, en
bræður hans voru
Aðalsteinn sem er látinn og
Trausti, sem lifir bræður sína.
Eftirlifandi eiginkona er
Guðrún E. Bergmann. Auk þess
að ganga syni Guðrúnar, Dag-
vin Bergmann Guðlaugssyni, f.
26.10.41, i föður stað, varð þeim
Guðrúnu átta barna auðið. Þau
eru Aðalbjörg Júlíana f.
16.10.48, hennar maður er
Björn Magnússon, Sveinn Al-
freð, f. 20.4.52, hans kona var
Rósalind Ósk AI-
varsdóttir en þau
eru skilin, Hanna
Björk, f. 5.6.53,
hennar maður er
Vignir Sigurðsson,
Eyvindur Berg-
mann, f. 17.7.55,
hans kona er
Ástríður Ingibjörg
Hannesdóttir, Birg-
ir, f. 4.6.57, hans
kona er Kristín Jó-
hanna Agnarsdótt-
ir, Júlíana Guðrún,
f. 16.7.60, hennar
maður er Páll Skúli
Leifsson, Margrét, f. 18.2.63,
hennar maður er Karl Axelsson
og Guðrún Bergmann, f.
19.1.65 en hennar maður er Jón
G. Hreiðarsson. Barnabörnin
eru orðin 19 og barnabarna-
börnin eru þrjú. Reynir starfaði
lengst af hjá Skógræktarfélagi
Reykjavíkur.
Reynir verður jarðsunginn
frá Bústaðakirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Að dyrum dauði barði,
Það dimmdi fyrr en varði,
svo heima nú er hljótt.
Sá hneig er hlífa skyldi
og hlýja okkur vildi.
Oft viðsjál reynist vetramótt.
Af sterkum stofni var hann
og storma lífsins bar hann
með styrkri hðnd og hug.
Þar var ei hugur hálfur
er hann gekk fremstur sjálfur
til starfs, er heimtar dáð og dug.
Það er sem örin fljúgi
og inn að hjarta smjúgi
við andlát afreksmanns.
En sárast mun þá svíða,
þeim seint úr minni líða,
er ávallt nutu umsjár hans.
Þig kveður eiginkona
þig kveðja böm og vona
þinn lifi orðstír hér.
Far sæll til ljóssins landa,
til lífsins furðustranda.
Við gleymum aldrei, aldrei þér.
Kveðja,
Eiginkona og börn.
Kveðja frá tengdadóttur og
barnabörnum í Danmörku
Elsku afí og tengdapabbi. Nú
ertu horfinn okkur, við söknum þín
mikið, og finnst sárt að hafa ekki
náð að kveðja þig. En þótt við séum
víðsfjarti núna, þá er hugurinn
heima á íslandi. Það verður tómlegt
að koma í Breiðagerði í sumar og
sjá þig ekki þar lengur.
Þú varst alltaf tilbúinn að spjalla
og gantast við börnin. Þú kenndir
þeim svo ótalmargt, þó mest að
meta náttúruna og dýrin. Það var
ekki til það blóm eða tré sem þú
kunnir ekki skil á. Þú hafðir þá
eiginleika að geta fengið allt til að
Crfisclrykkjur
Ucltingohú/ið
GRPi-inn
Sími 555-4477
ERFIDRYKKJUR
PERLAN sími 620200
'andaöir legstemar
Varanleg minning
BAUTASTEINN
Brautarholti 3,105. R
Sími 91-621393
gróa. Garðurinn þinn var svo falleg-
ur og upp á Vatnsenda ræktaðir
þú allt frá kartöflum til jarðarbeija.
Og í gróðurhúsinu þínu gerðust
ýmis undur.
