Morgunblaðið - 13.10.1995, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Vilja
forseta-
stólinn
ÞEIR, sem ætla að taka þátt í
forkosningum repúblikana
vegna forsetakosninganna í
Bandaríkjunum á næsta ári, tóku
þátt í hringborðsumræðum í
sjónvarpi í fyrradag. Var myndin
tekin við það tækifæri en yst til
vinstri er Arlen Specter öldunga-
deildarþingmaður; þá Phil
Gramm öldungadeildarþingmað-
ur; Allen Keyes, fyrrverandi
sendiherra; Lamar Alexander,
fyrrverandi ríkisstjóri; útgefand-
inn Steve Forbes; Bob Dole, þing-
flokksformaður repúblikana í
öldungadeild; fréttaskýrandinn
Pat Buchanan, sem bauð sig fram
í forkosningum repúblikana
1990; Bob Doman; Morrey Tayl-
or og öldungadeildarþingmaður-
inn Richard Lugar.
----» ♦ »--
Rússnesk geimstöð
Fjárskortur
tefur
heimkomu
Moskvu. Reuter.
HUGSANLEGT er, að áhöfn rúss-
neskrar geimstöðvar, tveir Rússar
og Þjóðverji, verði að framlengja
dvölina í geimnum um 44 daga
vegna fjárskorts. Skýrði starfsmað-
ur rússnesku geimferðastofnunar-
innar frá þessu í gær.
Starfsmaðurinn, sem óskaði
nafnleyndar, sagði í viðtali við Reut-
ere-fréttastofuna, að smíði nýrrar
Sojuz U-2-eldflaugar, sem á að
flytja nýja áhöfn upp í Mír-stöðina
og sækja hina, hefði tafist vegna
fjárskorts.
Geimfararnir þrír, Júrí Gídzenko,
Sergei Avdejev og Thomas Reiter,
hafa verið í Mír-stöðinni frá 3. sept-
ember og var fyrirhugað, að þeir
yrðu sóttir 7. janúar nk. Starfsmað-
urinn sagði hins vegar, að nú væri
ljóst, að eldflaugin yrði ekki tilbúin
fyrr en 21. febrúar.
Happdrætti
Hjartaverndar
DRÖGUM 14. OKT.
Þú geturgreitt miðann
þinn með greiðslukorti
E SÍMI581 3947 ~
Reuter
Irakar reiðir vegna skýrslu SÞ um eyðingu vopna
Ekeus sakar Iraka
um blekkingar
Baghdad, London. Reuter. The Daily Telegraph.
ÍRAKAR sökuðu í gær vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu
þjóðanna, SÞ, um lygar vegna skýrslu Rolfs Ekeus,
embættismanns SÞ, um eyðingu gereyðingarvopna ír-
aka. Þar er fullyrt að írakar hafí beitt blekkingum og
haidið leyndum upplýsingum um vopnasmíði.
Ekeus afhenti skýrslu um eyðingu gereyðingarvopna
í írak á miðvikudag. Ákvörðun SÞ um það hvort refsi-
aðgerðum gegn írökum verður haldið áfram byggist
að stórum hluta á niðurstöðu skýrslunnar.
Ekeus sagði að írakar hefðu gefið starfsmönnum
hans misvísandi og rangar upplýsingar og að þeir hefðu
reynst hafa framjeitt mun öflugri vopn en áður var
talið. M.a. áttu írakar tífalt meira magn af miltis-
brands-birgðum en áður hafði komið fram. Hafði
sýkla-hleðslum í mörgum tilfellum verið komið fyrir í
eidflaugaroddum og voru því tilbúnar til notkunar.
I skýrslunni segir að írakar hafí átt næg vopn til
að „gjöreyða mannkyninu margoft" og að stór hluti
þessara vopna hafí ekki verið eyðilagður. Sagði Ekeus
að skoðunarmenn hans hefðu ekki fengið að sjá nema
brot af efnavopnum íraka, þau hefðu verið vandlega
falin.
