Morgunblaðið - 12.09.1995, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 12.09.1995, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Irskt-íslenskt samstarf á listasviðinu Refir o g molotov- kokteilar ÍRSKIR listamenn sýna ■ í fjórum sýningarsölum hér á landi um þess- ar mundir, í Deiglunni á Akureyri, Gerðarsafni í Kópavogi og Galleríi Birgis Andréssonar og veitingahús- inu Café List í Reykjavík. Blaðamaður hitti þrjá úr hópnum, Amöndu Dunsmore, Aisling O’Beim og Sean Taylor, að máli nýlega en alls eru í hópnum sjö listamenn. Fyrir tveimur árum fékk Amanda áhuga á að koma á samstarfi milli íslands og írlands á listasviðinu og sendi flestum galleríum og söfnum á iandinu bréf í þeim tilgangi. Það leiddi til þess að Hannes Lámsson myndlistarmaður og þáverandi stjórnandi sýningarsalarins Einn- Einn á Skólavörðustíg hafði sam- band og þau skrifuðust á í nokkurn tíma. Hann útvegaði henni aðstöðu í Nýlistasafninu til að halda fyrir- lestur og sýna skyggnur af eigin verkum og annarra írskra lista- manna. í framhaldi af þessu ákváðu þau að skipuleggja samstarf lista- manna beggja þjóðanna og valdi Amanda 20 manna hóp írskra lista- manna og úr þeim valdi Hannes svo þá sjö sem hingað em komnir. Grátmúrinn Deiglan á Akureyri var fyrsti viðkomustaður gestanna þar sem þau sýndu ásamt íslenskum lista- mönnum og framkvæmdu þau Amanda, Sean og Aisling gerning. „Þetta var sex tíma gerningur sem við kölluðum grátmúrinn. Fólk kom og fór, fáir voru allan tímann. Þetta' stóð svo lengi og krafðist svo mik- ils af okkur að við höfðum eiginlega ekki rænu á að taka eftir viðbrögð- um áhorfenda en verkið var í sjálfu sér mjög einfalt. Við skrifuðum sitt- hvora íslensku setninguna á veggi sýningarsalarins með bláum og bleikum litkrítum, eins og krakkar sem hafa verið látnir sitja eftir til að fylla skólatöflu af iðrunarorðum í refsingarskyni, og þöktum alla veggi með þeim. Aðspurð sögðu þau að hefð væri fyrir löngum gerningum á Irlandi og gætti þar áhrifa Alistair Mclenn- an sem er einn þekktasti listamaður írlands og hefur kennt mikið við listaskólann í Belfast á írlandi þar sem þau hafa flest verið við nám í lengri eða skemmri tíma. „Hans gerningar geta tekið allt að 72 tíma og eru oft geysilega ljóðrænir og fallegir," sögðu þau. Svört kímni Þau sögðu hópinn ekki hafa þekkst fyrir þessa heimsókn en öll tengjast þau í gegnum skólann í Belfast og sameiginlega vini. Með þessari íslandsheimsókn er boltinn farinn að rúlla að þeirra sögn og þau sögðust ekki vera í nokkrum vafa um að tengsl landanna ættu eftir að aukast, í kjölfar þessara sýninga, allavega myndu þau koma hingað aftur. Þjóðfélagslegur og pólitískur undirtónn er í verkum þeirra flestra og skapast það ósjálfrátt af um- hverfínu sem þau koma úr en eins og allir vita hefur Norður-írland og Belfast sérstaklega verið þekkt fyr- ir óeirðir og stríð milli kaþólikka og mótmælenda og ofbeldi er dag- legt brauð í landinu. írskir lista- menn fást mikið við þjóðfélagsleg mál og svört gamansemi er þá gjaman verkfærið. Þó eru þeir ekki endilega að vinna meðvitað upp úr ástandinu heldur frekar undir áhrif- LISTIR Morgunblaðið/Ásdís VERK Sean Taylors í Gallerí Birgir Andrésson, um af þvl. „Það er hræðileg klisja þegar erlendir listamenn koma til Belfast og fara að túlka stríðið eins og enginn hafi gert það áður. Það er svipuð klisja og að koma hingað til íslands og sjá bara landslagið sem efnivið í verk,“ sögðu þau, „vel á minnst þá er landslagið full- komið eins og það er og óþarfí að vera endalaust að skrumskæla