Morgunblaðið - 18.05.1995, Qupperneq 59
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ1995 59
MORGUNBLAÐIÐ______________________________________
DAGBÓK
VEÐUR
Spá kl. 12.00 í dag:
Heimild: Veðurstofa fslands
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað
Í.'.J 0......'Jj
Skýjað Alskýjað
6 é é *
é é é é
# é 4 é
é s& é 56
Rigning ri Skúrir
Slydda y Slydduél
Snjókoma \7 Él
'j
Sunnan, 2 vindstig.
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjöðrin
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
10° Hitastig
Þoka
V Sú|d
VEÐURHORFUR I DAG
Yfirlit: Norður við Lófót er 987 mb lægð sem
þokast norður. Vestur af Grænlandi er 1027
mb hæð og þaðan hæðarhryggur til suðvest-
urs.
Spá: Norðankaldi og dálítil slydda eða snjóél
við norðausturströndina. Annars verður fremur
hæg norðlæg eða breytileg átt og bjartviðri.
Norðaustanlands verður hiti 1-6 stig, svalast
við sjóinn. Norðvestantil verður hiti 5-8 stig
en 8-14 stig sunnanlands, hlýjast í innsveitum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
Föstudag og laugardag: Fremur svalt i veðri
og rigning eða slydda sunnanlands og austan
en á sunnudag og mánudag verður vindur
suðlægari með rigningu sunnanlands og hlýn-
andi veðri. Norðanlands verður lengst af þurrt
og bjart með köflum.
Veðurfregnir eru lesnar frá Veðurstofu kl.
1.00, 4.30, 6.45, 10.03, 12.45, 16.30, 19.30,
22.10. Stutt veðurspá er lesin með fréttum
kl. 2, 5, 6, 8, 12, 16, 19 og á miðnætti.
Svarsfmi veðurfregnir: 990600.
FÆRÐ Á VEGUM
(Kl. 17.30 í gær)
Flestar aðalleiðir á landinu eru nú færar, en
þó ber nokkuð á aurbleytu á vegum og hefur
öxulþungi ökutækja víða verið takmarkaður og
er það nánar kynnt með merkjum við viðkom-
andi vegi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá þjónustu-
deild Vegagerðarinnar í Reykjavík í símum:
996316 (grænt númer) og 91-631500. Einnig
eru veittar upplýsingar um færð á vegum í
öllum þjónustustöðvum Vegagerðarinnar ann-
ars staðar á landinu.
Helstu breytingar til dagsins i dag: Lægðin fyrir
norðaustan landið fjarlægist.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 gær að ísl. tíma
Akureyrl 4 skýjað Glasgow 9 úrkoma f gr.
Reykjavík 8 léttskýjað Hamborg 9 rigning
Bergen 6 skýjað London 11 rign. á s. klst.
Helsinki 11 úrkoma í gr. LosAngeles 13 léttskýjað
Kaupmannahöfn 11 alskýjað Lúxemborg 11 skúr á s. klst.
Narssarssuaq 1 þoka í gr. Madríd 23 skýjað
Nuuk 2 þoka í gr. Malaga 30 hálfskýjað
Ósló 11 skýjað Mallorca 24 léttskýjað
Stokkhólmur 11 skýjað Montreal 10 skýjað
Þórshöfn 3 skýjað NewYork 12 alskýjað
Algarve 22 léttskýjað Orlando 24 léttskýjað
Amsterdam 11 rign. á s. klst. París 15 skúr
Barcelona 20 léttskýjað Madeira 23 léttskýjað
Berlín 14 rign. á s. klst. Róm 17 þokumóða
Chicago 13 alskýjað Vín 15 skýjað
Feneyjar 15 skýjað Washington 19 alskýjað
Frankfurt 15 skúr é s. klst. Winnipeg 2 heiðskírt
18. MAÍ Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólris Sól í hád. Sólset Tungl í suðri
REYKJAVlK 2.45 0,1 8.51 3,8 14.57 0,3 21.18 4,0 4.05 13.23 22.43 4.42
(SAFJÖRÐUR 4.56 0,1 10.45 1,9 17.02 0,1 23.14 2,1 3.44 13.29 23.17 4.48
SIGLUFJÖRÐUR 0.47 1,3 7.01 JLL 13,37 1,2 19,17 0.1 3.25 13.11 22.59 4.30
DJÚPIVOGUR 5.45 2,0 11.56 0,2 18.20 2,2 3.32 12.53 22.17 4.11
Siávarhæó miðast við meðalstórstraumsfjöru (Morqunblaðið/Siómælinaar íslandsl
Krossgátan
LÁRÉTT:
1 sannreyna, 8 súld, 9
ærið, 10 málmur, 11
gera auðugan, 13 beit-
an, 15 næðings, 18 æki,
21 eldiviður, 22 spjald,
23 jöfnum höndum, 24
órökstutt.
