Morgunblaðið - 02.06.1995, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
_______AÐSEIMPAR GREINAR___
Amalgam — „bara
svolítið ofnæmi“
FERMINGAR Á HVÍTASUNNU
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
efndi nýlega til fréttamannafundar
og fyrirlestrahalds um amalgam-
vandamálið, sem hefur vakið al-"
menning til umhugsunar og grun-
semda um að ekki sé allt með felldu
um þetta eiturefni í tönnum okkar.
Til fundahalda fékk ráðuneytið
norskan tannlækni Ame Pettersen,
yfírmann norrænnar eftirlitsstofn-
unar um tannlækningaefni, en sér
til halds og trausts hafði hann Magn-
ús Ragnar Gíslason, yfirtannlækni í
heilbrigðisráðuneytinu, og komst
ekki hnífurinn á milli þeirra.
Megintemað í yfirlýsingum þeirra
var: „Amalgamið í tannfyllingum er
með öllu hættulaust! Fólk verður
aldrei veikt af amalg-
ami!“ - En eftir af-
dráttarlausar yfiriýs-
ingar, fylgdi nokkmm
málsgreinum síðar sak-
laus viðbót nema
sumir fá ofnæmi af
amalgami," eða —
„menn fá bara ofnæmi
af amalgami."
En hvernig lýsir sér
þetta ofur saklausa
„bara ofnæmi“? Um
það má vitna í frásögn
sænsku blaðakonunnar
Barbro Jöberger í bók-
inni „Amalgam, tíma-
sprengja í tönnum þín-
um,“ sem kom út í ís-
lenskri þýðingu á liðnu
ári: „Svimaköst, máttleysi, lélegt
skammtímaminni, erfíðleikar í ein-
beitingu og óvenjuleg svefnþörf."
Og enn segir hún : „— Eg fæ mikl-
ar hjartsláttartruflanir, verk í nýr-
um, enn meiri svima, sorta fyrir
augum, viðkvæmni fyrir hávaða,
þarf oft að kasta þvagi, bólgnir og
þrútnir sogeitlar undir hökunni.
Þannig er „bara ofnæmi!"
Þó verða sumir enn verr úti. All-
margir Islendingar hafa orðið illa
úti af amalgameitrun. En íslensk
heilbrigðisyfirvöld hafa ekkert gert
fyrir þetta fólk, það hefur ekki feng-
ið sjúkdómsgreiningu og engar op-
inberar skýrslur eru til um sjúkdóm-
inn hér á landi. Margir hafa orðið
að leita til annarra landa og þar
fengið sjúkdómsgreiningu og stund-
um bót meina sinna.
Eftir að ég af tilviljun kom á þrykk
fyrmefndu kveri Barbróar Jöberger
um amalgamið, hef ég reynt að gera
mér svolitla grein fyrir, hvað væri á
seyði og þreifa fyrir mér með al-
mennri - skynsemi og mátulegri rö-
kvísi ásamt þó dálítilli vitneskju í
efnafræði og líffræði.
Tímaskekkja
Og nú get ég varla orða bundist,
þegar ég les frásagnir af fundum
þessum, því að sjaldan hef ég heyrt
í málflutningi þvílíkar mótsagnir og
rökleysur.
Stærsta rökleysan og tímaskekkj-
an er sá boðskapur Magnúsar Ragn-
ars yfirtannlæknis, að halda áfram
notkun amalgams hér á landi af
fullum krafti á sama tíma og öll hin
Norðurlöndin og fleiri vestræn lönd
ákveða að banna notkun þess. Þetta
er hættuleg stefna sem getur orðið
til þess að íslendingar dragist mjög
aftur úr og einangrist og að það
spilli umhverfísímynd íslands.
Fáeinar mótsagnir:
— Ótti við notkun amalgams til
tannfyllinga er með öllu ástæðulaus,
segja þeir. — Hversvegna er amalg-
am þá bannað í Svíþjóð frá 1. júlí í
ár í böm og unglinga. — Hví, ef það
er alveg skaðlaus?. Og hví á að
banna amalgam algjörlega í Svíþjóð
frá og með 1. jan. 1997?
