Morgunblaðið - 12.09.1995, Page 26

Morgunblaðið - 12.09.1995, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Darville hreinsuð af grun um ritstuld ÁSTRALSKI rithöfundurinn Helen Darville, sem komst í fréttirnar fyrir að segja rangt til um ætterni sitt til að vekja athygli á fyrstu bók sinni, hefur verið hreinsuð af grun um ritst- uld, að sögn útgefenda henrjar Allen & Unwin. Darville, sem unnið hafði til tveggja virtra bókmenntaverð- launa í heimalandi sínu fyrir fyrstu skáldsögu sína, „The Hand That signed the Paper“, reitti marga Ástrali til reiði er í ljós kom að hún var ekkí dóttir úkraínskra innflytjenda, Demid- enko að nafni, eins og hún hafði fullyrt. í fyrstu hugðist bóka- útgefandinn gefa bók Darville út undir hennar rétta nafni en þá komu fram ásakanir um ritst- uld. Var fullyrt að Darville hefði fengið „að láni“ málsgreinar úr þremur skáldsögum. Nú hefur útgefandi hennar sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að þessar ásakanir hafi ekki reynst á rökum reistar og að bókin verði til sölu í bóka- verslunum á allra næstu dögum. Sigurðar Nordals- fyrirlestur HARALDUR Bessason, fv. rekt- or Háskólans á Akureyri, flytur opinberan fyrirlestur í boði Stofnunar Sig- urðar Nordals í Norræna hús- inu á fæðingar- degi dr. Sig- urðar Nordals, fimmtudaginn 14. september 1995 kl. 17.15. Fyrirlestur- inn fjallar um kvæði Stephans G. Stephansson- ar um Skagafjörð og nefnist „Skagafjörður Stephans G.“ Haraldur Bessason var um árabil prófessor í íslensku við Manitobaháskóla í Winnipeg í Kanada og sat þá meðal annars í ritstjórn The Icelandic Cana- dian Magazine og ritstýrði Lög- bergi-Heimskringlu. Hann er heiðursdoktor við Manitobahá- skóla, heiðursfélagi Þjóðrækn- isfélags Islendinga í Vesturheimi og heiðursborgari Winnipeg- borgar. Haraldur var rektor Háskólans á Akureyri frá upp- hafi skólans til 1994. Hann hef- ur haldið fjölda fyrirlestra við innlendar og erlendar mennta- stofnanir og skrifað margar greinar um íslensk og vestur- íslensk fræði. Málverk og graf- ík í Kirkjuhvoli ELÍAS B. Halldórsson myndlist- armaður opnaði sýningu á mál- verkum og grafík í listasetrinu Kirkjuhvoli á Akranesi nú nýverið. Á þessari sýn- ingu er fjöldi verka. „Flest þeirra eru í smærri kant- inum og fíg- úratíf; land, fólk og hús handa fólkinu í landinu. Einnig eru lífverur sem ekki búa í hús- um með í þessari sýningu," seg- ir í kynningu. Elías er fæddur í Borgarfirði eystra 1930. Hann stundaði list- nám í Reykjavík, Stuttgart og Kaupmannahöfn. Elías hefur haldið íjölda einkasýninga og auk þess verið þátttakandi í mörgum samsýningum. Sýning- in stendur til 24. september. LISTIR MYNDLIST Listasafn Sigurjöns Ólafssonar TEXTÍ LVERK Grete Borgersrud. Opið kl. 20-22 mánud. - fímmtud. og kl. 14-18 um helgar til 17. september. Aðgangur ókeypis ÞEIR miðlar sem myndlistafólk fæst við eru að mörgu leyti ólíkir, þó tilgangur þeirra sé ætíð hinn sami - að koma myndsýn höfunda til skila til annarra með áþreifanleg- um og sýnilegum hætti. Þeir sem vinna í textíl eiga margra kosta völ við að koma sínu myndefni til skila, og mismunandi vinnuaðferðir hafa átt sinn þátt í því að þessi miðill er í senn meðal hinna fjölbreyttustu í myndlistinni um leið og hann stend- ur oft nær fólki en margir aðrir miðiar. Útsaumuð teppi, þrykkt efni í dúkum og skrautmyndum, sem