Morgunblaðið - 30.09.1995, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1995 37
MINNINGAR
ISAFOLD
JÓNSDÓTTIR
+ Frú ísafold
Jónsdóttir var
fædd á Miðfelli í
Þingv'allasveit hinn
5. nóvember 1902.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Suðurlands á
Selfossi 20. septem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Jóhanna
Hannesdóttir frá
Hvoli í Ölfusi og
Jón Þorsteinsson
frá Norður-Reykj-
um í Mosfellssveit.
ísafold bjó í
Reykjavík frá árinu 1907. Hún
dvaldi á Dvalarheimilinu
Blesastöðum frá árinu 1993
Eiginmaður hennar var Agúst
Jóhannesson verksmiðjustjóri
en hann lést árið 1980. Útför
Isafoldar verður gerð frá Sel-
fosskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
á bernsku,
TÍMANS straumur líður fram
óstöðvandi. Háöldruð merkiskona
er horfin i djúp hans. Elskuleg vin-
kona mín, ísafold Jónsdóttir, lést í
sjúkrahúsi Selfoss að kvöldi þess
20. þessa mánaðar. Hún var flutt
þangað um morguninn, um kvöldið
var hún öll. ísafold var fædd 5.
nóvember 1902 að Miðfelli í Þing-
vallasveit. Foreldrar hennar voru
hjónin sem þar bjuggu, Jóhanna
Hannesdóttir og Jón Þorsteinsson.
Móðir ísafoldar var frá Hvoli í Ölf-
usi en faðirinn frá Norður-Reykjum
í Mosfellssveit. Ættmenn ísafoldar
í móðurætt bjuggu í marga ættliðí
í Kaldaðarnesi. Langafi ísafoldar
var Jörundur Brynjólfsson. Séra
Jóhann Hannesson hafði gott sam-
band við móður ísafoldar vegna
ættartengsla. ísafold gaf skautbún-
ing móður sinnar á minjasafn Sel-
foss og sýndi það hug hennar til
byggðalagsins.
Faðir Isafoldar lést árið 1906,
þegar ísafold var á fjórða ári. Hún
mundi þó vel eftir föður sínum og
minntist þess þegar hann bar hana
á háhesti upp á Miðfell og hún hélt
að hún myndi rekast upp í himin-
inn. Árið 1907 flutti móðir ísafoldar
frá Miðfelli. Litla stúlkan var bund-
in á klifbera og var ferðast ríðandi
til Reykjavíkur. Þar tók á móti þeim
frændi þeirra er Magnús hét. Móðir-
in nam útsaum og aðrar hannyrðir
og vann fyrir þeim af myndarskap
um margra ára skeið. ísafold gekk
í Miðbæjarbarnaskólann en fór síð-
an í hússtjómarnám í Kvennaskól-
anum í Reykjavík. Þá starfaði hún
á Hótel Skjaldbreið við matreiðslu
og kökugerð (konditori).
Um þetta leyti keyptu þær
mæðgur íbúð á Vífilsgötu, en þá
höfðu þær búið á ýmsum stöðum í
bænum, lengst af hjá Sigríði frá
Laxnesi, móður Halldórs. Árið 1929
fór ísafold til Danmerkur að læra
hatta- og skermasaum og var það
þriggja ára nám. Hún kom heim á
sumrin og vann til þess að geta
greitt námskostnað. í Kaupmanna-
höfn eignaðist hún vini sem héldu
tryggð við hana ævilangt. Ég vil
sérstaklega minnast frú Ingu Tjio
í Bethesda, Washington,’en móðir
hennar var kær vinkona ísafoldar
og bjó um árabil í Danmörku. Þeg-
ar Isafold kom heim frá Danmörku,
stofnaði hún hattaverslun í félagi
við aðra konu, frú Smith. Síðar rak
hún sína eigin verslun, Hattabúð
ísafoldar, þar til hún seldi hana
árið 1951.
Þann 5. júlí árið 1945 giftist ísa-
fold í Þingvallakirkju, en þar hafði
hún líka verið skírð árið 1903. Eig-
inmaður hennar var Ágúst, Jóhann-
esson verksmiðjustjóri en hann lést
árið 1980. Ágúst var ljúfur maður
og góður og árin þeirra saman voru
farsæl ár. Þau ferðuðust mikið,
bæði innan lands og utan og voru
bæði miklar sportmanneskjur og
Ágúst afreksmaður.
ísafold var í mörg
sumur sem barn og
unglingur á Efri-Brú í
Grímsnesi, hjá foreldr-
um Tómasar Guð-
mundssonar skálds.
