Morgunblaðið - 01.06.1995, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 01.06.1995, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skoðanakönnun DV um fylgi ríkisstjómarinnar. Það verða líka sætir dagar hjá beljunum yfir að fá fjósamann sem kann að moka flór, Davíð minn. Sveppaframleiðsla í gámi á Flateyri Hefja ræktun á Shii- take-sælkerasvepp SVEPPABÆNDURNIR á Flateyri, Hildur Halldórsdóttir og Stein- þór Bjarni Kristjánsson, með rotmassapoka sem orðinn er hvítur af sveppamyglu. Á hillunum sjást pokar með harðviðarrotmassa þar sem geijunin er ekki eins langt komin. FRAMLEIÐSLA er að hefjast á japanska sælkerasveppnum Shii- take á Flateyri. Sveppurinn er nokkuð frábrugðinn hinum hefð- bundna hvíta matarsvepp sem ræktaður hefur verið hér á landi í 35 ár. Shiitake-sveppurinn er bragðsterkari en matarsveppurinn og er auk þess talinn hafa heilsu- samleg áhrif á fólk. Hiidur Halldórsdóttir líffræðing- ur og Steinþór Bjarni Kristjánsson á Flateyri hófu tilraunaræktun Shiitake-sveppsins í vetur. Ekki er mikið um störf fyrir líffræðinga á svæðinu en Hildur hafði fengist nokkuð við sveppi í líffræðináminu svo þeim kom í hug að hefja svepparækt. Eftir athuganir á ræktun og markaði fyrir sveppa- framleiðslu fannst þeim áhugavert að hefja framleiðslu á sælkera- sveppum sem ekki hafa verið rækt- aðir hér áður, einkum Shiitake. Konungur sveppanna Hildur segir að þessi sveppateg- und hafi einhvern tímann verið flutt inn til landsins en verið lítið kynnt og ekki náð útbreiðslu. „íslending- ar vilja gjarnan prófa nýjungar og sveppir eru hér tiltöluíega mikið notaðir. Okkur fannst því tilvalið að reyna eitthvað nýtt fyrir íslenska sveppaunnendur. Shiitake- sveppurinn er mun bragðsterkari en venjulegir matarsveppir og því þarf minna af honum í matargerð. Bragðið er undursamlegt og talar sveppafólk um hann sem konung sveppanna. Þá sýna marktækar læknisfræðilegar niðurstöður að hann hefur heilsusamleg áhrif á fólk, m.a. á ónæmiskerfi, blóðþrýst- ing og meltingu," segir Hildur. Sveppurinn er dýrari en venju- legir sveppir og segir Hildur að Japanir gefi hann gjarnan í stað blóma, til dæmis þegar þeir fari í heimsóknir til kunningja, með ósk- um um góða heilsu. Þessi sveppa- tegund hefur verið að ryðja sér til rúms á Vesturlöndum og hefur t.d. mjög aukist ræktun hans og neysla í Bandaríkjunum. Hildur og Steinþór eru að þróa framleiðsluaðferðir. Shiitake er tijásveppur og þau bjuggu til rot- massa úr harðviðarsagi. Fyrsta gróið var flutt inn í vor. Það er sett í massann og pakkað inn í sérstaka poka. Framleiðslan er afar við- kvæm fyrir umhverfisáhrifum og þarfnast nánast rannsóknarstofu- vinnubragða. Þessar vikurnar er myglan að umlykja massaköggul- inn og þegar ræktunin er komin á ákveðið stig er pokinn tekin utanaf og hitinn lækkaður. Þá fara fljót- iega að vaxa sveppir á ýmsum stöð- um út úr massakögglinum, Hildur á von á fyrstu uppskerunni um miðjan júnímánuð og segir að þau hjónin séu ánægð með hvað vel hafí gengið í upphafi. Framhaldið fer síðan eftir viðbrögðum markað- arins. Hildur og Steinþór áætla að ársneyslan hér á landi geti orðið 3-4 tonn. Gámarnir heppilegir Ræktunin fer fram í gámum á Flateyri og segir Hildur að þeir séu mjög heppilegir ræktunarklefar. Hins vegar þyrfti að hafa annað húsnæði fyrir rannsóknarstofuna til þess að tryggja góðan árangur. Hægt er að bæta við gámum eftir því sem eftirspurn eftir sveppum eykst. Steinþór og Hildur hyggjast semja við grænmetisheildsala um dreifíngu og vilja koma vörunni sem víðast, bæði í verslanir og veit- ingastaði. Leiddi saman listamenn austurs og vesturs Eigxtm að nota listina til að ná betur saman DR. HORST Zimmer- man hafði umsjón með Tvíæringi Eystrasaltsríkjanna í Rostock frá 1956 til 1985. Frá 1967 voru íslenskir listamenn þátttakendur í tvíæringnum og urðu þeir 87 talsins í tíð Zimmer- mans. Listamenn frá Dan- mörku, Vestur-Þýska- landi, Finnlandi, íslandi, Noregi, Póllandi, Svíþjóð, Sovétríkjunum og Austur- Þýskalandi komu saman á tvíæringnum og fyrir marga austantjaldslista- menn var hann eina tæki- færið sem þeir fengu