Morgunblaðið - 02.06.1995, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Þorkell
VERKI Uluga Eysteinssonar Menntun og þorskur er ekki að fullu lokið. Eftir er að selja upp þverslár
og þorskhausa.
SÍÐUSTU daga hefur mikið verið
um að vera á bílastæðum Háskóia
íslands gegnt Aðalbyggingunni á
gamla iþróttavellinum. Þar hafa
undanfarna daga verið settar upp
risastórar trönur og hafa margir
vegfarendur haldið að um undir-
búning vegna hátíðarhalda á 17.
júni væri að ræða. Svo er ekki. A
þessum stað í nágrenni Norræna
hússins er hafinn undirbúningur
norrænnar umhverfislistahátíðar
sem opnuð verður 10. júní nk.
Fimm verk hafa verið valin til
sýningar á þessari umhverfislista-
sýningu sem ber yfirskriftina Nor-
Fiski-
trönur í
yfírstærð
rænir brunnar.
Trönurnar sem um ræðir eru
hluti af stóru íslensku verki eftir
arkitektinn Illuga Eysteinsson og
nefnist það Menntun og þorskur.
Harpa Björnsdóttir einn umsjón-
armanna hátíðarinnar segir að 111-
ugi hafi hannað fiskitrönur í yfir-
stærð og standi þær í boga gegnt
Háskólaboganum við Sæmundar-
götu. Þorskinum sé þannig stillt
táknrænt upp gegnt mennta-
stofnuninni.
Verk norrænu listamannanna
verða sett upp í grennd við Nor-
ræna húsið næstu daga en aðrar
tillögur sýndar í sýningarsal Nor-
ræna hússins. Það þarf þó vart
að kaupa sig inn á aðalsýninguna
þar sem verkin eru öll utanhúss.
Framkvæmdastjóri Ríkissj ónvarpsins
Vart kemur til
greina að hætta
dagskrárgerð
Pétur
Guðfinnsson
PÉTUR Guðfinnsson framkvæmda-
stjóri Sjónvarpsins segir í athugun
hvað sé því samfara að taka upp
nauðsynlegt
bókhald svo hlíta
megi úrskurði
Samkeppnisráðs
sem nýbúið er áð
kveða upp. Hann
er þess efnis að
stofnuninni beri
að aðskilja fram-
leiðsludeildir
dagskrárefnis
hjá RÚV frá öðr-
um deildum og
segir Pétur að
fjórar vikur gefíst til þess að kanna
hvort áfrýja eigi úrskurðinum.
Húsakostur og tækni-
búnaður til staðar
Pétur segir vart koma til greina
að Sjónvarpið hætti dagskrárgerð.
„Þegar Sjónvarpið byrjaði var engin
kunnátta fyrir hendi og ekkert fyr-
irtæki til að sinna þessu þannig að
ekki var um annað að ræða. Við
eigum húsakost og tækjabúnað og
sérhæfðan mannskap sem starfar
við þetta,“ segir hann. Aðspurður
hvort til greina kæmi að leigja hann
út segir Pétur umræðuna ekki
Stjórnarfrumvörp lögð fram sem snerta nýja tækni í fjölmiðlun
Sektir við ólöglegri
notkun á myndlyklum
BJÖRN Bjarnason, menntamálaráð-
herra, hefur mælt á Alþingi fyrir
frumvarpi til laga um bann við gerð
og notkun myndlykla til þess að fá
aðgang að læstum útvarpssending-
um án greiðslu áskriftargjalds.
í greinargerð með frumvarpinu
kemur fram að Stöð 2 telur sig verða
fyrir að minnsta kosti 170 milljóna
króna tekjutapi á ári vegna notkunar
ólöglegra myndlykla, og tekjutap rík-
issjóðs vegna virðisaukaskatts geti
numið 23-24 milljónum króna. Einn-
ig mælti menntamálaráðheira í gær
fyrir frumvarpi til laga um breytingu
á höfundalögum til samræmis við
nýjar tilskipanir og samþykktir Evr-
ópusambandsins um nýja fjölmiðlun-
artækni.
í myndlyklafrumvarpinu er kveðið
á um að óheimilt sé að framleiða,
afhenda, leigja, setja upp eða gera
við myndlykla í því skyni að veita
einhveijum utan hóps áskrifenda
aðgang að innihaldi læstrar útsend-
ingar, og jafnframt sé öheimilt að
nota myndlykil til þess að taka á
móti læstri útsendingu án þess að
greiða áskriftargjaldið. Brot gegn
þessum ákvæðum varði sektum eða
varðhaldi allt að sex mánuðum, og
sömuleiðis varði tilraun til brots sekt-
um.
Menntamálaráðherra sagði þegar
Helena
Rubinstein
FERÐATILBQÐ
Komdu til okkar og verslaðu
áður en þú ferð í ferðalagið.
Við bjóðum takmarkað magn
afSkin LifeT.PA kremi í 30 ml
túpum á frábæru tilboðsverði.
SKJNTIFET.RA.
Andora, Hafnarfirði; Ársól, Efstalandi; Bylgjan, Kópavogi;
Brá, Laugavegi; Clara, Kringlunni; Snyrtivöruv. Glæsibæ;
Hygea, Austurstræti; Libia, Mjódd; Nana, Hólagarði; Sara,
Bankastræti; Spes, Háaleitisbraut; Amaró, Akureyri; Apótek
Olafsvíkur; Bjarg, Akranesi; Hilma, Húsavík; Krisma, Isafirði;
Mosfellsapótek; Ninja, Vestmannaeyjum.
hann mælti fyrir frumvarpinu að efni
þess væri efnislega sambærilegt við
tillögur útvarpslaganefndar um að
tekin yrðu upp í útvarpslög ítarleg
ákvæði um að iæstar útsendingar,
sem boðnar séu gegn greiðslu, njóti
refsiverndar.