Þar var símstöð og ísa-
fold fór gangandi eða
ríðandi um sveitirnar
með símskeyti og skila-
boð. Hún þekkti hvern
bæ, fjöllin og jöklana
og var óþreytandi við
að fræða mig um það
allt eða leiðrétta allt
fram á síðasta ár. Hún
hafði frá mörgu áhuga-
verðu að segja frá æsku sinni og
til dæmis frá þeim sem
flökkuðu um sveitir og sagt var um
að létu fótinn fæða sig. ísafold
mundi vel klukkuna hennar móður
sinnar. „Sú var tíð, segir í bókum,
að íslenska þjóðin átti aðeins eina
sameign sem metin varð til fjár.
Það var klukka." Með þessum orð-
um hóf Halldór Laxness að segja
söguna um hinn víðförla Krists-
bónda á Rein, Jón Hreggviðsson.
Langt er um liðið og íslensk þjóð
hefur eignast margar fagrar sam-
eignir síðan, en þá minnist ég ætíð
klukkunnar sem ísafold mundi og
sagði í vitund barnsins „Vertu góð,
vertu góð“. Kiukkan var gefin nið-
ursetningi sem borgun til þess
heimilis sem hugðist taka hann að
sér. Svo litla stúlkan ákvað að
klukku skyldi hún einhvern tímann
eignast.
Eins og áður er getið lést eigin-
maður ísafoldar árið 1980. Hann
lét af störfum fjórum árum fyrir
andlát sitt og var heima, oft mjög
lasinn. ísafold annaðist hann af
mikilli natni og umhyggju. Hún
saknaði ferðalaga út í náttúruna
en fór niður í miðbæ flesta daga,
keypti inn fyrir heimilið og fleira.
Hún þekkti miðbæinn svo vel að
hún vissi hvar hægt var að smjúga
milli húsa til dæmis í Þingholtunum
og milli gatna hér og þar. Hún elsk-
aði þennan bæ eins og Tómas vinur
hennar. Á þessum ferðum, ef ég
var með, fór hún með kvæðin hans
eitt af öðru. Eftir að ísafold var
orðin ein fórum við í nokkrar utan-
landsferðir með vinum okkar eða
einar og til Þingvalla nokkrum sinn-
um á hveiju sumri. Þar vildi hún
ganga um, setjast svo inn í kirkjuna
um stund. Vorið 1993 var ísafold
farin að gefa sig nokkuð, svo að
ráði öldrunarlæknis fór hún til
hvíldar á dvalarheimilið að Blesa-
stöðum á Skeiðum. Hún kunni strax
vel við sig, hún fann öryggið og
einstaka umönnun þessa góða fólks.
Ef ég minntist á við hana að skipta
um verustað, koma nær höfuðborg-
inni, sagði hún: „Ég vil ekki fara
héðan, hérna á ég heima.“ Isafold
naut þarna virðingar og nærgætni,
vakað var yfir hveiju hennar fót-
máli og tekið tillit til allra hennar
óska. Ein starfsstúlkan sagði mér
að hún hefði sungið með alla sálma
við síðustu messu á Blesastöðum.
Þegar fólk er orðið yfir 90 ára
gamalt, ættingjar og vinir á þeim
aldri horfnir á braut, setur oft að
söknuð og trega, en ísafold var lán-
söm. Hún hafði verið félagi í Odd-
fellowreglunni í rúm 60 ár. Þar
átti hún góða vini og trausta. Hún
var heimsótt reglulega og séð um
að hana skorti ekkert. Hún var tek-
in í bílferðir um nærsveitir þar sem
hún riljaði upp nöfn fjallanna og
drakk í sig fegurðina sem blasir við
í nágrenni Blesastaða. Nú þegar
þessi elskulega vinkona mín er horf-
in er tómarúm í huga mér. Ég sakna
heimsóknanna til hennar og sam-
verustunda okkar og bið henni ei-
lífrar blessunar Guðs sem hún trúði
á og treysti.
Elín Hannam.
ísafold Jónsdóttir var mér mjög
kær. Hún var mjög sérstök kona
og þurfti ekki nema líta hana aug-
um til að sjá að þar fór mikill per-
sónuleiki.
Hún átti stóra og fallega hatta-
búð í Austurstræti 14 í Reykjavík,
þar sem ég lærði hattasaum og
hlaut mín meistararéttindi. Þart
hófust löng kynni okkar ísafoldar,
sem héldust þrátt fyrir að ég færi
til útlanda og setti síðar upp eigin
hattabúð er heim var komið á nýjan
leik.
