Morgunblaðið - 30.09.1995, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
*
STUTT
IRA
hafnar
afvopnun
ÍRSKI lýðveldisherinn (IRA)
hafnaði í gær þeirri kröfu
bresku stjórnarinnar að hann
afvopnist og lýsti henni sem
fáránlegri. „Það er enginn
möguleiki á að IRA verði við
þessari kröfu,“ sagði í yfirlýs-
ingu frá hreyfmgunni.
Breska stjómin setur af-
vopnun IRA sem skilyrði fyrir
aðild stjómmálaarms hreyf-
ingarinnar, Sinn Fein, að við-
ræðum allra flokka um fram-
tíð Norður-írlands.
Finni rann-
sakar mann-
réttindamál
ELISABETH Rehn, sem var
fyrst kvenna til að gegna
embætti varnarmálaráðhera í
heiminum og bauð sig fram
til forseta í Finnlandi á síð-
asta ári, mun gegna sérstöku
rannsóknarembætti á vegum
Sameinuðu þjóðanna til að
rannsaka mannréttindabrot í
gömlu Júgóslavíu. Hún tekur
við starfinu af Tadeuszi
Mazowiecki, fyrrum forsætis-
ráðherra Póllands, sem sagði
af sér í júlí og gagnrýndi stór-
veldin til að sitja með hendur
í skauti meðan grimmdarverk
væru framin í Bosníu.
Einhver bið verður á að
Rehn geti byijað að sinna
starfi sínu. Fjárskortur SÞ er
'slíkur um þessar mundir að
mjög hefur verið dregið úr
ferðalögum á vegum stofnun-
arinnar.
Pete Wilson
ekki í
framboð
PETE Wilson, ríkisstjóri Kali-
fomíu, hefur ákveðið að bjóða
sig ekki fram til forseta. Hann
er fyrsti repúblikaninn, sem
dregur sig í hlé. Fjárskortur
og innanbúðarerjur hafa stað-
ið kosningaherferð hans fyrir
þrifum.
Verð bóka
háð mark-
aðsöflum
ALDARGAMALT samkomu-
lag, sem kveður á um lág-
marksverð á bókum í Bret-
landi, varð undir í baráttunni
við markaðsöflin fimmtudag
þegar félag útgefenda komst
að þeirri niðurstöðu að ekki
ríkti lengur nægt samstaða
til að það héldi velli. Forsaga
málsins var sú að þrjú af
stærstu útgáfufyrirtækjum
landsins tilkynntu að þau
myndu ekki framfylgja sam-
komulaginu.
Bókaútgáfan HarperColl-
ins, eitt af fyrirtækjum fjöl-
miðlajöfursins Ruperts
Murdochs, og Bretlandsdeild
bandaríska útgáfufyrirtækis-
ins Random House sögðust
ætla að hætta að setja lág-
marksverð á bækur. Bókafor-
lagið Pearson, sem gefur út
Penguin-bækurnar, ákvað að
fara að dæmi þeirra.
Simpson-málið lagt í kvíðdóm eftir níu mánaða réttarhöld
Óttast óeirð-
ir í kjöl-
far úrskurðar
Reuter
O.J. Simpson, sem gefið er að sök að hafa myrt konu sína fyrr-
verandi og vin hennar, tekur í hönd veijanda síns, Johnnies
Cochrans, í réttarsalnum í gær.
Los Angeles. Reuter.
BÆÐI saksóknarar og veijendur í
máli íþróttastjörnunnar O.J. Simpson
hafa nú lokið málflutningi sínum og
kviðdómurinn átti áð fá málið í hend-
ur í gær tit að skera úr um sekt eða
sakleysi hins ákærða. Hvorir tveggju
höfðuðu til tilfinninga í lokaorðum
sínum og varð aðstandendum svo
heitt í hamsi að til hvassra orða-
skipta kom fyrir utan réttarsalinn.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti kvaðst
í gær óttast að úrskurður kviðdóms-
ins gæti leitt til kynþáttaóeirða og
viðbúnaður fyrir utan dómshúsið í
Los Angeles, þar sem réttarhöldin
hafa staðið yfir síðan í janúar, var
aukinn til muna.
