Morgunblaðið - 30.09.1995, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995 9
FRÉTTIR
Hótel Island
„Borholufjör“
EFNT verður til Borholufjörs til
styrktar lieitavatnsborunum í Vík í
Mýrdal á Hótel Islandi á sunnudag-
inn. Skemmtikraftar koma víða að
og gefa allir vinnu sína.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu hefur verið efnt til altsér-
stæðs happdrættis í Vík í Mýrdal til
styrktar heitavatnsborunum. Nú
þegar hefur verið borað niður á 1.324
m dýpi og með fjármagni úr happ-
drættinu er áætlað að unnt verði að
bora um 130 m til viðbótar eða niður
á um 1.450 m dýpi. Nauðsynlegt er
talið að bora niður á allt að 1.700 m.
Mýrdælingar meðal
skemmtikrafta
Framtak Mýrdælinga hefur vaktið
athygli og hefur verið ákveðið að
efna til skemmtikvölds með yfir-
skriftinni Borholufjör verkefninu til
stuðnings á Hótel íslandi á sunnu-
dagskvöldið kl. 21. Af skemmtikröft-
um má nefna Bubba Mortens, söngv-
ara úr Söngskólanum, Ómar Ragn-
arsson, Öm Árnason, Jónas Þórir,
Stórband Egils Ólafssonar og Hjört
Benediktsson eftirhermu að ótöldum
skemmtikröftum úr Mýrdalnum.
Samgöngnráðherra um nýja tölvunetþjónustu
Vinna við verkið
ekki verið stöðvuð
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra sagði í samtali við Morg-
unblaðið að það væri alrangt að
hann hefði með bréfi sendu úr sam-
gönguráðuneytinu stöðvað frekari
vinnu við nýja tölvunetsþjónustu
Pósts og síma. Guðmundur Björns-
son, aðstoðar póst- og símamála-
stjóri, vildi ekki tjá sig um málið
og heldur ekki Erla Björk Þorgeirs-
dóttir, deildarverkfræðingur Pósts
og síma.
Arnþór Jónsson, framkvæmda-
stjóri Miðheima, segir að það sé
hreinlega brot á alþjóðalögum að
Póstur og sími sé að bjóða þeim
notendum alnetsins, sem nota það
sjaldan, þjónustu á niðurgreiddu
verði. „Póstur og sími og ráðherra
vita að þessi þjónusta samrýmist
ekki EES-lögum,“ sagði Amþór.
„Ég kannast ekki við að það
hafi verið stöðvað eitt eða neitt hjá
Pósti og síma og ég hef heldur
ekki sent bréf þess efnis. Það sem
Póstur og sími er að leggja áherslu
á nú er að ganga frá efnahagslegum
og eignalegum aðskilnaði á milli
samkeppnissviðs og einkaréttar-
sviðs. Jafnframt hefur verið unnið
að því að greiða fyrir samskiptum
hér innanlands með því að fella
niður verðflokka og samræma
gjöld,“ sagði Halldór.
„Rekstrarformi breytt“
Halldór sagði jafnframt að rætt
væri um hvernig Póstur og sími
gæti staðið sig í þeirri hörðu sam-
keppni sem nú er, bæði innanlands
og erlendis, og fyrsta skrefið væri
að aðskilja fjárhag og rekstur.
Halldór segir að víða um Evrópu
sé verið að breyta stofnunum eins
og Pósti og síma í hlutafélög. „Hér
á landi vil ég sjá hlutafélag um
Póst og síma sem alfarið yrði í eigu
ríkisins, til þess að færa félagið út
á markaðinn og í samkeppni," sagði
Halldór.
j Bongamleg feKonng 1996 |
i SkKánimj á nácnskeiðið srenðuK ypik tiL 1. nóvecnbek. ^
UpplýsinýaK f si'cna 557-373*1. %
T I L S 0 L U
Ljósblá Wolkswagen bjalla,
árgerö 1973, er til sölu.
Bíllinn er einstakur, upprunalegur
að öllu leyti og vel meö farinn.
Ekinn aðeins 78.000 km. Sami
eigandi frá upphafi. Skoðaður '96.
Bíllinn verður til sýnis á morgun,
1. okt., á Ljósvallagötu 8, 101
Reykjavík, milli kl. 14.00-17.00.
Tilboð óskast.
/fitíur Jónasdlóttir-. sími 551-3109.
Styrkir tii
bifrei&alfciuna
Tryggingastofnun ríkisins veitir viðtöku
umsóknum vegna styrkja sem veittir eru
hreyfihömluðum til bifreiðakaupa.
Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar
skal vera ótvíræð.
Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1996
fást hjá afgreiðsludeild og lífeyrisdeíld
Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi 114,
og hjá umboðsmönnum hennar um
land allt.
umsóknarfrestur er til 16. október.
Tryggingastofnun ríkisins.
Byrjadu
að skafa
og þú getur unnið
milljónir
strax
Horfðu svo
„Happ í Hendi" hjá Hemma hefst
í Sjónvarpinu, föstudaginn 6. október.
Þar eru líka milljónir í spilinu,
og f jöldi spennandi r
aukavinninga.
Luisín