Morgunblaðið - 10.11.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.11.1995, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B/C 257. TBL. 83. ÁRG. FÖSTUDAGUR10. NÓVEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Samkomulag um ríkjasamband Sar^jevo, Belgrad, Moskvu. Reuter. FULLTRUAR Króata og stjómar múslima í Sarajevo á friðarráðstefn- unni í Ohio náðu í gær bráðabirgða- samkomulagi um að treysta lauslegt ríkjasamband þjóðanna. Ákvæði er um að flóttafólki verði leyft að snúa heim. Búist var við að Bandaríkja- menn legðu nýjar friðartillögur fyrir fulltrúa deiluaðila í Bosníu í dag. Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Haag lagði í gær fram ákærur á hendur þrem liðsforingjum í her Serbíu vegna meintra fjölda- morða á óbreyttum borgurum í króa- tísku borginni Vukovar árið 1991. Serbneskur embættismaður taldi í gær ólíklegt að Slobodan Milosevic forseti féllist á að framselja mennina. Borís Jeltsín Rússlandsforseti beitti í gær neitúnarvaldi gegn til- lögu þingsins um að Rússar afléttu einhliða viðskiptabanni á Serbíu. Hann sagði að Rússar gætu ekki brotið gegn alþjóðlegum skuldbind- ingum sínum, auk þess væri tillagan brot á stjómarskrá Rússlands. Mótmæla kjarnorku- tilraunum NÝSJÁLENSKIR andstæðingar lgarnorkutilrauna Frakka á Mur- uroa með grímur er minna á John Major, forsætisráðherra Breta, á útifundi í borginni Auckland í gær. Major tekur þátt í leiðtoga- fundi samveldisríkja á Nýja-Sjá- landi. Þarlendir hafa lýst megnri óánægju með þá afstöðu hans að fordæma ekki tilraunimar. Bret- ar og Frakkar em einu þjóðir Evrópusambandsins sem eiga kjamorkuvopn. Rætt um að vísa Nígeríu úr samveldinu Dauðadómar fordæmdir Lagos, Auckland. Reuter. NIGERÍSK mannréttindasamtök hvöttu í gær Vesturlönd til að reyna að koma í veg fyrir aftöku á níu fulltrúum minnihlutasamtaka, er dæmdir voru til dauða á miðviku- dag. Ken Saro-Wiwa, rithöfundur og forseti samtaka Ogoni-ættbálks- ins, og átta fylgismenn hans eru sakaðir um morðið á fjórum Ogoni- mönnum á síðasta ári-. Evrópusambandið (ESB), Banda- ríkjastjórn og listamenn um allan heim hvöttu í gær Nígeríustjórn til að sýna mildi, ESB lét í það skína að samskiptin við landið gætu ella beðið hnekki. Leiðtogar ríkja breska samveldisins koma saman á fundi í Auckland á Nýja-Sjálandi í dag og er búist við að málefni Nígeríu verði þar ofarlega á baugi. Robert Mugabe, forsætisráðherra Zimbabwe, sagði í gær að hann teldi koma til greina að reka Níger- íu úr samveldinu verði mennirnir teknir af lífi. Desmond Tutu, erk- ibiskup í Suður-Afríku, tók í sama streng. Sonur Saro-Wiwa, Ken Wiwa, er í Auckland til að mæla fyrir mál- stað föður síns en ekki er ljóst hvort Sani Abacha; leiðtogi nígerísku her- foringjastjórnarinnar, hyggst sitja fundinn. Ken Wiwa sagði í gær að ljóst væri að með því að staðfesta dauðadómana svo skömmu fyrir leiðtogafundinn hafi Nígeríustjóm greinilega verið að ögra samveld- inu. John Major, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að réttar- höldin yfir níumenningunum hefðu verið gölluð og að dómarnir væru óréttlátir. Olíuhagsmunir í Ogonilandi Olíufyrirtækið Shell, sem hefur yfirburðastöðu í olíuvinnslu í Níger- íu, sagðist harma dauðadómana en jafnframt var tekið fram að fyrir- tækið gæti ekki haft afskipti af málinu. Shell dælir upp helmingi allrar olíu í Nígeríu en hefur ekki verið með starfsemi í Ogonilandi frá árinu 1993 vegna innbyrðis deilna ættbálka þar. Ráðamenn Nígeríu eru sagðir misnota aðstöðu sína óspart til að auðgast sjálfir á olíu- lindunum. Fimmtíu og tvö ríki eiga aðild að samveldinu og er talið að meiri- hluti þeirra sé ekki hlynntur því að útiloka Nígeríu. Nelson Mandela, forseti Suður-Afríku, Jim Bolger, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, og Mahathir Mohamad, forsætisráð- herra Malasíu, voru meðal þeirra sem fordæmdu dauðadómana í gær en tóku jafnframt fram að þeir teldu ekki rétt að reka Nígeríu úr sam- veldinu. Sahlin sögð hætt við Rannsókn