til að komast í snertingu við menningu Vesturlanda. - Hvernig var að standa fyrir þessari menningar- starfsemi á dögum kalda stríðs- ►Dr. Horst Zimmerman lagði ins? stund á listasögu og fornleifa- „Það byggðist allt á beinum fræði í Berlín. Á árunum 1956 tengslum við listamennina sjálfa. til 1963 starfaði hann við mál- eða samtök þeirra í þeim löndum verkasafnið Dresden Pillnitz í Dr. Horst Zimmerman þar sem A-Þýskaland hafði ekki sendiráð eða konsúl. STASI fylgdist með öllu og maður fann stanslaust fyrir því eftirliti. Ég þurfti alltaf að láta ritskoða sýn- ingarskrána og gerðar voru at- hugasemdir við smæstu atriði. Eg get nefnt sem dæmi að eitt sinn sendi finnskur listmaður mér upplýsingar um að hann ætlaði að senda verk sem hét Múrinn á tvíæringinn. Þótt verk- ið væri óséð var þegar ákveðið að ekki mætti sýna það þar sem það hlyti að vera gagnrýni á Berlínarmúrinn. Ég ákvað að gera ekkert í málinu og lét lista- manninn koma með verkið. í ljós kom að um þýðingarvillu var að ræða því myndin var af girðingu við húsagarð og hún var sýnd undir öðru nafni.“ - Fundu vestrænu listamenn- irnir mikið fyrir þessu? „Ég ber mikla virðingu fyrir þeim listamönnum sem komu til mín því það varð þeim sumum síður en svo til framdráttar heima fyrir. Þeir voru stimplaðir fyrir það eitt að fara til kommún- istalands og sýna þar. Svo var allt þungt í vöfum og miklir snúningar í kringum vegabréfsá- ritanir og þess háttar. En sam- starfið var gífurlega mikils virði fyrir austantjaldslistamennina sem höfðu enga aðra möguleika á að kynnast vestrænni menn- ingu. Vinskapurinn sem mynd- aðist á milli manna var dýrmæt- asti afraksturinn. Þótt þessi tími kommún- ismans hafi verið erf- _______ iður hefði ég ekki vilj- að missa af því að upplifa hann því það var oft gaman að standa í baráttunni." - Hvað hefur breyst fyrir listamenn í Austur-Þýskalandi? „Það hefur allt breyst. Þegar þýsku ríkin sameinuðust höfðu listamenn ekki lengur aðgang að opinberum sjóðum sem starf- ræktir voru af ríkinu til að hafa áhrif á list, eins og allt annað. Þessi breyting var erfið, sérstak- lega fyrir unga listamenn sem voru að reyna að koma sér á framfæri. Hið jákvæða er hins vegar að eftir sameiningu gátu listamenn í fyrsta skipti tekið Dresden, 1963 til 1964 við menningarmálaráðuneytið í Berlín og í 20 ár frá 1965 var hann forstöðumaður Listahall- arinnar í Rostock (Kunsthalle Rostock) og stýrði tvíæringi landanna sem lágu að Eystra- salti. Frá 1985 til 1994 var hann forstöðumaður þess hluta Málverkasafnsins í Dresden (Dresdner Gemaldegalerie Al- bertinum), sem hýsir list 19. og 20. aldar. Sýningar- skrárnar voru ritskoðaðar þátt í heiminum, ef svo má segja. Austur-Þýskaland var hálfgert fangelsi. því það var aðeins opið í austur. Nú búa þeir ekki lengur við það að langa alltaf til að gera eitthvað sem ekki má eða ekki er hægt. Þeir geta pakkað ofan í tösku og farið til Frakk- lands, Spánar, Grikklands, Ítalíu eða hvert sem er og séð dýrgripi listasögunnar með eigin aug- um.“ - En er allt samstarf við ís- land dottið upp fyrir nú? „Það er ennþá áhugi fyrir hendi, bæði í Rostock og örugg- lega í Dresden líka, þar sem ég starfaði síðast. Það er synd að þau tengsl sem mynduðust á sín- urn tíma verði að engu. Ég hef hrifist af því, á þeim dögum sem ég hef verið hér nú, hvað maður verður var við mikla list. Það er augljóst að miklu er eytt í listaverk og athyglisvert er að sjá listaverk í gluggum íbúða fólks. í Þýskalandi setur --------- fólk blóm í glugga- kistumar sínar en héma sér maður lista- verk. Mér finnst stór- _________ kostlegt að sjá lista- verk notuð á þennan hátt til að tengja hið ytra og hið innra. Ég hef einnig séð mörg listaverk í galleríum hér sem myndu vekja mikla athygli í Þýskalandi. Ég held að það væri grand- völlur fyrir því að setja upp sér- staka kynningu á íslenskri myndlist, hönnun, handverki og arkitektúr í Þýskalandi. Það er vel hægt að gera ýmsa hluti án þess að þeir þurfi að kosta allt of mikið. Við ættum að nota list- ina til að ná betur saman.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.