Morgunblaðið - 13.10.1995, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNIIVIGAR
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 37
systkini mín tvö og halda til sænsku
skóganna í austri þar sem áin
Ljungan liðast hægt um dal og
bærinn Ange stendur. Meðferðis
hafa þau græna grein úr þeim skógi
sem frændi okkar sáði forðum til
með fræi langt að komnu úr vestri
°g leggja á kistu hans í kveðju- og
þakklætisskyni. Það sýnist vel við
hæfi þeim brautryðjanda sem nú er
allur.
Valborgu ekkju hans og sonun-
um., þeim Gunnari og Birgi og fjöl-
skyldum þeirra votta ég dýpstu sam-
úð við fráfall eiginmanns og föður.
Einar Jónsson.
Ef tveggja ást er vel af guði gjörð
er gengið djarft á móts við örlög hörð.
(Davíð Stef.)
Fögru mannlífi er lokið.
Hjörleifur Zófoníasson organisti
og handíðakennari er látinn. A Læk
í Dýrafirði fæddist hann og þar ólst
hann upp ásamt tveim bræðrum sín-
um hjá góðum foreldrum. Oftlega
samvistum við föðurafa og -ömmu
og frændsystkini sín í Litla-Garði,
sem einnig áttu fyrstu bernskuárin
á Læk. Þau voru bræðrabörn og sá
kærleikur sem tengdi þau í bernsku
var alltaf til staðar, þótt spor full-
orðinsáranna lægju víða og langt
yrði á milli.
Amma sagði sögur, sem með öðru
áttu dijúgan þátt í því að frænd-
systkinahópurinn leit landið sitt,
himin, haf og jörð aðdáunaraugum.
Fundu undur að lifa þegar stormur-
inn blés og brimið svarf ströndina,
jafnt og þegar vorið fór mjúkum
höndum um vaknandi gróður og
sólin lét sér annt um. hinn minnsta
bróður meðal vaxandi blóma.
Þar lærðist frændsystkinunum að
skapari alheims fól mönnum þessa
jörð til þess að annast hana og
rækta - fara aldrei um hana hörðum
höndum. Það væri í raun krafa hans
til mannkyns alls.
Hvemig sem á því stóð virtist
Hjörleifur, sem þó var ekki elstur í
hópnum, verða leiðbeinandi hinna í
að sýna gróðri staka umhyggju og
veita honum þá umönnun, sem síðar
var ætíð sterkur þáttur í ævi hans
sjálfs. Hvar sem hann fór markaði
hann spor þess sem elskar og virðir
móður jörð og fer nærfærnum hönd-
um um gróður hennar.
Þess ber merki fágætur trjágróð-
ur á bernsku- og æskuheimili hans,
Læk í Dýrafirði, og garðurinn þeirra
Valborgar í Ánge. Allur villtur gróð-
ur í margra kílómetra fjarlægð frá
Ánge var þeim hjónum kunnur. Það
var stórkostlegt að sjá þau hlynna
að veikburða tré eða jurt þar, sem
síðar var vakað yfir og vitjað þar
til brós móti sól varð augljóst.
Maður sem virðir svo og ræktar
móður jörð, ræktar einnig fagurt
mannlíf.
Hæglátur, dulur, kærleiksríkur í
dagfari, vandaður í allri umgengni
og þekkti hvorki baktal né agg -
þannig var Hjörleifur. Hann var
virtur kennari og organisti - enda
heiðraður fyrir störf sín á því sviði.
Samleið þeirra Valborgar var
„blómum stráð“ í þeim skilningi,
allt til loka, þótt sorgir, og stundum
stórar, mættu þeim á lífsleiðinni
eins og flestum. í alvarlegum veik-
indum Hjörleifs, tæp síðustu tvö ár,
hefur Valborg reynst svo sterk og
sönn að undrun getur sætt.
Synir þeirra tveir, báðir verk-
fræðingar, hafa sýnt foreldrum sín-
um sama ástríki og þeir ólust upp
við. Heimilislífið mótaðist ávallt af
ást og virðingu er var eðiislæg mik-
ilhæfri eiginkonu og móður - og
móðurömmu er dvaldi síðustu
æviárin á heimilinu.
Þegar litið er langt aftur í liðna
tíð þakkar lítil stúlka handleiðslu
elskaðs frænda, sem leiddi hana og
fræddi um þau undur lífsins er fól-
ust í fegurð náttúrunnar og skyldum
okkar mannanna að rækta og bæta.
Að sitja við sjúkrabeð Hjörleifs í
sumar og geta aðeins rifjað upp
nokkrar vísurnar hennar ömmu okk-
ar á Læk, í yl ástar og vonar er
fyllti sjúkrastofu frá líknandi hönd-
um eiginkonu hans, er minning sem
gerir tilveruna bjartari. Við Gyða
skólasystir okkar og vinkona þeirra
gleymum ekki samverunni í sumar.