Margt skeði í okkar kynnum frá
því ég var í Austurstræti 14. Þar
var gott að vera, hún gerði vel við
starfsfólk sitt og ógleymanlegt er
hvað hún sýndi mér mikið traust
og veitti mér trúnað í mörgum
málum. Einnig færði hún mér stór-
felldar gjafir og hélt mér veislur
sem ekki gleymast.
Hún var mjög glæsileg kona.
Glæsileikinn birtist skýrt í því sem
hún sagði og gerði. Þær eru sveip-
aðar ævintýraljóma minningarnar á
hátíðarstundum hjá ísafold, bæði
áður en og eftir að hún giftist Ág-
ústi Jóhannssyni framkvæmda-
stjóra hjá kexverksmiðjunni Frón.
Heimili hennar var alltaf fallegt og
listrænt. Persóna hennar gaf sterk-,
an svip. Myndirnar í ævintýraljóm-
anum blika enn í endurminning-
unni. Það var ólýsanlegt að heim-
sækja hana í sumarbústaðinn og
fallega garðinn. Syngja og spila við
arineldinn. Allar þessar unaðslegu
stundir rifjast upp hver af annarri.
ísafold var trygg vinum sínum.
Við hinar ungu dáðum hana fyrir
margt. Alltaf var hún með þeim
fyrstu að koma á heimili mitt á
hátíðarstundum til að samfagna
okkur og á sorgarstundum gleymdi
hún aldrei að samhryggjast. Við
þökkum og geymum dýrmætar
minningar.
ísafold kveður því klukkur himn-
anna hringja. Kristur kemur. Leiðir
ísafold inn í himin sinn. Eftir horf-
um við, þökkum og blessum minn-
ingu hennar sem farin er.
Guðfinna Gísladóttir.
Mig langar til að minnast vin-
konu móður minnar Soffíu Jóns-
dóttur Claessen. Ég kynntist ísa-
foldu fýrst þegar þær voru að ráðg-
ast um hvernig best væri að gleðja
blint fólk. Móðir mín hafði komið
með þá hugmynd frá dönskum
Oddfellowsystrum að handmála
kerti og selja. Ágóðanum skyldi
varið til að gleðja blinda. Mér er
það í barnsminni þegar þær sátu
með systrunum í Oddfellowhúsinu
og máluðu kerti. ísafold var sér-
staklega listræn, enda hafði hún
lært hattasaum og vann við hann
af mikilli list. Árið 1937 var kerta-
nefndin stofnuð. Eftir að móðir mín
hætti formennsku árið 1966 tók
Isafold við því embætti. Ég veit,
að mjög margir blindir hafa notið
góðs af þessu sjálfboðastarfi sem
ótal margar ósérhlífnar Oddfellow-
systur hafa innt af hendi. ísafold
var vakin og sofin við að efla þessa
starfsemi sem helst óslitin enn í
dag. Eftir að ísafold treysti sér
ekki lengur til að taka þátt í starf-
seminni fylgdist hún samt vel með
því sem var gert m.a. til þess að
styrkja Blindraheimilið í Hamrahlíð.
Ég get ekki látið hjá líða að
þakka Elínu Hannam fyrir hve vel
hún hefur reynst ísafoldu. Góð dótt-
ir hefði ekki getað reynst móður
sinni betur. Ég veit ekki betur en
að þeirra kunningsskapur hafi byij-
að þegar þær sátu saman og mál-
uðu kerti í kertanefnd. Síðan þá
hefur Elín ekki sleppt hendi af ísa-
foldu og var hennar stoð og stytta
uns yfir lauk.
Síðustu árin dvaldist ísafold að
Blesastöðum á Skeiðum. Fór Elín
hvernig sem viðraði yfir heiðina til
að vitja sinnar kæru vinkonu. Þegar
við Laura systir heimsóttum Isa-
foldu að Blesastöðum nú í vor var
henni farið að förlast minni en þeg-
ar við færðum kertamálun í tal við
hana brosti hún blítt.
Að endingu vil ég láta í ljós þakk-
læti mitt fyrir að hafa átt því láni
að fagna að njóta samvista við Isa-
foldu innan Oddfellowreglunnar um
margra ára skeið.
Kristín Claessen.
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11.00. Guðsþjónusta kl. 14.00. Ingi-
björg Marteinsdóttir syngur einsöng.
Kaffisala safnaðarfélagsins eftir messu.
Kirkjubíllinn ekur. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11.00. Guðsþjónusta kl. 14.00. Ein-
söngur Jón Þorsteinsson. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. Kirkjukaffi Ey-
firðingafélagsins eftir messu. Pálmi
Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa með altaris-
göngu kl. 11.00 við upphaf vetrarstarfs.
