Morgunblaðið - 18.08.1995, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1995 9
Ahugi á
vísindum
hefur alls
ekki dvínað
Eggert V. Briem
100 ára
í DAG er ein öld liðin frá fæðingu
Eggerts Vilhjálms Briem, fyrrver-
andi flugmanns, uppfinninga-
manns og sjálflærðs eðlisfræðings.
Eggert fæddist að Goðdölum í
Skagafirði þann 18. ágúst árið
1895, sonur hjónanna Steinunnar
Pétursdóttur og séra Vilhjálms
Briem sóknarprests þar. Eggert
ólst upp við erfiðar aðstæður en
nam vélaverkfræði í Þýzkalandi
og í Bandaríkjunum og var jafn-
framt fyrsti Islendingurinn sem
tók atvinnuflugmannspróf, en það
gerði hann í Bandaríkjunum þann
1. apríl árið 1930.
Þekktastur er Eggert fyrir
áhuga sinn á eðlisfræði og fleiri
vísindagreinum. Eggert dvaldi
lengi i Bandaríkjunum og stundaði
þar lestur vísindarita af ákafa.
Frá heimkomu sinni til íslands
árið 1959 hefur hann stutt af
rausnarskap við rannsóknir í
raunvísindum hjá Háskóla Islands,
en þær rannsóknir hafa ekki síður
notið góðs af frjórri hugsun hans.
Eggert dvelur nú í Hátúninu í
Reykjavík, þar sem hann nýtur
öldrunarþjónustu. Þar til fyrir um
tveimur árum gat Eggert ferðast
um að vild, en nú er líkaminn far-
inn að bregðast honum lítillega.
Andlega er hann hinn hressasti
og heldur uppteknum hætti að
Þjóðsöngurinn sung-
inn á landsleik
*
Ahorfend-
ur tóku
vel undir
ÞJÓÐSÖNGURINN var fluttur
með nýstárlegum hætti á landsleik
íslendinga og Svisslendinga sl.
miðvikudag. I stað þess að leika
þjóðsönginn af bandi var hann
spilaður á hljómborð og tíu ungir
leikarar leiddu sönginn. Textanum
var dreift til áhorfenda, sem tóku
vel undir.
Snorri Finnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnusam-
bands íslands, segir að Gunnar
Helgason leikari hafi átt hug-
myndina og komið henni á fram-
færi við Hermann Gunnarsson,
sem var kynnir á leiknum.
„Páll Sigurhjartarson í Snigla-
bandinu var fenginn til að leika
undir og stjórna söngnum ásamt-
tíu ungum leikurum," sagði Snor-
ri. ,Ég held að ég megi fullyrða
að flestir hafi verið ánægðir með
útkomuna. Ahorfendur tóku vel
undir og það hafa sjálfsagt aldrei
eins margir sungið þjóðsönginn í
einu. Þetta skapaði skemmtilega
stemmningu.“
■ Söngurinn var færður niður um
eina áttund til að auðvelda áhorf-
endum að syngja með. „Menn
veltu því fyrir sér hvort athuga-
semd yrði gerð við það að söngur-
inn væri lækkaður, en enginn hef-
ur fett fingur út í það ennþá,“
sagði Snorri.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
EGGERT V. Briem heldur aldarafmæli sitt hátíðlegt í dag.
fylgjast með áhugamálum sínum.
Þegar blaðamann Morgunblaðsins
bar að garði sat Eggert uppi við
lestur nýjasta tölublaðs Jökuls,
tímarits Jöklarannsóknafélagsins.
Minningunni fagnað
Hann sagði að sér fyndist engin
sérstök ástæða til að óska svo
gömlum manni til hamingju með
að fylla eitt árið enn. Full ástæða
væri til þess að gleðjast með börn-
unum á þeirri stundu, sem þau
hafa lagt eitt þroskaárið enn að
baki. A afmælum aldraðs fólks
fögnuðu menn aðeins minning-
unni með afmælisbarninu.
Og Eggert V. Briem á ríkulegar
minningar að deila með samtíðar-
fólki sínu; hann var í Þýzkalandi
þegar fyrri heimsstyijöldin brauzt
út, hann fékk „Spænsku veikina“
árið 1918, sem nærri varð honum
að aldurtila, hann var frumkvöð-
ull í flugi, hann starfaði við her-
gagnaframleiðslu í Bandaríkjun-
um á árum seinni heimsstyijaldar,
svo að nokkrir áfangar langrar
ævi séu nefndar.
langa lífdaga sína sagði Eggert
að sinn þátt í því ættu læknar, sem
hefðu læknað kvilla er hefðu háð
honum framan af ævinni.
Vegna fæðingargalla var hon-
um vart hugað líf sem barni. Hann
var nærri því holgóma, en þó þetta
hefði háð honum alla tíð var það
ekki fyrr en hann var kominn á
sjötugsaldur að læknir nokkur í
Bandaríkjunum gerði á honum
aðgerð sem læknaði meinið svo til
alveg. Það kann líka að hafa sitt
að segja, að Eggert hefur ekki
notað tóbak í níutíu ár.
Eitt sinn er hann var tíu ára
gamall gætti hann systur sinnar
sem oftar en hún var þá á fyrsta
ári. Leiddist honum og ætlaði að
hressa sig með því að fá sér tób-
ak. Er skemmst frá því að segja
að sú reynsla hans af tóbaki nægði
honum til að hafa ekki áhuga á
að neyta þess upp frá því.
Einnig má vera, að sú stað-
reynd, að hvorki kaffi né áfengi
hafa freistáð Eggerts í hundrað
ár eigi þátt í því að hann er svo
hress sem raunin er - á aldaraf-
Fólk er alltaf
íGullnámunni:
73 milljónir
Vikuna 10. til 16. ágúst voru samtals 72.963.546 kr. greiddar
út í happdrættisvélum um allt land.
Þar bar hæst Gullpottinn en einnig voru greiddir út
veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öörum vinningum.
Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staöur Upphæð kr.
11. ágúst Háspenna, Hafnarstræti 311.040
14. ágúst Flughótel, Keflavík 279.106
14. ágúst Flughótel, Keflavík 76.223
14. ágúst Háspenna, Hafnarstræti 93.076
14. ágúst Rauöa Ijóniö 51.883
16. ágúst Kringlukráin 232.090
16. ágúst Kringlukráin 77.913
16. ágúst Háspenna, Laugavegi 54.715
Staða Gullpottsins 17. ágúst, kl. 10:00
var 3.018.050 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf 150.000 kr. og Gullpottarnir (2.000.000 kr.
og hækka sföan jafnt og þétt þar til þeir detta.
að vinna
Verðhrun á stökum númerum. kr. 3.000.
Sumarpils - buxur - blússur.
Nýjar haustvörur frá Daniel D.
TBSS
Opiö laugardag frá kl. 10-14.
- Verið velkomin -
neðst við
Dunhaga,
sími 562 2230
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
■C
1
A Útimarkaður
í Flash í dag
W ÞíL^CaX í/*As3£aA+4^ Kjólar 1.990 Peysur 2.990 Buxur 1.490 Pils 1.490 Bolir 1 stk. 990 Bolir 2 stk. 1.490
stinkorovn. j lash
Laugavegi 54, simi 552-5201
-1