- /
„Mikill lygari"
írakar hafa brugðist æfir við skýrslp Ekeus. „Á einni
síðunni segir embættismaðurinn [Ekeus] að írakar
hafi aðstoðað og átt samstarf við nefndina, á þeirri
næstu segir hann að írakar haldi upplýsingum leynd-
um. Þarna stangast fullyrðingar á,“ sagði Taha Mohi-
eddin Ma’rouf, varaforseti íraks. „Hann lýgur. Hann
er mikill lygari," bætti hann við.
Fullvissaði Ma’rouf Sameinuðu þjóðirnar enn á ný
um að írakar myndu vera starfsmönnum þeirra innan
handar. „Auðvitað viljum við að refsiaðgerðunum verði
aflétt en ekki á þeirra skilmálum. Þeir ráðast gegn
sjálfstæði okkar og fullveldi og íraska þjóðin mun ekki
failast á það,“ sagði Ma’rouf.
Verð á lífsnauðsynjum í Baghdad rauk upp er frétt-
ir af innihaldi skýrslu Ekeus bárust í gær. Þá lækkaði
gengi dínarsins gagnvart dollaranum. Bölvuðu búðar-
eigendur Ekeus og sögðu hann helsta mælikvarðann
á matvælaverð í borginni. Gengi dínarsins hækkaði
úr 2.000 og upp í 2.600 dínara gegn dollara og kíló-
verð á eggjum úr 3.000 og upp í 4.000 dínara.
Fullyrðing
Yassers Arafats
Segir
Hamas
hyggja á
framboð
Gaza. Reuter.
YASSER Arafat, leiðtogi
Frelsissamtaka Palestínu-
manna (PLO), sagði í gær að
Hamas-hreyfíngin, sem hefur
lagst gegn friðarsamningum
við ísraela, hefði ákveðið að
taka þátt í kosningum á Vest-
urbakkanum og Gaza-svæðinu
á næsta ári.
„Mikilvægast er að þeir
hafa tekið ákvörðun um þátt-
töku af fullum krafti í öllu
pólitíska ferlinu, meðal annars
kosningum," sagði Arafat við
fréttamenn í Gaza.
Ekki náðist i leiðtoga Ham-
as í gær til að fá þetta stað-
fest. Hreyfingin hefur orðið
tugum Israela að bana í sjálfs-
morðsárásum til að hindra
friðarumleitanirnar. Hún hef-
ur ekki útilokað þátttöku í
kosningunum en krefst þess
að yfirvöld á sjálfstjórnar-
svæðum Palestínumanna setji
lög sem heimili stofnun ýmissa
stjórnmálaflokka.
O.J. Simpson í blaðaviðtali
Bandarí kj amenn
trúa á sakleysi
Burbank. Reuter.
BANDARÍSKA ruðnings-
kempan O.J. Simpson,
sem sýknaður var í síð-
ustu viku af ákæru um
að hafa myrt eiginkonu
sína og vin hennar, kveðst
í samtali við dagblaðið
The New York Times telja
að meirihluti Bandaríkja-
manna sé þeirrar skoð-
unar að hann sé saklaus. Simpson
veitti blaðinu viðtal í kjölfar þess
að hann hætti við að koma fram
í umdeildum sjónvarpsþætti á
AffiC-sjónvarpsstöðinni í fyrrinótt.
„Eg er saklaus maður,“ sagði
Simpson í forsíðuviðtali blaðsins.
Nýlegar skoðanakannanir hafa
leitt í ljós að um 70% bandarísks
almennings telja hann hafa framið
tvö morð. „Ég veit að ég verð að
fá marga til að skipta um skoð-
un,“ sagði hann.
Simpson hringdi á ritstjórnar-
skrifstofur New York Times á
miðvikudag og kvaðst vilja út-
skýra hvers vegna hann hefði
hætt við að koma fram í þætti
NBC. Fyrirhugaður þáttur hafði
vakið harðar deilur en sjónvarps-
stöðin var m.a. sökuð um að ætla
að hagnast á þessum harmleik.
Þegar Simpson tilkynnti
að hann væri hættur við,
kvaðst-hann gera það að
ráði lögfræðinga sinna.
Þeir hefðu sagt sér að
með því að svara spurn-
ingum um málið, kynni
hann að draga úr mögu-
leikum sínum á að veija
sig í einkamáli sem höfð-
að hefur verið á hendur honum.