— Amalgamfyllingar eru hættu-
lausar, segja þeir á blaðamanna-
fundinum. — En hví ráðleggja heil-
brigðisyfirvöld í Svíþjóð, Noregi og
býskalandi að forðast amalgamfyll-
ingar í barnshafandi konur? — Hví,
ef það er alveg skaðlaust?
— Amalgam í tönnum gerir fólki
ekkert mein, segja þeir — en á hinn
bóginn greina þeir frá því að innan
fárra ára komi fram ný tannfylling-
arefni sem leysi amalgamið af hólmi.
— Hví þá, ef amalgam er skaðlaust?
— Fólk verður aldrei veikt af
amalgami, halda þeir áfram. — Þó
viðurkenna þeir tveimur málsgrein-
um aftar, að „sumir hafi ofnæmi
fyrir kvikasilfri úr amalgami".
— Það er fráleitt að amalgam
valdi nokkru heilsutjóni! — en nokkru
síðar segja: — Ekki er hægt að úti-
loka að amalgamfyllingar hafí hlið-
arverkanir.
— Amalgam-tann-
fyllingar eru með öllu
skaðlausar! — En strax
á eftir: — Sem betur fer
hefur tannroti og fyll-
ingum fækkað mjög,
svo ekki er notað eins
mikið amalgam og
áður. — En hvað gerir
það til, ef það er skað-
laust?
— Engin ástæða er
til annars en að halda
áfram að fylla tennur
með amalgami. — En
hví fer notkun amalg-
ams þó stórminnkandi
á Norðurlöndum því að
æ fleiri tannlæknar
hætta notkun þess?
— Amalgam er langbesta tann-
fyllingarefnið. — En hví hefur þá
þýska fyrirtækið Degussa, áður
stærsti framleiðandi amalgams í
Evrópu, skyndilega hætt allri fram-
leiðslu þess.
Umhverfiseitrið og
munneitrið er það sama,
segir Þorsteinn Thor-
arensen, þótt það fari
aðrar leiðir
— Amalgam er með öllu skað-
laust. — En hví er nú ákveðið í
Bandaríkjunum að setja upp aðvar-
anir um að það sé eitrað? — Þær
aðvaranir berast til íslands með að-
keyptu amalgami frá Ameríku, en
eru ekki festar upp.
í klípu
í mótsagnakenndum og órökvís-
um flutningi lenda menn í þröng.
Þannig fór fyrir Magnúsi Ragnari
yfirtannlækni á fréttafundinum:
— Amalgam er með öllu skað-
laust. — Hví er þá ráðlagt í öðrum
löndum að setja amalgamfyllingar
ekki í barnshafandi konur? — Til að
sýna ýtrustu varkárni ef það skyldi
reynast skaðlegt? — Hví er sú vark-
árni ekki sýnd barnshafandi konum
á íslandi? — Eða ætlar yfírtannlækn-
ir að láta banna á íslandi eins og á
Norðurlöndum að setja amalgamfyll-
ingar í böm og unglinga? — Nei,
hann ætlar ekki að sýna íslenskum
barnshafandi konum né börnum
neina sérstaka varkárni? — Eða
hvað?
Tvennu ruglað saman.
Amalgam-páfamir rugla fólk í
ríminu með því að skilja á milli ólíkr-
ar kvikasilfurshættu. Pettersson
segir að eina hættan frá amalgam-
fyllingum sé fyrir umhverfíð. — Víst
er það slæmt fyrir umhverfið, en af
hveiju? — Af því að það er sem eitur
í náttúrunni hættulegt mönnum og
líkamsstarfsemi þeirra.
Umhverfíseitrið og munneitrið er
það sama, þó það fari dálítið aðrar
leiðir. Þegar borað er í amalgam
fyllingar, berst fíngert kvikasilf-
ursryk út í andrúmsloftið og skapar
hvað mesta hættu fyrir tannlæknana
sjálfa eða hjálparstúlkur þeirra.
En ferill munneiturs og umhverfi-
seiturs víxlast saman. Upplýst er
erlendis að mikil kvikasilfurseitrun
„í andrúmsloftinu" stafar af lík-
brennslu. Hún kemur úr tannfylling-
um hinna látnu, svo að það er að
komast á döfína að banna lík-
brennslu, nema settar séu upp sér-
stakar kvikasilfurssíur sem kosta
hundruð milljóna króna. Þær ætti
að setja upp í Fossvogi.
Mikið kvikasilfur fer út með
hægðum fólks, því meira sem tann-
fyllingarnar eru fleiri. I nákvæmum
mælingum hefur komið í ljós, að
þetta er líklega mesta umhverfis-
mengun amalgamsins. Mest er hætt-
an af þessu í lokuðum innhöfum eins
og Eystrasalti, en við fiskveiðiþjóðin
erum líka að spilla hafínu í kringum
landið með amalgami. Þá er verið
að setja takmarkanir við því að tann-
læknastofur hleypi amalgami út í
skolpið frá tannlæknastofum og mun
það kosta dýran síubúnað.
Alvarlegast er þó kvikasilfrið sem
verður eftir í líkamanum, en sá vandi
er á því, að það verður ekki mælt á
lifandi fólki. Það sest einkum í heila
og taugakerfi og verður aðeins rann-
sakað í krufningum. Kvikasilfur
safnast í taugakerfi fósturs. Grun-
semdir eru um að amalgamið valdi
alvarlegum sjúkdómum eins og MS
— mænusiggi. Það er ekki sannað,
en almenningur ætti að njóta vark-
árni vafans.
Hvað veldur tregðunni?
.Þess undarlega fyrirbæris hefur
gætt t.d. á Norðurlöndum, að for-
stöðumenn tannlækninga í þessum
löndum snerust til varnar þessu eitri.
Þau viðbrögð þykja eftir á ámælis-
og hneykslunarverð, svo verið er að
lempa þá út úr stjórnstöðum í þess-
um málum.
Helst hallast ég að því, að þetta
stafí af því að tannlæknar hafa ein-
kennilega sérstöðu innan heilbrigði-
skerfisins. Þeir eru úr tengslum við
meðferð annarra sjúkdóma og verða
heilbrigðiskerfinu einskonar tækni-
legir páfar „teknókratar", sem eng-
inn fékk haggað við.
Staða Magnúsar Ragnars í heil-
brigðisráðuneytinu virðist hafa verið
af því tagi. Hann fer enn sínu fram
án gagnrýni.
Sjúkdómurinn amalgameitrun er
óvenjulegur og erfitt að greina hann,
hann getur verkað margvíslega á
allt taugakerfið og enginn líkams-
hluti verið ósnortinn. Sjúkdómurinn
er því svo ósérhæfður, að hann
þarfnast einskonar heildrænnar
meðferðar t.d. samstarfs taugalækn-
inga og tannlækninga. Að þessu leyti
ógnar hann sérfræðiflokkun læknis-
fræðinnar.
Sá er þó munurinn að hinir ýmsu
sérfræðingar ólíkra líkamshluta hafa
vissan samgang sín á milli um með-
ferð íjölrænna sjúkdóma, meðan
tannlæknar einangra sig alveg inni
í sínum bás og er þeim að því leyti
kannski vorkunn. Þeir vilja þá sumir
éinblína á hina tæknilegu hlið
(amalgam er svo þægilegt í notk-
un!), en skipta sér minna af al-
mennri líðan og líkamsheilsu sjúkl-
inga.
Þar sem hjá því verður ekki kom-
ist að hætta notkun amalgams innan
fárra ára, er sárgrætilegt að „yfirt-
annlæknir" landsins skuli ekkert
gera til að milda þau umskipti, t.d.
að beita sér fyrir námskeiðum og
jafnvel að kosta endurmenntun og
námsferðir tannlækna til Norð-
urlanda. Svo mikil kergja hefur
hlaupið í þetta að umbótum verður
víst ekki komið fram nema með
mannaskiptum í ráðuneyti.
Höfundur er bókaútgefandi og
rithöfundur.
FERMING í Barðskirkju annan
hvítasunnudag kl. 13. Prestur sr.
Gísli Gunnarsson. Fermd verða:
Einar Þórarinn Númason,
Reykjarhóii 2.
Iðunn Osk Óskarsdóttir,
Stóru-Þverá.
Jóhann Ásmundur Lúðvíksson,
Sigriðarstöðum.
Sigtryggur Kristjánsson,
Skeiðsfossi 2.
FERMING í Brautarholtskirkju á
Kjalanesi annan hvítasunnudag kl.
14. Prestur sr. Gunnar Kristjáns-
son. Fermd verða:
Bergrún Ósk Ólafsdóttir,
Móum.
