Morgunblaðið - 18.07.1995, Page 21

Morgunblaðið - 18.07.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995 21 * Olistasafnið opnað í Boston „Óður til lista- klúðurs“ SCOTT Wilson fommunasali áttaði sig engan veginn á því hvílíka gull- námu hann kom niður á fyrir þremur ámm, er hann rakst á gylltan skraut- ramma í rusli. í rammanum var mynd af gráhærðri konu, sem hnipr- ar sig saman á akri undir gulum himni. Myndin var svo léleg, að Wil- son gat ekki slitið augun af henni. Ekki leið á löngu þar til til hans sást á mörkuðum og bilskúrssölum í leit að fleiri lélegum listverkum. Nú á Wilson svo gott safn af ólist að hann hefur asamt fleirum sett á fót svokall- að „Ólistasafn" (Museum of Bad Art) í Boston í Bandaríkjunum. Blaðamaður The Wall Stæet Journal kallar safnið „óð til listakl- úðurs“. Wilson segist hafa leitað að verkum sem séu heiðarleg tilraun til að skapa listaverk en hafi mistekist skelfilega. Sjálfur hætti Wilson námi í listaskólanum í Massachusetts. Wilson og félagar hans sem standa að Ólistasafninu og frétta- bréfi um það á Internetinu, segja því ætlað að gefa hinu hefðbundna listalífi á baukinn. Aðstandendur safnsins eru um 80 og á meðal þeirra eru Garen Daly, forstjóri kvik- myndahúss og tölvunarfræðingurinn Jerry Reilly, en hann hýsir safnið, sem er ekki mikið að vöxtum, í tveimur kjallaraherbergjum. Ódýrir ljóskastarar lýsa málverkin, sem eru áttatíu að tölu, upp en öðrum ólista- verkum hefur verið komið fyrir í geymslu þar sem einnig er að finna tómar bjórdósir og garðsláttuvél. Köttur brosir út í annað Gestir geta haft samband við Reilly vilji þeir sjá safnið en hann kýs þó fremur að halda sýningar, um 130 manns sóttu þá sem mestra vinsælda hefur notið. Á meðal vin- sælustu málverkanna má nefna and- litsmynd af ketti sem brosir út í EITT verkanna á Ólistasafninu. annað og mynd máluð með depla- tækni af manni í rómverskri skikkju sem krýpur á akri. „Stundum er maður staddur á stóru listasafni og hugsar með sér: „Hvernig í óskupunum komst þetta verk hingað?" segir Louise R. Stacco, eigandi tölvuverslunar og einn aðstandenda safnsins. „Á þessu safni leikur enginn vafi á því; vegna þess að þetta er léleg list.“ En þrátt fyrir að stofnun Ólista- safnsins sé í raun til höfuðs hefð- bundinni list, virðist það munu hljóta viðurkenningu þeirra sem þar ráða. Hefur Montserrat-listaskólinn í Massachusetts boðið safninu að setja upp sýningu í sölum skólans. Ástæð- an er sögð ferskleikinn sem óneitan- lega sé yfir Ólistasafninu. En hvaða skilaboð eru fólgin í stofnun safnsins? „Að einlægni skipti enn máli,“ segir Ethan Berry hjá Montserrat-skólanum. Sumir listamannanna sem eiga verk á safninu eru fullsáttir við það. Þeirra á meðal er Bonnie Daly frá Maine sem segist búa yfir „listrænni endorfín-þörf“. Safnið á mynd sem hún málaði af Elvis Presley með yfirvararskegg og í grænum jakka. „Þetta var eftirmynd Presleys, eins og Picasso hefði túlkað hana, tpeink- uð minningu Andy Warhols," segir Daly, sem er aðstoðarkona þvag- færasérfræðings þegar hún er ekki að mála. „Ég fagna því að einhver kunni að meta verk mín. Ég á 99 verk tilbúin og er viss um að safn- stjórarnir myndu kunna að meta nokkur þeirra." Minnisvarði um Eyvind