Morgunblaðið - 18.08.1995, Síða 16

Morgunblaðið - 18.08.1995, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Morgunblaðið/Árni St. Bjömsson ÞRJÚ skip á fjörum. Stálskipið á myndinni lengst til vinstri hefur verið dregið upp í fjöruna á Rifi og ryðgar þar niður. Það hefur víða farið og heitið mörgum nöfnum, síðast Árfari. Gissur hvíta rak upp í Vatnsfirði og er þar enn, eins og sést á myndinni í miðjunni og lengst til hægri sést skipsflak í fjörunni í Grundarfirði, engum til ánægju. Ryðga eða grotna á fjöram FJÖLDI ónýtra báta og stærri skipa liggur á fjörum um land allt. Bæði eru þetta skip sem lent hafa í óhöppum og rekið upp en í seinni tíð hefur það færst í vöxt að skip séu úrelt ogþeim lagt með þessum hætti. Mörg þessara skipa eiga sér merka sögu, að minnsta kosti fyrir þá sem átt hafa skipin eða verið í áhöfnum þeirra en sjaldnast eru þau augnayndi þar sem þau ryðga eða grotna niður í fjörum landsins. Ámi St. Björnsson sjó- maður á togaranum Vigra frá Reykjavík tekur gjarnan myndir af skipum þegar hann er á ferða- lögum um landið og hér með eru þrjú sýnishorn úr skipsflakasafni hans frá sumrinu. Að læra meira Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, 27. ágúst nk., fylgir blaðauki sem heitir Að læra meira. í þessum blaðauka verður fjallað um þá fjölbreyttu möguleika sem eru í boði fyrir þá sem vilja stunda einhvers konar nám í vetur. Efnisval verður fjölbreytt og sniðið að þörfum ungra sem aldinna. Fjallað verður jafnt um styttri námskeið sem Iengri námsbrautir. Þeim sem áhuga hafa á að auglýsa í þessum blaðauka, er bent á að tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mánudaginn 21. ágúst. Nánari upplýsingar veitir Dóra Guðný Sigurðardóttir, sölufulltrúi í auglýsingadeild, í síma 569 1171 eða með símbréfi 569 1110. -kjarni málsins! MIKIÐ var um handarmeiðsl í aflahrotunni í Smugunni í fyrra enda þurfti að vinna mikinn afla á stuttum tíma. Þórshöfn „TiIsTós og lands“ TIL SJÓS og lands, ljós- myndasýning fréttaritara Morgunblaðsins, verður opn- uð í kvöld á veitingastofunni Hafnarbarnum á Þórshöfn. Þar verða myndirnar til 27. ágúst. Myndirnar á sýningunni eru verðlaunamyndir úr ljós- myndasamkeppni Okkar manna, félags fréttaritara Morgunblaðsins. Hafa þær verið á ferð milli staða á landsbyggðinni undanfarna mánuði, síðast á Café Karol- ínu á Akureyri. Myndirnar eru íjölbreyttar að efni, meðal annars af vett- vangi frétta og fólks í leik og starfí. Nokkrar myndir tengj- ast sjósókn og sú mynd sem valin var besta mynd keppn- innar er af áhöfn bandarísku björgunarþyrlanna sem björg- uðu skipverjum af Goðanum í Vöðlavík. Sömu störf á öðrum vettvangi Sigurpáll Scheving læknir fer með Óðni í Smuguna „ÞETTA er auðvitað allt annar vettvangur en störfin eru þau sömu,“ segir Sigurpáll Scheving læknir sem fer með varðskipinu Óðni til starfa fyrir íslenska sjó- menn í Smugunni í Barentshafi. Brottför Óðins hefur verið frestað um einn dag, skipið fer klukkan 10 í fyrramálið. Sigurpáll hefur að undanförnu unnið á gjörgæsludeild Borgarspít- alans og hyggur á framhaldsnám í haust. Hann segist hafa ákveðið að slá til þegar það var orðað við hann að fara í Smuguna, hann hefði verið á milli starfa. Svo þekki hann margt starfsfólk hjá Land- helgisgæslunni í gegn um störf sín sem læknir á þyrlu Gæslunnar. Forsetaherbergi breytt í sjúkrahús Að undanförnu hefur verið unn- ið að lagfæringum á sjúkraher- bergi Óðins og búnaði í ljósi reynsl- unnar frá Smuguferð skipsins fyr- ir ári. Sigurpáll segir að auk þess væri verið að gera herbergið inn af sjúkrastofunni, sem nefnt er forsetaherbergið, að litlu sjúkra- húsi. Þar mætti hafa veikt fólk sem þyrfti að vera undir handaijaðri læknis eða sjúklinga sem skipið þyrfti að flytja. „Ég held að aðstað- an sé mjög góð. Það er komin ákveðin reynsla á þetta og búið að laga hlutina í ljósi hennar,“ segir Sigurpáll. Við undirbúning sinn segist hann njóta reynslu Sigurðar Krist- inssonar sem var „héraðslæknir í Smugulæknishéraði" í fyrri ferð Óðins. Hann segir að störfin í Smugunni séu mikið til þau sömu og hann þekki frá slysadeild Borg- arspítalans, mikið væri um hand- arslys og svo almenn veikindi. Ekki hræddur við að verða sjóveikur Sigurpáll segist ekki hafa tök á því að vera í Smugunni nema í mánuð eða sex vikur. Ef útlit verði fyrir lengra úthald muni félagi hans úr þyrlulæknasveitinni leysa hann af síðustu vikurnar. Sigur- páll er Eyjamaður og segist ekki vera hræddur við sjóveikina. Hann hafi nokkuð farið á sjó og aldrei orðið sjóveikur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.