Morgunblaðið - 18.08.1995, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Færan-
legar
kennslu-
stofur
Á FUNDI bæjarráðs Akureyrar
í gær var lögð fram greinargerð
frá félagsmálastjóra um skóla-
vistun í Bamaskóla Akureyrar
næsta skólaár og kostnaðaryf-
irlit um færanlegar kennslu-
stofur frá byggingadeild. Þá var
lögð fram ítrekun á afstöðu
skólanefndar.
Bæjarráð felur tæknideild að
meta þá valkosti er fyrir liggja
um smíði á lausum kennslustof-
um með tilvísun til umræðna
sem fram fóru á fundinum.
Hluta-
fjárútboð
Krossaness
STJÓRN Krossaness hf. hefur
samþykkt að auka hlutafé fé-
lagsins um 25 milljónir króna
og er hluthöfum boðinn for-
kaupsréttur í hlutfalli við hlut-
afjáreign þeirra í félaginu. Akur-
eyrarbær er langstærsti eigand-
inn en afgreiðslu málsins var
frestað á fundi bæjarráðs í gær.
Veðheimild
til Lindar
BYGGINGAFÉLAGIÐ Lind hf.
fór þess á léit við bæjarráð með
bréfi 14. ágúst sl. að félaginu
verði veitt veðheimild fyrir
framkvæmdalánum að upphæð
80 miiljónum króna sem hvíla
á eignarhlutum í Hafnarstræti
97 á undan veðskuldabréfum
Bæjarsjóðs útg. 13. nóvember
1991. Jafnframt verða afmáð
af nokkrum eignarhlutum veð
sem nú hafa forgang fyrir veð-
skuldabréfum Bæjarsjóðs.
Bæjarráð felur bæjarstjóra
að kynna afstöðu bæjarráðs til
erindisins.
Útför Jakobs
Frímanns-
sonar
JAKOB Frímannsson, heiðurs-
borgari Akureyrar og fyrrver-
andi bæjarfulltrúi, lést 8. ágúst
sl. 95 ára að aldri. Útför hans
er ákveðin þriðjudaginn 22.
ágúst og hefur bæjarráð sam-
þykkt að Akureyrarbær kosti
útförina í virðingarskyni við
hinn látna.
Föstudagsjazz
Hinn frábæri gítarleikari
Björa Thoroddsen
ásarat Jóni Rafnssyni
í léttri sveiflu frá kl. 10-01
Ath. Enginn aðgangseyrir.
Hljómsveitin
SAGA-KLASS
ásamt Berglindi Björk &
Reyni Guðmundssyni
leika fyrir dansi í kvöld.
Uíóteí ‘KE&
sími 462 2200.
AKUREYRI
Fjarkennsla fyrir 10. bekk-
inga á Bakkafirði í athugun
í GRUNNSKÓLANUM á Bakka-
fírði er enginn 10. bekkur frekar
en á mörgum smærri stöðum á
landinu. Reglur kveða á um að
nemendur skuli sækja skóla í sinni
heimabyggð en það hugtak er
teygjanlegt og oft um langan veg
að fara í næsta skóla. Heimavist-
arskólar á grunnskólastigi hafa
verið að lognast út af á síðustu
árum og margir foreldrar eru ekki
sáttir við að senda börn sín á fjar-
■lægar slóðir. Með stórauknum
tölvusamskiptum er hugsanlegt að
fjarkennsla sé lausn á þessum
vanda, a.m.k. í sumum tilvikum.
A Bakkafirði eru tveir 15 ára
nemendur í uppnámi, piltur og
stúlka sem eiga að fara í .10. bekk
í haust. Þau kæra sig lítt um að
flytja burt og skólastjóri grunn-
skólans leitaði til Gagnfræðaskóla
Akureyrar, sem er brautryðjandi
á sviði kennslu gegnum tölvur, til
að kanna möguleikann á því hvort
hægt væri að koma nemendunum
í fjarnám.
Baldvin Jóh. Bjarnason, skóla-
stjóri Gagnfræðaskóla Akureyrar,
sagði að málið hefði verið í athug-
un frá því í byijun júlí og auk
skólanna tveggja væru kennara-
ÁTÖK hafa blossað upp í bæjarpóli-
tíkinni á Dalvík og á fundi bæjar-
ráðs í gær var borin upp tillaga um
vantraust á Kristján Olafsson, for-
mann bæjarráðs. Tillagan var felld
með tveimur atkvæðum meirihlut-
ans gegn einu atkvæði flutnings-
manns minnihlutans.
Þrír fulltrúar sitja í bæjarráði.
Gunnar Aðalbjörnsson, fulltrúi D-
lista, bar upp tillöguna en meiri-
hlutafulltrúarnir á fundinum voru
Kristján Ólafsson af B-lista og
Bjarni Gunnarsson frá I-lista.