Sr. Jakob Á. Hjálmarsson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Hjalta Guð-
mundssyni. Dómkórinn syngur. Organ-
leikari Marteinn H. Friðriksson. Fermd-
ur verður Viðar Reynisson, Framnes-
vegi 25a. Fundur í safnaðarfélaginu eft-
ir messu. Dr. Einar Sigurbjörnsson, pró-
fessor, flytur erindi. Barnastarf í safnað-
arheimilinu kl. 11.00 í umsjá sr. Maríu
Ágústsdóttur. Barnastarf í Vesturbæj-
arskóla kl. 13.00 í umsjá Guðmundu
Ingu Guðmundsdóttur, guðfræðinema.
Bænaguðsþjónusta kl. 14.00 í umsjá
sr. Jakob A. Hjálmarsson. Forsöngvari
verður Björg Jónsdóttir og Marteinn
H. Friðriksson við orgelið.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjónusta
kl. 10.00. Sr. Gylfi Jónsson. Organisti
Kjartan Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA: Fjölskyldumessa kl.
11.00. Barnakór Grensáskirkju syngur,
stjórnandi Margrét Pálmadóttir. Prest-
ur sr. Halldór S. Gröndal. Organisti
Árni Arinbjarnarson. Messa kl. 14.00.
Prestur sr. Haldór S. Gröndal. Organ-
isti Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðsluerindi kl.
10.00. Umburðarlyndi. Dr. Páll Skúla-
son, prófessor. Barnasamkoma og
messa kl. 11.00. Organisti Hörður
Áskelsson. Mótettukór Hallgrímskirkju.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 11.00. Sr.
Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11.00. Sr. Helga Soffía Konráðsd.
Messa kl. 14.00. Organisti Pavel Mana-
sek. Sr. Tómas Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.00. Prest-
ur sr. Flóki Kristinsson. Kór Langholts-
kirkju syngur. Organisti Jón Stefánsson.
Barnastarfið hefst á sama tíma. Kaffi-
sopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Væntanleg fermingarbörn að-
stoða. Barnastarf á sama tíma. Félagar
úr Kór Laugarneskirkju syngja. Organ-
isti Gunnar Gunnarsson. Fundur með
forráðamönnum væntanlegra ferming-
arbarna eftir guðsþjónustu. Guðsþjón-
usta kl. 14.00 í Sjálfsbjargarhúsinu,
Hátúni 12, Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.00.
Munið kirkjubílinn. Sr. Frank M. Hall-
dórsson. Guðsþjónusta kl. 14.00. Pró-
fastur sr. Ragnar Fjalar Lárusson setur
sr. Halldór Reynisson inn í embætti
aðstoðarprests.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl.
11.00. Organisti Vera Gulasciova.
Prestur sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir. Barnastarf á sama tíma í umsjá
Elínborgar Sturludóttur.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11.00. Guðsþjónusta kl. 14.00.
Vænst er þátttöku fermingarbarna og
foreldra þeirra. stuttur fundur með for-
eldrum fermingarbarna eftir guðsþjón-
ustu. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.00. Messa með altarisgöngu
kl. 14.00. Kaffisala kirkjukórsins til
styrktar orgelsjóði að messu lokinni.
Samkoma Ungs fólks með hlutverk kl.
20.00. Organisti Daníel Jónasson. Sr.
Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.00.
Altarisganga. Prestur Sigurjón Árni
Eyjólfsson. Sunnudagaskóli á sama
tíma. Organisti Smári Ólason. Gunnar
Sigurjónsson
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11.00. Prestur sr. Hreinn Hjart-
arson. Organisti Lenka Mátéová. Bar-
naguðsþjónusta á sama tíma í umsjá
Ragnars Schram. Guðsþjónusta kl.
18.00. Orgeltónleikar kl. 19.00. Lenka
Mátéová. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barnamessa kl.
11.00 í kirkjunni og 12.30 í Rimaskóla
í umsjá prestanna Hjartar og Rúnars.
Guðsþjónusta kl. 14.00. Að henni lok-
inni verður opnuð sýning á verkum Sig-
rúnar Gísladóttur (Mússu). Organisti
Ágúst Ármann. Guðsþjónusta kl. 16 á
hjúkrunarheimilinu Eir. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Kaffisala safnaðarfélagsins að
lokinni guðsþjónustu. Barnaguðsþjón-
usta kl. 13.00 í umsjá Bryndísar Möllu
og Dóru Guðrúnar. Organisti Oddný J.
