Morgunblaðið - 01.06.1995, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Einar Oddur Kristjánsson alþingis-
maður um brottkast fisks
Gætí numið 40
milljörðum kr.
STÆRSTI gallinn á núverandi afla-
markskerfi er brottkast fisks.
Brottkastið gæti numið 30-40 millj-
örðum kr. í útflutningsverðmætum
á síðustu fimm árum. Þetta kom
fram í máli Einars Odds Kristjáns-
sonar alþingismanns á ráðstefnu um
kvótakerfi í sjávarútvegi sem Fiski-
félagið hélt í gær.
Snjólfur Ólafsson, dósent við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla
Islands, sagði að íslendingum hefði
tekist vel upp með fyrirkomulagið á
stjórnun fiskveiða miðað við árangur
annarra þjóða. Hann segir þó alvar-
lega vankanta á kerfinu og nefndi
þar til sögunnar sérstakar reglur um
smábáta og að inn í kerfið vantaði
auðlindagjald í einhveiju formi.
Einar Oddur vitnaði m.a. til skoð-
anakönnunar SKÁÍS um áramótin
1989-1990 um brottkast físks meðal
sjómanna. „Ef þessi skoðanakönnun
hefur verið rétt er niðurstaðan sú,
að hafí svo haldið fram í þeim mæli
sem hundruð vitnisburða er um, er-
um við að henda físki á þessum ára-
tug samsvarandi nokkrum tugnm
milljarða, 30-40 milljörðum í útflutn-
ingsverðmæti," sagði Einar Oddur.
Hann kynnti hugmyndir um flota-
stýringu í stað aflamarks og kvaðst
ekkert óréttlæti sjá í því að sóknin
yrði skattlögð. „Ef menn vilja endi-
lega skattleggja þennan atvinnuveg,
og það má gera það á margan hátt,
t.d. með tekjusköttum, getum við
líka skattlagt sóknina og það væri
ekki óréttlátt," sagði Einar Oddur.
Snjólfur lagði til að tekið yrði upp
auðlindagjald í einhveiju formi. Það
væri réttlætismál Sem margir krefð-
ust og með góðri útfærslu á gjaldinu
gæti það dregið úr sveiflum í efna-
hagslífínu og hamlað gegn óæski-
legri hækkun raungengis.
Morgunblaðið/Sverrir
Útför Maríu Markan
ÚTFÖR Maríu Markan Östlund óperusöngkonu
var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson jarðsöng, organisti
var Hörður Askelsson en auk hans sáu um undir-
leik þau Jónas Ingimundarson píanóleikari og
María Huld Markan Sigfúsdóttir fiðluleikari. Sús-
anna Levonen og Ingibjörg Marteinsdóttir sungu
einsöng og kórinn Söngvinir söng. Kórinn er
skipaður þekktum söngvurum og vinum söngkon-
unnar. Kistuna báru úr kirkju, f.v.: Helgi Agnars-
son, Rolf Markan, Friðrik Weisshappel, Sebastian
Notini, Páll Garðarsson, Benedikt Gunnarsson,
Ari Georg Haraldsson og Jón Kristján Haralds-
son.
200 atvinnurekendur hafa leitað sumarfólks til Atvinnumiðlunar námsmanna
Um 500 færri umsóknir til
Reykjavíkurborgar en í fyrra
ALDREI hafa jafnmargir atvinnu-
rekendur leitað til Atvinnumiðlunar
námsmanna vegna sumarstarfs-
manna, að sögn Sigurðar Eyjólfsson-
ar framkvæmdastjóra, en um 1.100
námsmenn eldri en 16 ára hafa skráð
sig hjá skrifstofunni. Hjá Reykjavík-
urborg hafa 3.743 ungmenni, 16 ára
og eldri, skráð sig í von um vinnu í
sumar, rúmlega 500 færri en í fyrra.
Munu að minnsta kosti 2.500 fá
vinnu, að sögn Önnu Helgadóttur.
Anna segir að færri umsóknir hafi
borist en í fyrra en þá voru þær 4.267.
„Það er búið að reikna með 2.000
sumarstörfum í fjárhagsáætlun borg-
arinnar og síðan voru samþykkt 500
störf til viðbótar 23. maí. í fyrra
fengu allir sem skráðu sig vinnu og
ef það á að gerast aftur þarf að koma
til aukafjárveiting líkt og í júní í
fyrra,“ segir hún. Um er að ræða tíu
vikna starfstíma hjá ýmsum fyrir-
tækjum og stofnunum borgarinnar.
200 atvinnurekendur
Sigurður Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Atvinnumiðlunar
námsmanna hjá Stúdentaráði HI,
segir að mikill fjöldi fyrirtækja hafi
leitað til skrifstofunnar. „Það hafa
aldrei leitað til okkar jafnmargir
atvinnurekendur og nú eða rúmlega
tvöhundruð. Ég er því mjög bjart-
sýnn á sumarið," segir hann.
í fyrra útvegaði miðlunin starfs-
krafta fyrir 480 störf og segir Sig-
urður að 400 störf séu þegar til
boða. „Við erum því komin langleið-
ina til móts við þann ijölda starfa
sem bauðst í allt fyrrasumar,“ segir
hann.
Nemendur úr fjórum félagasam-
tökum leita til skrifstofunnar, þ.e.
úr Félagi framhaldsskólanema,
Samtökum íslenskra námsmanna
erlendis, Bandalagi íslenskra sér-
skólanema og Stúdentaráði HÍ og
hafa rúmlega 1.100 námsmenn þeg-
ar látið skrá sig.
„Reynslan sýnir að atvinnurek-
endur leita mest til okkar í upphafí
júnímánaðar þannig að sú sprenging
sem við höfum gjarnan talað um hér
á væntanlega eftir að verða,“ segir
Sigurður loks.
180 án vinnu í Hafnarfirði
Hlynur Eiríksson, umsjónarmaður
Vinnumiðlunar skólafólks í Hafnar-
firði, segir 180 ungmenni, 17-21 árs,
á skrá hjá skrifstofunni sem enga
vinnu hafí fengið svo vitað sé. Um
hundrað, á sama aldri, hafí þegar
fengjð vinnu og einnig hafí bærinn
ráðið 60 ungmenni 21 árs og eldri
sem flokksstjóra í unglingavinnu.
Störfin hjá bænum tengjast eink-
um garðvinnu, leikjanámskeiðum
og þess háttar að Hlyns sögn.
„Horfurnar hjá þeim sem eiga eftir
að fá vinnu eru ekki bjartar ef horft
er til fyrirtækja. En átaksverkefnið
sem við erum að fara af stað með
núna hefur gengið mjög vel tvö síð-
ustu sumur. Verkefnið heitir Tæki-
færi og má segja að það byggi á
frumkvæði krakkanna sjálfra,“ seg-
ir Hlynur en um er að ræða garð-
vinnu fyrir einstaklinga, bónþjón-
ustu fyrir fólk að versla, barnapöss-
un, hreinsun og tiltekt í kringum
blokkir, málningarvinnu og glugga-
þvott.
Um 340 án vinnu í Kópavogi
í Kópavogi er staðan þannig, að
sögn Margrétar Þórðardóttur, að
523 ungmenni hafa sótt um vinnu
til bæjarins, 285 á aldrinum 17-20
ára og 238 yfír 20 ára. Að hennar
sögn eru 57 á atvinnuleysisskrá.
Búið er að ráða 123 til starfa hjá
bænum og segir Margrét þá sinna
störfum í bæjarvinnunni, vinnuskóla,
við íþróttavelli og þess háttar.
Islensk
stúlka
sigraði
BIRGITTA ína Unnarsdóttir,
tæplega tvítug stúlka úr Kefla-
vík, var í gær kjörin Miss World
University eða Ungfrú háskóla-
nemi í Seoul í Kóreu. Hún bar
sigurorð af 46 öðrum keppendum
frá 45 Iöndum.
Birgitta fór í keppnina á veg-
um Módelsamtakanna. Unnur
Arngrímsdóttir framkvæmda-
stjóri sagðist í samtali við Morg-
unblaðið í gær vera stolt af ár-
angri Birgittu, einkum í Ijósi
þess að hún væri þriðja stúlkan
í röð sem hún sendi í keppni og
næði góðum árangri. Fyrir þrem-
ur árum vann Heiðrún Anna
Björnsdóttir þessa keppni og i
fyrra vann Unnur Gunnarsdóttir
titilinn Ungfrú Evrópa.
