Morgunblaðið - 18.08.1995, Síða 20
I
20 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1995___________________________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Við slaghörpuna
TONLIST
Gcrðasafn
SÖNGVASTUND
Sólrún Bragadóttir sópransöng-
kona og Jónas Ingimundarson
píanóleikari spjölluðu um tónlist og
sungu islensk og erlend lög. Mið-
vikudagur 16. águst 1995
FYRIR daga óperunnar voru söng-
þættir ofast fluttir sem persónulegt
ávarp til gestgjafanna. Með óperunni
var lokað fyrir persónuieg tengsl á
milli áheyrenda og flytjenda, bæði
hvað varðar texta, sem ekki var leng-
ur beint til
ákveðinna persóna
meðal áheyrenda og
með afmörkuðu leik-
sviði og jafnvel
leiktjöldum. Þessi
skil á milli flytjenda
og áheyrenda hafa
síðan verið eins
konar helgidómur
uppfærslunnar, sem
á seinni árum hefur
verið reynt að ijúfa,
bæði í leikhúsi og
tónleikasölum og jafnvel mótað
kvikmyndagerð að einhveiju leyti.
Innrás listamanna inn I áheyr-
endasalinn á því rætur sínar í ein-
hvers konar fortíðarþrá, þar sem
flytjandinn er í heimsókn hjá vinum
sínum en kemur ekki fram sem
ókunnugur og fjarlægur gestur, er
aðeins þiggur klapp áður en hann
fer og myndbreytist í fjarlæga og
ópersónubundna minningu.
Söngvastundin „Við slaghörpuna"
hjá Sólrúnu og Jónasi var sambland
af konsert og samtali við áheyrend-
ur, sem þó lögðu ekki annað til en
klapp sitt. Gallinn við þessa aðferð
er sá, að tal flytjenda þarf að berast
vel og greinilega til áheyrenda og
því er kunnátta í taltækni nauðsyn-
leg, jafnvel þótt notast sé við raf-
mögnunartækni nútímans. Að þessu
leyti vantaði nokkuð á, bæði í styrk
og skýrleika í framburði, að talið
skilaði sér til allra áheyrenda. Þá
má geta þess að ef tónflutningur er
rofinn með tali, er hætta á að stíg-
andin falli, bæði í flutningi og fyrir
hlustendur.
Söngvastundin hófst á tveimur
lögum eftir Mendelssohn, Á vængj-
um söngsins og Við vögguna, falleg
tónverk, sem voru sérlega vel flutt
og sama má segja um aðra vöggu-
vísu, Hjá vöggunni, eftir Eyþór Stef-
ánsson, sem var skotið inn á milli
annarra tveggja laga eftir Mend-
elssohn, fyrst Neue Liebe, við þann
texta eftir Heine, sem Jónas Hall-
grímsson útlagði í ljóðinu Stóð ég
úti í tunglsljósi og síðan flutti Jónas
Ingimundarson Ljóð án orða, op.19,
nr. 1.
Þijú „smágerð" lög, en mikil lista-
verk, voru næstu Viðfangsefni lista-
mannanna, Auch Kleine Dinge, eftir
Wolf, Two little fiowers, eftir Ives
og Gruss, eftir Mendelssohn, sem er
vel þekkt hér á landi við textann
Vorið góða, grænt og hlýtt, eftir
Jónas Hallgrímsson. Þijú verk eftir
Franz Liszt, Einst
Wolltích Kranz og
síðan samlokurnar,
píanóverkið Ástar-
draumurinn og
frumgerð þess,
söngiagið 0 Lieb, so
lang du lieben
kannst, er voru síð-
ustu viðfangsefnin
fyrir hlé.
Eftir hlé fluttu
listamennimir tvö
lög við kvæði Davíðs
Stefánssonar, Söngur bláu nunn-
anna, það fyrra eftir Pál ísólfsson
og Karl 0. Runólfsson, þar næst lék
Jónas prelúdíuna Stúlkan með hörg-
ula hárið eftir Debussy en Sólrún
skaut að hlustendum Þér kæra sendi
kveðju, eftir Þórarin Guðmundsson.
Tvö næstu lög voru ef til vill nokkuð
utangátta, en það var smálag, Prom-
enade, eftir Gershwin og Youkali
eftir Weill en tónleikunum lauk með
Donde lieta, úr La Bohéme, eftir
Puccini.
Sólrún Bragadóttir er frábær
söngkona og var t.d. túlkun hennar
á ástarsöngnum eftir Liszt frábær
og sama má segja um Auch Kleine
Dinge, eftir Wolf og ekki síst á vor-
ljóðinu (Gruss) eftir Mendelssohn,
sem gaman hefði verið að heyra,
svona aukalega, með texta Jónasar.
