Morgunblaðið - 02.06.1995, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 2. UÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Guðni Guðmundsson rektor MR útskrifaði í gær síðasta stúdentahópinn sinn
HOGVÆRÐ er aðals-
merki hins menntaða
manns. Þetta voru
skilaboð Guðna Guð-
mundssonar, rektors Mennta-
skólans í Reykjavík, til 201
nýstúdents, síðasta stúdenta-
hópsins sem hann brautskráir.
Hann kvaddi samferðamenn
sína, óskaði viðtakandi rektor,
Ragnheiði Torfadóttur, veifarn-
aðar í starfí og gaf nýstúdent-
um heilræði.
. „Hógværð sómir sér vel hjá
þeim sem mikið hafa lært því
að þeir gera sér væntanlega
grein fýrir því hve mikið er
ólært,“ sagði Guðni í ræðu sinni.
„Hógværð í umgengni við um-
hverfi sitt, lifandi og dautt,
skyldu menn temja sér ekki síst
í samskiptum við annað fólk.
Munið að með hógværð, góðviid
og ábyrgðartilfínningu famast
ykkur best.“ Hann minnti loks
á það að þau vináttubönd sem
bindast í skóla muni batna og
styrkjast eftir því sem tíminn
líði.
Hefur útskrifað hálft
fimmta þúsund stúdenta
Menntaskólanum í Reykjavík
var slitið í 149. sinn í gærdag
og hefur Guðni rektor braut-
skráð 25 árganga á starfsferli
sínum eða alls 4.560 nýstúd-
enta. Hann hefur þannig út-
skrifað 45% allra stúdenta, en
stúdentar frá MR eru orðnir
10.143. Tíuþúsundasti nýstúd-
entinn var jafnframt braut-
skráður í gær og var Jóhanna
Jóhannesdóttir af nýmálabraut
leyst út með bókagjöfum af því
tilefni.
Dux árgangsins varð Sædís
Sævarsdóttir úr náttúrufræði-
deild en hún hlaut ágætisein-
kunn, 9,60. Aðeins sex stúdent-
ar hafa hlotið hærri aðaleinkunn
frá því að einkunnir voru fyrst
gefnar á bilinu 0-10. Hún hlaut
jafnframt hæstu einkunn allra
kvenstúdenta frá MR. Semidux
Hógrærð aðals-
merki hins
menntaða manns
Fráfarandi rektor hefur útskrifað
45% allra stúdenta frá skólanum
Morgunblaðið/Þorkell
ELSTI stúdent iandsins, séra Þorsteinn Jóhannesson, var við-
staddur útskriftarhátiðina í Háskólabíói í gær en hann fagnar
í ár 75 ára stúdentsafmæli. Við hlið hans standa Guðni Guð-
mundsson fráfarandi rektor MR og Ragnheiður Torfadóttir sem
tekur nú við því starfi.
SKOPMYNDIR af stúdentunum vöktu eðlilega mikla kátínu.
varð Lena Ásmundsdóttir, einn-
ig úr náttúrufræðideild, með
ágætiseinkunn, 9,26. Þrír aðrir
nýstúdentar hlutu ágætisein-
kunn: Hildur Ingvarsdóttir,
Birgir Andri Briem og Tómas
Þór Ágústsson. Dux scholae,
Sveinn B. Sigurðsson, kom úr
3. bekk og hlaut hann 9,68 í
einkunn.
Leiddust langir
kennarafundir
Guðna Guðmundssyni var vel
fagnað af gestum útskriftarhá-
tíðarinnar og sam- ---------------------
kvæmt hefð kvaddi 10.000. ný-
elsti yfirkennari skól- Stúdentinn
ans, Eiríkur Haralds- brautskráður
son, fráfarandi rektor.
Hann minntist kenn-
araferils Guðna sem og ferils
Heimsstyrjaldarárgangur
Einar Pálsson, fræðimaður
og rithöfundur, flutti hátíðar-
ræðu fimmtíu ára stúdenta.
Hann minntist þess að hans
hópur hafí verið nefndur heims-
styrjaldarárgangurinn. Hópur-
inn hafi sest á skólabekk um
það leyti er Hitler réðst með
heri sína inn í Pólland en þegar
hópurinn var um það bil að út-
skrifast í maí 1945 hafi Hitler
aftur á móti séð sitt óvænna
og skotið sig. Einar kvaðst vera
kominn á viðgerðar-
aldurinn en minnti
nýstúdenta á að þeir
ættu lífið fyrir sér og
ættu að nýta það sér
tii heilla. Einar færði
sem
hans sem rektors. í huga Eiríks
er Guðni ákveðinn og fylginn sér
en ekki síður hrókur alls fagnað-
ar við ólík tilefni í skólastarfínu.
