Morgunblaðið - 02.06.1995, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nútímaskáldin
endurvakin
Á SJÖUNDA áratugnum vareinfald-
asta og ódýrasta leiðin til að kynna
sér nýjustu strauma og stefnur í ljóðl-
ist á ensku, að festa kaup á „Nútíma-
skáldum" Penguin-útgáfunnar. í
hverri bók voru kynnt þrjú ljóðskáld,
sem mörg hver áttu eftir að gera
garðinn frægan, þeirra á meðal
Kingsley Amis, R.S. Thomas og
Lawrence Durrell. Ritröð þessi rann
sitt skeið árið 1979 en þá hafði áhugi
á ljóðlist farið minnkandi og sam-
kennd ljóðskáldanna þverrandi. Nú
hefur hins vegar verið ákveðið að
endurvekja útgáfuna í tilefni 60 ára
afmælis Penguin-útgáfunnar.
Á meðal þeirra skálda sem kynnt
verða í fyrstu þremur heftunum eru
þijú af bestu skáldum yngri kynslóð-
arinnar í Bretlandi að mati The Ec-
onomist, Carol Ann Duffy, Eavan
Boland og James Fenton. Segirtíma-
ritið að Duffy sé besta kvenljóðskáld-
ið sem Bretar eigi nú. Henni láti
best að lýsa hinni andlegu auð níunda
áratugarins. Irska ljóðskáldið Boland
skrifar um erfiðleikana við að kalla
fram tilfinninguna fyrir því hvaða
þjóð hún tilheyri.
Besta karlkyns ljóðskáldið telur
Economist vera James Fenton,-sem
er prófessor í ljóðlist við Oxford.
Segir tímaritið ljóðlist hans einkenn-
ast af frábærri tækni og verkkunn-
áttu og að hann velji sér fjölbreytt
umfjöllunarefni, þökk sé því að hann
hafi starfað um tíma sem fréttaritari
erlendis.
Það þykir hins vegar ljóður á ann-
ars ágætri útgáfu að ákveðið skyldi
vera að gefa út tvær bækur, eina
með ljóðum karla og eina með ljóðum
kvenna, rétt eins og um tvær óskyld-
ar tegundir væri að ræða. Telja
margir að slík skipting hljóti að
stuðia að því að sú verði raunin.
ÞÓRA við verk sitt
„Heilagur andi“
við Hamarinn
KARLAKÓRINN Heimir í Skaga-
firði verður á tónieikaferðalagi
dagana 8.-11. JÚNÍ NK.
Aætlað er að halda ferna tón-
leika. Fyrstu tónleikarnir verða í
Logalandi, Borgarfirði, fimmtu-
daginn 8. júní og hefjast kl. 21.00.
Föstudaginn 9. júní heldur kórinn
tónleika í Safnaðarheimili Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum, sem
hefjast kl. 20.80. Laugardaginn
10. júní ætlar kórinn að halda
tónleika í Selfosskirkju, þar hefj-
ast tónleikarnir kl. ÍS’.OO. Loka-
tónleikar kórsins verða síðan í
Aratungu laugardagskvöldið 10.
júní kl. 21.00.
KARLAKÓRINN Heimir
Karlakórinn
Heimir í Borg-
arfirði og á
Suðurlandi
Þar verður skagfirskt kvöld
með tilheyrandi stemmningu því
hljómsveit Geirmundar Valtýs-
sonar leikur fyrir dansi að tón-
leikum loknum.
Söngsljóri Heimis er Stefán R.
Gíslason og undirleikarar Thom-
as Higgerson og Jon St. Gíslason.
Söngskrá kórsins er mjög fjöl-
breytt, má þar nefna lög eftirt
Björgvin Þ. Valdimarsson, Jón
Björnsson, Ómar, Þ. Ragnarsson
og fleiri íslenska höfunda auk
þess sem kórinn flytur lög úr
söngleikjum og óperum og fjöl-
mörg önnur skemmtileg lög.
Einsöngvarar með kórnum
verða Einar Halldórsson, Iljalti
Jóhannsson, Pétur Pétursson og
sigfús Pétursson.
Tvísöng og þrísöng með kómum
syngja: Gísli, Pétur og Sigfús Pét-
urssynir og Bjöm Sveinsson. Fé-
lagar í Karlakóraum Heimi em 60.
ÞÓRA Þórisdóttir opnar á morgun,
3. júní, kl. 16.00, myndlistarsýn-
ingu í tilefni hvítasunnunnar, með
yfirskriftinni „Heilagur andi“.
Sýningin er haldin í listhúsinu við
Hamarinn, Strandgötu 50, Hafn-
arfirði.
Verkin á sýningunni eru ýmis-
konar, m.a. vatnsskúlptúr, mál-
verk og hvítar friðardúfur.
í kynningu segir: „Með sýning-
unni ieitast Þóra við að tjá per-
sónulegan skilning sinn og upplif-
un á heilögum anda og notar til
þess þær táknmyndir sem Biblían
notar um andann. Á Hvítasunnu-
r
dag fyrir tæpum 2000 árum féll
andinn yfir postulana, hvítasunn-
an er síðan hátíð heilags anda.
Til gamans má geta að Þóra fædd-
ist á Hvítasunnudag fyrir 33
árum.“
Þóra útskrifaðist úr skúlptúr-
deild MHÍ fyrir einu ári, hún hefur
tekið þátt í samsýningum og hald-
ið tvær einkasýningar.
Sýningin „Heilagur andi“ stend-
ur til 18. júní, Þóra tekur einnig
þátt í samsýningunni „Andinn“
sem opnuð verður sama dag í
Hafnarborg.
Allir velkomnir.
HANDIÐANAM
Fjölbrautaskólinn Breiðholti
FJflLfiRAUTASXÓUNN
BREIÐH0UI
V___________________
FB þegar þú velur verknám
Handíöabraut 1 ár
(Fatahönnun, fatasaumur, módelteikning,
sniöteikning, vefjarefnafræði, hekl og prjón)
í Laugardalnum
Allt nánasta umhverfi þvottalauganna í Laugardalnum hefur nú verið endurgert.
Á grunni þvottahúss sem byggt var áriö 1901 hefur veriö reist sýningargrind.
Þar erfjallab um sögu'þvottalauganna í máli og myndum.
Föstudaginn 2. júní 1995 kl. 16:00 mun borgarstjóri opna sýninguna um
þennan merka sögustað Reykjavíkur meb ávarpi. Kvennakór Reykjavíkur syngur
nokkur lög undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Nokkrar þvottakonur meb bala
sína og þvottabretti hafa bobab komu sína. Gestum og gangandi veröur boðið
upp á kaffiveitingar.
Allir þeir sem tök hafa á
eru hjartanlega velkomnir
í þvottalaugarnar í Laugardalnum.
Skrifstofa borgarstjóra