og listvefnaður af ýmsu tagi er nánast hluti af lífi hverrar einustu fjöl- skyldu, og oftar en ekki hafa hefðir á þessu sviði gengið í arf á milli kynslóða. Þessi nálægð listgreinarinnar - sem og sú staðreynd að hún hefur til nokkuð langs tíma nær eingöngu verið stunduð af konum - hefur ef til vill átt sinn þátt í að hún hefur ekki notið þeirrar virðingar sem vert væri. Þó hefur mikið breyst á því sviði undanfarna áratugi; listvefnað- ur nýtur nú verðskuldaðrar athygli sem listgrein, og bútasaumur og útskurðarsaumur (application) hafa sótt mikið á á síðustu áratugi. í því sambandi má einkum vísa til Banda- ríkjanna, þar sem fornar hefðir frumbyggja og ákveðinna hópa inn- flytjenda hafa átt stóran þátt í að Ljóðasafn Davíðs Stefánssonar Fínleiki saumsins ráða nokkru um þessa niðurstöðu, og ætla má að átakameiri myndefni gæfu ef til vill fyllri mynd af hæfi- leikum listakonúnnar, sem hefur náð góðum tökum á þessum þakkláta miðli. Eiríkur Þorláksson skapa þessum vinnuaðferðum sess sem sjálfstæðum listgreinum. Norska listakonan Grete Borg- ersrud hóf sinn feril í textíl með því að leita í hefðirnar, þar sem hún hreifst þegar af þeirri vinnuaðferð, sem kennd er við útskurðarsaum (application), en þá eru m.a. notuð ólík efni til að sauma form og línur á einn og sama grunninn, og þannig byggð upp heild líkt og í klippimynd eða málverki. Grete er að mestu sjálflærð á þessu sviði, og hefur m.a. dvalið hér á landi til að kynna sér íslenskan glitsaum í Þjóðminja- safninu; hún hefur tekið þátt í sam- sýningum frá 1985 og einnig haldið nokkrar einkasýningar, en þetta mun í fyrsta sinn sem hún sýnir verk sín utan Noregs. Grete sýnir hér rúmiega tuttugu verk, flest unnin með útskurðarsaum eða glitsaum. Má segja að helsta einkenni þessara verka sé sá fín- leiki, sem kemur fram í úrvinnslunni og áferð þeirra efna, sem hún velur að nota í verkum sínum. Litaval lis- takonunnar er hér einnig markvisst, og helgast öðru fremur af daufum litbrigðum náttúrunnar, sem þó geta verið svo ríkuleg í fjölbreytni sinni. Meðal verka listakonunnar er að finna nokkra flokka mynda, sem vinna saman. Þannig eru „Verk í hvítu“ (nr. 6-8) líkt og þrískipt alt- aristafla, sem endurómar í dumb- rauðum litum verksins á veggnum Morgunblaðið/Árni Helgason HÓLMFRÍÐUR Hildimundar- dóttír. Á innfeldu myndinni má sjá platta sem hún er að vinna að í tilefni af 50 ára af- mæli ÚA. ganga frá þeim. Það er mikið verk að sjóða skelina og svo lakka á eftir. Ég gat svo límt þetta og sett saman, bæði í skraut á kassa og ýmislegt, búið til báta og skreytt þá og eins útbúið ýmsa skrautmuni til að hengja á veggi eða láta standa á borði,“ sagði Hólmfríður. „Nú var ég beðin um að útbúa einn svona stóranplatta í tilefni af 50 ára afmæli Útgerðarfélags Akureyrar og hefi ég verið að því nú undanfarið og svosetti ég með smá bobbum stafina ÚA 50 ára. Jú, ég hef gert mér þetta til dundurs í ellinni, en ég verð 84 ára í nóvember nk. þann 11. Ég hef gert mikið fyrir sérstök afmæli og til hátiðargjafa. Eg hafði góða aðstöðu áður en nú eftir að ég fékk þessa Iitlu íbúð á vegum aldraðra hér, hefir verið erfiðara að hafa þetta eins og ég vildi.