Ég minnist þess, að á fyrstu
búskaparárum okkar Eyvindar í
Breiðagerði fann ég oft vínbeija-
klasa og tómata sem þú hafðir lætt
í gluggakistuna til okkar. Þetta
ræktaðir þú í gróðurhúsinu. Þar var
einnig heimili skrautlegra kanarí-
fugla, sem vöktu okkur með söng
á morgnana. En þú áttir líka til að
skamma mig ef þér fannst sem ég
væri að grilla blómin mín, eins og
þú kallaðir það. Ég endasentist um
allt hús að vökva blómin ef von var
á þér í heimsókn. Því þín orð vógu
þungt og það var alltaf borin virð-
ing fyrir skoðunum þínum. Þú þold-
ir illa kæruleysi og leti. Sjálfur varst
þú harðduglegur, enda hafðir þú
orðið að vinna mikið alla tíð. Ekki
dugði annað til að geta séð svo
stórri fjölskyldu farborða. Þú
kenndir börnum þínum iðjusemi og
ósérhlífni enda hafa þau öll orðið
dugnaðarfólk.
Þú varst víðlesinn og fylgdist vel
með þjóðmálum. Enda skorti ekkert
á andlega þrekið þótt líkamleg
heilsa væri farin að bila. Ég minn-
ist þess hversu vel þú þekktir öll
kennileiti á ferðalögum austur fyrir
Fjall. Þá varð oft að hægja á bílnum
á einum kafla ferðarinnar. Þú
varðst að athuga hvernig lúpínan,
sem þú sáðir, dafnaði. Það var held-
ur ekki óalgengt, að sveigja þyrfti
úr leið til þess að færa hrafninum
eitthvað góðgæti. Sveitalífið heillaði
þig og þú áttir oft góðar stundir á
spjalli við bændur eða hestamenn.
Þú áttir góða konu, hana ömmu
Dúnnu, enda var hún sólin þín.
Okkur finnst gott til þess að vita
að hún sat við hlið þér þegar þú
kvaddir þennan heim.
Elsku afi og tengdapabbi.
Hafðu þökk fyrir allt sem þú
veittir okkur og allar góðu stundim-
ar. Megi Guð nú gæta þín.
Elsku amma, tengdamamma,
börnin ykkar afa, tengdabörn,
bamabörn og aðrir sem nú eiga um
sárt að binda, við óskum þess að
ykkur hlotnist styrkur til að bera
þessa þungu sorg. Við sendum ykk-
ur okkar dýpstu samúðarkveðjur
og erum með ykkur í huganum.
Meðan veðrið er stætt, berðu höfuð hátt
og hræðstu eigi skugga á leið.
Bak við dimmasta él glitrar lævirkjans Ijóð
upp um Ijóshvolfin björt og heið.
Þó steypist í gegn þér stormur og regn
og þó byrðin sé þung sem þú berð,
þá stattu fast og vit fyrir víst,
þú ert aldrei einn á ferð.
(Þýð. Óskar Ingim.)
Ásta, Hannes, Andri,
Svandís og Guðrún.
Nú fækkar þeim óðum, sem fremstir stóðu,
sem festu rætur í íslenskri jörð,
veggi og vörður hlóðu,
og vegi ruddu um hraun og skörð,
börðust til þrautar með hnefa og hnúum,
og höfðu sér ungir það takmark sett:
að bjargast af sínum búum
og breyta í öllu rétt.
Það lýsti þeim sama leiðarstjaman,
en lítið er um þeirra ferðir spurt.
Allir kusu þeir kjamann,
en köstuðu hýðinu burt.
Þeir fræddu hver annan á fómum vegi
um foma reynslu og liðna stund,
og döfnuðu á hveijum degi
að drengskap og hetjulund.
(Davíð Stefánsson)
Árið 1981 kynntist ég Guðrúnu
dóttur þeirra Reynis og Guðrúnar
E. Bergmann, eða Dúnnu, og tveim-
ur árum seinna var ég fluttur á
efri hæðina í húsinu þeirra í Breiða-
gerði 31. Reynir hafði því gengið
um íslenska jörð í um 66 ár þegar
kynni okkar tókust. Þeim fækkar
óðum sem hafa að bera þann per-
sónuleika sem Reynir hafði.