„Lögmenn mínir sögðu mér að
verið væri að egna fyrir mig gildru.
Þeir sögðu viðtalið myndu jafnast
á við vitnaleiðslur fyrir kviðdómi."
I viðtalinu viðurkennir Simpson
að það hafi verið rangt að neyta
aflsmunar við eiginkonu sína árið
1989. Kvaðst hann vera reiðubú-
inn að ræða við konur sem hafa
orðið fórnarlömb heimilisofbeldis
um hjónabandserfiðleika sína.
Aðspurður sagði Simpson að
réttarhöidin hefðu ekki kostað
hann aleiguna. Kvað hann sam-
komulag vera á milli sín og fyrr-
verandi tengdaforeldra sinna um
forræði tveggja barna hans og að
fjölmiðlar hefðu séð til þess að lit-
arhaft hans hefði leikið svo stóran
þátt í réttarhöldunum sem raun
bar vitni.
Jiang og
Clinton
funda í
New York
ÁKVEÐIÐ hefur verið að leið-
togafundur Jiangs Zemins,
forseta Kína, og Bills Clintons
Bandaríkjaforseta fari fram í
New York 24. október, að sögn
yfirvalda í Peking. Þann dag
verður þess minnst að 50 ár
verða liðin frá stofnun Samein-
uðu þjóðanna og munu Jiang
og Clinton ávarpa allsheijar-
þingið af því tilefni. Með fund-
inum gefst tækifæri til að
bæta samskipti Kínveija og
Bandaríkjamanna sem hafa
versnað eftir að Lee Teng-hui,
forseti Taiwans, heimsótti
Bandaríkin í júní sl.
Afsögn í
Ecuador
ALBERTO Dahik, varaforseti
Ecuador og höfundur umbóta-
stefnu stjórnarinnar, sagði af
sér í gær eftir að hæstiréttur
hafði gefið út handtökutilskip-
un á hendur honum. Dahik er
sakaður um að hafa dregið sér
fé úr opinberum sjóðum og
þykir réttinum sýnt, að nægar
sannanir liggi fyrir.
Línuskautar
bannaðir
BANN hefur verið lagt við
línuskautaiðkun í mörgum al-
menningsgörðum í London í
framhaldi af því að hjólreiða-
maður lést í sumar eftir
árekstur við skautahlaupara í
Hyde Park. Skautarnir hafa
verið gerðir útlægir í St. Ja-
mes’s Park, Green Park, Reg-
ent’s Park og Greenwich Park.
Sérstök svæði hafa hins vegar
verið tekin frá fyrir skauta-
hlaupara í Hyde Park og görð-
um Kensington-hallar.
Forsljóri
myrtur
ANATOLÍJ ívanov, aðstoðar-
forstjóri Baranov-verksmiðj-
anna, sem framleiða hreyfla í
MiG-29 orrustuþotur, var
myrtur í miðborg Omsk í Síb-
eríu í gær. Talið er að leigu-
morðingi hafí verið að verki.
Eftir hrun Sovétríkjanna eru
leigumorð og sprengjutilræði
nær daglegt brauð í rússnesku
viðskiptalífí.
Clarke boðar
skattalækkun
KENNETH Clarke, fjármála-
ráðherra Breta, gaf til kynna
í ræðu á flokksþingi íhalds-
flokksins í Blackpool í gær,
að skattalækkanir væru á
næsta leiti. Flokksmenn urðu
reyndar margir fyrir vonbrigð-
um því að þeir höfðu vonast
eftir því að hann myndi kynna
ákveðnar lækkanir í þeim til-
gangi að auka líkur á sigri
flokksins í næstu kosningum.
Clarke sagði að efnahags-
bati væri orðinn varanlegur
og senn yrði hægt að draga
úr álögum á almenning. Hann
sagðist þó ekki ætla að lækka
skatta til þess að afla sér vin-
sælda, heldur þegar ríkissjóður
hefði efni á því, og gaf til
kynna að þess myndu sjást
merki í næsta fjárlagafrum-
varpi.