Það þarf ekki að tíunda neitt frekar
um söng Sólrúnar annað en að í
Donde lieta, mátti heyra brot af því
sem hún hefur upp á bjóða sem
óperusöngkona, glæsilegan söng og
túlkun. Jónas lék margt mjög fal-
lega, sérstaklega í samleik við Sól-
rúnu, en einleiksatriðin voru því mið-
ur ekki í sama gæðaflokki og annað
á þessum annars skemmtiiegu tón-
leikum.
Jón Ásgeirsson
SÓLRÚN Bragadóttir sópran-
söngkona og Jónas Ingimund-
arson píanóleikari.
Ljósmynd/Eiður Snorri
HLJÓMSVEITIN Unun.
Listahátíð í Iðnó
Leikhús-
lög
INGVELDUR Ýr heldúr tón-
leika á Oháðu listahátíðinni í
Iðnó í kvöld föstudag 18.8. kl.
20.30. Tónleikamir bera yfir-
skriftina „Leikhúslög" og verða
flutt lög úr
ýmsum leik-
ritum bæði ís-
lenskum og
erlendum, t.d.
■úr „Húsi
skáldsins",
„Ég ergull og
gersemi", ka-
barettlög eftir
Ingveldur Ýr Hjálmar H.
Ragnarsson
og Gunnar Reyni Sveinsson, lög
úr söngleikjum og úr verkum
Bertholds Brecht við tónlist
Kurts Weill. Píanóleikari er
Bjami Jónatansson.
Ingveldur Ýr er fædd í
Reykjavík. Hún hóf söngnám í
Söngskólanum í Reykjavík, en
framhaldsnám stundaði hún í
Tónlistarskóla Vínarborgar.
Hún hefur haldið ljóðatónleika
bæði hérlendis og erlendis og
tekið þátt í óperuuppfærslum
víða í Mið-Evrópu. Ingveldur
er fastráðin við Óperuna í Lyon
í Frakklandi nk. vetur.
Bjami Jónatansson er starf-
andi orgel- og píanóleikari I
Reykjavík.
ÓHÁÐ listahátíð hefst í dag með
landvættagöngu, götuleikhátíð,
sem fer frá Skólavörðuholti og
Hlemmi að Ingólfstorgi þar sem
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri í Reykjavík,
setur hátíðina.
Þema göngunnar, sem
hefst kl. 14, tengist vætt-
um, þursum og öðrum
goðsagnaverum úr ís-
lenskri þjóðtrú. Gangan
er tengd 209 ára afmæli
Reykjavíkurborgar og er
ætlunin að í framtiðinni
verði hátíðin ævinlega
tengd afmæiisdeginum.
Unnir hafa verið „land-
vættabúningar" og brúð-
ur í samstarfi við börn og ungl-
inga og vænst er almennrar þátt-
töku i göngunni.
Risatónleikar
Dagskrá hátiðarinnar verður
fjölskrúðug og má þar nefna
myndlistarsýningar, tónleika og
Ijóðalestur.
Kl. 16 í dag verða opnaðar
myndlistarsýningar á átta stöðum
í borginni og í kvöld kl. 20.30
verða tónleikar með sópransöng-
konunni Ingveldi Ýr í Iðnó sem
hefur verið gert að aðalmiðstöð
hátiðarinnar og fer þar fram stór
hluti dagskráratriða.
Á morgun verða risatónleikar á
Ingólfstorgi með þátttöku hljóm-
sveitanna Ununar, Olympíu og
Kolrössu krókríðandi ásamt fleir-
um. Sunnudaginn 20. ágúst verður
bókmennta- og tónlistar-
kvöld þar sem fram koma
Einar Már Guðmundsson
og Þórarinn Torfason og
flutt verður tónlist eftir
Áskel Másson m.a.
Kóngur rís
Miðvikudaginn 23. ág-
úst verður dagskrá sem
kölluð er Kóngur ris sem
er karlakvöld með tón-
verkum og bókmenntum.
Þar flytja m.a. Bragi ÓI-
afsson og Sindri Freysson efni
eftir sig auk þess sem dúettinn
Súkkat flytur tónlist. Sunnudag-
inn þar á eftir er Ijóða- og tónlist-
arkvöld þar sem fram koma Gerð-
ur Kristný, Didda og Margrét
Ornólfs ásamt fleirum. Mánudag-
inn 28. ágúst verða píanótónleikar
Helgru Bryndisar Magnúsdóttur,
þriðjudaginn 29. ágúst leikur Lár-
us H. Grímsson ásamt fleirum á
tónleikum. Miðvikudaginn 30. ág-
úst leikur pianóleikarinn Snorri
Sigfús Birgisson og laugardaginn
2. september verða tónleikar gít-
arieikarans Kristins H. Árnason-
ar.
Lárus H. Gríms-
son tónskáld.
mmmljtiL \z WjjSg S ■' §f!l
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
BERGLIND Dögg Bragadóttir, Halldóra G. Steinþórsdóttir, Krist-
björg Sóley Hauksdóttir, Sigrún D. Jónsdóttir, Unna Björg Ög-
mundsdóttir og Ingibjörg Gunnarsdóttir.