Reynir Sveinsson kom mér fyrir
sjónir sem sérvitur og heillandi per-
sónuleiki. Reynir gat verið þrár og
þijóskur en hann var ákaflega trúr
sinni sannfæringu og oft á tíðum
varð þijóskan til þess að færa mál
til betri vegar. Hann var hreinlynd-
ur, kom til dyranna eins og hann
var klæddur og hafði greinilega
mótast af þeim aðstæðum sem hann
hafði búið við frá unga aldri. Vinnu-
semi, í því skyni að afla fjölskyldu
sinni viðurværis, ráðdeild gagnvart
því sem aflað var og nýtni allra
hluta einkenndi allt í fari Reynis
Sveinssonar enda virtist honum fátt
mikilvægara en að búa sínum vel í
haginn fyrir framtíðina.
Ég fann strax fýrir mjög ákveðn-
um lífsviðhorfum í fjölskyldunni.
Þú skyldir ástunda þína vinnu, sjá
fyrir þér og þínum um leið og skóla
sleppti og rétta öðrum innan fjöl-
skyldunar hjálparhönd þegar þörf
væri á. Sumarið 1986 fæddist eldri
dóttir okkar á afmælisdegi Reynis
en 3. júlí 1986 varð Reynir sjötug-
ur. Stelpan var skírð Tinna Berg-
mann. Bæði Reynir og Dúnna hafa
reynst Tinnu okkar vel öll árin og
er ég sannfærður um að viðkynni
þeirra muni hafa mjög jákvæð og
mikil áhrif á Tinnu í framtíðinni.
Oft á tíðum passaði Reynir Tinnu
þegar hún var lasin og við þurftum
til vinnu og leitaði hún oft til þeirra
og jafnvel stundum þegar við vorum
að skammast yfir einhveiju sem
ekki mátti gera. Að sama skapi
hefur Telma yngri dóttir okkar náð
góðu sambandi við þau bæði. Fyrir
þetta vil ég þakka sérstaklega því
það sem stelpurnar okkar lærðu af
Reyni og Dúnnu er ómetanlegt og
verður aldrei af þeim tekið.
Þessi ár sem ég hef tengst fjöl-
skyldunni hefur miðdepill alls verið
Breiðagerði 31. Fljótlega varð mér
ljóst að það var ekki vegna þess
að Reynir og Dúnna væru sífellt
að bjóða þangað fólki af hinu eða
þessu tilefni, ekki það að fólk væri
ekki velkomið.
Eitthvað í persónuleika þeirra
beggja gerir það einfaldlega að
verkum að fólk leitast ósjálfrátt við
að vera í samneyti við þau. Iðulega
þegar við lítum inn eru einhverjir
aðrir í heimsókn og oft á tíðum
varð þetta að fjölmennu samkvæmi
án tilefnis.
Þú hafðir fagnað með gróandi grösum
og grátið hvert blóm, sem dó.
Og þér hafði lærst að hlusta unz hjarta
í hveijum einasta steini sló.
Og hvernig sem syrti, í sálu þinni
lék sumarið öll sín ljóð,
og þér fannst vorið þitt vera svo fagurt
og veröldin ljúf og góð.
(Tómas Guðmundsson)
Með dugnaði og eljusemi ræktaði
Reynir upp myndarlegan trjáreit í
landinu sínu að Vatnsenda. Það var
líkt og náttúran kallaði hann til sín
og þegar hann var úti í náttúrunni
rann allt í eitt, hann varð náttúran
og náttúran varð hann. Þetta sá
ég fljótt og virtist það vera allra
meina bót að komast upp á Vatns-
enda, vera innan um trén sín, planta
nýjum, færa þau til eftir því sem