EIÐUR Guðnason sendiherra ís- lands í Noregi afhjúpaði minnis- varða um Eyvind skáldaspilli í bæn- um Sandnesi á Rogalandi 17. júní. Er minnisvarðinn settur upp af þvi tilefni að 1000 ár eru liðin frá dauða skáldsins. í ræðu sem Eiður flutti í tilefni dagsins segir m.a.: „Við erum kom- in saman hér í dag til að minnast þeirra verðmæta sem fortíðin hefur látið okkur í té. Þetta er menningar- arfur okkar, hinn norræni arfur sem okkur er skylt að gæta og varð- veita. Ef við gerum það ekki, gerir það enginn." -----♦ ♦ ♦----- Lilja Björk í Galleríi Birgis NÚ STENDUR yfir sýning á verk- um Lilju Bjarkar Egilsdóttur í Gall- eríi Birgis Andréssonar. Lilja Björk er nú búsett í París, þar sem hún stundar alla sína myndlist. Áður var hún við nám í íjöltæknideild MHÍ og svo síðar í Frakklandi. Lilja hefur tekið bæði þátt í sam- sýningum og haldið einkasýningar. Verkin á þessari sýningu er í fram- haldi af því sem hún hefur verið að vinna að á undanförnu. Sýningin er opin á fimmtudögum frá kl. 14-18 eða eftir samkomu- lagi. Henni lýkur svo fimmtudaginn 10. ágúst. Nýjar bækur • ÚT ER komin frá Árbæjarsafni Fornleifaskrá Reykjnvikur eftir Bjnrna F. Einarsson fornleifa- fræðing. Árin 1982-83 skráði Bjarni fornleifar Reykjavíkur fyrir Þjóðminjasafn íslands. Þá höfnuðu 123 staðir á skrá. Þessi skrá var ekki gefin út. Árin 1994-95 skráði Bjarni fornleifar í Reykjavík á ný, en nú fyrir Árbæjarsafn. Sömu aðferðir voru í stórum drátum notaðar þó að vissar breytingar hafi átt sér stað. í upphafi ritsins Fornleifaskrá Reykjavíkur er fjallað um aðdrag- andann að skráningunni, nýju þjóðminjalögin, umhverfismat og skráningaraðferð. í meginhluta skrárinnar eru minjarnar tilgreindar hver um sig, þeim lýst, birt af þeim ljósmynd og teikning þegar við á, lega og staðhættir gefin upp o.s.fr. Þá er í ritinu kort yfir borgarlandið sem sýnir staðsetningu fornleifanna. Skýrslan er til sölu í miða- og bókasölu Árbæjarsafns. Er hún 187 bls. að lengd og kostar 1.990 kr. - kjarni málsins! Bragðgóð blanda LEIKUST Kaf filcikhúsiö HÖFUÐIÐ AF SKÖMMINNI Höfundar og leikendur: Ánnann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Pianóleikari og tæknimaður: Hulda Hákonardótt- ir. 15. júlí. ÞRÍEYKIÐ sem samanstendur af þeim Ármanni Guðmundssyni, Sævari Sigurgeirssyni og Þorgeiri Tryggvasyni kallar sig Allt of langt- gengið, og hafa þeir félagar fengist við að semja leiktexta í nokkur ár, aðallega fyrir leikfélagið Hugleik. Eins og leikhúsáhugamenn vita hefur Hugleikur eingöngu sett upp gamanleiki þar sem leitast er við að gera sem mest grín að íslenskum menningarararfi á einn eða annan hátt, oft með fimagóðum árangri. Gamanleikurinn Höfuðið af skömminni er skilgreindur sem ís- lenskur kabarett. Orðið kabarett þýðir, samkvæmt orðabókinni, skemmtun með blönduðu efni, döns- um, söng, upplestri, smáleikþáttum og þess háttar, og það er einmitt slík skemmtun sem þeir félagarnir þrír bjóða gestum Kaffileikhússins upp á. Hér er þó ekkert sérstaklega leitast við að gera grín að íslending- um eða íslenskum menningararfi, heldur er farið um víðan völl og sem dæmi má taka að grínið spannar svið allt frá íþróttum til heimspeki- kenninga og er víða drepið niður. Kabarettinn Höfuðið af