Elín Rós Pétursdóttir,
Búagrund 7.
Emil Hólm Halldórsson,
Esjugrund 50.
Hanna Björg Pétursdóttir,
Búagrund 1.
Ómar Órn Semlali,
Miðleiti 2, Reykjavík.
Ragnar Snorrason,
Esjubergi.
Rúnar Ingi Ásgeirsson,
Skrauthólum.
Tómas John Hounslaw,
Búagrund 3.
FERMING í Breiðabólstaðarkirkju
i Stykkishólmsprestakalli annan
hvítasunnudag kl. 14. Prestur
Gunnar Eiríkur Hauksson. Fermd-
ur verður:
Hlynur Þór Hjaltason,
Vörðufelli, Skógarstrandarhreppi.
FERMING í Drangsnesskapellu kl.
14. Prestur sr. Sigríður Óladóttir.
Fermd verða:
Eydís Birta Jónsdóttir,
Kvíabala 4, Drangsnesi.
Eva Björg Einarsdóttir,
Holtagötu 4, Drangsnesi.
Þuríður Ásbjörnsdóttir,
Kvíabala 1, Drangsnesi.
FERMING í Fáskrúðsbakkakirkju
á hvítasunnudag kl. 14. Prestur
Ólafur Jens Sigurðsson. Fermdir
verða:
Gunnar Högnason,
Hjarðarfelli.
Haukur Gísli Harðarson,
Hofstöðum.
FERMING í ITateyrarkirkju, hvíta-
sunnudag kl. 11. Prestur sr. Gunnar
Björnsson. Fermd verða:
Atli Már Sigurðsson,
Hjallavegi 8.
Grétar Öm Eiríksson,
Unnarstíg 3.
Gunnar Páll Hálfdánsson,
Ránargötu 3.
Halldór Gunnar Pálsson,
Ólafstúni 6.
Hólmar Jóhann Hinriksson,
Ólafstúni 4.
FERMING í Gaulveijabæjarkirkju,
hvítasunnudag kl. 14. Prestur sr.
Úlfar Guðmundsson. Fermd verða:
Brynja Gunnarsdóttir,
Hólshúsum.
Stefán Geirsson,
Gerðum.
FERMING í Glaumbæjarkirlqu,
hvítasunnudag kl. 13. Prestur sr.
Gísli Gunnarsson. Fermd verða:
Anna Sóley Karlsdóttir,
Vatnshlíð.
Baldrún Jónsdóttir,
Dæli.
Ingi Björn Árnason,
Márbæli.
Jóhann Gunnlaugsson,
Geldingaholti 3.
Jón Guðni Karelsson,
Syðri-Húsabakka.
Sveinrún Eymundsdóttir,
Árgerði.
FERMING í Grundarfjarðarkirkju,
Setbergsprestakalli, hvítasunnudag
kl. 10.30. Prestur sr. Sigurður Kr.
Sigurðsson. Fermd verða:
Álfheiður Ágústsdóttir,
Gmndargötu 5.
Birgitta Þórey Bergsdóttir,
Fagurhólstúni 2.
Garðar Hafsteinsson,
Grundargötu 92.
Gilbert Grétar Sigurðsson,
Grundargötu 76.
Guðrún Jóna Jósepsdóttir,
Grundargötu 15.
Hanna Sif Ingadóttir,
Hlíðarvegi 11.
Helga Hjálmrós Bjarnadóttir,
Grundargötu 98.
Ingibjörg Kristín Gestsdóttir,
Eyrarvegi 17.
Jóhanna Beck,
Grundargötu 66.
Jón Garðar Jörundsson,
Eyrarvegi 7.
Kristinn Soffanías Rúnarsson,
Hlíðarvegi 5.
Marsibil Katrín Guðmundsdóttir,
Fagurhólstúni 5.
Sara Stefánsdóttir,
Eyrarvegi 14.
Svavar Þór Sævarsson,
Grundargötu 17.
Þórhildur Guðrún Ólafsdóttir,
Fagurhólstúni 3.
FERMING í Hjarðarholtskirkju
hvítasunnudag kl. 14. Fermd verða:
Baldur Þórir Gíslason,
Ægisbraut 17, Búðardal.
Guðmundur Sveinn Grétarsson,
Þorbergsstöðum, Laxárdal.
Sunneva Jóhannesdóttir,
Brekkuhvammi 10, Búðardal.
FERMING í Hnífsdalskapellu hvíta-
sunnudag kl. 10.30. Prestur sr.
Magnús Erlingsson. Fermd verða:
Gunnar Pétur Garðarsson,
Smárateig 1.
Guðjón Páll Bjamason,
Dalbraut la.
Helga Kristín Guðmundsdóttir,
Bakkavogi 1.
Hörður Páll Harðarson,
Garðavegi 6.
Rakel Helena Kristjánsdóttir,
Bakkavegi 33.
Tinna Aðalbjörnsdóttir,
Bakkavegi 35.
Tómas Michael Reynisson,
Bakkavegi 3.
FERMING í Holtskirkju kl. 14.
Prestur sr. Gunnar Björnsson.
Fermd verða:
Hlynur Kristjánsson,
Drafnargötu 9, Flateyri.
Hörður Bjarnason,
Ytri-Veðrará, Mosvallahreppi.
Jónatan Magnússon,
Hóli, Mosvallahreppi.
FERMING í Hólaneskirkju á Skaga-
strönd kl. 10.30 á hvítasunnudag.
Prestur sr. Egill Hallgrímsson.
Fermd verða:
Birkir Rafn Gíslason,
Suðurvegi 22, Skagaströnd.
Bima Ágústsdóttir,
Bankastræti 6, Skagaströnd.
Bæring Jón Skarphéðinsson,
Ránarbraut 23, Skagaströnd.
Davíð Bragi Björgvinsson,
Sunnuvegi_ 6, Skagaströnd.
Elva Dröfn Árnadóttir,
Ránarbraut 12, Skagaströnd,
Guðjón Hall Sigurbjörnsson,
Ránarbraut 17, Skagaströnd.
Heiðrún Ósk Níelsardóttir,
Strandgötu 8, Skagaströnd.
Ingi Þór Finnsson
Gullengi 1, Reykjavík.
Kristrún Linda Jónasdóttir,
Réttarholti, Skagaströnd.
Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir,
Skagavegi 15, Skagaströnd.
Sigrún Líndal Þrastardóttir,
Hólabraut 26, Skagaströnd.
FERMING í Hólmavíkurkirkju kl.
10.30. Prestur sr. Sigríður Óladótt-
ir. Fermd verða:
Aðalheiður Halldóra Guðbjörnsd.,
Miðtúni 7.
Aðalheiður Ólafsdóttir,
Vesturtúni 2.
Elvar Þór Þorsteinsson,
Víðidalsá.
Guðbjörg Gunnlaugsdóttir,
Bröttugötu 4.
Gunnar Bragi Magnússon,
Ytri-Ósi.
Gunnar Logi Bjömsson,
Lækjartúni 4.
Gunnar Númi Hjartarson,
Kópnesbraut 23.
Harpa Hlín Haraldsdóttir,
Lækjartúni 15.
Sigríður Ella Kristjánsdóttir,
Austurtúni 3.
Sigurrós Guðbjörg Þórðardóttir,
Vitabraut 17.
Smári Þorbjörnsson,
Víkurtúni 5.
Steingrímur Guðni Árnason,
Lækjartúni 22.
Steinunn Magney Eysteinsdóttir,
Lækjartúni 2.
FERMING í Hraungerðiskirkju,
hvítasunnudag kl. 13.30. Prestur sr.
Kristinn Á. Friðfinnsson. Fermd
verða:
Baldur Gauti Tryggvason,
Víðivöllum 4, Selfossi.
Davíð Ingi Baldursson,
Litla-Ármóti, Hraungerðishreppi.
Elín Magnúsdóttir,
Oddgeirshólum IV, Hraungerðis-
hreppi.
Melkorka Mjöll Kristinsdóttir,
Bankavegi 8, Selfossi.
FERMING í Ingjaldshólskirkju,
livítasunnudag kl. 10.30. Prestur
Ólafur Jens Sigurðsson. Fermd
verða:
Katrín Hjartardóttir,
Munaðarhóli 17.
Kristín Helga Guðjónsdóttir,
Keflavíkurgötu 3.
Lilja Rún Fjalarsdóttir,
Munaðarhóli 6.
Þorsteinn
Thorarensen