það í listaverkum,“ bætti Aisling við. Sean og Aisling sýna i sýningar- sal Birgis Andréssonar. Aisling not- ar það sem virðist vera sakleysisleg búsáhöld til að varpa ljósi á félags- legar aðstæður og stjórnmála- ástand eins og líta má í sýningar- salnum, en þar hangir fjöldi mjólk- urflaskna í loftinu með ljósmyndum innan í. Skortur hefur verið á þess- um flöskum til langs tíma í Belfast vegna þess að úr þeim eru m.a. gerðar bensínsprengjur eða „mol- otov-kokteilar“ eins og þær kallast. Loðfeldir í ESB Sean er upptekinn af óréttlæti, kúgun og fasisma í heiminum og setur fram ádeilu á þessi mál í sín- um verkum. í sýningarsalnum hefur hann hengt refi, sem hefðarkonur skrýðast gjarnan um háls sér, í loft- ið og á áföstum miðum eru nöfn fórnarlamba fasistahópa í Evrópu auk upplýsinga um fórnarlömbin. Á einum veggnum er landakort þar sem hann hefur dregið útlínur ESB ríkja. „Refirnir, sem engin klæðist lengur vegna áróðurs gegn loð- feldanotkun, eru myndlíking fyrir minnihlutahópa sem verða fyrir of- beldi og óréttlæti og útlínur ESB ríkjanna dró ég því það er mín skoð- un að í uppbyggingu sé það ekkert annað en það sem Hitler stefndi alltaf að með sínu hernaðarbrölti í seinni heimsstyijöldinni," og hann bætti við, „fasistahreyfingar í heim- inum eru sífellt að eflast og það er mín trú að þær séu að skipu- leggja einhverskonar stríð og til- koma alnetsins hefur gert þeim auðveldara fyrir að hafa samskipti og ráða ráðum sínum landa á milli,“ sagði hann að lokum. Ánægður með samstarfið Hannes Lárusson, sem stóð fyrir komu listamannanna hingað til lands, sagði í samtali við blaðamann að kominn hefði verið tími á að samstarf tækist með löndunum á listasviðinu sem hefði ekki verið neitt fram að þessu, ekki einu sinni á bókmenntasviðinu. Hann sagði að í vor yrði heimsókn íranna end- urgoldin og 7 listamenn héðan færu utan og héldu sýningar innan svip- aðs ramma, þ.e. eina í opinberu sýningarrými (Gerðarsafn), eina í neðanjarðarsýningarsal (gallerí Birgir Andrésson), eina úti á lands- byggðinni (Deiglan) og eina á öldur- húsi (Café List). Hannesi fannst það kyndugt að fólki sem hefur raunverulegan áhuga á myndlist á íslandi virðist fara stöðugt fækkandi, „það var til dæmis broslegt í Gerðarsafni þar sem tvær sýningar voru opnaðar samtímis, ein uppi en önnur niðri, að margir listunnenda sem sótt hafí sýninguna á efri hæðinni hafi ekki treyst sér til að ganga niður tröppurnar og kynna sér sýningu Iranna á neðri hæðinni,“ sagði hann. Einnig sagði hann að svo virtist sem fólk sækti ekki lengur sýningar erlendra listamanna hér á landi eins og áður fyrr þegar al- menningur beið spenntur eftir að sjá hvað var að gerast hjá þeim og sagði það eiga við bæði um lista- menn sjálfa og almenning i landinu. Að lokum vildi hann að það kæmi fram að samstarfið hafi verið mjög ánægjulegt og írsku listamennirnir hafí verið einstaklega þægilegir í viðkynningu og skemmtilegir og hann hlakki til frekara samstarfs á næsta ári. Sýningin í Gerðarsafni stendur til 17. september en sýningarnar í Gallerí Birgir Andrésson og Café List standa út mánuðinn. Óvandað rými GÓLFFLÍSAR í Gerðubergi. MYNPLIST M c n n i n g a r m i ö s t ö ð i n Gcröuberg INNSETNING Hlynur Hallsson. Opið kl. 13-19 mánud. - fimmtud. og kl. 13-16 föstud. - sunnud. til 15. október. Aðgangur ókeypis. „HLUTLAUST rými er ekki til frekar en hlutlaus myndlist.