Námskeið fyrir unga flautuleikara í Skálholti
Að finna hinn rétta tón
Selfossi. Morgunblaðið.
HÓPUR ungra flautuleikara hefur
einbeitt sér að fiautuleik á námskeið-
um í Skálholti þar sem kennd eru
meðal annars veigamikil atriði varð-
andi tækni við að ná rétta tóninum
úr hljóðfærinu og hraða. Það eru
þrir kennarar í flautuleik sem standa
fyrir námskeiðinu, María Cederborg,
Kristín Guðmundsdóttir og Tristan
Cardew.
„Við kennum þeim hvernig þau
geta haldið áfram að þjálfa sig sjálf
eftir því sem fyrir þau hefur verið
lagt,“ sagði María Cederborg. Um
er að ræða tvö námskeið sem standa
í viku hvort og lýkur með tónleikum
í Oddsstofu. Fyrsti námskeiðshópur-
inn hélt vel heppnaða tónleika síðast-
liðinn laugardag og síðari tónleikam-
ir verða næstkomandi laugardag
klukkan 15 og er aðgangur ókeypis.
Sérþjálfun er nauðsynleg
María Cederborg sagði að sig hefði
alltaf langað til að halda námskeið
sem þessi því það væri nauðsynlegt
fyrir flautuleikara að fá sérþjálfun á
hljóðfærið og kynnast þeirri tækni
sem hægt væri að beita við hljóð-
færaleikinn til þess að öðlast meiri
færni. Á svona námskeiði væri mikið
spilað og nemendurnir kynntust inn-
byrðis og fengju örvun hver frá öðr-
um sem hefði mikið að segja.
Kristín Guðmundsdóttir sagði að
sumar stúlkumar hefðu spilað meira
á einum degi en þær gerðu á heilum
vetri í tónlistarskólunum enda væru
þær allan daginn og fram á kvöld
að spila, einar og í samspili. Þær
Kristín og María voru sammála um
að sumarleyfið væri of langt fyrir
unga hljóðfærðaleikara ef ekkert
væri spilað yfir sumartímann. Það
væri nauðsynlegt að krakkar fengju
tækifæri til að æfa sig og það væri
kveikjan að þessu námskeiði í Skál-
holti. „Við gefum þeim undirstöðuna
fyrir veturinn varðandi tæknina,“
sagði Kristín.
Stúlkur spila meira á
þverflautu
Af einhveijum ástæðum eru það
stúlkur í miklum meirihluta sem
leggja fyrir sig þverflautuleik. Ekki
gátu stúlkumar sem vom á nám-
skeiðinu fundið neina ástæðu fyrir
því nema ef vera skyldi að strákum
fyndist stærri blásturshljóðfærin
hugsanlega eitthvað karlmannlegri.
Erlendis er það mjög algengt að
strákar leiki á þverflautu og Tristan
Cardew kennari er til dæmis ein-
göngu með drengi í sínum nemenda-
hópi þar sem hann kennir í París.
Stúlkumar á námskeiðinu voru
mjög ánægðar með dvölina, sögðu
kennarana frábæra og sumar höfðu
á orði að þær hefðu lært meira á
einum degi en þær hefðu gert á heil-
um vetri áður og voru greinilega vel
smitaðar af áhuga enda mátti heyra
flautuleik í hverju homi í sumarbúð-
unum í Skálholti. „Það er rosalega
gaman að koma hingað og spila og
hafa félagsskap af öðrum," sagði
Erla Bjömsdóttir frá Siglufirði. Und-
ir þau orð tóku þær sem voru með
henni í samleikshópi, Ásgerður Ósk
Pétursdóttir Reykjavík og Védís
Guðmundsdóttir, Vestmannaeyjum.
„Það er gaman að hitta aðra sem
hafa sama áhugamál og við spilum
mjög mikið. Mér finnst flautan mjög
skemmtileg og gaman að spila með
öðrum,“ sagði Védís. „Við lærum
mjög mikið og kynnumst ýmsum
atriðum um það hvernig á að æfa
lögin og hvernig tökum maður á að
taka sig við æfingarnar,“ sagði Ás-
gerður Ósk.
Höfum strax tekið framförum
„Ég held ég hafi aldrei spilað jafn-
mikið. Maður vaknar við flautuleik
á morgnana og svo spilum við fram
á kvöld," sagði Berglind Dögg
Bragadóttir frá Kópavogi. Aðrar í
samleikshópnum tóku undir það. „Á
milli þess sem við erum í einka- og
hóptímun erum við að æfa okkur,“
sagði Halldóra G. Steindórsdóttir frá
Hveragerði. „Það er af nógu að taka
við að æfa og svo kynnumst við öðr-