Morgunblaðið - 20.06.1995, Side 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
/TT\ /YE5.I know ) V 1 / VOU PON'T LIKE IM. \ [ T0BECALLED \^l'J V"5M0RTY" y AND IVE NEVER CALLEP VOU *5HORTY("|4AV6 17 NO.I MAVEN'T.._ OF C0UR5E, VOU DON'T EXACTLV MAVE TO DUCK UUHENV0U G0THR0UGH A DOOR, DO YOU ? i ^ootí
I
/i C 1 * ^ dsrO
\
S-iZ - - - - - O
Ég veit að þér líkar ekki að vera kallaður „stubbur". Og ég hef aldrei kallað þig „stubb“, Þú þarft auðvitað ekki bein- línis að beygja þig þegar þú spark!
er það? Nei, það hef gengur inn um dyr, er það?
ég ekki...
fMtargnnMafeib
BRÉF
TEL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Þankar um umferðar-
mál á Islandi
Frá Skarphéðni Hinrik Einarssyni:
MARGIR eru sammála um að tvö-
földun Reykjanesbrautar sé patent
lausn í umferðarmálum hér um
slóðir. Ugglaust þarf einhvern tíma
að tvöfalda brautina en ég legg
ekki mat á þörf fyrir þá fram-
kvæmd. Verkfræðingar Vegagerð-
arinnar eru dómbærari á það. Mér
finnst að lýsing brautarinnar sé
mjög brýn og myndi auðvelda
vetrarakstur mjög. Einnig hefur
hálkueyðingu verið mjög ábótavant
í vetur. Einnig er löggæslu mjög
ábótavant þar. Tíður framúrakstur
og glæfraökulag tíðkast þar og
virðist einkenna aksturslag íslend-
inga mjög. Ljósin milli Hafnarfjarð-
ar og Reykjavíkur eru stillt þannig
að þessir framúrtakarar eru þar
bremsaðir af og þar ekur maður
fram á þá aftur þannig að þeir spara
ekkert á því að vera að fara framúr
en skapa aðeins slysahættu.
Ég hef ekið mikið í Bretlandi og
þar eru nú skráð 25 milljón öku-
tæki, vegakerfið þar er gott og
sumsstaðar eru fimm til sex akrein-
ar í hvora átt með stálgrindverki
sem aðskilur akstursstefnu. Er
dregur nær stórborgum myndast
oft miklir umferðarhnútar sem oft
tekur langan tíma að leysa. Ég hef
séð í blöðum þar og einnig á Sky
stöðinni að Bretar hafa miklar
áhyggjur af mengun sem fylgir
stóraukinni bflaeign almennings.
Einnig hefur komið í ljós að bensín
með oktantöluna 95 og 97 blýlaust
eykur mjög líkur á krabbameini.
Þar er um að kenna efni sem bens-
ól heitir og hækkar oktantölu bens-
íns í stað blýs. Þó svo að olíufélög-
in séu á öndverðum meiði þá hefur
þetta komið í ljós og verið sannað.
Menn eru komnir á þá skoðun að
blýbensín sé hættuminna mönnum
en blýlaust. Þar hefur verið mótuð
sú stefna að hækka verð á bensíni
til aldamóta um 60%. Það er nú frá
47 kr. og upp í 53 kr. Htrinn en fer
langt yfír pund með þessari hækk-
un. Með þessu móti mun umferð
einkabíla og flutningabíla minnka
en í staðinn munu almenningssam-
göngur verða bættar, einnig er
stefnt að því að vöruflutningar fær-
ist af þjóðvegum landsins yfír til
jámbrauta. Ef litið er til umferðar-
mála hér á landi ætti fólk að nota
almenningssamgöngur meira, skilja
bílinn eftir heima, einnig fínnst mér
að landflutningar með vörur út á
landsbyggðina ættu að færast
meira af vegum til strandferða-
skipa. Sú leið er mun heppilegri hér
en landflutningar. Á vorin eru veg-
ir viðkvæmir og um vetur aðstæður
mjög erfíðar. Islendingar standa á
tímamótum í umferðarmálum. Við
emm engin undantekning þar frá
nágrönnum okkar í Evrópu.
SKARPHÉÐINN H. EINARSSON,
Grænási 1B, Njarðvík.
Málfar og þjóðhátíð
Frá Baldri Pálmasyni:
SÚ HEFUR verið reyndin á liðnum
ámm, að æði mörgum verður hnot-
gjarnt á málfarsstígnum, þegar líð-
ur að þjóðhátíðardegi. Þá fínnst
fólki þörf á að bora forsetningu
framan við dagsetninguna og segir
t.d.: „dagskrá hátíðarhaldanna á
17. júní“. Slíkt er til mikilla lýta.
Ég hef áður haft orð á þessu hér
í blaðinu og spurt þetta forsetning-
arglaða fólk: Hvernig svarið þið
spumingunni „Hvaða dag fæddist
þú?“ Segir þá nokkur t.d. á 1. maí
eða á 18. ágúst? Enginn, sem betur
fer.
Annað atriði er vert að nefna
varðandi 17. júní. Þá stígur Fjall-
konan fram til hátíðarbrigða í
mörgum kaupstöðum og flytur ætt-
jarðarljóð. Og er það vel. En ekki
hugnast mér að sjá nafn þessa tákn-
ræna fulltrúa þjóðarinnar ritað með
litlum upphafsstaf. Ég man t.d.
ekki til að hafa séð orðið Frón skrif-
að með litlum staf, þegar það merk-
ir ísland. Þessi tvö orð, Frón og
Fjallkona, em samstæð táknleg
heiti og eiga bæði að halda sínu
upphafs-effí.
BALDUR PÁLMASON.
Vesturbrún 31, R.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavik. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Rilstjórn 669 1329, fréttir 569 1181, Iþróttir 569 1156,
8érblöð 669 1222, auglýsingar 669 1110, skrifstofa 668 1811, gjaldkeri 669 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakíð.