Morgunblaðið - 13.10.1995, Side 40
40 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Dýraglens
C1995 Tribune Media Senrices, Inc.
AJl Rights Resefved.
Ferdinand
BREF
TIL BLADSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Orgel í Lang-
holtskírkju
Frá Guðmundi E. Pálssyni:
SÓKNARNEFND Langholtskirkju
hefur nú ákveðið að festa kaup á
orgeli frá Noack orgelverksmiðjunni
í Bandaríkjunum.
Þetta er 33 radda orgel í barr-
okkstíl sem verður staðsett við aust-
urgafl kirkjunnar og hefur raddskip-
an og gerð orgelsins fengið mjög
lofsamlega dóma frá orgelnefnd
þjóðkirkjunnar og segir meðal ann-
ars í dómi hennar: „Að öðru leyti
viljum við í orgelnefndinni lýsa
ánægju okkar með að veglegt orgel
muni koma í kirkjuna, því hljóm-
burður er þannig að litríkt orgel mun
geta hljómað þar mjög vel. Þar að
auki erum við sérstaklega ánægðir
með þann orgelsmið sem fyrir valinu
hefur orðið, sem er mikil trygging
þess að orgelið verði öllum til
ánægju."
Nú hafa safnast um 15 milljónir
og því má líta svo á, að það sé fyrsti
áfangi af þremur en áætlaður kostn-
aður er um 42 milljónir með virðis-
aukaskatti. En fjórðung verðs þarf
að borga við undirritun samnings
og eftirstöðvamar á næstu þremur
áram. Það er sá tími sem það tekur
orgelsmiðjuna að afhenda orgelið
uppkomið í kirkjunni.
Dagana 15. og 18. október verða
hinir árlegu orgelstyrktartónleikar,
en það era tónleikar sem haldnir eru
fyrir styrktaraðila orgelsöfnunar.
Margir af fremstu listamönnum
þjóðarinnar hafa komið þar fram og
gefið vinnu sína, enda er Langholts-
kirkja eitt fjölsóttast tónleikahús
landsins og því mikið kappsmál tón-
listaráhugafólks almennt að þar
komi veglegt hljóðfæri. Á þessum
tónleikum koma fram, auk Kórs
Langholtskirkju, Karlakór Reykja-
víkur undir stjóm Friðriks D. Krist-
inssonar og Sigrún Hjálmtýsdóttir,
ásamt Önnu Guðnýju Guðmunds-
dóttur.
Með þessum tónleikum viljum við
blása til sóknar að upphafí annars
áfanga orgelsöfnunar.
- Hér með er skorað á alla velunn-
ara Langholtskirkju að taka höndum
FRUMHUGMYND að
útliti orgelsins.
saman og ljúka byggingu kirkjunnar
með því að kaupa veglegt hljóðfæri
í hana.
GUÐMUNDUR E. PÁLSSON,
formaður sóknarnefndar.
♦ ♦ ♦
Studdi Pét-
ur J. Thor-
steinsson
Frá Sigurði Líndal:
í GREIN i Morgunblaðinu föstudag-
inn 6. október sl. um forsetakosning-
arnar 1980 er nafn mitt nefnt meðal
þeirra sem studdu Guðlaug Þorvalds-
son opinberlega. Ekki kannast ég við
þetta. Eg studdi Pétur J. Thorsteins-
son þótt ekki hefði ég mig mikið í
frammi — og þetta gerði ég að öðrum
frambjóðendum ölöstuðum.
Smáfólk
50 WEIL
PUT ALL
THE 5ANP
RI6HT
AB0UT
BUT REMEM8ER,
UIHEEL8ARR0W5
TIP OVER
EA5ILV SO
DON'T PU5H
IT T00 FA5T..
_________Q 1995 Untlad Faaluf Syndicala. Inc.
6-21
1
ryp,
Keppnissundlaug
íGrafarvog
Frá Þórdísi G. Stephensen:
FYRIR skömmu barst frétt um að
borgaryfirvöld hygðust reisa yfír-
byggða keppnissundlaug. Slík hug-
mynd er vissulega jákvæð og getur
dregið að erlent keppnisfólk um leið
og hún þjónar vel íslensku sund-
íþróttafólki. Vora nefndirtveir staðir
sem mögulegir byggingarstaðir fyrir
keppnissundlaugina. I fyrsta lagi
Laugardalurinn, þar sem er nú þegar
mikið íþróttasvæði og síðan Grafar-
vogurinn.
Undirrituð telst til 'frumbýlinga í
Grafarvogi. Þar er nú risið stórt
hverfí og era barnafjölskyidur áber-
andi í hverfínu. Fyrir löngu var því
lofað að fjölskyldusundlaug yrði reist
í hverfínu við núverandi íþróttahús.
Þar er skjólsæll dalur miðsvæðis í
hverfinu og hvergi betra að hýsa
opna almenningssundiaug. Slík laug
myndi þjóna prýðilega hinu barn-
marga hverfí sem fer sístækkandi
og væri mikið fagnaðarefni fyrir íbú-
ana. Lokuð keppnislaug á ekki heima
á slíkum stað.
í Laugardalnum er eins og áður
sagði mikið íþróttasvæði og góð að-
staða fyrir keppnisíþróttir. Lokuð
keppnislaug styrkir það svæði mjög
og má þar samnýta ýmsa aðstöðu
fyrir keppnisfólkið. Fjölskyldulaugin
á heima í Grafarvoginum og eru íbú-
ar teknir að gerast langeygðir.
Bestu kveðjur,
ÞÓRDÍS G. STEPHENSEN,
Hverafold 96, Reykjavík.
Svo við setjum sandinn rétt um það bil
hérna... En mundu að hjólbörur velta
auðveldlega, svo ekki ýta þeim of hratt...
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teijast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að iútandi.