Gunnar krafði Kristján svara um
samtökin og menntamálaráðu-
neytið að skoða ýmsa anga þess
en niðurstaða lægi ekki fyrir. Það
meint vilyrði hans um fyrirgreiðslu
bæjarins til handa fyrirtæki á Dal-
vík, en fyrirtæki þetta á í ijárhags-
erfiðleikum.
Kristján kvaðst engin slík vilyrði
hafa gefið en Gunnar hafði heyrt
annað og í kjölfar snarpra orða-
skipta bar hann upp vantrauststil-
lögu á Kristján sem var umsvifa-
laust felld eins og áður segir.
Rögnvaldur Skíði Friðbjömsson,
bæjarstjóri Dalvíkur, vildi ekkert
láta hafa eftir sér um þetta mál í
gær. Hann staðfesti aðeins að tillaga
um vantraust hefði komið fram.
þyrfti hins vegar að gerast fljót-
lega því skólaárið væri að hefjast.
Gæti þjónað íslenskum
börnum erlendis
Fjarkennsla hefur verið í boði í
Verkmenntaskólanum á Akureyri
og að sögn Baldvins eru uppi
hugmyndir um svipað ferli í GA,
gegnum tölvu og mótald. Hér er
hins vegar um skólaskyldustig að
ræða og margt sem þarfnast
nánari skoðunar, t.d. hvernig
skilgreina á kennsluna og meta
hana til launa.
„Þetta er stórt og mikið mál og
endurspeglar ástandið á mörgum
smærri stöðum á landinu. Það er
reyndar ekki bundið við ísland því
með íjarkennslu gegnum tölvur
getum við allt eins kennt íslenskum
börnum erlendis á sama hátt og á
landsbyggðinni,“ sagði Baldvin.
Hann lagði áherslu á að málið
væri enn á skoðunarstigi en það
væri vissulega áhugavert og
niðurstaðan gæti lagt grunninn
að framtíðarstefnu í fjarkennslu á
grunnskólastigi.
Hiti í bæjarráði Dalvíkur
Vantrauststillaga á
formann felld 2:1
Lífdagamir
mislangir
NÚ STENDUR yfir á Akureyri óvenjuleg
skúlptúrsýning í tengslum við Listasumar
’95. Verk þessi má finna á nokkrum stöðum
í bænum og þau eru ekki öll varanleg. Sum
eru jafnvel með þeim hætti að þau grund-
vallast á þátttöku almennings.
Sýningunni er aðallega komið fyrir á
tveimur svæðum í bænum, Innbænum og í
nágrenni Grófargils. Hluti verkanna er í
Ketilhúsinu þar sem unnið var að gerð
nokkurraþeirra. Fimmtán listamenn eiga
verk á sýningunni, þau Anna Eyjólfsdóttir,
Brynhildur Þorgeirsdóttir, Finnur Arnar
Arnarson, Hallsteinn Sigurðsson, Helgi
Gíslason, Hlynur Hallsson, Hrefna Harðar-
dóttir, Inga Jónsdóttir, Kristinn Hrafnsson,
Ragnhildur Stefánsdóttir, Sólrún Guð-
björnsdóttir, Sólveig Baldursdóttir, Sólveig
Eggertsdóttir og Þór Vigfússon.
Að sögn Ólafar Sigurðardóttur, fram-
kvæmdastjóra Listasumars stóðu tvö verk-
anna stutt við. Appelsínutré Finns Arnar
Morgunblaðið/Berglind H. Helgadóttir
UMHVERFISVERKIÐ Ferð II er
staðsett fyrir ofan Nonnahús.
Arnarsonar í Grófargili var orðið tómlegt
eftir tæpan sólarhring en þá voru margir
búnir að gæða sér á ávöxtum þess. Sólveig
Eggertsdóttir sýndi verkið Allt flýtur og
var það fljótandi tijágarður á Pollinum.
Það sökk um síðir.
Almenningur tekur þátt
Eitt verkanna á sýningunni byggir á
þátttöku almennings. Það er verkið Ferð
II sem er staðsett fyrir ofan Nonnahús. Þar
eru í hvítum kassa plöntur og plöntustafur,
ofan á kassanum er bók og er fólk beðið
að skrifa nafn og heimilisfang í hana og
planta síðan einu tré. Haft verður samband
við alla þátttakendur síðar.
Höfundurinn Amia Eyjólfsdóttir hóf
umhverfisverkið Ferð II í Nýlistasafninu í
Reykjavík 13. maí sl. og tilheyrir 1121
birkiplanta verkinu. Þær þarf að gróður-
setja sem víðast um landið en fjöldinn
samsvarar árafjöldanum frá byggð íslands
874.
Skúlptúrsýningin mun standa fram yfir
afmæli Akureyrarkaupstaðar 29. ágúst og
er opið í Ketilhúsinu alla daga kl. 14-18.
Merkingar eru við öll verkin en hægt er
að nálgast kort í Deiglunni, Ketilhúsinu,
Minjasafninu og víðar til að rata á rétta
staði.
i
i
|
m
t
«
«
«
«
«