Morgunblaðið - 02.06.1995, Page 27

Morgunblaðið - 02.06.1995, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ1995 27 Daði sýnir í Minden Draumar lista- manns, draumar Islands DAÐI Guðbjörnsson listmálari heldur um þessar mundir sýn- ingu í Minden í Þýskalandi. Sýningin hefur vakið athygli og hlotið góða dóma. í Minden- er Tagebiatt 8. maí birt- ist lofsam- leg umsögn um sýning- una eftir Heike Schmidt. Gagnrýnand- inn skrifar að Daði Guðbjörns- son geri íslenska náttúru nýja, birti það sem sé einkennandi fyrir hana, breytingar frá ljósi til dimmu með afströktum formum sínum og skrauti. Talað er um að Daði höndli litbrigði norðurljósa í myndum sínum. Hann sé súrrealískur, en afstraktar kvenmyndir séu áberandi í verkum hans. Myndirnar opinberi drauma listamannsins, drauma ís- lands. Blaðið Minden am Sonntag (7.5.) minnir á skýra og hreina liti kraftmikilla verka Daða og birtir þijár myndir í tilefni syhingarinnar. í Westfalenblatt (5.5.) er farið viðurkenningarorðum um þennan „málara Ijóss og skugga". Sýning Daða Guðbjörnsson- ar, sem opnuð var í byijun maí, stendur út júnímánuð. Sýningin er í BUZ, menning- armiðstöð Mindenborgar. Landsmót samtaka íslenskra skólalúðra- sveita LANDSMÓT samtaka ís- lenskra skólalúðrasveita verður haldið í Neskaupstað dagana 2.-4. júní næstkomandi og er nú í fyrsta skipti haldið á Aust- úrlandi. Landsmót eru haldin annað hvert ár og er tilgangur þeirra að efla kynni meðal ungs fólks með sömu áhugamál og leyfa öðrum að heyra hvað það hefur fram að færa. 18 lúðrasveitir munu taka þátt í mótinu og er reiknað með 550 hljóðfæraleikurun víðs vegar að af landinu. Tónleikar verða í nýja íþróttahúsinu (sem enn er í byggingu) laugardaginn 3. júní kl. 14.00. Þar leikur hver hljóms'jjeit þijú lög og einnig leika allar hljómsveitirnar sam- an nokkur lög. Af því tilefni hafa verið útsett sérstaklega lög eftir þijá höfunda sem allir hafa verið búsettir á Neskaup- stað, en þeir eru Haraldur Guð- mundsson, Svavar Benedikts- son og Ingi T. Lárusson. Enginn aðgangseyrir er að mótinu. Mótinu verður síðan slitið kl. 14.00 á Hvítasunnu- dag í nýja íþróttahúsinu við Mýrargötu. Morgunblaðið/Þorkell NÁLGAST nú hin djúpa viska. F erðalög sínar og hún gerir það á sinn sér- staka hátt og nær merkilega mik- illi dýpt og fyllingu í litaáferðina. Það skilur svo verk hennar frá mörgum annarra, hve hreint og beint hún gengur til verks, hve einlægnin er mikil og henni liggur mikið á hjarta. Sýning sem Soffía hélt í listhús- inu „Hjá þeim“ á Skólavörðustíg í desember sl. vakti dijúga athygli mina og þá einmitt fyrir ofan- greinda eiginleika, sem bera vott um sérstæða tilfinningu fyrir miðl- inum. Það er svo eitthvað draumkennt yfir myndferlinu, enda er titill sýn- ingarinnar „Álfahallir/Englabyggð og hittir í mark í fleiri en einum skilningi. Þannig er sýningin^ tví- skipt, annars vegar er það Álfa- byggð og eru það sjálf þrykkin, en hins vegar er það Englabyggð, sem vísar til stokkanna, sem hún þrykkir með. Þá höfðar myndefnið til hins ófreska í tilverunni, drauma manna og skilningslinda. Myndirn- ar eru yfirleitt jafngóðar, en þó staðnæmdist ég einkum við nr. 4 „Nálgast nú hin djúpa viska“, svo og „Spegilmynd.. söngvinir" (6) og „Samlyndi“ (9). Lítil