Ljóst er að yfirvöld í Los Angeles
hyggjast ekki vera óundirbúin eins
og þau voru árið 1992 þegar miklar
óeirðir brutust út í borginni eftir að
fjórir hvítir lögregluþjónar voru
sýknaðir af því að hafa gengið í
skrokk á svörtum manni, Rodney
King.
Málflutningí lýkur
Christopher Darden saksóknari
svaraði lokaorðum veijenda Simp-
sons í gærmorgun og sagði að það
gæti ekki verið nokkrum vafa undir-
orpið eftir málflutning ákæruvalds-
ins að Simpson væri sekur.
Johnny Cochran, aðalveijandi
Simpsons, sem gefið er að sök að
hafa myrt fyrrum eiginkonu sína,
Nicoie Brown Simpson, og Ron Gold-
man, vin hennar, fyrir ári, brýndi
fyrir kviðdómnum að hann yrði að
sýkna ruðningsleikarann.
Lögregluþjóni líkt við Hitler
Það voru hins vegar ásakanir Coc-
hrans á fímmtudag um að lögreglu-
þjónn með kynþáttafordóma hefði
lagt á ráðin um að skella skuldinni
fyrir að myrða Simpson og Goidman
á skjólstæðing sinn, sem hleyptu öliu
í bál og brand. Þegar Cochran líkti
rannsóknarlögregluþjóninum, Mark
Fuhrman, við Adolf Hitler og sakaði
hann um ósannsögli, meinsæri, til-
hneigingar til þjóðarmorðs og kyn-
þáttafordóma, sem fjölskyldu Gold-
mans var nóg boðið.
Fred Goldman, faðir Ronalds
Goldman, skalf af bræði í sæti sínu
og þégar réttarhlé var gert um morg-
uninn gekk hann rakleitt að hljóð-
nema frammi á gangi og fór hörðum
orðum um málflutning Cochrans
Goldman sagði að Cochran væri
„sjúkur" að nefna nafn Hitlers og
kallaði lögfræðinginn „hóru á meðal
grandvars fólks“, sem ætti að „stinga
í fangelsi".
Þegar hádegisverðarhlé var gert
síðar sama dag gekk fjölskylda Simp-
sons fram fyrir skjöldu og svaraði
orðum Goldmans á blaðamanna-
fundi. Þar á meðal voru tvö stálpuð
böm Simpsons, Arnelle og Jason,
systur hans, Carmeltia Durio og
Shirley Baker. Móðir Simpsons,
Eunice, sat álengdar í hjólastól.
Á meðan Darden saksóknari talaði
í gærmorgun stóð hópur manns fyrir
utan dómshúsið og mótmælti. „Frels-
ið O.J.,“ hrópaði 100 manna hópur
þegar Johnny Cochran, aðalveijanda
Simpsons, bar að garði.
„Sekur, sekur, DNA, DNA,“ hrópaði
hópur félaga úr baráttusamtökum
gyðinga. „Leyfum- kviðdómnum að
ráða,“ hrópaði hópur svertingja á
móti.
Þessi orðaskipti bera því vitni
hvemig menn skiptast í tvennt í af-
stöðu sinni til Simpson-málsins eftir
litarhætti.
Svartir og hvítir á
öndverðum meiði
Samkvæmt skoðanakönnun, sem
sjónvarpsstöðin ABC lét gera og birti
var í gær, em 68 af hundraði Banda-
ríkjamanna þeirrar hyggju að Simp-
son sé sekur, en 26 af hundraði telja
hann saklausan.
Þegar aðspurðum var skipt eftir
litarhætti var niðurstaðan önnur. 72
af hundraði svartra segja Simpson
saklausan, en 20 af hundraði sekan.
Meðal hvítra eru 77 af hundraði þess
fullviss að Simpson hafi myrt konu
sína og vin hennar, en 18 af hundr-
aði eru á því að hann hafi ekki gert
það.
Kviðdómendurnir í málinu em
flestir svartir.
_______________________________ Reuter
Heym hættir til að
mótmæla hækkunum
Bonn. Reuter.
STEFAN Heym, elsti þingmaðurinn
á þingi Þýskalands, sagði í gær af
sér þingmennsku til að mótmæla
hækkunum á launum þingmanna er
samþykktar vora með stjómarskrár-
breytingu í síðustu viku.
Heym, sem er 82 ára gamall, hef-
Ur setið á þingi fyrir Lýðræðislega
sósíalistaflokkinn (PDS) arftaka
austur-þýska kommúnistaflokksins.
