Morgunblaðið - 05.11.1995, Qupperneq 40
40 SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Vaskhugi hf.:
Yfír milljarð í laun
Forritið Vaskhugi er fullkomið bókhaldsforrit sem hentar
flestum rekstri. Um þúsund aðilar nota Vaskhuga um allt
land. Vaskhugi kemur tilbúinn til notkunar og krefst ekki
'sérstakrar tölvu- eða bókhaldskunnáttu. Um þessar
mundir áætlum við að um milljarður króna hafi verið
greiddur út með launabókhaldi Vaskhuga, sem þó kostar
aðeins kr. 48.000! Eitt forrit með öllu: Vaskhugi.
Hringið og fáið sendar upplýsingar um
Yaskhuga.
llíváskhugi hf. Skeifunni 7, sími 568 2680.
AUKIN
URÉTTIN
Námskeið til
aukinna ökuréttinda
hefst miðvikudaginn
8. nóvember kl. 18
Upplýsingar í síma 567 0300
frá kl. 13 - 20 alla virka daga.
OKUSKOLINN i MJ
arabakka 3, Mjóddinni, sími 5j if 0300.
Ábendingar á mjólkunimhúdum, nr. 16 af'60.
Att þú við
ramman reip
að draga?
Það er gaman að velta fyrir sér
merkingu og uppruna
orðatiltækja.
Orðatiltækið „að eiga við
ramman reip að draga“
merkir að erfítt er að
fást við eitthvað.
Hér er talað um
að eiga að draga
reip (= reipi)
við ramman
(= sterkan),
þ.e. að vera
í reiptogi við
sterkan mann.
Notum orðatiltækið rétt!
—zx
MJÓLKURSAMSALAN
íslenskufrœðsla á mjólkurumbúðum er samstarfsverkefni Mjólkursamsölunnar,
íslenskrar múlnefndur og Múlrœktarsjóðs.
í DAG
SKÁK
llmsjðn Margcir
Pétursson
Svartur leikur og
vinnur
STAÐAN kom upp í
deildakeppni Skáksam-
bands Islands um dag-
inn. Sveinn Ingi Sveins-
son (1.905), Taflfélagi
Vestmannaeyja var með
hvítt, en Jóhann Þórir
Jónsson (1.940), Taflfé-
lagi Reykjavíkur, C sveit,
var með svart og átti leik.
26. — g3+! (En alls ekki
26. - Dxf4+ 27. Kgl -
De3+ 28. Khl og það er
hvítur sem hefur stórsókn
og vinnur) 27. Dxg3 —
Re4+! 28. Rxe4 - Hxf4+
29. Dxf4 - Dxf4+ 30.
Ke2 — Bg4+ og hvítur
gafst upp.
Byijun skákarinnar
fær að fljóta með, því
herfræði svarts er býsna
athyglisverð. Hann
hirðir ekki hætis hót
um að dulbúa áform
sín um sókn á hvíU
kónginn og ryðst fram
án þess að hugsa neitt
um eigin vamir. Það
er vissulega virðingar-
vert að ganga svo
hreint til verks, en þó
varla til eftirbreytni:
Hollensk, gijótgarðs-
afbrigðið, 1. d4 — d5
2. Rf3 - Rf6 3. g3 -
Re4!? 4. Bg2 — e6 5. 0-0
- Bd6 6. c4 - c6 7. a4?!
- Rbd7 8. Dc2 - f5 9.
Rc3 - Df6 10. e3 - g5!?
11. Rd2 - h5 12. cxd5 -
exd5 13. Rxe4 — fxe4 14.
f3 - exf3 15. Bxf3?! -
Dg7 16. Dd3 - g4 17.
Bg2 — h4 18. e4 — hxg3
19. hxg3 - Dh7 20. Re2
- Dh2+ 21. Kf2 - Rf6?
(21. - Hf8+!) 22. exd5 -
cxd5 23. Rc3? (23. Dg6+
vinnur) 23. - Hf8 24.
Dg6+ - Hf7 25. Bf4 -
Bxf4 26. gxf4 og nú er
komin upp staðan á stöðu-
myndinni.
HÖGNIHREKKVÍSI
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Hjól tapaðist
DÖKKGRÁBLÁTT hjól
af gerðinni Mongoose
Alfa með álstýri tapaðist
frá Eskihlíð 12. aðfara-
nótt sl. fostudags. Þetta
er í þriðja skipti sem hjól
er tekið frá þessum
dreng og eru allir sem
eitthvað kunna að vita
um þetta hjólhvarf beðn-
ir að láta Brynjólf vita í
síma 551-2436.
Penni
tapaðist
GYLLTUR, grannur,
nokkuð þungur penni
tapaðist fyrir u.þ.b. fjór-
um vikum. Inni í pennan-
um er stimpill með nafni
eigandans og kennitölu.
Viti einhver hvar þessi
penni er niðurkominn er
hann vinsamlega beðinn
að láta vita í síma
553-7837.
Með morgunkaffinu
VILTU koma hingað og
segja mér hvað þú gerð-
ir við litla bróður þinn.