skömminni er saman settur af mörgum mis- löngum ótengdum atriðum. Kannski er það örlítill veikleiki að atriðin eru lítið sem ekkert tengd, þannig að heildarsvip vantar á sýn- inguna. Atriðin eru einnig afar mis- munandi fyndin, sum hittu algjör- lega í mark þannig að áhorfendur tóku bakföll af hlátri, önnur voru nokkuð langdregin og kölluðu í mesta falli fram nokkrar brosvipr- ur. En það skal tekið fram að ekk- ert atriðanna var beinlínis leiðinlegt eða pínlegt, eins og misheppnaðir brandarar eru oft. Eins og títt er um brandara er textinn mikið til byggður upp á orðaleikjum og skir- skotunum sem áhorfendur þekkja og tekst þeim þremenningum oft afar vel upp með textagerðina. Leikstíllinn sem þeir velja sýning- unni er farsakenndur og ýktur og textinn nokkuð fjarstæðukenndur á köflum. Þessi blanda var þegar best lét afar bragðgóð og minnti helst á þann frábæra hóp grínista sem kallar sig Monty Python, en stund- um var allráðandi „hinn íslenski ungmennafélagsandi“ eins og ég heyrði einn leikhúsgesta hafa á orði að lokinni sýningu - og ráði nú hver fyrir sig hvað það merkir. í svona stuttum gamanatriðum ræður auðvitað leikurinn úrslitum um hversu vel tekst til að kitla hlát- urtaugar áhorfenda og það verður að segjast eins og er að það vant- aði stundum nokkuð upp á þessa hlið. Sævar Sigurgeirsson virtist sá öruggasti af þeim þremur og hann sýndi yfirleitt/rábæran, kostulegan leik. Leikur Ármanns og Þorgeirs var mistækari og vildu þau atriði þar sem þeir voru bara tveir á svið- inu stundum falla nokkuð. Það skiptir máli í svona samsettri sýn- ingu að halda góðum hraða og flugi og á því var nokkur misbrestur. Hluti skýringarinnar getur vitan- lega falist í nokkrum frumsýningar- ótta, en á hinn bóginn ber að geta þess að „salurinn" var afar góður og leikendum vinveittur. Það er óhætt að mæla með þess- um kabarett sem dægrastyttingu á löngu sumarkvöldi. Kaffileikhúsið býður upp á léttan og ódýran máls- verð á undan sýningu og víst er að áhorfendur munu hafa allnokkra skemmtan af Allt of langt-genginu. Soffía Auður Birgisdóttir Sve/vt4A/<vutOi KOMNIR Frábært verð VBBI y ¥alhú ÁRMÚLA 8, SÍMAR 581 2275 og 568 5375 BANTHAl TÆLENSKUR MATUR Laugavegi 130 Nýtt símanúmer 552 2444 TILBOP: réttir fyrir 4 kosta á mann kr. 1.390 w7réttir fvrir 2 kosta á mann kr. 1.490 'A HSM Pressen GmbH • Öruggir vandaðir pappírstætarar • Margar stærðir - þýsk tækni • Vönduð vara - gott verð y (M]t) J. RSTVniDSSON HF. NM SKIPH0LII 33,105 REYKJAVÍK, SÍMI 552 3580 Reiðskótinn Hrauni Grímsnesi Fyrir 10-15 ára Erum að bóka í síðsumars- námskeiðin. ÞAKRENNUR Kantaðar eða rúnnaðar ♦ Sterkar og endingargóðar, framleiddar úr PVC. plasti. ♦ Auðveld uppsetning - má mála með útimálningu. ♦ íslenskar leiðbeiningar. 25 ára reynsla við íslenskar aðstæður BYGGINGAVÖRUR Ármúla 18, s. 553 5697 Skjótvirkur stíflueyðir Eyðir stíflum fljótt Tuskur Feiti Lifræn efni Hár , Dömubindi Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer fljótt að stíflunni af því að það er tvisvar sinnum þyngra en vatn. Útsölustaðir: Bensínstöðvar og helstu byggingavöruverslanir. Tilbúinn stíflu eyðir Dreifing: Hringás hf., sími 567 7878 - fax 567 7022

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.