Morgunblaðið - 20.06.1995, Page 23

Morgunblaðið - 20.06.1995, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1995 2 LIST OG HÖNNI JN Norræna húsið ALBERT ENGSTRÖM KYNNING Opið á opnunartíina kaffistofu. Til 21. júní. Aðgangur ókeypis. EINN af nafnkenndustu sonum Svíaríkis og ágætustu skopteiknur- um aldarinnar á Norðurlöndum, Albert Engström (1869-1940), gisti Island 1911 og fór víða. Ritaði bók eftir heimkomuna, „At Haklefjall", er út kom 1913 og dijúga athygli vakti, enda snjall penni og meðlim- ur sænsku Akademíunnar frá 1922. Bókin kom út á íslenzku 1943 und- ir nafninu „Til Heklu“. Norræna húsið gengst fyrir lítilli kynningu á stórmenninu í anddyr- inu, ofurlítilli langar mig til að bæta við, því að hún er einungis í tveim sýningarskápum undir gleri. Er þar komið enn eitt tímanna tákn um ræktarsemi við listamenn fortíð- ar og geta menn einungis borið virktina saman við viðamikla fram- kvæmdina utan húss og innan á sama tíma. Annars var það Carl- Otto von Sydow, fyrrverandi for- stöðumaður handritadeildar há- skólabókasafnsins í Uppsölum, sem hafði veg og vanda af undirbúningi sýningarinnar, og má vera að hún hafi öðru fremur verið í tengslum við fyrirlestur hans, “Albert Eng- Söngkon- ur i sum- arskapi ÞRJÁR söngkonur, þær Björk Jóns- dóttir, Jóhanna Þórhallsdóttir og Margrét Pálmadóttir, halda tónleika í Kaffileikhúsinu á sumarsólstöðum, miðvikudaginn 21. júní kl. 21. Undir- leikari er Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Á efnisskránni eru lög úr ýmsum áttum, bæði innlend og erlend. Söng- konurnar syngja meðal annars sóló, dúetta og tríó. Söngkonurnar eiga allar að baki langan feril í tónlist, en undanfarið hafa þær starfað saman að uppbygg- ingu Kvennakórs Reykjavíkur. -----♦--■♦-4-- Sumartón- leikar Dóm- kirkjunnar MARTEINN H. Friðriksson leikur í kvöld kl. 20.30 á orgel Dómkirkj- unnar. Á efnisskrá eru verk eftir Jón Þórarinsson, Jón marteinn H. Nordal, D. Buxte- Friðriksson hude, P. Eden og J.S. Bach. Aðgangur er ókeypis. Garðsláttuvélar ÞOR HF Reykjavík - Akureyri Reykjavík: Ármúla 11 - Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka - Sími 461-1070 LISTIR Merkur ferðalangur ström og ísland“, í fundarsal. Engström stofnaði skopblaðið Strix árið 1897, sem varð hluti af sænskri þjóðarvitund og víðþekkt á Norðurlöndum, ásamt því að teikn- ingar hans teljast með því ágætasta sem gert hefur verið á sviðinu og vörðuðu veginn um þessa tegund risslistar. Eitthvað er að þegar fyrnist yfir minningu slíkra, og hætt er að sýna henni verðuga ræktarsemi, því mögulegt hefði verið að búa til hrifmikla sjónræna framkvæmd úr þeim efniviði sem menn höfðu á milli handanna og gera hann stórum aðgengilegri. Til dæmis með því að stækka einstaka texta úr glósubók- um og bréfum og raða á veggina, sömuleiðis myndir og riss. Ný hlið á sænskri þjóðarsál hefði þá blasað við gestum hússins og og vægi upplýsingastreymisins margfaldast. Varla vanþörf á, því að einungis elstu kynslóðir virðast þekkja nafnið Albert Engström (!), þótt ætla megi að menntunarkerf- inu sé skylt að halda slíkum hátt á lofti. Engström virðist hafa verið upp- tekinn við að kynna sér íslenzkt landslag og rýna í þjóðarvitundina, svo sem honum var lagið, því það sýna bréf hans og lýsingar á ferða- laginu, eins og þegar hann fór á báti frá Siglufirði til Akureyrar: „Höfrungar og alls konar fuglar, óteljandi æður og skarfar. Og upp í landi sjáum við í sjónauka hesta og fé bíta smaragða. Og lækir leiftr- uðu í sólskininu og rósaský sváfu á fjallstinduuum. Þegar við komum inn í Eyjafjörð varð enn fegurra. Þar er aðdjúpt við vesturströndina og við fórum nálægt henni. Fyrir minni Ólafsfjarðar fósum við fram hjá litlum hval og höfrungavöðu. Þegar við sigldum fram hjá Hrísey var hafið eins og sjóðandi af lífi. Það var unaðslegt ferðalag. Heiðursvini eignaðist Engström að vonum og einn þeirra var Guð- mundur Hallgrímsson læknir, sem hefur verið iðinn við að opna honum aðgang að þjóðarvitundinni líkt og kompur hans sýna: Helltu út/ úr einum kút/ ofan í gröf mér búna/ beinin mín/ í brennivín/ bráðlega langar núna. Og Guðmundur hefur einnig viljað mæra föðurland Eng- ströms, með því að kynna honum eina snjalla þýðingu Matthíasar Jochumssonar: Þú rótgróna Svía- byggð/ með sigurfrægð og hetju- dyggð/ og málmi skærra mál/ Þú goðum líka Gautaslóð/ þú Gústavs prúða snilldarþjóð/ þín harpa syng- ur sólarljóð/ og sigurorð þitt stál. - Nei, við höfum naumast efni á að gleyma slíku, því þá gleymum við landinu og glötum norrænni þjóðarvitund um leið. Bragi Ásgeirsson Kenndu mér að klæ5a rétt og hvemig á að negla þétt og hvernig á að brosa blítt (aö loknu varki) og blikka undur þýtt. (bara svona yfirleitt) Okkur Vírnetsmönnum er málið skylt. Við framleiðum Borgarnesstál og mestallan saum sem notaður er I landtnu. Sem er enn eitt dæmi úm samkeppnisiðnað sem stenst opna og óverndaða samkeppni við erlenda framleiðslu. Þess vegna höfum við gefið út ritin: Naglfestan og Veðurkápan. I þeim er utskyrt, a auðskiljanlegan hatt, hvermg standa skal að því að klæða hús bárujárni, eða öðrum stálklæðningum og hvaða saum skuli nota í timbur -bæði í festingar hvers konar timburvirkja sem og annað, t.d. klæðningar. Ritin eru a alþyðlegu mali þott grunnurinn se hávísindalegur. Höfundar meginefnis eru þeir Björn Marteinsson, arkitekt og verkfræðingur hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og Pétur Sigurðsson, efnaverkfræðingur. Bæði þessi rit fast i byggingarvöruverslunum og hjá útgefanda. Eintakið kostar 500 krónur. VÍRNET ? Borgarbraut 74 310Borgarnesl Pósthólf: 60 • Slrnl: 437 1000 • Bréfaslml: 437 1819

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.