Morgunblaðið - 12.09.1995, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUtpCENTRUMAS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
100% hækkun korta
aidraðra og unglinga
Einstaklingsfargjöld hækka um 20%
MEIRIHILUTI stjómar Strætis-
vagna Reykjavíkur hefur samþykkt
tillögu um hækkun fargjalda frá og
með 1. október. Kort með 20 miðum
fyrir aldraða og unglinga hækka um
100%, en einstök fargjöld fullorðinna
hækka úr 100 krónum í 120 krónur
eða um 20%. Minnihluti sjálfstæðis-
manna í stjóminni greiddi atkvæði
gegn hækkuninni.
Að sögn Lilju Ólafsdóttur, fram-
kvæmdastjóra SVR, hækka tíu
miða farmiðaspjöld fullorðinna úr
900 krónum í 1.000 krónur eða um
'~”~11%. Kort með 20 miðum fyrir aldr-
aða hækka úr 500 krónum í 1.000
krónur en farmiðaspjöld öryrkja
verða óbreytt og kosta áfram 500
krónur. Græna kortið hækkar úr
2.900 krónum í 3.400 krónur eða
um 17%.
Yngri en sex ára fá ókeypis
Fargjald unglinga hækkar úr 50
krónum í 60 krónur eða um 20%
og farmiðaspjöld með 20 miðum
hækka úr 500 krónum í 1.000 krón-
ur eða um 100%. Fargjöld barna
verða óbreytt eða 25 krónur stað-
greiddar en kort með 22 miðum
kostar 300 krónur. Barnagjald er
miðað við fjögurra ára aldur en
eftir 1. október verður miðað við
sex ára aldur. Börn innan sex ára
greiða eftir þann tíma ekki fargjald
ef þau eru í fylgd með fullorðnum.
Tillagan verður lögð fyrir borgar-
ráð til samþykktar.
Tillaga um hækkun fargjalda SVR
Fjallkóngur
framtíð-
arinnar
ÞEGAR brekkurnar verða bláar
af beijum, börnin byrja í skólan-
um og lömbin koma af fjalli,
þá er sumarið liðið og komið
haust. Fyrstu réttir haustsins
voru um helgina. Á þessari
mynd, sem tekin var í Hlíðar-
rétt í Mývatnssveit, er hann
Kristinn Björn Sigfússon, verð-
andi fjallkóngur, með vænan
dilk.
Ráðherrar fá greiðslu
fyrir starfskostnað
RÁÐHERRAR og forseti Alþingis eiga, eins og aðrir þingmenn, rétt
á fjörutíu þúsund króna greiðslu frá Alþingi vegna starfskostnaðar.
Þá eiga ráðherrar, sem eru jafnframt alþingismenn kjördæmis utan
Reykjavíkur og Reykjaness, rétt á allt að 53 þúsund krónum í dvalar-
kostnað og 40% álagi á þá greiðslu, eða tuttugu og eitt þúsund krón-
ur, haldi þeir bæði heimili í kjördæmi sínu og í Reykjavík.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Þessar upphæðir voru ákveðnar
af forsætisnefnd Alþingis í síðustu
viku og eru skattfrjálsar sam-
kvæmt lögum um þingfararkaup
og þingfararkostnað sem Alþingi
samþykkti í vor.
Ráðherrar og þingforseti eiga
hins vegar ekki rétt á fastri
greiðslu vegna ferðakostnaðar í
næsta nágrenni heimilis eins og
aðrir alþingismenn. Að sögn Ólafs
G. Einarssonar, forseta Alþingis,
hafa þessir aðilar bíla til afnota
og því gilda reglur um greiðslur
vegna fasts ferðakostnaðar ekki
um þá.
Álþingi greiðir hins vegar, að
sögn Óiafs, kostnað við ferðir ráð-
herra ef þær tengjast þingmanns-
starfinu en ella eru ferðir ráðherra
greiddar af viðkomandi ráðuneyt-
um.
