Morgunblaðið - 30.09.1995, Side 16
16 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Ný símstöð
opnuð á
Flúðum á
mánudag
NÝ póst- og símstöð verður opnuð
á Flúðum í Hrunamannahreppi
mánudaginn 2. október nk. Af-
greiðslutími verður mánudaga til
föstudaga kl. 12-15.30. Stöðvar-
stjóri er Sigríður Eiríksdóttir.
Nýtt póstnúmer, 845 Flúðir,
verður tekið í notkun frá sama tíma.
Póstnúmer þeirra húsa í Hruna-
mannahreppi sem áður voru með
póstnúmeri 801 Selfoss verða frá
og með 1. október með nýja númer-
inu.
Þá verður sú breyting á síma-
þjónustu á Ströndum að póstnúmer
bæja í fyrrum Nauteyrarhreppi (nú
Hólmavíkurhreppi) breytast frá og
með 1. október nk. úr 401 ísafjörð-
ur í 510 Hólmavík.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
ÞAÐ var ekki bara mannfólkið sem tók þátt í
heilsuhlaupinu í Hveragerði.
Hlaupið í slyddu
Hveragerði - Tæplega tuttugu
manns tóku þátt í heilsuhlaupinu
sem fram fór í Hveragerði sl.
laugardag. Það snjóaði stíft fyrri-
part laugardagsins og er ekki að
efa að veðrið setti strik í reikning-
inn hjá mörgum sem hugðu á
þátttöku í hlaupinu. Allir þátttak-
endur voru leystir út með gjöfum
og ennfremur var dregið um
blómavinning. Þrátt fyrir dræma
þátttöku voru aðstandendur
hlaupsins ánægðir með áhuga
hlaupara á öllum aldri.
Sýnikennsla í makró-
bíótískri matargerð
Egilsstöðum - Haldið var námskeið
og sýnikennsla í makróbíójísku fæði
á Egilsstöðum. Sigrún Ólafsdóttir
leiðbeindi og sagði frá merkingu
orðsins makróbíótík, en orðið er
dregið af heiti gríska goðsins Macro
sem merkir stór eða mikill og orðinu
bios sem merkir líf. Makróbíótík
merkir því mikið líf eða það að líta
á lífið í sem víðastri merkingu. Mat-
aræði þetta á rót sína að rekja til
Austurlanda en er ekki endilega
austurlenskt því meginreglan er að
borða það náttúrulega fæði sem fyr-
irfinnst í umhverfi okkar, t.d. korn,
ávexti og grænmeti sem vex í sama
landi sem maður býr eða í nálægum
löndum.
Sigrún sagði frá því að m'atarteg-
undir hafa mismunandi áhrif. Fæðan
skiptist í yin (útvíkkandi) og yang
(samdragandi) og jafnvægi þar á
milli. Til að halda heilbrigði og vellíð-
an er best að halda sig sem mest við
það að borða fæðu sem viðheldur
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
SIGRÚN Ólafsdóttir leiðbein-
andi fyrir makróbíótískt fæði.
jafnvægi, en það er t.d. fiskur, kom,
baunir, grænmeti o.fl. Vestur-
landabúar borða mikið unna fæðu
og fæðu sem veldur ójafnvægi, s.s.
kaffi, sykur, áfengi, salt o.fl. Sigrún
matreiþdi nokkra rétti fyrir þátttak-
endur og allir fengu uppskriftir.
Samtök iðnaðarins vilja:
Meira til skiptanna
|ið íslerídingar þurfum að stækka þjóðarkökuna
ár frá ári til að minnka alvinnuleysi og skapa
störffyrir nýliða sem stöðugl bætast
á vinnumarkaðiim. Renna þarf fleiri
stoðum undir atvinnustarfsemina,
auka hagvöxt og bæta samkeppnis-
stöðuna.
f áranna rás hefur hagstjórn miðast
við nýtíngu auðlinda sjávar. Gengis-
skráning krónunnar iiefur að verulegu
leyli miðast við aikomu í sjávarútvegi.
Það hefur slaðið uppljyggingu annarra útflutnings- og
samkeppnisgreina l'yrir þrifum. Samlök iðnaðarins
telja að þjóðarbúskapur íslendinga standi á tíma-
mólum.
A Ð G E R Ð I R
! Festa þarf ný viðhorf
í hagstjórn í sessi.
- Efla þarf hagvöxt.
> 'I'ryggja verður stöðugleika.
Hafna verður auðlinda-
hagstjórn.
Nú þarf að snúa af braut auðlindahagstjórnar í eitt
skipti fyrir öll og lylgja markvissri hagvaxtarstefnu
sem kemur öllu atvinnulífi til góða.
Góð lífskjör og lull alvinna í framtíðinni
kalla á afgerandi áherslubreytingu og
stefnufestu í efnahagsmálum.
íslendingar þurfa að skapa sér tækifæri
lil bagvaxlar í iðnaði og þjónustu, hag-
vaxtar sem byggist á traustum starfs-
skilyrðum fyrir allt atvinnulífið.
Morgunblaðið/Silli
„ÞETTA er spínat," segir Ótt-
ar Ingi, „en þetta er grænkál
sem ég ræktaði," sagði Rúnar.
Góð upp-
skera
í skóla-
görðum
Húsavík - Húsavíkurbær rak
skólagarða í sumar eins og und-
anfarin ár og voru þar að störfum
milli 40 og 50 ungmenni.
Nú hafa þau lokið upptekt þess
grænmetis sem þau sáðu til í vor
og flest gátu þau fagnað góðri
uppskeru og fært foreldrum sínum
með ánægju björg í bú. Þau sáu
einnig að uppskeran var mest hjá
þeim sem best höfðu hirt reiti sína
en þeir sem vanhirtu sína reiti
fengu litla uppskeru.
Umsjón og forstöðu með skóla-
görðunum undanfarin 16 ár hefur
Sigríður Sigurðardóttir haft.
HUGBÚNAÐUR
FYRIR WINDOWS
VIÐSKIPTAKERFI
Frá kr. 22.410.
H KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055