LÓÐRÉTT:
2 óbeit, 3 hafna, 4 leit-
ast við, 5 sporin, 6 tjóns,
7 duglegt, 12 giska á,
14 trant, 15 þraut, 16
nuóóxórla saman, 17
fiskur, 18 gegna, 19 eld-
stæðis, 20 sæti.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt:- 1 safna, 4 skáld, 7 sýkil, 8 nakin, 9 ann, 11
aðal, 13 anga, 14 elfur, 15 hjóm, 17 afar, 20 haf,
22 gamma, 23 jálks, 24 runni, 25 reisn.
Lóðrétt:- 1 sessa, 2 fokka, 3 afla, 4 sönn, 5 álkan,
6 dunda, 10 nefna, 12 lem, 13 ara, 15 hugur, 16 ólm-
an, 18 fálki, 19 rósin, 20 hali, 21 fjær.
í dag er fímmtudagur 18. maí,
138. dagur ársins 1995. Orð
dagsins er: Hvað sem þér gjörið
í orði eða verki, gjörið það allt
í nafni Drottins Jesú og þakkið
Guði föður fyrir hann.
Bústaðakirkja.
Mömmumorgunn kl. 10.
Hallgrímskirkja.
Kyrrðarstund kl.
12.15. Léttur liádegis-
verður á eftir.
Háteigskirkja. Kvöld-
söngur með Taizé-tónl-
ist kl. 21. Kyrrð, íhugun,
endumæring.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: í
gærkvöldi fóru Laxfoss
og Múlafoss og Detti-
foss kom til hafnar.
Hafnarfjarðarhöfn: í
gær komu af veiðum
Auðunn og Rússinn
Olshana. Hofsjökull
var væntanlegur í gær-
kvöld eða nott og búist
var við að Lagarfoss
færi á miðnætti frá
Straumsvík. í dag kem-
ur Ozhyreley.
Fréttir
Flóamarkaðsbúðin
Garðastræti 6, er opin
í dag og á morgun frá
kl. 13-18.
Mannamót
Félag eldri borgara í
Reykjavík og ná-
grenni. Brids, tvímenn-
ingur í Risinu kl. 13 í
dag. Skáldakynning í
Risinu vestursal kl. 14.
Félagar úr leikhópnum
ásamt Gils Guðmunds-
syni flytja efni um líf
og starf Davíðs Stefáns-
sonar í tilefni aldaraf-
mælis skáldsins. Lesnir
valdir kaflar úr verkum
skáldsins.
Gjábakki. Síðustu tímar
í leikfiminni á þessu vori
eru í dag. Skila þarf
munum á basarinn og
sýninguna í dag og á
morgun. Skólakór Kárs-
ness syngur fýrir matar-
gesti Gjábakka kl.
12.20.
Aflagrandi 40. Boccia
hefst í fyrramálið 19.
maí. Skráning og uppl.
í afgreiðslu, s. 5622571.
Hvassaleiti 56-58. Fé-
lagsvist í dag. Kaffíveit-
ingar og verðlaun.
Langahlíð 3. „Opið
hús“. Spilað alla föstu-
daga á milli kl. 13 og
17. Kaffiveitingar.
Hraunbær 105. í dag
kl. 14 verður spiluð fé-
lagsvist. Kaffiveitingar
og verðlaun. Handa-
vinnusýning verður á
morgun föstudag og
laugardag kl. 13-17.
Veislukaffi.
