Morgunblaðið - 02.06.1995, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
VERK eftir Ana Rosa
Rovera Marrero.
New York
— Nýló
SUMARSÝNING Nýlistasafnsins
1995 opnar á laugardag 3. júní
kl. 16. Sýningin ber yfirskriftina
New York - Nýló/10 eyjarskeggjar
í Ameríku. Eftirfarandi mynd-
listarmenn taka þátt í sýningunni;
Ana Rosa Rivera Marrero,
Annex Burgos, Amaldo Morales,
Carmen Olmo, Charles Juhasz-
Alvarado, Hrafnhildur Arnardótt-
ir, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Kristín
Hauksdóttir, Magnús Sigurðar-
son, Stefán Jónsson.
Sýningin er samsýning fimm
íslenskra myndlistarmanna og
fimm myndlistarmanna frá Puerto
Rico, en þau eiga það sameiginlegt
að vera öll búsett í New York.
Sýningin er sjálfstætt framhald
sýningar sem haldin var í Puerto
Rico 1994. Form og efnistök eru
margbreytt, en myndlistarmenn-
irnir vinna með innsetningar,
skúkptúra og málverk.
Sýningin er opin alla daga frá
kl. 14-18 og lýkur henni sunnu-
daginn 25. júní.
------»-♦..♦.-..-
„Sjö fiskar af
fjöllum“ á
Akranesi
STEINUNN Guðmundsdóttir, roð-
listakona hefur opnað sýninguna
„Sjö fiskar af fjöilum“ í Listahorn-
inu á upplýsingamiðstöð ferða-
mála á Akranesi.
Myndirnar eru unnar með akrýl
á ýsuroð. Steinunn er fædd á
Akureyri 1953 og lauk námi frá
Kennaraháskóla Islands 1978.
Þetta er þriðja einkasýning
hennar, en auk þess hefur hún
tekið þátt í tveimur samsýningum.
Sýningin er opin á opnunartíma
upplýsingamiðstöðvarinnar og
stendur til 15. júní.
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ1995 2i-
Opió hjá Sjóvá-Almennum
Með hækkandi sól breytist afgreiðslutíminn hjá
Sjóvá-Almennum. Frá 1. júní til 1. september
verður opið frá klukkan átta'til fjögur.
SJOVA
Sími 569 2500
ÁLMENNAR
Grænt númer 800 5692
AUK / SfA k116d11-277-1