Eisku Valborg og synir, við skóla-
systur og vinkonur hér heima send-
um ykkur og öðrum ástvinum ein-
lægar samúðarkveðjur - þær kveðj-
ur verða margar sem leita til ykkar
yfir hafið nú. Hvíl í friði, elsku
frændi.
Jenna Jensdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við
fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður ög afa,
JÓNS ÞÓRÐARSONAR,
Árbæ.
Elfsabet Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Guðlaug Jónsdóttir,
Þórður Magnús Jónsson, Ása Björg Stefánsdóttir,
Valdimar Ólafur Jónsson, Steinunn Erla Þorsteinsdóttir
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÓLÍNA SIGURÐARDÓTTIR,
Hrafnistu,
andaðist í Landspítalanum 24. september. Bálför hefur farið fram.
Þökkum samúð og hlýhug.
Hanna Sigurðardóttir, Hilmar Skarphéðinsson,
Anna Sigurðardóttir, Skúli Jóhannesson,
Katrín Egilsdóttir,
Sólbjört Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Skrifstofur Fiskveiðasjóðs íslands verða lokaðar
eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar
ÞÓRDÍSAR BJARNADÓTTUR.
Fiskveiðasjóður.
RAÐAUG[ YSINGAR
Rekstrarstjóri á
veitingastað IKEA
Óskum að ráða rekstrarstjóra veitingastaðar
IKEA. Um er að ræða skemmtilegt starf
í vaxandi fyrirtæki.
Umsækjandi þarf að uppfylla eftirfarandi:
1. Þarf að hafa reynslu af stjórnun.
2. Eigi gott með að starfa með fólki.
3. Sé framtakssamur.
4. Sé metnaðarfullur.
5. Sé tilbúinn að vinna langan vinnudag.
6. Sé á aidrinum 25-40 ára.
7. Hafi reynslu af áætlanagerð.
8. Hafi góða enskukunnáttu.
9. Grunnþekkingu á tölvum.
Skriflegar umsóknir, er tilgreini aldur, fyrri
störf og annað, sem til greina kemur varð-
andi þetta starf, skulu sendar fyrir mánudag-
inn 16. október nk.
Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem
trúnaðarmál og öllum svarað.
IKEA,
co. Gestur Hjaltason,
pósthólf4030,
'124 Reykjavík.
Hrossauppboð
Laugardaginn 14. október nk. kl. 14 verður
haldið uppboð á 85 hrossum að Árbakka í
Hróarstungu, Norður-Múlasýslu, (u.þ.b. 6 km
neðan við nýju Jökulsárbrúna).
Hrossin eru úr þrotabúi Guðmundar Sveins-
sonar að Bakka í Borgarfirði eystra.
Skiptastjóri.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Ásavegur 18, efri hæð og ris, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Óskar
F. Óskarsson og Þorbjörg H. Gunnarsdóttir, gerðarbeiðendur hús-
bréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, S. ída hf. og Vestmannaeyja-
bær, miðvikudaginn 18. október 1995 kl. 16.00.
Faxastígur 8a, efri hæð og ris (50%), Vestmannaeyjum, þingl. eig.
Guðmundur Pálsson, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki íslands, Sel-
fossi, miðvikudaginn 18. október 1995 kl. 16.30.
Foldahraun 40, 2. hæð C, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Hafsteinn
Hermaníusson, gerðarbeiðendur Húsfélagið Foldahrauni 40 og Vest-
mannaeyjabær, miðvikudaginn 18. október 1995 kl. 17.00.
Miðstræti 24, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Jóhann Friðrik Gíslason,
gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær, miðvikudaginn 18. október 1995
kl. '18.00.
Sólhlíð 3, néðri hæð, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Óskar Pétur Frið-
riksson og Torfhildur Helgadóttir, gerðarbeiðandi Fannberg Jóhanns-
son, miðvikudaginn 18. október 1995 kl. 17.30.
Sýslumaðurinn i Vestmannaeyjum,
10. október 1995.
Brynhiidur Georgsdóttir, ftr.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 1,
3. hæð, þriðjudaginn 17. október 1995 kl. 14.00 á eftirfarandi eignum:
Aðalgata 32, Súðavík, þingl. eig. Hilmar Guðmundsson, gerðarbeiö-
andi Lífeyrissjóður Vestfirðinga.
Aðalstræti 19, n.h., Þingeyri, þingl. eig. Þorvaldur Ottósson, gerðar-
beiðandi Tollstjórinn í Reykjavfk.
Brekkugata 44, Þingeyri, þingl. eig. Sigurður Jónsson, gerðarbeið-
andi Lífeyrissjóður Vestfirðinga.
Hjallavegur 5, Flateyri, þingl. eig. Flateyrarhreppur, geröarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins.
Sætún 10, 0101, Suðureyri, þingl. eig. Suðureyrarhreppur, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Sætún 10, 0102-, Suðureyri, þingl. eig. Suðureyrarhreppur, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Túngata 27, n.h. Suðureyri, þingl. eig. Hjördís M. Guðmundsdóttir,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Túngata 9, Suðureyri, þingl. eig. Suðureyrarhreppur, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins.
