Morgunblaðið - 18.08.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1995 21
SVEINBJÖRN Blöndal
við eitt verkanna sem er
á sýningunni í Eden.
Landslag
í Eden
NÝLEGA opnaði Sveinbjörn
Blöndal listmálari sýningu á
landslagsmyndum í Eden í
Hveragerði. Myndirnar, sem
eru 12 talsins, eru allar unnar
með olíu eða akrýl á striga og
eru myndefnin sótt í íslenska
náttúru. Sveinbjöm stundaði
nám við Myndlista- og handíða-
skólann 1952-1953 undir hand-
leiðslu Sigurðar Sigurðssonar
og Sverris Haraldssönar m.a.
Hann hefur málað með hléum
síðan námi lauk en núna helgar
hann tíma sinn myndlistinni
eingöngu. „Þetta lá niðri hjá
mér i mörg ár en ég gat samt
aldrei hætt alveg,“ sagði Svein-
björn í spjalli við Morgunblaðið.
Hann hefur haldið einkasýn-
ingar og tekið þátt í mörgum
samsýningum. „Það er orðið
erfiðara að selja nú en var áð-
ur. Þá var ég ekki fyrr búinn
að opna sýninguna en að mynd-
irnar voru rifnar út eins og
heitar lummur."
Sveinbjörn segist einkum
fást við landslagið í myndum
sínum, en þó séu tvær myndir
á sýningunni sem eru spunnar
úr hans eigin ímyndunarafli.
„Maður er að reyna að fanga
þetta áður en það fýkur úr
hausnum," sagði Sveinbjöm að
endingu.
Sýningin sem er sölusýning
stendur til 27. ágúst.
Sólveig í
Þrastarlundi
SÓLVEIG Eggerz opnar sýn-
ingu í Þrastarlundi 20. ágúst á
vatnslitamyndum og olíumynd-
um á rekaviði. Sýningin stendur
í hálfan mánuð.
KENNARARNIR á flautu-
námskeiðinu í Skálholti, Trist-
an Cardew, Kristín Guðmunds-
dóttir og Maria Cederborg.
um. Kennararnir eru mjög góðir og
maður lærir það sem maður hefur
jafnvel aldrei heyrt eða séð áður,“
sagði Sigrún D. Jónsdóttir frá Vík.
„Þetta eru alls konar æfingar og leik-
fími sem er alveg nýtt fyrir flestar
okkar og mjög skemmtilegt,“ sagði
Kristbjörg Sóley Hauksdóttir frá
Reykjavík. „Við höfum strax tekið
miklum framförum og sjáum ekki
eftir því að hafa komið hingað á
þetta námskeið," sagði Unna Björg
Ógmundsdóttir frá Vík í Mýrdal.
Þær höfðu ekki svör á takteinum
þegar þær voru spurðar um það hvers
vegna strákar lærðu ekki á þver-
flautu en aftur á móti voru þær allar
samála um það að þverflautan væri
mjög skemmtilegt hljóðfæri sem
gæfi mjög fallega og fíngerða tóna.
Kennararnir sögðu stelpurnar fljótar
að ná saman í samleikshópunum
enda verulega áhugasamar. Það
þyrfti því ekki að kviða tónleikunum
á laugardag.
Leirlistamenn frá Danmörku
LAUGARDAGINN 19. ágúst kl. 15 verður opnuð
í sýningarsölum Norræna hússins sýning á leirlist
eftir dönsku leirlistamennina Bente Hansen, Karen
Bennicke og Peder Rasmussen.
Sýningin kemur hingað frá Listiðnaðarsafninu
í Kaupmannahöfn. Vakti hún mikla athygli þar
og skrifuðu listgagnrýnendur mjög jákvæða um-
sögn um sýninguna.
Bente Hansen
Bente Hansen stundaði nám við Danmarks
Designskole 1960-64. Á árunum 1964-1970
starfaði hún hjá Bing & Grondahl postulínsverk-
smiðjunni og 1978-82 hjá Konunglegu postulíns-
verksmiðjunni. Bente Hansen hefur rekið eigin
vinnustofu frá 1968 og kennir jafnframt við Dan-
marks Designskole. Hún hefur tekið þátt í samsýn-
ingum víða um heim og haldið einkasýningar.
Bente
Hansen
Peder
Rasmussen
Verk hennár eru í eigu margra listasafna og stofn-
ana, og hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar
og styrki. Bente Hansen sýndi verk sín ásamt
gullsmiðnum Jan Lohman í Norræna húsinu á
Listahátíð 1992.
Karen Bennicke
Karen Bennicke (f. 1943) lærði hjá ýmsum
keramíkverkstæðum og hefur hún rekið vinnu-
stofu í samvinnu við Peder Rasmussen allt frá
1972.
Hún hefur tekið þátt í sýningum árinu 1972 á
Norðurlöndum og í Þýskalandi. Mörg listasöfn og
stofnanir hafa keypt verk hennar og hún hefur
hlotið margar viðurkenningar og styrki.
Peder Rasmussen
Peder Rasmussen (f. 1948) stundaði nám
1966-70 í Næstved, og í Flórens á Ítalíu 1970-71.
Hann hefur rekið eigin vinnustofu með Karen
Bennicke, en þau eru hjón. Ferill hans er svipaður
og hjá Bente og Karen, margar sýningar og viður-
kenningar.
HELGARTILBOÐ
Dagana 18. og 19. ágúst verða kynningar í öllum verslunum
Hagkaups á pasta- og pastaréttum. Kynnt verður Barilla pasta,
Uncle Ben's pastasósur, fersk Myllu hvítlauksbrauð, Heidelberg
salatsósur, íslenskt grænmeti, Búrfellsbeikon og gráðostasósu úr
rjóma- og gráðostum.
Barilla spaghetti og
Uncle Bens pastasósur
169 kr. pakkinn
Barilla pastakuðungar og
McCormic pastasósur
saman í pakka
99 kr. pakkinn
Heidelberg frönsk
hvítlaukssósa
99 kr. flaskan
Ip mm
Rjómaostur 400 g
198 kr. stykkið
Gráðostur 200 g
189 kr. stykkið
Fersk Myllu
hvítlauksbrauð
fín/gróf
149 kr. stykkið
Búrfells
beikonsneiðar
689 kr. kílóið
Nýtt greiBslukortatímabil
HAGKAUP
fyrir fjölskylduna