ísraelskra yfirvalda á morðinu a Yitzhak Rabm Vaxandi grunur um samsæri Reuter LÖGREGLUMAÐUR í ísrael heldur á kassa með sönnunargögn- um sem fundust á heimili Yigals Amirs, morðingja Yitzhaks Rabins. Fimm hafa þegar verið handteknir vegna tilræðisins, allt ungir menn og öfgafullir þjóðernissinnar. Tel Aviv. Reuter. MOSHE Shahal, ráðherra lögreglu- mála í ísraelsku stjórninni, sagði í gær að lögreglan væri komin á þá skoðun, að samtök sem verið hefðu á öndverðum meiði við stefnu Yitzh- aks Rabins forsætisráðherra og haft að markmiði að koma í veg fyrir friðargjörð í Miðausturlöndum, hefðu lagt á ráðin um morðið á honum sl. laugardagskvöld. „Við teljum að hópur manna hafí staðið fyrir samsæri [um morðið], þeir hafi ráðið yfir búnaði til þess og undirbúið sig mjög vel,“ sagði Shahal. Alls hafa nú fjórir menn verið handteknir í tengslum við rannsóknina á morðinu auk morð- ingjáps, Yigals Amirs. Allir eru þeir strangtrúaðir gyðingar á þrítugs- aldri og flestir háskólanemar. Shahal gaf til kynna að enn fleiri væru bendlaðir við tilræðið. Menn- irnir sem væru í haldi væru auk þess að bera ábyrgð á morðinu á Rabin taldir hafa skipulagt morð á fleiri stjórnmálamönnum. . Ráðherrann sagði lögregluna einnig kanna hvort nokkrir rabbín- ar, andvígir stefnu Rabins, hefðu lagt blessun sína yfír morðið á ráð- herranum. Fullyrt er að þeir hafi sagt stúdentum að slíkur verknaður væri sjálfsvörn og því réttmætur. Handsprengjur og hvellhettur Jafnframt skýrði lögreglan frá því í gær að hún hefði fundið vel falið vopnabúr á heimili Amirs og fjölskyldu hans. Foreldrarnir sögð- ust ekki hafa haft hugmynd um atferli sonarins, móðirin grét og bað ekkju Rabins að reyna að fyrirgefa. Lögreglan sagði þetta vopnabúr sem „hvaða hryðjuverkasamtök sem væri hefðu verið stolt af“. Þar fundust kynstrin öll af handsprengj- um, sprengiefnum og hvellhettum. Augljóst þykir að Amir hafí ekki verið einn um að byggja vopnabúr- ið upp og rennir tilvist þess frekari stoðum undir tilgátuna um skipu- lagt samsæri gegn Rabin. Öryggisvörður um Shimon Peres forsætisráðherra og aðra stjóm- málamenn var stórefldur í gær og hlupu verðir með brynvarinni Cad- illac-bifreið hans. Peres sagði í upphafí viðræðna við Malcolm Rifkind, utanríkisráð- herra Bretlands, í gær, að tilraunum til að semja um allsheijar friðargjörð fyrir Miðausturlönd yrði ekki ein- ungis haldið áfram, heldur settur í þær aukinn kraftur svo sem verið hefði einlægur vilji Rabins. Grafír tveggja öfgafullra gyð- ingaleiðtoga vom saurgaðar í gær og nokkrir menn hafa verið hand- teknir eða reknir úr starfi fyrir að lýsa ánægju með morðið á Rabin. Talsmaður Benjamins Netanyahu, leiðtoga hins hægrisinnaða Iikud- flokks, sagði í gær að leiðtoganum hefðu borist morðhótanir. Ekkja for- sætisráðherrans, Leah Rabin, hefur sakað Netanyahu um að hafa æst til óhæfuverka með hatursfullum áróðri gegn stefnu Rabins. Veggja- krot þar sem Peres er hótað lífláti hefur sést á nokkmm stöðum. Stokkhólmi. Reuter. SÆNSKA dagblaðið Expressen staðhæfði í gær að Mona Sahlin hefði endanlega ákveðið að sækjast ekki eftir formennsku í Jafnaðar- mannaflokknum. Lögreglurannsókn fer nú fram á meintri misnotkun hennar á opin- beru greiðslukorti. í síðustu viku fór Sahlin í frí til eyjunnar Mauritius í Indlandshafi og segja sænskir fjölmiðlar að það hafi lagst mjög illa í stuðningsmenn flokksins, sem fæstir hafi efni á slík- um munaðarferðum. ■ Dagar Sahlin/18 -----» ♦ ♦---- Stytt mara- þonhlaup London. The Daily Telegraph. LIAM Rowe, 36 ára gamall maður sem tók þátt í maraþonhlaupi í Dublin, hefur gengist við svindli. Mörgum fannst grunsamlegt að Rowe, algerlega óþekktur hlaupari, skyldi verða sjöundi af um 3.000 þátttakendum. Hann segist hafa lát- ið „stemmninguna" taka af sér ráð- in og slegist í hópinn þegar nokkrir kílómetrar voru eftir en hlaupið er um 42 km. „Ég hljóp svo hratt að ég var alveg örmagna og varð að setjast niður á eftir.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.