Ytri Hjarðardalur, Mosvallahreppi, V-(s., þingl. eig. Jón Jens Kristjáns-
son, gerðarbeiðandi Glóbus hf.
Framhald uppboðs á eftlrtaldri eign verður háð á henni sjálfri sem
hér segir:
Strandgata 5, 0202, e.h., isafirði, þingl. eig. Bjarni Maríus Heimis-
son og Sigríður Dagný Þrastardóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóð-
ur ríkisins, húsbréfadeild, Landsbanki (slands og (slandsbanki hf.,
(safirði, 16. október 1995 kl. 10.30.
Sýslumaðurinn á isafirði,
12. október 1995.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Heiðarvegi 15,
Vestmannaeyjum, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Áshamrar 67, 3. hæð (2 herb. íbúð), Vestmannaeyjum, þingl. eig.
Stefán S. Harðarson, gerðarbeiðandi húsbréfadeild Húsnæðisstofn-
unar ríkisins, fimmtudaginn 19. október 1995 kl. 10.00.
Áshamar 71,2. hæð E, Vestmannaeyjum, þingl. eig Húsnæðisnefnd
Vestmannaeyja, gerðarbeiðandi Byggingarsjóöur verkamanna,
fimmtudaginn 19. október 1995 kl. 10.00.
Áshamar 75, 3. hæð B, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Erna Fannbergs-
dóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, fimmtudaginn
19. október 1995 kl. 10.00.
Faxastígur 21, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Ásdís Gísladóttir, gerðar-
beiðandi húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, fimmtudaginn
19. október 1995 kl. 10.00.
Foldahraun 41, 2. hæð D, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Helga Ólafs-
dóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóöur verkamanna, fimmtudaginn
19. október 1995 kl. 10.00.
Foldahraun 42, 2. hæð D, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Húsnæðis-
nefnd Vestmannaeyja, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna,
fimmtudaginn 19. október 1995 kl. 10.00.
Goðahraun 24, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Guðmundur Elmar Guð-
mundsson og Kristin Kjartansdóttir, gerðarbeiðandi Lánasjóður ísl.
námsmanna, fimmtudaginn 19. október 1995 kl. 10.00.
Heiðarvegur 1, 2., 3., 4. hæð (66,25%), Vestmannaeyjum, þingl.
eig. Ástþór Rafn Pálsson, gerðarbeiðandi Atvinnuþróunarsjóður
Suðurlands, fimmtudaginn 19. október 1995 kl. 10.00.
Helgafellsbraut 19, (50%), Vestmannaeyjum, þingl. eig. Pétur Árn-
marsson, gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær, fimmtudaginn 19.
október 1995 kl. 10.00.
Herjólfsgata 4, Heiöarvegur 1 (33,75%), Heiðarvegur 3, þingl. eig.
Ástþór Rafn Pálsson, gerðarbeiðandi Ferðamálasjóður, fimmtudag-
inn 19. október 1995 kl. 10.00.
Kirkjubæjarbraut 11, efri hæð, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Ragnar
(saksson og Ásta Ragnheiður Rafnsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingar-
sjóður ríkisins, fimmtudaginn 19. október 1995 kl. 10.00.
Kirkjubæjarbraut 16, efri hæð og ris, Vestmannaeyjum, þingl. eig.
Jón Ólafur Ólafsson, gerðarbeiöandi Fjárfestingarfélagið Skandía
hf., fimmtudaginn 19. október 1995 kl. 10.00.
Kirkjuvegur 70B, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Trausti Kristjánsson,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og húsbréfadeild Hús-
næðisstofnunar ríkisins, fimmtudaginn 19. október 1995 kl. 10.00.
Miðstræti 28, austurendi, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Sigtryggur
Þrastarson, gerðarbeiðandi Vestmannaeyjarbær, fimmtudaginn 19.
október 1995 kl. 10.00.
Nýjabæjarbraut 3, neðri hæð, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Heiða
B. Scheving, gerðarbeiðenur húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins, sýslumaðurinn i Hafnarfirði og sýslumaðurinn f Vestmannaeyj-
um, fimmtudaginn 19. október 1995 kl. 10.00.
Sigurborg VE-121 (skipaskrnr. 1019), þingl. eig. Sæhamarhf., gerðar-
beiðandi Byggðastofnun, fimmtudaginn 19. október 1995 kl. 10.00.
Vestmannaeyjabraut 32, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Jón Högni
Stefánsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og íslands-
banki hf., fimmtudaginn 19. október 1995 kl. 10.00.
Vesturvegur 13A, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Anna Sigmarsdóttir,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Lífeyrissjóður Dags-
brúnar og Framsóknar, fimmtudaginn 10. október 1995 kl. 10.00.
Sýslumaðurínn í Vestmannaeyjum,
12. október 1995.
Brynhildur Georgsdóttir, ftr.