“ Þannig tekur Hlynur Hallsson til orða í aðfaraorðum sínum um sýn- ingu sem hann hefur sett upp í sýningarplássi menningarmiðstöðv- arinnar Gerðubergs í Reykjavík. Þar hefur hann valið að taka þetta rými til endurvinnslu, ef svo má segja, fremur en að nýta það með hefðbundnari hætti til að setja utan- aðkomandi listmuni á vegg eðá gólf, líkt og gert er ráð fyrir á hefð- bundnari listsýningu. Hlynur er ungur myndlistamaður sem útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Islands 1993, og hélt síðan til frekara náms í Þýska- landi, þar sem hann er enn að. Hann hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum síðustu ár, hér á landi, í Þýskalandi og Hollandi, og einnig haldið nokkrar einkasýning- ar, þar sem sem endurvinnsla tíma og rýmis hefur verið áberandi þátt- ur í verkunum. Undirrituðum er minnistæð skemmtilega unnin inn- setning fyrir kaffihús, sem Hlynur setti upp á Akureyri á síðasta ári, en þar varð kaffíbollinn að eins konar lykli tíma og staða, sem lista- maðurinn hafði komið til á ákveðnu árabili. Þar markaði sýningin stað- inn og tímann með öruggum hætti. Hér hefur Hlynur hins vegar kosið að snúa þessu vjð og láta stað- inn ráða sýningunni og gera hana tímalausa. Hann hefur litið til gólf- flísanna Og einfaldlega ákveðið að varpa þeim á veggina - draga þannig athyglina að mest áberandi þætti staðarins með því að marg- falda hann og magna um allt rýmið. Hér er auðvitaö ekkert nýtt á ferðinni; sýningarrýmið sjálft hefur orðið listamönnum að yrkisefni um áratuga skeið, einkum undir merkj- um naumhyggju (minimalisma) af einu eða öðru tagi. Daniel Buren, sem var gestur okkar á Listahátíð fyrir nokkrum árum, var farinn að „sýna“ sýningarsali fyrir rúmum þremur áratugum, með því einu að mála einfaldar línur neðst á vegg- ina. Lucas Samaras var farinn að draga athyglina að gildi yfírborðs- ins í rýminu á sjöunda áratugnum, og gerði það með eftirminnilegum hætti þegar hann skapaði heil her- bergi með öllum húsbúnaði úr speglum einum saman. Carl Andre benti um svipað leyti á gildi endur- tekningarinnar í rýminu þegar hann lagði koparplötur á gólf og úr varð ópersónuiegur flötur sem hægt var að endurskapa hvar sem er og hve- nær sem er. Hér er því gengið á troðnum slóð- um. En til þess að endursköpun af þessu tagi verði eftirminnileg þarf hins vegar að vanda mun meir til hennar en hér hefur verið gert; gallarnir í framkvæmdinni eru of áberandi til að hugmyndin fái notið sín; í stað þess að ljósmynda margar flísar og festa eftirprentanir þeirra á veggina, virðist listamaðurinn aðeins hafa myndað eina og notar hana aftur og aftur um alla veggi; áralangur umgangur og slit hafa hins vegar skapað gólfflísunum sjálfstæð einkenni, sem með þessu móti eru virt að vettugi. Einnig stingur í augu að litur ljósmynd- anna er talsvert annar en gólfflís- anna og verður framkvæmdin næsta hjáræn fyrir vikið. Loks má nefna að þar sem rýmið er fremur opið, nær þessi innsetning ekki að loka sýningargestinn af með þeim hætti sem æskilegt væri til að til- finning hins lokaða rýmis nái að festa sig í huga hans; til þess er of auðvelt að snúa einfaldlega við og ganga út. Rýmið er og verður eflaust um langa hríð enn meðal vinsælustu viðfangsefna listamanna, þó ýms- um kunni að finnast sú áhersla nokkuð þröng. Sýningarýmið stend- ur þeim ávallt nærri sem umgjörð listarinnar, en listaverk sem miðast aðeins við þann ramma hljóta að falla til lengri tíma litið, þar sem óður til sýningarrýmisins er í raun ekkert annað en óður um umbúðir. Það er hitt, sem er innan ramm- ans, innan umbúðanna, sem hlýtur ávallt að vekja mestan áhuga. Eiríkur Þorláksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.