sýning, en þó um margt afar athyglisverð og mætti gerand- inn kanna þetta sérstaka svið enn nánar, en jafnframt líta til fleiri átta um tjámöguleika. Bragi Ásgeirsson MYNPLIST Stöðlakot EINÞRYKK Soffía Sæmundsdóttir Opið frá 14-18 alla daga til 19. júní. Aðgangur ókeypis. EINÞRYKKIÐ á miklu fylgi að fagna hér á landi nú um stundir, þótt ekki gangi það endilega undir því nafni. En einþrykk á tréplötu telst ekki trérista, frekar en ein- þrykk á koparplötu koparæting og er komið mál að minna á það. Réttara væri að árita myndirnar einþrykk á tré, því að trérista er í eðli sínu fjölþrykk. Þá eru menn gefnir fyrir hvers konar tilraunir með handgert þrykk, sem er betra mál en öllu má samt ofgera, því merkilegt er hvað lítið sést til sígildu aðferðanna meðal ungra listamanna. Þær lifa þó góðu lífi og hitt býður upp á fullmikið af tilviljunarkenndum lausnum, sem oft eru frekar grunn- ristar og lítið spennandi til lengri kynna. Til að tengja slík vinnu- brögð innri lífæðum myndflatarins, er nauðsynlegt að sinna einnig*sí- gildu aðferðunum, því áferðarfeg- urð einþrykkja vill fljótt dofna. Soffía Sæmundsdóttir telst í hópi þeirra, sem handgerir myndir Norræn ráðstefna um orðabókafræði NORRÆN ráðstefna um urðabóka- fræði, sú þriðja sinnar tegundar, verður haldin í Reykjavík dagana 7.-10. júní nk. Ráðstefnan er haldin á vegum Orðabókar Háskólans, Orð- menntar, félags orðabókarfólks á íslandi, Norræna orðabókafræði- félagsins og Norrænnar málstöðvar. Skráðir þátttakendur eru um 130 talsins, frá öllum Norðurlöndunum. Alls verða haldin rösklega 40 erindi á ráðstefnunni um hin margvísleg- 'ustu efni á sviði orðabókafræði. Fyrsta norræna ráðstefnan um orðabókafræði var haldin í Ósló árið 1991 og við það tækifæri var Nor- ræna orðabókafræðifélagið stofnað. Markmið félagsins er að efla fræði- legt og hagnýtt orðabókarstarf á Norðurlöndunum og treysta norræna samvinnu á því sviði. í því skyni gegnst félagið fyrir norrænni ráð- stefnu um orðabókafræði annað hvert ár. í fýrra hóf félagið útgáfu á tíma- riti, Lexico Nordica, þar sem birtar eru greinar um orðabókafræði auk ritdóma um nýútkomnar orðabækur. Félagið gefur einnig út fréttabréf til kynningar á norrænni orðabókar- starfsemi. Nú um nokkurt skeið hef- ur verið unnið að því á vegum félags- ins að semja norræna orðabók um íðorð í orðabókafræði, og er stefnt að því að bókin komi út innan tveggja ára. Norrænt samstarf um orðabóka- gerð birtist m.a. í því að um rösklega eins árs skeið hafa Orðabók Háskól- ans og Norræn málstöð með styrk frá Norræna menningarsjóðnum unnið að því í sameiningu að semja íslenskan stofn íslensk-skandinaví- skrar örðabókar. Morgunblaðið/Ámi ULTRADJASS, djasshljómsveit nemenda tónlistarskólans í Stykk- ishólmi, með stjórnanda sínum, David Enns. Ultradjass í Stykkishólmi Stykkishólmi. Morgunblaðið. STARF tónlistarskóla Stykkis- hóims hefur verið öflugt í vetur eins og undanfarin ár og í haust var stofnuð djass-hljómsveit innan skólans. Það var tónlistarkennar- inn David Enns sem stóð fyrir því. Hann fékk tii liðs níu nemendur á aldrinum 12-16 ára og á upp- stigningardag hélt hijómsveitin, sem hefur fengið nafnið Uitra- djass, tónleika á veitingastaðnum Knudsen í Stykkishólmi. Frásagnargleði og