COSPER
Víkveiji skrifar...
T3 EYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR
XV er, að mati Víkveija, ásinn,
sem innanlandsflug okkar snýst
um. Ef hann verður lagður niður
og hlutverk hans fært yfír á Kefla-
víkurflugvöll getur það þýtt að end-
ir sé bundinn á innanlandsflug okk-
ar.
Hvers vegna? Skoðum málið.
Varanlegt slitlag þjóðvega gerir
þá greið- og fljótfarnari en áður.
Þjóðvegalengdir hafa og stytzt ár
frá ári. Og nú er talað um göng
undir Hvalfjörð. Ef Reykvíkingar
þurfa í náinni framtíð að aka til
og frá Keflavík til að fljúga til
staða innanlands, t.d. til Sauðár-
króks, sýnist mun einfaldara, hag-
kvæmara og ódýrara að aka þang-
að á eigin bíl.
Til skamms tíma var reglubundið
áætlunarflug til Blöndóss. Það
heyrir nú sögunni til - með betri
landsamgöngum. Ef Reykjavíkur-
flugvöllur verður lagður niður og
aka þarf dijúgan spotta á innan-
landsflugvöll týnast fjölmargar aðr-
ar „flugleiðir" í sömu „glatkistuna"
og Blöndóssflugið - og trúlega inn-
anlandsflugið að stórum hluta og
störf mörg er því heyra til. Trauðla
styrkir það atvinnulíf í höfuðborg-
inni né skatttekjur Reykjavíkur-
borgar.
Það kemur því Víkveija spánskt
fyrir sjónir þegar einn af oddvitum
R-listans talar um „niðurlagningu"
Reykjavíkurflugvallar sem það er
koma skal samkvæmt kokkabókum
nýrrar borgarmálaforystu!
xxx
VÍKVERJI gluggaði á dögunum
í frumvarp til fjáraukalaga
fyrir árið 1995. Þar eru ýmsar stór-
ar tölur sem eiga það sameiginlegt
að vera allar dregnar upp úr vösum
skattborgaranna.
Rekstrarkostnaður ríkissjóðs
tekur til sín 47 milljarða króna,
þ.e. 47 þúsund milljónir króna.
Engir smáaurar það! Annar út-
gjaldaþáttur er samt sem áður heil-
um milljarði króna þyngri en rekstr-
arkostnaðurinn: „neyzlu- og rekstr-
artilfærslur".
í neyzlu- og rekstrartilfærslum
1995 eru lífeyristryggingar fýrir-
ferðarmestar, 17 milljarðar króna.
Sjúkratryggingar næstar, tíu millj-
arðar. Greiðslur vegna búvörufram-
leiðslu eru með 5,1 milljarð. At-
vinnuleysistryggingasjóður með 3,5
milljarða. Jöfnunarsjóður sveitarfé-
laga með 2 milljarða. Lánasjóður
íslenzkra námsmanna með 1,5 millj-
arð. Uppbætur á lífeyri 870 m.kr.
Slysatryggingar 540 m.kr. Aðrir
minna.
Auk þessara tveggja meginút-
gjaldaþátta, rekstrarkostnaðar og
neyzlu- og rekstrartilfærslna,
gleypir samansöfnuð skuldasúpan
12,6 milljarða króna í vaxtagjöld
ein saman, eða meira en stofnkostn-
aður (vegamál, hafnamál, heilbrigð-
isstofnanir o.fl.), sem er með 11,9
milljarða. Aðrir þættir eru smærri.
xxx
HEILDARTEKJUR ríkissjóðs
1995, samkvæmt endurskoð-
aðri áætlun, nema 114,4 milljörðum
króna. Þetta er sú fjárhæð sem
fólk og fyrirtæki greiða á árinu í
eyðsluskatta (virðisauka, tolla o.fl.)
og tekjuskatta. En ríkisbúskapur-
inn áætlar að eyða gott betur, eða
123,3 milljörðum króna. Mismunur-
inn bætist ofan á skuldafjallið, sem
kostar tólf þúsund og sex hundruð
milljónir í vexti 1995.
í þjóðhagsáætlun fyrir komandi
ár segir að heildarskuldir hins opin-
bera, ríkissjóðs og sveitarfélaga,
fari í um það bil 253 milljarða króna
á þessu ári. Þetta samsvarar 56%
af landsframleiðslu. Hreinar skuldir
nema hins vegar um 160 milljörðum
króna,, eða um 35% af landsfram-
leiðslu. Erlend lán eru rúmlega
helmingur heildarskulda bins opin-
bera.
Víkverji er þeirrar skoðunar að
síðustu árin hafi verið stigið all-
nokkuð á opinberar útgjaldabrems-
ur og að dregið hafí úr sjálfvirkum
hækkunum frá ári til árs. En betur
má ef duga skal. Byijandi efna-
hagsbata verður að nota, að mati
Víkverja, til að vinda ofan af skuld-
unum. Ef ekki, komumst við vart
út úr vítahring umframeyðslunnar
heilskinnuð.