Breyting á höfundalögum
í máli hans kom fram að telja verði
að sú skylda hvíldi á löggjafarvaldinu
að það tryggi lögmætri atvinnustarf-
semi sem mesta vemd gegn því að
hún verði fyrir tjóni af ólögmætri
starfsemi. Það verði að vera ótvírætt
í lögum að móttaka áskriftarefnis
útvarpsstöðva án heimildar og án
greiðslu áskilins áskriftargjalds sé
ólögmæt. Þá feli óheimii móttaka
jafnframt í sér brot gegn hagsmun-
um annarra en útvarpsstöðvarinnar,
ekki síst þeirra sem eigi höfundar-
rétt að því efni sem sent er út.
Með aðild íslands að samningnum
um Evrópska efnahagssvæðið skuid-
Yfirlýsing
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá ritstjóra
sænska tímaritsins teatern:
ATHYGLI mín hefur verið vakin
á því, að grein um íslenskt menn-
ingarlíf, sem Súsanna Svavars-
dóttir skrifaði að okkar ósk i tíma-
ritið „teatern", hefði valdið deilum
á sjðum Morgunblaðsins.
Ég hef kannað frumtextann og
get staðfest, að í þýðingu og stytt-
ingu hefur grein Súsönnu verið
leikin heldur illa. Sumum stað-
reyndum hefur verið breytt og
vegna lítils tíma gafst henni ekki
kostur á að leiðrétta það.
Get ég ekki annað en harmað
þessi leiðu mistök.
Virðingarfyllst,
Mireille Bergenström,
ritstjóri teatern.
komna á það stig. „Þó að það dytti
í menn að leggja dagskrárgerð nið-
ur yrði það ekki gert nema á löng-
um tíma.“
Erfitt að reikna
út kostnaðarliði
Pétur segir ekki erfítt að reikna
út tímavinnu og tækjakostnað
vegna dagskrárliða. „En það er
kannski erfiðara að vita hvaða tölur
á að leggja til grundvallar að auki.
Hvernig á að reikna húsaleigu af
húsi sem keypt var fyrir 30 árum
eða tæki sem búið er að nota í tíu
ár og hvort eða hversu stór hluti
launakostnaðar yfirstjómar eigi að
vera í kostnaðarreikningum? Margt
í þessu verður aldrgi reiknað með
mikilli vísindalegri nákvæmni,"
segir Pétur.
batt ísland sig til að aðlaga löggjöf
landsins að hinu almenna vemdar-
stigi hugverka í löndum Evrópusam-
bandsins, og í gær mælti mennta-
málaráðherra í því skyni fyrir frum-
varpi til laga um breytingu á höf-
undalögum. Tilgangur frumvarpsins
er að binda í lög ákvæði í tilskipunum
Evrópusambandsins er fjalla um
vemd tölvuforrita, höfundarétt
vegna leigu og útlána hugverka,
höfundarétt vegna endurvarps hug-
verka og Iistflutnings um gervihnött
eða kapal og verndartíma höfunda-
réttar úr 50 í 70 ár.
Talið er að frumvarpið kunni að
hafa í för með sér kostnaðarauka
fyrir stofnanir og fyrirtæki sem miðla
hugverkum með útsendingu, sýn-
ingu, leigu eða útlánum, en tekjur
rétthafa að hugverkum og listflutn-
ingi munu þá aukast að sama skapi.
Ógjörningur er hins vegar talinn á
að áætla nokkuð um fjárhæðir í þessu
sambandi.
Verkfall
boðað
hjá Isal
VERKFALL starfsmanna ísal í
Straumsvík verður boðað í dag
frá og með 10. júní, að sögn
Gylfa Ingvarssonar aðaltrúnað-
armanns.
Verkfallið er boðað með viku
fyrirvara en. samningar gera
ráð fyrir að heimilt sé að draga
úr rekstrinum og stöðva hann
á tyeimur vikum. Þannig að
komi til verkfalls stöðvast
reksturinn 24. júní.
A fundi deiluaðila í gær var
farið yfir ýmis smærri mál, að
sögn Hannesar G. Sigurðssonar
formanns samninganefndar
ísal. Farið var yfir starf undir-
nefnda sem skipaðar hafa verið
og þá stöðu sem þar er.
Annar fundur hefur verið
boðaður í dag og sagði Hannes
að reynt yrði að ná sámningum
og koma í veg fyrir verkfalls-
boðunina. Það væri nauðsynlegt
í ljósi fyrirhugaðrar stækkunar
á verksmiðjunni. „Ef tafir verða
vegna vinnustöðvunar þá er
eins ljóst og nótt fylgir degi að
þessi stækkun í besta falli frest-
ast,“ sagði hann.
Ekki veik-
indalaun í
verkfalli
SAMKVÆMT dómi Hæstarétt-
ar eiga kennarar ekki rétt á
veikindalaunum í verkfalli.
Hið íslenska kennarafélag
höfðaði mál á hendur fjármála-
ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs
og krafðist þess að kennarar,
sem voru óvinnufærir vegna
veikinda eða slysa áður en verk-
fall kennara hófst 17. febrúar
síðastliðinn, ættu rétt til veik-
indalauna í verkfalli.
Hæstiréttur telur að ekki sé
hægt að túlka reglugerðir um
veikindaforföll sem svo að um
lögákvæðnar greiðslur sé að
ræða þótt efndir á vinnuskyldu
hafi fallið niður.
Rétturinn lítur svö á að
greiðslur veikindalauna falli
niður við upphaf verkfalls eins
og venjulegar launagreiðslur
um leið og vinnuskylda þeirra.