Hann er rithöfundur og nýtur tölu-
verðrar virðingar í Þýskalandi.
„Ég tók þessa ákvörðun þar sem
þingmenn höguðu sér mjög heimsku-
lega er þeir reyndu að troða auknu
fé i eigin vasa,“ sagði Heym á fjöl-
mennum blaðamannafundi í Bonn.
Jafnaðarmaðurinn Wolfgang Thi-
erse, sem tapaði þingsæti sínu í Berl-
ín fyrir Heym í kosningum í október
í fyrra, sagðist telja að Heym hefði
einungis verið að leita að tylliástæðu
til að hætta á þingi.
Heym hafnar hins vegar ölium
staðhæfingum um að einhveijar aðr-
ar aðstæður liggi að baki afsögn
hans. „Ég er of gamall fyrir fyrir-
slátt. Ef einhver önnur ástæða lægi
að baki myndi ég greina ykkur frá
því,“ sagði Heym.
Hann hyggst nú eyða meiri tíma
með eiginkonu sinni og sinna ritstörf-
um, sem hann segist hafa vanrækt
meðan hann sat á þingi. „Ég gat
ekki staðið upp á þingi og lýsti því
yfir að nú ætlaði ég að lesa upp
kafla úr nýjustu skáldsögu minni,“
sagði hann.
Spænskt
morðmál
leyst
EINNI viðamestu leit spænsku
lögreglunnar á síðustu árum lauk
í gær þegar hún fann lík Anabel
Segura, 22 ára konu frá Madrid,
sem var rænt fyrir tveimur árum
þegar hún var að skokka í almenn-
ingsgarði. Mannræningjarnir
drápu konuna skömmu eftir að
þeir rændu henni en hringdu samt
í fjölskyldu hennar til að krefjast
lausnargjalds. Þýskum sérfræð-
ingum tókst að rekja símtölin til
þorps í Toledo-héraði og tveir
menn og kona voru handtekin þar
á fimmtudagog játuðu á sig
verknaðinn. Á myndinni aðstoðar
einn morðingjanna lögregluna við
leitina að líkinu, sem fannst við
gamla verksmiðju.
Hermenn
afhentir
Japönum
Tókýó. Reuter.
BANDARÍSK heryfirvöld á jap-
önsku eyjunni Okinawa létu í gær
af hendi þijá hermenn, sem ákærð-
ir hafa verið um að hafa nauðgað
12 ára gamalli stúlku. Eru þeir nú
í gæsluvarðhaldi en þetta mál hefur
váldið nokkrum æsingum í Japan
og sérstaklega á Okinawa þar sem
þess hefur verið krafist, að banda-
rísku herstöðinni verði lokað.
Bandarísku hermennirnir voru
afhentir japönskum yfirvöldum
þegar þeim hafði verið birt formleg
ákæra í Naha, höfuðstað eyjarinn-
ar. Voru þeir fluttir úr herfangelsi
í Camp Butler-herstöðinni í jap-
anskt gæsluvarðhaldsfangelsi en
verði þeir fundnir sekir um nauðgun
og mannrán geta þeir átt von á lífs-
tíðardómi.
Bandarísku heryfirvöldin á Ok-
inawa höfðu áður neitað að afhenda
mennina fyrr en þeir væru ákærðir
en um það er ákvæði í tvíhliða
samningi Bandaríkjanna og Japans.
Japanska lögi’eglan telur, að menn-
irnir þrír, allir ölvaðir, hafi rænt
stúlkunni og bundið og flutt hana
síðan í bíl sínum á afskekkta strönd
þar sem þeir nauðguðu henni. Gerð-
ist þetta 4. september sl.
Andúð á Bandaríkjamönnum
Þetta mál hefur kynt undir andúð
á Bandaríkjamönnum í Japan og á
Okinawa eru kröfur um, að Camp
Butler-herstöðinni verði lokað. Þar
eru 24.000 af 44.000 bandarískum
hermönnum í Japan. Okinawa, sem
hefur 1,26 milljónir íbúa, var undir
bandarískri stjórn frá stríðslokum
til 1972. Frá þeim tíma hafa banda-
rískir hermenn verið sakaðir um
4.000 afbrot, þar á meðal 12 morð.