Ólafur sagði að samkvæmt eldri
reglum hafi ráðherrar, eins og
aðrir þingmenn, fengið greiddan
húsnæðis- og dvalarkostnað sem
var að hámarki 42 þúsund krónur
ef þeir áttu lögheimili í kjördæmi
utan höfuðborgarsvæðisins. Þá
áttu þeir, eins og aðrir þingmenn,
rétt á greiðslu á fæðispeningum
ef þeir voru þingmenn landsbyggð-
arkjördæmis. Þessir fæðispening-
ar, sem nú hafa verið felldir nið-
ur, námu þijátíu þúsund krónum
til landsbyggðarþingmanna með
lögheimili úti á landi en fimmtán
þúsund krónum tii þingmanna með
lögheimili í Reykjavík.
Raunlaun 626 þúsund
Samkvæmt kjaradómi, sem
kveðinn var upp sl. föstudag, er
þingfararkaup alþingismanna 195
þúsund krónur og ráðherralaun
350 þúsund krónur.
Gylfi Arnbjörnsson, hagfræð-
ingur ASÍ, segir að miðað við
niðurstöður tryggingafræðilegrar
úttektar á lífeyrissjóði ráðherra
og alþingismanna um að iðgjalda-
þörf fyrrnefnda sjóðsins sé 85%
af tekjum og hins síðarnefnda 50%
samsvari laun og lífeyrisréttindi
ráðherra 626.500 króna mánaðar-
launum og þingfararkaup og líf-
eyrisréttindi alþingismanna svari
til 280.800 króna á mánuði.
■ Kjör æðstu sfjórnenda/30
■ í réttunum/4
Morgunblaðið/Sigfús
Þór kom
með Sædísi
til hafnar
Vestmannaeyjum. Morgnnblaðið.
Björgunarbáturinn Þór frá Vest-
mannaeyjum sótti í gær Sædísi
ÁR 9 suður fyrir Vestmannaeyjar
en báturinn var þar vélarvana og
leki var kominn að honum. Þór kom
með Sædísi til hafnar í Eyjum síð-
degis í gær og gekk ferðin ágæt-
lega að sögn Reynis Jóhannesson-
ar, skipstjóra á Þór.
Óskað var eftir aðstoð Þórs um
klukkan sex í gærmorgun. Sædís
var þá stödd um 35 sjómílur suð-
suðaustur af Vestmannaeyjum og
var báturinn vélarvana auk þess
sem leki var kominn að honum. Þór
hélt strax af stað til Sædísar og tók
bátinn í tog auk þess sem dælum
var komið um borð í Sædísi til að
lensa bátinn. Reynir sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að þegar Þór
hefði komið að Sædísi hefðu skip-
veijar þar verið búnir að setja upþ
segl á bátinn en þeir munu hafa
ætlað að reyna að sigla til lands á
seglunum en hætt síðan við það og
óskað eftir aðstoð Þórs.
Þrír skipveijar voru á Sædísi,
sem er 34 tonna trébátur, smíðað-
ur 1949. Báturinn hafði verið úrelt-
ur og mun hafa verið á leið til
Portúgal, en þangað hafði hann
verið seldur.
Friðrik
fómaði
tveimur
mönnum
HANNES Hlífar Stefánsson
náði forystunni í 8. umferð
Friðriksmótsins í gærkvöldi
þegar hann lagði Helga Áss
Grétarsson að velli meðan
Margeir Pétursson, sem deildi
fyrsta sætinu með Hannesi
Hlífari, gerði jafntefli við
Helga Ólafsson.
Jón L. Árnasonar vann
Bent Larsen í 25 leikjum.
Friðrik Ólafsson tefldi stíft
til vinnings gegn Sofiu Polg-
ar; fórnaði fyrst manni, síðan
skiptamun og loks öðrum
manni, en sóknin nægði að-
eins til jafnteflis. Gligoric tap-
aði sinni fyrstu skák fyrir
Jóhanni Hjartarsyni og
Smyslov vann Þröst Þórhalls-
son.
Hannes efstur
Staðan eftir 8 umferðir er
að Hannes er með 6 vinn-
inga, Margeir með 5‘A og
Jóhann, Jón L. og Sofia Polg-
ar eru með 4‘A. Níunda um-
ferð hefst kl. 17 í dag. Þá
tefla saman:
Margeir Pétursson - Jóhann
Hjartarson, Giigoric - Frið-
rik, Þröstur Þórhallsson -
Hannes Hlífar, Sofia Polgar
- Jón L. Árnason, Helgi Áss
Grétarsson - Helgi Ólafsson,
Larsen - Smyslov.
■ Skák/45