Eiríkur fullyrti að honum hafí
þó leiðst langir kennarafundir.
Stysti fundurinn sem hann hafí
stýrt hafi verið um hálf mínúta.
„Það voru ekki nærri því allir
komnir inn,“ sagði Eiríkur og
brosti.
75 ára stúdent viðstaddur
Að venju voru margir eldri
stúdentar viðstaddir útskrift-
arathöfnina í gær. Þeirra á með-
al var elsti stúdent landsins, séra
Þorsteinn Jóhannesson, fyrrum
prófastur í Vatnsfírði. Hann
fagnar í ár 75 ára stúd-
entsafmæli sínu, en
hann útskrifaðist að
nýliðinni fyrri heims-
styijöld árið 1920. ____________
Honum var fagnað með
ferföldu húrrahrópi. Svo
skemmtilega vildi til að þegar
Guðni útskrifaði fyrsta stúd-
entahóp sinn árið 1971 var einn-
ig viðstaddur þáverandi elsti
stúdent landsins, 75 ára stúd-
ent, Halldór Kr. Júlíusson fyrr-
verandi sýslumaður.
skólanum sjónauka að gjöf fyrir
hönd heimsstyrjaldarárgangs-
ins.
Bryndís Víglundsdóttir,
skólastjóri Þroskaþjálfaskólans,
flutti skólanum og nýstúdentum
kveðju síns árgangs og færði
hún rektor málverk skólasystur
sinnar, leirlistakonunnar Stein-
unnar Marteinsdóttur, að gjöf.
Sigríður Ásta Hallgrímsdóttir,
fulltrúi 25 ára stúdenta, færði
skólanum að gjöf ýmis kennslu-
gögn en í hópi 25 ára stúdenta
eru 4 kennarar við MR.
Tónverk tileinkað
Guðna
Fulltrúi fyrsta árgangsins
sem Guðni útskrifaði árið 1971,
----------------- Geir Haarde alþingis-
Stysti kenn- maður, flutti sér-
arafundur hálf staka ræðu af því til-
mínúta efni að Guðni lætur
_ nú af störfum sem
rektor MR. Hann til-
að samið hefði verið
kynnti
tónverk af þessu tilefni, sér-
staklega tileinkað Guðna og
ber það' nafnið Duo fyrir
Guðna. Samstúdent Geirs, Ka-
rólína Eiríksdóttir, samdi verk-
ið en tveir nýstúdentar fluttu
verkið fyrir hann.
Ný bensín-
stöð í Graf-
arvogi
SKELJUNGUR hf. opnar i dag
nýja bensínstöð við Gylfaflöt í
Grafarvogi í Reykjavík. Auk
bensíns fást á stöðinni ýmsar
vörur fyrir bifreiðaeigendur og
aðstaða verður fyrir bíleigendur
til að þvo og bóna bíla sína. Einn-
ig verða seldar margs konar
grill- og gasvörur, matvara,
mjólkurvörur, gos og sælgæti.
Hægt er að kaupa bensín úr sjálf-
sala með peningaseðlum eða
greiðslukorti utan opnunartíma
stöðvarinnar. I tilefni opnunar-
innar í dag verður glaðningur á
boðstólum fyrir börnin.
mM
Reykholtsskóli
Hagsýsluúttekt
um miðjan mánuð
STEFNT er að því að úttekt Hag-
sýslu ríkisins á skólastarfinu í Reyk-
holtsskóla verði lokið um miðjan júní.
Oddi Albertssyni, fráfarandi skóla-
stjóra, hefur verið veittur frestur til
að ganga frá skólanum að loknu
skólastarfi í vor. Ólafur Þ. Þórðarson
tók formlega við skólastjóminni eftir
nokkurra ára hlé 1. júní.
Haukur Ingibergsson, deildarstjóri
Hagsýslu ríkisins, sagði að verið væri
að vinna að úttektinni. Starfsmaður
Hagsýslunnar hefði m.a. átt samtöl
við fólk í Reyholti, beðið um gögh
og fengið gögn. Hann sagði að stefnt
væri að því að úttektin yrði tilbúin
ekki seinna en um miðjan júní.
Menntamálaráðherra óskaði eftir
því að Hagsýsla ríkisins gerði úttekt
á því hvernig til hefði tekist við skóla-
starf í Héraðsskólanum í Reykholti
enda hefði skólastarfið verið nokkuð
frábrugðið almennu skólastarfi í öðr-
um framhaldsskólum.
Ólafur Þ. Þórðarson sagði að Odd-
ur hefði óskað eftir og fengið frest
til að ganga frá skólanum að loknu
skólastarfinu í vor. Ólafur sagðist
ekki vita til að fresturinn tengdist
úttekt Hagsýslunnar á skólastarfinu.