“ Hólmfríður er Hólmari og hefir alið hér allan sinn aldur. Hún er dóftir Ingibjargar Jónasdóttur frá Helgafelli og Hildimundar Björns- sonar sem hér var lengi vegaverk- stjóri, var gift Gesti Bjarnasyni vélvirkja, og bjuggu þau allan sinn búskap í Stykkishóhni. Gestur er látinn fyrir nokkrum árum. Talar beint til hjartans Á ÞESSU ári er öld liðin frá fæð- ingu Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. í tilefni þess hefur Vaka-Helgafell gefið út ljóðasafn skáldsinsí fjórum bindum. í safninu eru prentaðar all- ar tíu bækur Davíðs, allt frá fyrstu bókinni Svörtum fjöðrum Stefánsson sem kom út árið 1919 til Síðustu ljóða en sú bók var gefin út að honum látnum árið 1966. Safnið kemur út í fjögurra binda gjafa- öskju, samtals rúmlega eitt þús- und blaðsíður. Gunnar Ste'fánsson bókmennta- fræðingur ritar inngang að safn- inu og segir þar m.a.: „Skáldskap- ur Davíðs talar beint til hjartans, þess vegna mun hann lifa. Hann túlkar vafningalaust hið frumlæga lífsyndi, gleðina að vera til.“ Taktu lagið og Stakka- skipti NÚ eru að hefjast aftur sýningar á Taktu lagið, Lóa! og Stakka- skiptum í Þjóðleikhúsinu. Fyrsta sýning haustsins á Taktu lagið, Lóa! verður föstudaginn 15. september. Þetta er breskur gam- anleikur sem sýndur var við mikl- ar vinsældir á síðastliðnu leikári. Hinn 29. september verður fyrsta sýning haustsins á Stakka- skiptum, sem er nýtt íslenskt leik- rit, verk um nútímafólk í nútíma- samfélagi. andspænis (nr. 3); í báðum þessum heildum eru tilbrigði áferðarinnar ekki síðri þáttur en litanna. I mynd- um árstíðanna (nr. 19-22) hefur Grete hins vegar vegar kosið að nota sömu myndbygginguna, eins konar hring ársins, en breyta litaval- inu í samræmi við einkenni hvers tíma. Glitsaumuð verk mynda einnig ákveðna heild, þar sem m.a. er leitað til fornra norrænna munstra eftir fyrirmyndum. Stök verk standa einnig fyrir sínu, og þar njóta fínleg vinnubrögð listakonunnar sín ef til vill einna best. „Óveður" (nr. 18) er vel byggt verk, og hið sama má segja um „Tangrím/kínversk þraut“ (nr. 11), þar sem hringformið er notað á skemmtilegan hátt. Það er ljóst að hér er á ferð- inni næm listakona, sem kann vel til verka í sínum miðli. Þrátt fyrir fínleg vinnubrögð er hins vegar eins og vanti frekari slagkraft í þau verk, sem hún sýnir hér, til að gera sýninguna eftirminnilega; fín- leikann má auðveldlega einn- ig skilgreina sem deyfð. Samanburðurinn við kröft- ugar _ höggmyndir Sigur- jóns Ólafssonar kann að GRETE Borgersrud Sorgarljóð. Vinnur listmuni úr skeljum Stykkishólmi - Hólmfríður Hildi- mundardóttir hefur undanfarin ár verið dugleg að vinna sérstaka listmuni úr skeljum og eru þessi verk mikil að vöxtum, og sérstak- lega listræn og ótrúlegt hvernig hún hefir gætt skeljarnar miklum Ijóma í augum þeirra sem sjá verk- in hennar. Nú undanfarið hefir hún verið að vinna að sérstaklega skemmtilegum „plöttum" í tilefni af fimmtíu ára afmæli Útgerðarfé- lags Akureyrar. Fréttaritara þótti tilvalið að heimsækja Hólmfríði að þessu tilefni og eiga stutt sam- tal við hana. „Skelvinnsla hófst hér í Stykk- ishólmi árið 1970 og þá fékk ég áhuga fyrir því að vinna eitthvað úr þessum skeljum sem annars fara hér forgörðum. Hóf ég þegar að fara út á haugana þar sem skeljarnar voru látnar og velja úr þeim allskonar tegundir. Síðan varð ég að þvo þær skeljar vel sem ég ætlaði að hafa í þessum verk- efnum og setja í klór á eftir. Þetta gekk vel, en var mikil vinna í að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.