Þorsteinsdóttir. Sr. Kristján Einar Þor-
varðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf i safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 11.00. Guðs-
þjónusta kl. 11.00. Organisti Haukur
Guðspjall dagsins:
Sonur ekkjunnar
___________í Nain.______________
(Lúk. 7.)
Guðlaugsson. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirs-
son.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11.00. Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Irma
Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Kvenna-
kórinn Seljur leiðir safnaðarsöng. Org-
anisti Kjartan Sigurjónsson. Prestarnir.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Hámessa
kl. 10.30. Messa kl. 14. Ensk messa
kl. 20. Laugardaga messa ki. 14 og
ensk messa kl. 20. Aðra rúmhelga daga
messur kl. 8 og kl. 18.
KFUM og KFUK, v/Holtaveg: Sam-
koma á morgun kl. 17 við Holtaveg.
Ræðumaður Ragnar Gunnarsson. ;
Barnasamverur á sama tíma. Veitingar
seldar að lokinni samkomu til ágóða
fyrir Vindáshlíð.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa kl.
11 á sunnudögum.
JÓSEPSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl.
10.30. Rúmhelga daga er messa kl. 18.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Fjölskyldusam-
koma kl. 14. Almenn samkoma kl. 20.
MOSFELLSPRESTAKALL: Guðsþjón-
usta í Lágafellskirkju kl. 14. Barnastarf-
ið hefst í safnaðarheimilinu kl. 11. Bíll
frá Mosfellsleið fer venjulegan hring.
Jón Þorsteinsson.
GARÐASÓKN, VÍDALÍNSKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Skólakór
Garðabæjar syngur undir stjórn Guðfinnu
Dóru Ólafsdóttur. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Sveinhildur
Torfad. leikur einleik á klarinett í mess-
unni. Sigurður Helgi Guðmundss.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Munið skólabílinn. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barnasam-
koma kl. 11. Organisti Kristjana Þ. Ás-
geirsdóttir. Einar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ:
Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl.
10.30. Rúmhelga daga messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa sunnu-
daga kl. 8.30. Aðra daga kl. 8. Allir vel-
komnir.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli sunnudag kl. 13. Baldur Rafn
Sigurðsson.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 11. Vetrarstarfið hefst
formlega. Fermingarbörn og foreldrar
hvött til að mæta. Organisti Steinar
Guðmundsson. Sunnudagaskóli sunnu-
dag kl. 11 í umsjá Láru Oddsdóttur,
guðfræðinema. Baldur Rafn Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11 í umsjá Málfríðar Jóhannsdóttur,
Ragnars S. Karlssonar og sr. Sigfúsar
Baldvins Ingvasonar. Foreldrar eru
hvattir til að koma með börnum sínum.
Verið með frá byrjun og munið skólabíl-
inn. Guðsþjónusta kl. 14. Barn borið til
skírnar. Prestur Ólafur Oddur Jónsson.
Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti
Einar Örn Einarsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavik: Messa
kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Prófastur
sr. Guðmundur Óli Ólafsson setur sr.
Jón Ragnarsson inn í embætti.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl.
10.30. Sóknarprestur.
GAULVERJABÆJARKIRKJA: Messa kl.
14. Úlfar Guðmundsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Úlfar Guðmundsson.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA, Hvolsvelli:
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Öll börn í sókninni fædd 1990 sérstak-
lega boðuð í fylgd foreldra sinna til kirkj-
unnar þar sem þau fá afhenta bókina
„Kata og Óli fara í kirkju.“ Fermingar-
börn næsta vors komi einnig og taki við
„Litlu messubókinni". Sigurður Jónsson.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Barna-
og fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Öll
börn í sókninni fædd 1990 sérstaklega
boðuð i fylgd foreldra sinna til kirkjunnar
þar sem þau fá afhenta bókina „Kata
og Óli fara í kirkju." Fermingarbörn
næsta vors komi einnig og taki við „Litlu
messubókinni“. Sigurður Jónsson.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Sunnudagaskóli Landakirkju kl. 11.
Messufall kl. 14 í fjarveru presta vegna
Landsmóts æskulýðsfélaga kirkjunnar
og Héraðsfundar Kjalarnesprófasts-
dæmis.
AKRANESKIRKJA: Helgistund barna í
kirkjunni kl. 11. Strax á eftir föndur í
safnaðarheimilinu Vinaminni. Stjórnend-
ur Axel Gústafsson og Sigurður Grétar
Sigurðsson. Messa sunnudag kl. 14,
altarisganga. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Barnaguðs-
þjónusta ( Borgarneskirkju kl. 11.15.