Morgunblaðið - 18.05.1995, Qupperneq 48
48 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
HL BLAÐSEMS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Nauðsyn ber
til að uppræta
spillinguna
Frá Sigutjón Sigurðsson:
EG las nýlega í Morgunblaðinu
mjög vel skrifaða grein um póli-
tíska spillingu, eftir Einar Vil-
hjálmsson, Garðabæ. Þar kemur
fram í viðtali við Sverri Hermanns-
son bankastjóra í Morgunblaðinu
10.5. 1994, að offjárfesting, ór-
áðsía og gegndarlaus eyðsla væri
orsök kreppunnar á íslandi. Hann
sagði einnig, að kunningsskapur,
fyrirgreiðsla og atkvæðakaup
stjórnmálamanna hefðu miklu um
fjárfestingar ráðið.
Það dylst engum sem til þekkir,
að þarna talar maður af hrein-
skilni, maður sem þekkir vel til
hlutanna. Maður, sem er heima-
gangur í húsi spillingarinnar. Það
dylst heldur engum, að tími er
kominn á að afnema allskonar
hlunnindi, sem falin eru í stjórn-
kerfi okkar spilltu stjórnenda.
Tillögur til siðbótar
Hinn svokallaði starfskostnaður
alþingismanna og annarra opin-
berra starfsmanna. s.s. ferða-,
síma-, húsaleigu-, bílahlunnindi og
fl. skulu niðurlögð, öll bílahlunn-
indi skulu innkölluð og þeim hætt
fyrir fullt og allt. Tekin skulu af
ráðherrum og bankastjórum bíla-
hlunnindi þeirra og fl. Bílarnir
seldir, þó skal undanskilja tvær
bifreiðar og tvo bílstjóra, sem
skulu eftirleiðis hafa bækistöð í
forsætisráðuneytinu í Lækjargötu,
þessar tvær bifreiðar skulu vera
til afnota fyrir öll ráðuneytin og
erlenda gesti, þegar svo ber undir.
Afnema skal allar dagpeninga-
greiðslur til ráðherra og banka-
stjóra og annarra opinberra starfs-
manna. Nauðsynlegur ferðakostn-
aður skal aðeins greiddur samkv.
framvísun reikninga.
Segja skal strax upp sérstökum
aðstoðarmönnum ráðherra, því
þeirra er ekki þörf, ef ráðheirar
vinna samviskulega sín störf. Úti-
loka skal strax af þingi hina svo-
kölluðu varaþingmenn, þeirra er
ekki þörf. Síðan þegar endurskoð-
un lýkur á stjórnarskránni, þarf
að fækka þingmönnum í 36, það
tel ég vera hæfilega tölu fyrir
næstu aldir.
Rannsaka þarf gaumgæfílega,
hvaða rétt ráðuneytin og opinberar
stofnanir hafa til að greiða ýmsum
starfsmönnum sínum tímakaup
fyrir vinnutíma, sem þeir vinna
ekki.
Rannsaka þarf hvaða menn
bera ábyrgð á þessum ósóma.
Fækka skal skrifstofum og
starfsmönnum Alþingis, sem þjóna
sérstaklega undir einstaka alþing-
ismenn. Fylgja þarf betur eftir
notkun alþingismanna á stimpil-
klukku Alþingis, sem skráir mæt-
ingu þingmanna til vinnu og koma
þannig í veg fyrir vinnusvik þeirra,
sem tíðkast hafa á undanförnum
árum eftirlitslítið.
Nauðsyn ber til að opna að
nokkru bankaleyndina, hvað útlán
bankanna áhrærir þannig að bank-
ar og allir lánasjóðir verði skyldað-
ir til að gefa út skuldalista um
hver áramót yfir alla skuldunauta
sína, sem skulda yfir 20 milljónir.
Þannig fengi almenningur tæki-
færi til að fylgjast með útlánum
í stórum stíl til fyrirtækja á hveij-
um stað, þannig fengist ókeypis
eftirlit á bankastjóra og fyrirtækin
um meðferð þeirra á lánsfénu.
Þannig yrði komið í veg fyrir
að einstaklingar, sem telja sig eiga
fyrirtækin, hirði tekjur fyrirtækj-
anna og eignir, og skili svo gjald-
þrota fyrirtæki þegar þeim hentar.
Fela þarf félagsmálaráðuneyti
framkvæmdina, útgáfu heildar
skuldabæklings yfir alla áður-
nefnda skuldunauta, um hver ára-
mót.
Félagsmálaráðuneytið þarf að
sjá um að dreifa þessum
skuldabæklingum um allt landið,
á alla staði sem við á. Upplag
skuldabæklingsins verði 160 þús-
und stykki, og verði ókeypis.
Nota mætti þá milljarða, sem
sparast við þessar breytingar, til
hagsbóta fyrir heilbrigðiskerfið og
menntamálin, sem nú eru í fjár-
svelti.
Tilgangur gagnrýninnar
Tilgangur þessarar gagnrýni
minnar er að reyna að koma í veg
fyrir misnotkun á almannafé. Að
koma í veg fyrir að menn komist
upp með að draga sér peninga úr
ríkisbönkum og ríkissjóði eftirlit-
slítið eða með aðstoð óábyrgra
bankastjóra og stjórnmálamanna
án þess að leggja fram fullnægj-
andi veð fyrir lánum, þó þau séu
fyrir hendi hjá lántakendum.
Sorgin er að yfir þetta er hylm-
að af óábyrgum bankastjórum og
stjórnmálamönnum.
Mér kemur meira en lítið undar-
lega fyrir sjónir, að sami maður
geti leikið þennan gjaldþrotaleik
345 sinnum á örfáum árum og
ennþá dularfyllra er að ekki skuli
birt nafn mannsins í dagblöðum
með mynd af ásjónu hans og helstu
félaga hans.
Þetta sýnir því miður að litlar
sem engar siðferðiskröfur eru
gerðar af hálfu hins opinbera,
hylmað yfir með sökudólgum, af
einhveijum orsökum
Virðingarfyllst,
SIGURJÓN SIGURÐSSON,
Bólstaðarhlíð 68, Reykjavík.
Þú heldur við boltann, Magga, og
ég kem hlaupandi og sparka hon-
um...
Mér datt í hug að æfa mig í nokkr-
um spörkum á meðan ég beið,
herra...
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.