Ekki náðist i Birgittu í gær
en Unnur sagðist hafa heyrt í
henni á þriðjudag og þá höfðu
henni þegar boðist fyrirsætu-
störf í París og á Ítalíu með
haustinu ogþátttaka í tveimur
fegurðarkeppnum til viðbótar
núna í kjölfar þessarar keppni.
Birgitta útskrifast sem stúdent
frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja
17. júní nk. Að sögn föður henn-
ar, Unnars Más Magnússonar, er
ekki afráðið hvort hún fer í
keppnirnar vegna þess að hana
langar að vera við stúdentsút-
skriftina.
Forsætisráðherra Víetnam væntan-
legur í opinbera heimsókn
Sjötíu manna fylgd-
arlið með í förinni
FORSÆTISRÁÐHERRA Víet-
nam, Vo Van Kiet, kemur í opin-
bera heimsókn hingað til lands
dagana 8. og 9. júní næstkomandi
í boði Davíðs Oddssonar, forsætis-
ráðherra, en með komu Vo Van
Kiet hingað til lands lýkur för hans
um Norðurlönd. í för með forsætis-
ráðherranum verða, auk eiginkonu
hans, þrír ráðherrar úr ríkisstjóm
Víetnam ásamt fylgdarliði og sér-
stakri viðskiptasendinefnd.
Að sögn Guðmundar Árnason-
ar, deildarstjóra í forsætisráðu-
neytinu, er föruneyti víetnamska
forsætisráðherrans það fjölmenn-
asta sem, að minnsta kosti hin
síðari ár, hefur komið hingað til
lands í tengslum við opinbera
heimsókn, eða um 70 manns. í
sendinefnd forsætisráðherrans
verða 20 manns og 15 manns í
fylgdarliði, en auk þess verða með
í för 17 manns í viðskiptasendi-
nefndinni, 11 fréttamenn og áhöfn
einkaflugvélar forsætisráðherr-
ans. Hópurinn mun dveljast á hót-
elum í Reykjavík, Keflavík og á
Hótel Örk í Hveragerði.
Þeir ráðherrar sem hingað koma
ásamt forsætisráðherranum eru
ráðherra stjórnarráðs Víetnam,
utanríkisráðherra og fjármálaráð-
herra, en þeir munu væntanlega
eiga fundi með starfsbræðrum sín-
um hér á landi um viðskipti land-
anna. Þá er þess vænst að fulltrú-
ar íslenskra fyrirtækja fundi með
viðskiptanefndinni sem hingað
kemur.
Tómatar
lækka
mikið
VERÐ á íslenskum tómötum
lækkaði verulega í verslunum
í gær vegna aukins framboðs
á markaðnum. Þannig var
verðið komið niður í 299 kr.
kílóið í Hagkaupi í gær, en
algengt verð út úr verslun
hefur undanfarið verið á bil-
inu 400-500 krónur kílóið.
Oveiyumikil sala upp
á síðkastið
Að sögn Kolbeins Ágústs-
sonar, sölustjóra hjá Sölufé-
lagi garðyrkjumanna, hefur
framboðið á tómötum aukist
meðal annars vegna þess hve
bjart hefur verið í vor. Hann
sagði tómatasöluna hafa ver-
ið óvenjumikla upp á síðkast-
ið, og það ætti reyndar einnig
við um flestar aðrar græn-
metistegundir.
Snjóflóð
á Oshlíð-
arveg
Bolungarvík. Morgunblaðið.
KRAPAFLÓÐ féll á Óshlíðar-
veg snemma í gærmorgun og
var vegurinn lokaður af þeim
sökum um tíma eða til klukk-
an átta er starfsmenn Vega-
gerðarinnar á ísafirði höfðu
komið moksturstæki á stað-
inn og rutt flóðið.
Krapaflóð þetta féll á veg-
svalirnar við svokallaða
Steinsófæru. Að öllu jöfnu
falla slík flóð yfír vegsvalirn-
ar og valda því engri hættu
eða töfum en þar 3em óvenju-
lega mikill snjór er fyrir, ofan
á vegsvölunum, renna svona
flóð, þótt lítil séu, út af
svalarmunnunum og loka því
veginum.
Ekki er óalgengt að krapa-
flóð falli á Oshlíðarveg um
þetta leyti árs eða þegar snjór
er að bráðna uppi í fjallinu.
í flestum tilfellum eru þetta
þó Iitlar og meinlausar skrið-
ur sem oftar en ekki ná ekki
út á vegarstæðið.