Morgunblaðið - 01.06.1995, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 01.06.1995, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ URVERINU FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1995 17 Tillögur Samtaka fiskvinnslustöðva án útgerðar Vilja allan físk á markað SAMTOK fískvinnslustöðva án út- gerðar hafa nú kynnt tillögur sínar um verðmyndun á sjávarafla og breytingar á framsali veiðiheimilda. Samtökin vilja að bundið verði í lög- um að verð á öllum físki, sem hér er landað til vinnslu myndist á opn- um markaði. Þá vilja samtökin banna framsal veiðiheimilda innan hvers árs nema um jöfn skipti sé að ræða, en heimila sölu varanlegra aflaheimilda. Með þessu telja sam- tökin að friður verði um verðmyndun á físki og komið í veg fyrir að sjó- menn séu knúnir til þátttöku í kvóta- kaupum. Tillögur SFÁÚ eru svo hljóðandi: • „Öll verðmyndun á hráefni úr ís- lenzkum fiskiskipum skal eiga sér stað á opnum markaði og þannig tryggt að aflinn seljist hæstbjóð- anda. • íslenzkum mörkuðum með löggilt starfsleyfi sé einum heimilt að ann- ast milligöngu um þessi viðskipti, hvort heldur sem er að viðskiptin fari fram í tölvutengdum fjarskipt- um, aflinn sé í húsi, aflað sé tilboða í afla eða komið á tímabundnum viðskiptum. • Verðmyndun og sala fer fram með eftirgreindum hætti: Daglegu upp- boði á lönduðum afla, sem til sýnir er og sölu á gólfi fiskmarkaðar og seldur þar og í tölvutengdum fjar- skiptum. Daglegu uppboði á markaði og í tölvutengdum fjarskiptum á veidd- um eða hluta til óveiddum afla um borð í skipum og bátum. Þegar um er að ræða skip í eigu útgerðarfyrirtækja, sem reka fisk- vinnslu, geti verðmyndun og sala aflans farið fram á eftirgreindan hátt: Útgerð skips komi nauðsynleg- um upplýsingum um afla á fram- færi við fiskmarkað ásamt verðtil- boðum sínum og óski eftir kauptil- boðum í aflann. Fiskmarkaður kemur fyrrgreind- um upplýsingum á framfæri við kaupendur sam gera tilboð í viðkom- andi afla eða hluta hans. Fiskmarkaður kemur tilboðum á framfæri við útgerð sem metur til- boðin (á þessu stigi eru nöfn tilboðs- gjafa trúnaðarmál) og ákveður hvort og hvaða tilboðum verður tekið. Útgerð hefur forkaupsrétt að af- lanum á sama verði og tilboðin hljóða hveiju sinni. Að selja allan aflann eða vissan hluta hans (ákveðnar teg- undir) á markaði. Gildir þá ekkert lágmarksverð fyrir þann hluta af- lans, enda sé um fasta venju að ræða í samkomulagi við áhöfn viðkomandi skips.“ Þá er að finna í tillögunum ákvæði um viðskiptasamning milli aðila um kaup á físki og samstarfs- nefnd. Framsal aflaheimilda Óheimilt að leigja kvóta SAMTÖK fiskvinnslustöðva án út- gerðar leggja einnig til að framsal aflaheimilda innan hvers árs, svo- kölluð kvótaleiga, verði bönnuð, nema um sé að ræða skipti á milli tegunda í jöfnum ígildum. Samtökin vilja að þeim aflaheimildum, sem ekki nýtast innan hvers árs verði skilað fyrir lok hvers fískveiðiárs. Opinber aðili sjái síðan um að selja þær á uppboði. Kvótaþing Tillögur samtakanna um framsal aflaheimilda fara hér á eftir: • Sala á milli útgerða á veiðiheim- ildum innan árs verði óheimil. Að- eins verði heimil skipti á milli teg- unda í jöfnum ígildum. • Veiðiheimildir sem skip veiðir ekki og falla utan flutningsheimilda milli ára beri því að skila að nýju fyrir lok fiskveiðiársins, ella sæti það skerðingu við úthlutun næsta fískveiðiárs. • Á vegum sjávarútvegsráðuneyt- isins, til dæmis Fiskistofu, verði starfrækt kvótamiðlun með van- nýttar veiðiheimildir, kvótaþing. Kvótaþing annist sölu á slíkum veiðiheimildum með reglulegu út- boði og ræður þar markaðsverð. • Lagt er til að áhafnir skipa taki ekki þátt í kaupum á veiðiheimild- um. þegar veiðiheimildir eru keypt- ar á kvótaþingi undirriti útgerð skuldbindingu þessa efnis. • Tekjum af sölu veiðiheimilda á vegum kvótaþings verði varið til samfélagslegra verkefna í þágu sjávarútvegsins, samkvæmt lögum sem sett yrðu um slíkan sjóð, svo sem físki og hafrannsókna, þróunar og fræðslu í þágu fiskiðnaðar og til öryggis- og fræðslumála í þágu sjómanna. Þjóðin ein á fiskimiðin I greinargerð með tillögum þess- um segir meðal annars svo: „Það liggur í hlutarins eðli að úthutun veiðiheimilda af hálfu hins opinbera (fyrir hönd þjóðarinnar) á aðeins að fela í sér rétt til að veiða tiltekið- magn af físki. Að slíkur réttur verði ekki framseldur af skipi tímabundið til þess að leigja hann öðrum. Það er þjóðin ein sem eigandi fískimið- anna, sem ætti að hafa rétt til að innheimta leigugjald fyrir afnot af þeim. Um þetta hefur farið fram mikil umræða í þjóðfélaginu á liðn- um árum og meirihluti þjóðarinnar er þessarar skoðuna. í umræðu um veiðileyfagjald hef- ur hins vegar ekki gætt skilnings á því að slíka gjaldtöku er ekki hægt að taka upp án þess að breyta framsalsheimildum í þá veru sem hér er lagt til. Útleiga á ónýttum kvóta, sem skilað er inn er því eðli- leg leið.“ KOLAPORTIÐ □□ □ □ Tiii iin im i rn m 1111 imi 11111111111111111 n XL XU munm i TTT .111,1 ŒEEO TTT ■_________________________________________________________________________________________________________________________________________. ____________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________ Opið virka daga kl. 12 -18 __ U TILBOлVEISLAN .. alla virka daga í Kolaportínu GEISLADISKAR Á VERÐIFRAKR. | Risageisladiskaútsala með 1000 titla af íslenskri sem erlendri tónlist. tyj/pfcm ^Pt/Ze QÁ'e/xm, ÓÁTo/iciay, 9/loy ©i/inMoet, P/aiyy /p/ine Ci/a'mni/tj /í/neiie VANDAÐUR FATNAÐUR MEÐ msmm ALLT AÐ mmmmmmmim .heldur áiramj _____ og stendur adeins til 5. iuní Sumar vörulegundir eru aö se'jasl upp! A«,\WA'g% PORTíö ../Kolaportim á m

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.