Félagsstarf aldraðra í
Hafnarfirði. Opið hús í
kvöld kl. 20 í íþróttahús-
inu v/Strandgötu. Dag-
skrá og veitingar í boði
Soroptomistaklúbbs
Hafnarfjarðar.
Félag frímerkjasafn-
ara heldur félagsfund
sinn í kvöld kl. 20.30 í
Síðumúla 17. Fundar-
efni: Frímsýn 95 og
sumarstarfið.
Kristniboðsfélag
kvenna heldur bæna-
stund kl. 17 í dag í
Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58 og eru
allar konur velkomnar.
Félag nýrra íslend-
inga. Samverustund
foreldra og barna verður
(K61. 3, 17.)
í dag kl. 14-16 í menn-
ingarmiðstöð nýbúa,
Faxafeni 12.
Ný Dögun, samtök um
sorg og sorgarvið-
brögð. Síðasta opna hús
að þessu sinni verður í
Gerðubergi ! kvöld kl.
20. Símatími Nýrrar
Dögunar er á þriðjudög-
um kl. 18-20 í síma
5624844.
Bandalag kvenna i
Reykjavík verður með
kvennakvöld á Hótel
Sögu 24. maí nk. kl. 19.
Miðar verða seldir á
Hallveigarstöðum í dag
kl. 17-20 og mánudag-
inn 22. maí kl. 17-20.
Kirkjustarf
Áskirkja. Opið hús fyrir
alla aldurshópa í dag kl.
Langholtskirkja. Vina-
fundur kl. 14-15.30.
Samvera þar sem aldr-
aðir ræða trú og líf.
Aftansöngur kl. 18.
Laugarneskirkja.
Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, altaris-
ganga, fyrirbænir.
Breiðholtskirkja. Ten-
Sing í kvöld kl. 20. Síð-
asta samvera vorsins.
Mömmumorgunn föstu-
dag kl. 10-12.
Fella- og Hólakirkja.
11-12 ára starf í dag kl.
17.
Grafarvogskirkja.
Æskulýðsfundur í kvöld
kl. 20 í umsjón Sveins
og Hafdísar.
Víðistaðakirkja.
Mömmumorgunn kl.
Þjóðminjasafn
íslands
ALÞJÓÐADAGUR safna er í dag 18. maí en
til hans var stofnað árið 1977 og hefur hann
minnt þjóðir heims á gildi þess og mikilvægi
að varðveita verðmæti og sögulegar minjar.
í dag mun Þjóðminjasafnið opna eftir tæp-
lega heilsárs lokun vegna viðgerða. Skipt var
um alla glugga í húsinu, það múrað og stein-
að að nýju að utan, en viðgerðum innanhúss
hefur verið frestað svo ákveðið var að opna
sýningar sem standa munu þar til viðgerðir
hefjast. Á aðalhæð eru til sýnis munir frá
fyrstu öldum Islandsbyggðár, kirkjugripir,
útskurður og textílar auk baðstofu og sýning-
ar um eldhúsáhöld og matargerð fyrr á tið.
Á þriðju hæð er sýningin „Nútíð við fortíð“
þar sem getur að líta 130 ár úr sögu safns-
ins, frá upphafi þess. í kjallara er sýning á
ljósmyndum og ljósmyndatækjum. Hugmynd-
in að Þjóðminjasafni Islands, varð til í grein
Sigurðar Guðmundssonar málara í Þjóðólfi
árið 1862. Tilefnið var fornininjafundur úr
sögualdarkumli hjá Baldursheimi við Mývatn
1860-61. Safnið telst stofnað með bréfi stifts-
yfirvalda 24. febrúar 1863 og hét upphaflega
Forngripasafn íslands. Þjóðskjalasafn Is-
lands - síðar Landsskjalasafn - varð til með
tilkynningu landshöfðingja <árið 1882 en fest
í sessi með reglugerð árið 1900. Safnið er
opið alla daga vikunnar nema mánudaga frá
kl. 11-17 og er aðgangseyrir kr. 200 fyrir
fullorðna.
MORGUNBLAÐiÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fróttir 569 1181, tþróttir 569 1156.
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBLígíCENTRUM.lS / Áskriftargjald 1.500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.