hlátur SKÁLDSAGAN Heimskra manna ráð eftir Einar Kárason kom nýlega út í Svíþjóð í þýðingu Johns Sweden- marks. Útgefandi er Bonniers. „Það er langt síðan ég hef getað mælt jafn heilshugar með bók“, skrifar gagnrýnandinn Maria Gume- son í Uppsala Nya Tidning. „Ólíkt mörgum sænskum höfundum af yngri kynslóðinni býr Einar Kárason yfir frásagnargleði og hæfileikum til að koma henni á framfæri", seg- ir Böije Isakson í Dagens Industri. Gagnrýnendur leggja áherslu á að nöfundinum takist vel að sameina gaman og alvöru. Gagnrýnandi Dag- ens Nyheter, Ola Larsmo, er einn þeirra: „Maður hlær góðan hluta leiðar- innar, er því næst staddur í öng- stræti sorgarinnar í frásögninni. Eftir það vantar aðeins að síðari hlutinn og sögulokin, skáldsagan Kvikasilfur, verði þýddur á sænsku.“ Þórður G. Halldórsson hefur sent frá sér 25 laga nótnahefti ÞÓRÐUR G. Halldórsson lagahöfundur hefur sent frá sér nótnaheftið Látið vaða [á nót- um]. Þar er að finna 25 lög sem flest eru samin á síðustu tveimur árum. Ljóðin eru flest eftir Þórð sjálfan en meðal annarra sem leggja hönd á plóginn eru Halldór Laxness og Loftur Guðmundsson. Þórður spreytti sig fyrst á lagasmíðum á sjötta áratugnum og áttu Iög hans þá góðu gengi að fagna í keppni. „Þetta voru ekki nema fimm eða sex lög í heildina en flest þeirra voru gefin út á plötu og ég er enn að fá stef-gjöld frá Ríkisútvarpinu," segir höf- undurinn. Lagahöfundurinn Þórður hvarf hins vegar af sjónarsviðinu í um fjóra áratugi. Hann starfaði lengst af sem fasteignasali og hafði einfaldlega öðrum hnöppum að hneppa. Tón- listin blundaði þó alltaf í honum. Þórður settist i helgan stein fyrir nokkrum árum og fékk þá á ný útrás fyrir listsköpun- arþörfina. „Menn eiga ekki að leggjast í kör þegar þeir eldast og ég fann mér því tóm- stundagaman. Fyrst lá leiðin í myndlistar- skóla en ég fór aftur að leika mér í tónlist- inni í rólegheitum í fyrra.“ Hann festi kaup á hljómborði og höfuðtól- Morgunblaðið/Þorkell ÞÓRÐUR G. Halldórsson segir að menn eigi ekki að leggjast í kör þótt þeir eldist. Maður verður að þora að stinga sér um og var fljótur að komast á skrið. „Kostur- inn við þennan búnað er sá að ég pirra eng- an þótt ég sé að dunda mér inni í herbergi." Þórður kveðst hafa ákveðið að senda frá sér nótnahefti þar sem hann hafi ekki bol- magn til að standa straum af kostnaði við geislaplötuútgáfu. „Þetta er eins og með sundið, maður verður að þora að stinga sér. Eg lét bara vaða og bíð siðan eftir dóms- degi. Gagnrýnendur verða þá bara að skamma mig.“ Fólk hefur þegar fengið sýnishorn af því sem heftið hefur að geyma en átta af lögun- um hafa verið hljóðrituð á snældu og lagði Jóhanna Linnet til röddina. Þá söng Bergþór Pálsson nokkur af hinum nýju lögum Þórðar við opnun myndlistarsýningar Gríms Marinós Steindórssonar í Gerðarsafni á dögunum. Þórður útsetur ekki sjálfur og það gerir honum erfitt um vik. I hans huga eru tón- smíðar hins vegar fyrst og fremst skemmti- legt áhugamál og honum leiðist ekki við hljómborðið. „Menn eru alltaf að berjast við að koma lögum sínum á geislaplötur. Ég læt þetta hins vegar siglá í rólegheitunum. Það verður bara að ráðast hvort einhver vill syngja þessi lög.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.